Alþýðublaðið - 23.08.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1996
21164. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Staða Alþýðuflokksins
Á miðvikudag var í Alþýðublaðinu rætt við ýmsa áhrifamenn í
Alþýðuflokknum vegna flokksþings sem haldið verður í nóvem-
ber. Niðurstaða þeirra um stöðu flokksins var í stórum dráttum
dregin saman í íýrirsögn: Góð málefnastaða - en innra starf lítið
sem ekkert. Ummæli viðmælenda blaðsins um innra starf flokks-
ins vom á einn veg. Steindór Ögmundsson bæjarfulltrúi í Vestur-
byggð: „Innra starf flokksins er eitt stórt núll. Ég hef orðið voða-
lega lítið var við það síðustu tvö árin. Það er tómt mál að tala um
einhver stefnumál ef flokkurinn er að deyja.“ Birgir Dýrfjörð
þinglóðs: „Innra starf flokksins hefur verið ákaflega bæklað síð-
astliðið ár, svo ekki sé meira sagt.“ Magnús Hafsteinsson for-
maður Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar: „Innra starf flokksins
er ekki gott. Jafnvel þó menn sýni einhvem ht, þá er slegið á putt-
ana á þeim.“ Hrönn Hrafnsdóttir: ,,En ef ég á að segja alveg eins-
og er, þá er doði yfir flokksstarfinu í heild. Því núður. Og ég veit
ekki hvað er að gerast úti á landsbyggðinni en hef á tilfinning-
unni að starfið sé lítið.“ Þóra Amórsdóttir framkvæmdastjóri
Sambands ungra jafnaðarmanna: „Einsog við vitum öll hefur
innra starf flokksins ekkert verið.“
Þessi ummæli fólks, sem einna best þekkir til, ættu að verða
forystusveit Alþýðuflokksins alvarlegt umhugsunarefni. Svo
virðist sem flokkurinn sé alls ekki búinn að jafna sig á geminga-
hríð síðustu tveggja ára: spillingarumræðu, klofningi og brott-
hvarfi úr ríkisstjóm. Þrátt fyrir að þingmenn flokksins hafi átt
góða spretti í stjómarandstöðu hefur það greinilega enganveginn
dugað til að hrista doðann af flokknum í heild. Stjómmálaflokkur
sem setur allt traust sitt á fámennan þingflokk er ekki til stórræða,
og séu undirstöður flokksins látnar grotna niður getur það bara
endað á einn veg. Sá flokkur sem vill öðlast tiltrú kjósenda hlýtur
að kosta kapps um að virkja sem flesta til starfa og stefnumótun-
ar: ella verður hann lokuð og ólýðræðisleg klíka.
Alþýðuflokksmenn státa sig einatt af því að flokkurinn sé upp-
spretta hugmynda og stefnumála. Það verður ekki frá flokknum
tekið að hann hefur verið aflvaki umræðu og nýrrar hugsunar í
mörgum stórmálum, og áhrif hans á þjóðmálaumræðu hafa verið
langtum meiri en kjörfylgi gefur til kynna. Þá þarf tæpast að rilja
upp, að í ríkisstjómum 1987-1995 tókst alþýðuflokksmönnum að
knýja í gegn miklar umbætur á ýmsum sviðum, á stundum í and-
stöðu við valdamikil öfl.
Þátttaka í ríkisstjómum í átta ár útheimti vitanlega mikið þrek,
af hálfu forystumanna flokksins og því var innanflokksmálum
ekki sinnt sem skyldi. Alþýðuflokksmenn sýndu að vísu styrk
þegar þeim tókst að safna vopnum sínum í kjölfar klofningsins
íyrir tveimur árum, en um hríð leit jafnvel út fyrir að flokkurinn
þurrkaðist af þingi. Þrátt fyrir vamarsigur í þingkosningum í fyrra
er staðan sú, að í þremur stómm kjördæmum hefur flokkurinn
engan þingmann. Flokksstarf á landsbyggðinni er víða lítið eða
ekkert, og á suðvesturhominu, þarsem eiga að heita sterkustu vígi
flokksins, hefur það verið með allra minnsta móti.
Að öllu samanlögðu hlýtur það að vera eitt brýnasta verkefni
forystu alþýðuflokksmanna að gera flokk sinn á ný að lifandi
hreyfingu, og virkja sem flesta til stefnumótunar og þátttöku. Þótt
flokkurinn sé nú 80 ára er ekki þarmeð sagt að hann þurfi að
leggjast í kör.
Reyndar em ljós í myrkrinu. Á undanfömum árum hefur Sam-
band ungra jafnaðarmanna sýnt hvers það er megnugt, fengið til
liðs við sig nýja félaga og látið hressilega að sér kveða, bæði í
flokksstarfi og málefnavinnu. Vel mættu forystumenn Alþýðu-
flokksins leita I smiðju ungra jafnaðarmanna, vilji þeir á annað
borð láta ferska vinda blása. ■
s k o ð a n i r
w
Islenska eldhúsið
Er það til? Einu sinni hélt ég það.
Þegar ég var um tvítugt bjó ég
sumarlangt hjá vinafólki í kaupstað
fjarri höfuðborginni meðan ég vann
við múrarahandlang. Ég man ekki al-
veg hvemig náungi ég var, nema mig
minnir að ég hafi talið mig sigldan
menntamann sem hefði stigið niður til
alþýðunnar til að benda henni á fisk
undir steini.
Vikupiltar |
Guðmundur
Andri
Thorsson
skrifar
Ég var alltaf að þusa um bílaeign
landsmanna og eitthvað fleira sem þá
var til siðs að þusa yfir. Og íslenska
matargerð, það man ég. í einhverri
kappræðunni við bamið á heimilinu
sem einna helst nennti að ansa þessu
flutti ég innblásna æsingaræðu um
eldamennsku og kvað fátt jafn frum-
stætt og hlálegt í matarmenn-
ingu heimsins og það sem ég
leyfði mér að kalla •venjulegan
íslenskan mat*. Hann væri
kryddlaus, ofsoðinn, hugmynda-
snauður nema helst varðandi
það sem spillt gæti hráefninu
með sem gjörtækustum hætti,
kjötið feitt og seigt, ofsoðinn
fískurinn löðrandi í smjöri eða
hömsum, ef ekki beinlínis siginn
eða nætursaltaður, grautarnir •
kekkjóttir, súpumar uppbakaðar.
Ég spretti fingri að skyrhrær-
ingnum, vék svo ræðunni að
þorrablótum og öllu því ómeti
sem menn kúguðu þar ofan í sig
til að telja sér trú um að þeir
væm Islendingar einu sinni á ári
- maklegast væri að þeir fengju
þá jafnframt að japla á skinnblöðum
og skósólum úr því þeir vildu endilega
éta það sem þjóðin hefði neyðst til-að
leggja sér til munns á fyrri öldum. Og
svona gekk þetta: hvergi í heiminum
fyrirfyndist jafn bragðlaust og ofsoðið
jukk og ‘venjulegur íslenskur matur*.
Þetta var ágætt hjá mér. Bamið á
heimilinu horfði á mig og hugsaði sitt.
Svo kom í ljós að ég hafði unnið
Phyrrosarsigur í kappræðunni. Ég
hafði talað of mikið. Ég hafði stigið
yfir þetta örlitla bil sem er milli litríks
málflutnings og gaspurs. Og því var
það að í hvert sinn sem fjölskyldan
settist að borðum minnti bamið mig á
þær eindregnu skoðanir sem ég hafði
viðrað á venjulegum íslenskum mat
og lét í ljós þá von að máltíðin yrði
mér ekki samfellt kvalræði. Með
hverjum munnbita varð ég að kyngja
fyrri ummælum. Auðmýking mín var
algör.
Síðar átti bamið svo eftir að segja
reykingum mínum stríð á hendur. Af
því er önnur saga. í dag reykir hann en
ekki ég.
í matargerðinni halda þjóðimar til
haga því sem á daga þeirra hefur drif-
ið. í matnum er sagan, minnið - ekki í
stjórnmálunum sem alls staðar eru
sami ómerkilegi tindátaleikurinn. í
matnum leynast atvik dægranna, þar
safnast reynsla allra þeirra sem gegn-
um aldimar hafa staðið yfir pottum og
fengið hugdettur og innblástur sem
síðan hefur farið til eftirkomenda. I
matnum sér maður þjóðarhag og land-
kosti og skaplyndi þjóðanna.
Dæmi af handahófi:
Parísarmatur - Níska franska eld-
húsið - er þóttafullur og ofmetinn:
boðið er upp á eitt salatblað með litlu
en ókennilegu dýri í þeirri vissu að
salatblaðið sé unaðslegt, það sé yogísk
reynsla að japla á því og maturinn er
svo fagurlega framborinn að maður
þorir varla að hrófla við listaverkinu
sem þjónninn var svo vænn að slengja
á borðið hjá þér um leið og hann
strunsaði burt með nefið upp í loft.
Bandaríkjamenn þróuðu hinn sigur-
sæla skyndibita undir kjörorðinu „Fe-
ed them and throw them out“ eins og
segir í skáldsögu eftir Raymond
Chandler. Þetta er hámark múgmenn-
ingarinnar og virðingarleysið algjört
fyrir framtaki einstaklingsins. Hitt
múgkerfið, það í Sovét, ól af sér Kiev-
kjúklinginn sem er einmitt sama
bragðlausa kaloríubomban og hákapít-
alisminn í Bandaríkjunum þróaði og
heitir Kentucky-fried; og er hvort
tveggja sniðið til að ná fram hámarks-
H» u.i.%
afköstum magans á sem skemmstum
tíma, svo að menn geti snúið sér hið
snarasta að því að auka framleiðsluna.
ítalskúr matur gerir út á fyrsta munn-
bitann: að maður hrópi Bravó! síðan
gerist hann þungur og leiðigjam, eink-
um hér á landi þar sem ævinlega er
settur peli af ijóma í pastasósumar af
því aðjtastað sjálft er talið svo megr-
andi. I spænskum mat má sjá þjóð
sem kann að lifa af hafsins gæðum,
ólíkt Islendingum ífam á síðasta ára-
tug, en sú sama þjóð hefur aldrei
nennt að setja sig inn í hvað maður
gerir við kjöt. Hollenskur matur er all-
ur mjög blautur, súrsað dót og græn-
metið löðrandi í oh'um, danskur matur
er vinalegt gums, og báðar þjóðir
skammta matinn alltof ríkulega sem
bendir til harðinda í stríðinu og blank-
heita almennings. Þýskur matur er
kraftmikill og sigurviss en enskur
matur er vandræðamauk sem sýnir
áttavillta þjóð um eigin sjálfsmynd.
Sænskur matur eru þessar litlu, hörðu,
þurru og alvöruþrungnu hjöttbullar og
hin fáránlega mikla piprun á þeim
bendir til sektarkenndar yfir því að
hafa matast vel, piparinn er eins og
sjálfstyftun - og svo er andstæðan hjá
þessari þjóð sem er og verður okkur
Islendingum ráðgáta og mun alltaf
sigra okkur í handbolta: hinir snilldar-
legu síldarréttir bomir fram af rausn
og gleði og jafnvel geðshræringu. Ind-
verskur matur er innblásinn og svo
þróaður og langræktaður og lostafull-
ur að jaðrar við dekadens. Kínverskur
matur er svo lipur að maður undrast,
eldaður á ógnarhraða án þess að mað-
ur verði var við kjörorðið Étið og
snáfið, þótt það lúri ef til vill undir.
Og svo framvegis. En hvemig er þá
dæmigerður íslenskur matur? Hann er
kraftmikill, hann gefur mikla orku til
átaka. Þetta er matur handa erfiðis-
mönnum, matur fyrir illviðri. Það er
lítið stúss í kringum eldamennskuna,
ekkert smökkunartilstand, engin til-
gerð. Þessu er bara skellt í pott og lát-
ið sjóða og síðan er því skellt á borðið
- fyrirgefiði. En það eru þeim mun
meiri vísindi að verka þennan mat,
búa hann undir suðuna. Þetta er langt
ferli til að uá fram hinu mikla og
stundum ramma bragði sem er af
þessum mat. Um leið og þessi matur
er sérkennilegur er hann hreinn og
beinn og laus við stæla, laus við mála-
miðlanir - ef þér líkar þetta ekki get-
urðu bara farið inn í herbergið þitt. Og
þannig á maður líka að taka honum.
Þannig á maður að taka íslenskri
menningu.
Við lifum á stórkostlegum
tímum. Einn vottur þess er að
Reykjavík, þessir húsahrúga,
líkist æ meira borg. Nú er hægt
að fara út að borða á mexík-
önskum stað, kínverskum, kal-
ífomískum, indverskum, kóresk-
um og þrjúhundruð ítölskum.
Það er boðið upp á matargerð
Víetnama, Japana, Argentínu-
manria; Spánverja. -Tælendinga
og Frakka, þótt þeirra matárgerð
sé að vísu stæld í naúmum
skömmtum, en próvensalska
sveitaeldhúsið hunsað þótt það
sé það eina eftirbreytniverða þar
úr landi. Hér eru staðir sem
bjóða upp á fisk eldaðan á alls-
konar máta og mun víst vera því
bragðbetri sem hann er ljótari,
hér er loksins kominn McDonald, ég
bíð bara eftir kúskús-stað... Eri éng-
um hefur hugkvæmst að oþná rrieð ís-
lenskan m'atsölustað með i'slénskii
matargerð: kjötsúpu, hangikjöti, salt-
kjöti og baunum, slátri, sviðum, harð-
fisk. Samt finnst öllum Islendingum
þetta góður matur.
Maður fær ískaldan snafs þegar
maður kemur búðar í loftið inn úr
kuldanum. Á meðan maður bíður eftir
aðalréttinum maular maður hákarl og
horfir á knálegar framreiðslustúlkum-
ar skjótast um í peysufötum með full
trog; svo kemur spónamaturinn, síðan
ketið eða soðningin og loks hnaus-
þykkur grautur. Sterkt og gott kaffi á
eftir, með brennivíni úti, og neftób-
akslús látin fylgja kaffinu fremur en
eitthvert hofróðulegt súkkulaðistykki.
Og maður er saddur og sæll þegar
maður reiðir fram fimmþúsundkall-
inn: Hafðu hann fallegur stúlkurinn
mín.
Við förum einn dag á ári á Þorra-
blót til að gerast íslendingar og þar
söfnum við saman öllum versta mam-
um sem þjóðin neyddist til að borða.
Okkur finnst að hann eigi að vera
vondur, það eigi að vera kvalræði að
koma honum niður: manndómsraun.
Það sé hetjudáð að vera þjóðlegur. ís-
lensk tunga og íslensk menning: við
höldum að þetta sé eitthvað sem þurfi
að tileinka sér. ■
B
a g a t a 1 2 3. á 9 ú s t
Atburðir dagsins
1926 Kyntáknið og leikarinn
Valentínó deyr, 31 árs. 1933
Gandhi látinn laus úr fangelsi
eftir hungurverkfall. 1939
Þýskaland og Sovétríkin undir-
rita griðasáttmála. 1940 Þýskar
sprengjuflugvélar hefja árásir á
London. 1946 Gunnar Huseby
varð Evrópumeistari í kúlu-
varpi í Osló. 1954 Jökull Jak-
obsson kemur niður á stein-
kistu Páls biskups Jónssonar,
sem lést 1211, við fornleifa-
uppgröft í Skálholti. 1966
Mesti afli í sögu íslenskra síld-
veiða fékkst þennan dag. 82
skip fengu 16.116 lestir. 1967
Islendingar töpuðu fyrir Dön-
um í knattspyrnu með 14
mörkum gegn 2.
Afmælisbörn dagsins
Lúðvík XVI 1854, Frakka-
kóngur sem tekinn var af lífi
með fallöxinni. Gene Kelly
1912, bandarískur dansari og
leikari. WiIIy Russel 1947,
enskt leikritaskáld, samdi með-
al annars Educating Rita.
Annálsbrot dagsins
Gekk blóðsóttin. Féllu yftrferð-
armenn. Kallað Eymdarár.
Féllu í Hegranesþingi 8 hundr-
uð manna á þessum 3 fyrirfar-
andi árum og þessu, en um allt
Island níu þúsund manna.
Vatnsfjaröarannáll elzti, 1604.
Hættur dagsins
Þrennt er konum hættulegt í
París: Ungir menn, miðaldra
menn og gamlir menn.
Yves Montand.
Málsháttur dagsins
Sú er veislan best, að hver hafi
sinn vilja.
Réttlæti dagsins
Lögin gera ekki mannamun.
Þau banna bæði ríkum og fá-
tækum að sofa á berangri og
betla mat.
Anatole France.
Orð dagsins
Látum brœður dáð og dug
deyfa harm og trega,
best erþví með blíðum hug
að bera sig karhnannlega.
Hákon Hákonarson í Brokey; úr
Reimarsrímum.
Skák dagsins
í skák dagsins er Mikael Tal,
einhver snjaliasti og frumleg-
asti meistari allra tíma, í hlut-
verki fómarlambsins. Lutikov
hefur hvítt og á leik, og hann
hristir framúr erminni laglega
fléttu.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Dxd8! Hxd8 2. Hxd7+!
Hxd7 3. f8=D og hvítur hefur
unnið tafl.
j