Alþýðublaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 1. október 1996 146. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
„Ef við náum ekki pólitískri samstöðu um hreyfingu jafnaðarmanna þá mun þessi dauflynda náttúrulausa ríkisstjórn sitja hér fram á næstu öld. Þjóðfé-
lagið verður svo leiðinlegt að það verður ekki við það búandi," sagði Jón Baldvin.
■ Formenn Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Þjóðvaka hittust á fundi hjá Röskvu í síð-
ustu viku og ræddu þörfina fyrir nýjan, stóran jafnaðarmannaflokk, baráttumál þess
flokks, kynslóðaskipti í pólitík, fjötra fortíðarinnar, náttúrulausa ríkisstjórn og fleira
þó fram að vera kynni að of snemmt
væri að nefna nafn Ingibjargar Sólrún-
ar, vel mætti vera að hlutverk hennar á
næstunni myndi einskorðast við að
halda borginni í næstu borgarstjómar-
kosningum. „Eg hef satt að segja ekki
miklar áhyggjur af þessum málum,“
sagði Jón Baldvin. „Þau hljóta að
leysast vegna þess að hreyfmgin mun
kalla fram foringja sinn.“
Margrét sagðist telja það ranga að-
ferð að byija að leita að foringjanum.
Hún sagðist telja æskilegt að forystu-
maður yrði einstaklingur sem tengdist
hvorki átökum milli flokka eða innan
flokka.
Fjötrar fortíðar
Jóhanna sagðist taka undir orð Jóns
Baldvins um kynslóðaskipti í íslenskri
pólitík en lýsti yfir áhyggjum af því að
ungt fólk virtist á undanfömum ámm
hafa misst áhugann á pólitík. „Það sér
ekki nokkum tilgang í þessu. Auðvit-
að er þetta svona vegna þess að við
jafnaðarmenn höfum verið að dröslast
með fjötra fortíðarinnar. Við verðum
að hrista af okkur þessa fjötra og
vinna að því sem sameinar en ekki
það sem sundrar," sagði Jóhanna.
Þegar Jón Baldvin var spurður að
því hvort Evrópustefna Alþýðuflokks
væri ekki einmitt málefni sem leitt
gæti til sundmngar innan stórrar jafn-
aðarmannahreyfingar, svaraði hann:
„Við gerum Evrópustefnuna ekki
að flokksmáli. Við gerum okkur ljóst
að þótt ísland verði kannski seinasta
landið í Evrópu til að ganga í Evrópu-
sambandið þá mun það að lokum ger-
ast. Við erum flokkur hinna hægfara
umbóta og höfum ómælda pólitíska
þolinmæði. Svo þetta er allt í lagi, við
emm vanir því að vera svolítið á und-
an samtímanum.“
Einn fundargesta spurði að því
hvort forsendan fyrir því að vinstri
menn gæti sameinast væri ekki að Jón
Baldvin viki úr pólitík þar sem ýmis
stefnumál sem hann hefði beitt sér fyr-
ir væm of umdeild. Sami fyrirspyrj-
andi hélt því fram að Alþýðuflokkur-
inn hefði undir forystu Jóns Baldvins
fylgt hægri stefnu.
Hvernig jafnaðarmannaflokk?
„Ef við ætlum að láta draum um
stóran og öflugan jafnaðarmannaflokk
rætast þá þarf sá flokkur að ná skír-
skotun inn og yfir miðju íslenskra
stjómmála og hann verður samkvæmt
skilgreiningu aldrei stór nema hann
taki fylgi af því fólki sem hingað til
hefur kosið Sjálfstæðisflokk eða
Framsókn. Það mun aldrei takast ef
ekki verður fylgt fram stefnu sem er í
likingu við þá sem Alþýðuflokkurinn
hefur fylgt. I íslenskri pólitík er smám
saman að aukast skilningur og viður-
kenning á því að sú stefna er í öllum
grundvallaratriðum rétt og farsæl,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, á fundi sem
Röskva boðaði til í síðustu viku um
sameiningarmálin. Auk Jóns Baldvins
fluttu stutt erindi á fundinum þær Jó-
hanna Sigurðardóttir, formaður Þjóð-
vaka og Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalags.
,,Á hveiju sviðinu á fætur öðru er
greinilegt að menn eru að komast inn í
nútíðina, það er að segja að nálgast
þau sjónarmið sem Alþýðuflokkurinn
hefur verið talsmaður fyrir og er for-
senda þess að hægt sé að stofna hér
nýja öfluga fjöldahreyfingu jafnaðar-
manna,“ sagði Jón Baldvin. „Ef við
náum ekki pólitískri samstöðu um
hreyfingu jafnaðarmanna þá mun
þessi dauflynda náttúrulausa ríkis-
stjóm sitja hér fram á næstu öld. Þjóð-
félagið verður svo leiðinlegt að það
verður ekki við það búandi."
Jón Baldvin gaf pólitíkinni í land-
inu ekki háa einkunn. „Pólitíkin er
geðlaus og aðgerðarlítil, hún er ekkert
nema pólitískar tannlækningar," sagði
hann.
Jóhanna Sigurðardóttir gerði að
umtalsefni verk ríkisstjómarinnar eftir
eins vetrar starf:
„Við sjáum að neytendur fá ekki að
njóta Gatt-samninganna vegna þess að
ríkisstjómin beitir vemdartollum. Við
sjáum hana gera aðför að verkalýðs-
hreyfingunni og breyta einhliða skipu-
lagi hennar. Við sjáum hvernig hún
afgreiddi fjármagnstekjuskattinn og ég
hygg að við eigum eftir að sjá skelfi-
lega framkvæmd á honum. Ríkis-
stjómin er að rífa niður velferðarkerfið
og boðar nú niðurskurð í menntamál-
um.“
Jóhanna sagði brýnt fyrir stjómar-
andstöðuflokkana að efla samvinnu
sína á milli. „Við emm að leggja upp í
þessa ferð í því skyni að geta gengið
sameinuð til næstu kosninga og
hnekkt því veldi íhaldsins sem staðið
hefur hér allt of lengi. Við stöndum
einfaldlega frammi fyrir þeirri stað-
reynd að ef vinstri menn og jafnaðar-
menn ætla að dröslast áfram með
fjötra fortíðarinnar inn í framtíðina þá
höfum við þessa ríkisstjóm áfram. Og
það er ekki sú ffamtíðarsýn sem ég vil
sjá í íslenskri pólitík," sagði Jóhanna.
Hún sagðist telja mjög brýnt að Al-
þýðubandalagið gengi til samvinnu
við Alþýðuflokk og Þjóðvaka og
sagðist vilja sjá þessa þrjá flokka sam-
einast í einum þingflokki.
Hjá Margréti Frímannsdóttur kom
fram að Alþýðubandalagið væri ekki
reiðubúið að sameinast þingflokki AI-
þýðuflokks og Þjóðvaka, en væri til-
búið í samstarf. ,,Eg tel mjög nauðsyn-
legt að samvinna eigi sér stað, ég segi
ekki sameining, heldur samvinna. Við
eigum að sameinast um málefni hvort
sem við gemm það með því að vinna
saman eða með því að stefna að sam-
fylkingu þar sem flokkarnir verða
áfram til en bjóða fram sameiginlega í
næstu kosningum," sagði Margrét.
Jóhanna var ekki á því að nóg væri
að mynda kosningabandalag og sagði:
„Ég held að ef eigi að skapa trúverð-
ugan kost þá verði einn sameinaður
jafnaðarmannaflokkur að bjóða fram í
næstu kosningum."
„ Pólitískir foringjar eru ekki
búnir tii"
„Það mun enginn verða til þess að
skapa hér á landi breiða samstöðu um
aðkallandi umbætur nema öflug hreyf-
ing jafnaðarmanna. Hverjir eiga svo
að taka ákvörðun um hvort það tekst
eða ekki? Það erað fyrst og fremst þið.
Það erum ekki við, allavega ekki ég
sem er senn á föram úr íslenskri pólit-
ík,“ sagði Jón Baldvin og voru þetta
þau orð sem mesta athygli vöktu á
fundinum.
Þegar hann var inntur nánar eftir
þeim svaraði hann: „Ég hef gefið það
til kynna, ákaflega kurteislega og hóg-
værlega, að það sé ekki sjálfgefið að
ég gefi kost á mér til að vera formaður
Alþýðuflokksins næstu tvö árin. Ég
hef ekki tekið ákvörðun en þegar hún
hefur verið tekin mun ég ræða hana
við samstarfsmenn mína.“ Jón Bald-
vin sagði að ef hann gæfi ekki kost á
sér áfram jafngilti það ekki því að
hann myndi hætta í pólitík. „Ég mundi
áfram vera á þingi og vera, eins og ég
hef sagt áður, í ljósmóðurstarfi meðan
þessi nýja hreyfing verður til. Á þessu
kjörtímabili er komið að ákveðnum
kynslóðaskiptum í íslenskri pólitík,
þannig að þetta væra svosem ekkert
stór tíðindi; það kemur venjulega
maður í manns stað.“
Þegar Jón Baldvin var spurður
hvort hann teldi að ný jafnaðarmanna-
hreyfing þyrfti að sækja sér foringja
„út fynr gamla hópinn“ svaraði hann:
„Ég hef lært á langri reynslu að
pólitískir foringjar eru ekki búnir til.
Þeir verða til. Þeir verða til fyrir eigið
frumkvæði, eigið atgervi og eigin
málafylgju og verða að hafa fyrir hlut-
unum. Ég sagði áðan og það er ljóst í
mínum huga að það era að verða eins
konar kynslóðaskipti í íslenskri pólit-
ík. Það kann vel að vera að það þurfi
að brúa það bil. Ég er alltaf að bíða
eftir máttarstólpum nýrrar kynslóðar.
Ný kynslóð mun ekki taka forystu í
þessari hreyfingu nema úr hennar röð-
um komi menn fram á sjónarsviðið
sem hlustað verður á.“
Jón Baldvin sagðist reyndar ekki
sjá slíkan foringja í sjónmáli, en
nefndi þó núverandi borgarstjóra sem
vænlegan kost. „Ég hef misst það út
úr mér að ég hefði augastað á núver-
andi borgarstjóra Reykjavíkur, sem ég
hef álit á og tel vera mikinn pólitíkus,
og ég held að hann komi þama vel til
greina,“ sagði Jón Baldvin. Hann tók
„Sú stefna sem Alþýðuflokkurinn
hefur verið málsvari fyrir í íslenskri
pólitík, og ekki bara Jón Baldvin, er
nútímaleg jafnaðarstefna, og af því
fyrirspyijandi vildi meina að hún væri
hægri stefna þá get ég ekki annað en
vísað því á bug,“ sagði Jón Baldvin.
Hann kallaði fram á sviðið sænska fo-
sætisráðherrann og leiðtoga sænskra
jafnaðarmanna, Göran Persson og
sagði: „Ef við spyrjum hvaða stefna
það er sem þessi foringi Sænska jafn-
aðarmannaflokksins stendur fyrir í þá
getum við sagt að það sé sama stefna
og Alþýðuflokkurinn hefur beitt sér
fyrir. Það er verið að taka á vanda vel-
ferðarkerfisins, leggja áherslu á aukna
samkeppni og markaðsvæðingu. Þetta
er sú stefna sem Alþýðuflokkurinn
hefur beitt sér íyrir og hún birtist enn
fremur í því að við erum sá flokkur
sem er fjærst því að vera vörslumenn
sérhagsmunahópa. Og ef menn halda
að hægt sé að byggja upp stóra öfluga
jafnaðarmannahreyfingu á fslandi án
þess að þessi grundvallarsjónarmið
verði þar ráðandi þá er það að mínu
viti á miklum misskilningi byggt.“ ■
Háskólastúdentar hefðu mátt mæta betur, en þeir sem mættu létu ekki
sitt eftir liggja og voru ósparir á fyrirspurnir.