Alþýðublaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 1
Gert ráð fyrir milljarði í tekjuafgang í fjárlögum næsta árs Fögur orð sem litlu skila - segir Bryndís Hlöðversdóttir fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í fjárlaganefnd. Gísli S. Einarsson: Niðurskurður í vegamálum, menntamálum og til heilbrigðiskerfisins. „Um leið og horfir til 5,5 milljarða tekjuaukningar blasir við niðurskurður í velferðarkerfinu. Þetta segir sína sögu um það hvaða stefnu ríkisstjóm- in er að taka,“ segir Gísli S. Einarsson sem situr í fjárlaganefnd fyrir Alþýðu- flokkinn. „Ef ríkisstjóm ræður ekki við að stjóma í góðæri, hvað gerist þá þegar herðir að?“ Friðrik Sophusson fjármákuáðherra kynnti í gær frumvarp til fjárlaga 1997. Gert er ráð fyrir afgangi í rekstri ríkissjóðs upp á 1,1 milljarð, en hann hefur verið rekinn með halla síðan 1985. Útgjöld ríkissjóðs em áætluð 124,3 milljarðar á næsta ári, og lækka ■ Extrablaðið danska leitar á náðir Alþýðublaðsins varðandi fréttaflutn- ing af krónprinsi sínum Frede pá Vulkaner milde islandske fris0ser sn0d '.ronprinsens livvagter •t «r da viit (tndt. »t krnn- Ek»tr» ItladcU læscre hcle inacn i j;Ar drnj; til (iran hialnrien td. «1 h»n kan blivc kalcl - Jerc» kronprin* *tnd *«l oeekendens hefli- b»ren pk Calt licykjavik nc I ntlkaner. IW en morede »ir me»l en islandsk ykjavik muntredo domo llun v«r ikke ju»t «f ■ift mcd en islaiuUk den »Ur». ?'"* »‘"do I ide. Or h»n« bodyRuarda cn skonhcdskonkurrenco. mcd to piRer pi ilnine- ll«n h«r jo ellcr* en 'ler- •ttot. Jamcn. hvml Bi'r hjmnnie, dor »«Klen« Krnfon. Mon K nicKtodo. Mcn cn tnplncncl Irpmutid »i muaklvr «1 apillo inoil. TltUENUIi OUI) if mlR. Jcr kendor lur ! Iivert fald kívoi ndinfeno en pnd hialorio i i»on 'Altidcr lllndot' i Men k i. Ihn lililo llvKtivlo ud fm loi Mon iloi jýnnlo ilo ikko lettct. fik fiit i «in t«>kc lk-t or jn ikkc do rone skyndtc «K lijciu. ^ _____ . _____... pianh-rno liavilo *kum nok vildl. »i|icr liun til dcn is jnumnlnlen. billoder «f mÍK- J«k kendor wt, hvem der havrle hind lamlake journalnt. l'mb-nk linvdc allsil ikko ejerne «f baren. <V livia du nin lilnioiie 1111. Nu »kullo SJdan at sknommc live iKiRon iiiiiiililollinr Krund til ikkc Kiver m.R filincn, íAr ilcr l>n«r« helt amlrc «kr»p- »f lo sml frwpwr - del nlb ■1 skjtilc bik for fntoKrmfen jeR diK amidl ud! er knm- pc mctodur. vnrc* flmk fyr «f en frcde ír» Altider Uladel', dcr net- nrinsen cilerel I daRon. i»- mami.-ij rik da aldriR ia*rc Vcl? op var IrAdl ind ad darer.. landako avia fnr »t havo KUN FOU DAMER - Nej, nq T«K dct roIiRt Orv. Cod hiatnrie. D«n- saRt. I)« ib- lo pip-r K>k p' loi- Da pÍRernc fnrtalle mÍR hi msrks knmmende koiiRe Den skræmte fotopraf fik leltel. fulKtr laiilyKiiuribirnc slorien. Krinle dc heli- tidcn •tuiterer nallcna prinaoaaor ib>K luv lil al ryalo »•« rorlii tiol clter. (>K dol var ikko llelo ha-mlelaen var eom ei í lleykjavik. KJIden tienklc Krmloriks breib! akublro. fnnli, ile liwrhon liavib- ly»t evonlyr fnr ilem, fnrklarin fnloKrufon Kiruir Olasson i>k Mon han kunno ma-rke dc (il on lurer ollor lil ut tiasc. Jakob 11 (laitaraaon. knipacilc lynluirtÍKt lo liillo- lo ImilyKuanla ojne lunRt i - !>•• anplc pA ilanak: Vi - lliatoricn mcd jcrer '1“' iinkkoii, mona han |pk rundt vil Imvo filmcn! «ÍRcr jnur- knmprina cr kun «jnv - har ellera har nA ciifóen. Scary... ualiat Jnknli II (iiiilannnn. cmrilc In inti-t fnrkerl lk>» Mrn Kn-ilo. an Extrablaðið er eitt útbreiddusta blað í Danmörku og það brást skjótt við þcgar það frétti að Alþýðublaðið hefði birt frétt af því þcgar Friðrik krón- prins skrapp út á lífið í Reykjavík og lenti að auki, með fulltingi lífvarða sinna, í viðurcign við Einar Ólason ljós- myndara blaðsins. í gær lagði Extra- blaðið síðu undir frásögn af atburðin- um undir fyrirsögninni „Frede pá Vulkaner", eða Freddi á cldfjallinu, auk áberandi tilvísunar á forsíðu. Blað- ið falaðist eftir myndum Einars og hlaðakonan Marianne Holst fór fram á það við blaðamann Alþýðublaðsins að hann endurscgði fréttina sem birtist í þriðjudagsblaðinu. Extrablaðið er með blaðamann og Ijósmyndara sem sinna eingöngu því vcrkcfni að fylgjast með ferðum krónprinsins. En þrátt fyrir það sagði Marianne Holst að blaði sínu hcfði ekki tekist að ná þessari frétt, en eins og sjá má af þessu leggja Danir mikið uppúr fréttaflutningi af kónga- fólki sínu. Það var á blaðakonunni að skilja að þcssi frétt væri hin æsilegasta en myndir sýna Friðrik, eða Fredda cins og frændur vorir Danir kalla hann svo kumpánlega, á tali við konu á bar. En þeir hugga kærustu prinsins og segja hann ekki hafa brugðið á leik i er- lendri höfn þrátt fyrir þriggja mánaða útivcru. („Men bara rolig, Katja. Din kæreste pá skibet Vædderen legede ikke buk í en fremmed havn, bare fordi han er pá máneders konstand from- ands-uddannelsc.“) Og í enda fréttar- innar cr danska þjóðin hughreyst með því að vitna í orð blaðamanns Alþýðu- blaðsins sem segir prínsinn koma ágæt- lega fyrir eða: „Historien med jeres kronpríns er kun sjov - han gjorde jo intet forkert. Desværrc har jeg aldrig niodt ham. Men jcg har set ham pá tv - og han virker som er rigtig flink fyr.“ að raungildi um 2,5 prósent, eða um rúmlega þrjá milljarða, þegar tekið hefur verið tillit til flutnings grunn- skólans til sveitarfélaga. Tekjur eru hinsvegar áætlaðar um 125,4 milljarð- ar, er talið að aukin umsvif í efnahags- lífrnu skili um þremur milljörðum að raungildi. „Eg get lítið sagt á þessu stigi en mér sýnist engin stórtíðindi vera þama á ferð,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður um frumvarp ríkis- stjórnarinnar til fjárlaga en Bryndís situr í fjárlaganefnd fyrir Alþýðu- bandalagið. „Þeir sýna tekjuafgang upp á rúman milljarð en þó er engin eðlisbreyting því að þeir eru með tekjuaukningu upp á rúma fimm milljarða vegna breyttra þjóðhagsforsenda," segir Bryndís. „Samt er ekki útséð um að þetta takist. Þetta eru því fögur orð en skila litlu þegar allt kemur til alls.“ „Það er alvarlegt að ekki skuli vera tekið á því að lækka skuldir og gætt að því að við verðum að fá tekjur, beint eða óbeint frá þeim aðilum sem faia með hagnaðinn af auðlindum Islands að eigin geðþótta," segir Gísli. „Ég óttast að kvótastjómunin eins og hún er rekin sé að leiða ennþá meiri ójöfn- uð inn í þjóðfélagið en verið hefur.“ „Það er verið að færa ábyrgðina á samfélagslegum verkefnum yfir á sveitarfélögin og heimilin," segir Bryndís Hlöðversdóttir. „í því felast helstu afrek þessarar ríkisstjómar í rík- isfjármálum. Ég ætla ekki að fara út í einstök atriði frumvarpsins á þessu stigi, nema hvað að niðurskurður til framhaldsskóla vekur upp spumingar hvort að hann standist gagnvart nýjunt framhaldskólalögum. Þetta er enn ein árásin á menntakerfið sem að þessu ríkisstjóm hefur staðið að.“ Þá sagðist Bryndís ekki sjá nein merki þess að verið sé að uppfylla samninga um framtíð heilsugæslunnar, sem heilsu- gæslulæknar knúðu fram gagnvart rík- isstjóminni." „Nú er stefht í skerðingu á mennta- málum," segir Gísli- „Skerða á fram- kvæmdasjóð fatlaðra úr 257 milljón- um í 165 milljónir. Mér sýnist að Sjúkrahús Reykjavíkur muni vanta 450 til 600 milljónir til að ná endum saman. Reglugerð um skerta uppbót vegna lyfjakostnaðar er skuggalegt dæmi um aðför að eldri borgumm. Öll staðan eins og hún snýr að öldruðum er hörmuleg." ■ Hörð gagnrýni Sigurðar T. Sigurðssonar á Pétur Sigurðsson Sigurður hefur farið vitlausu megin fram úr - segir Pétur Sigurðsson forseti Alþýðusambands Vestfjarða. „Við erum báðir jafnsannfærðir um að þeir launataxtar sem okkar fólk býr við séu ekki boðlegir." „Þessi orð koma ekkert við mig. Ég held að Sigurður vinur minn í Hafnarfirði hafi farið vitlausu megin fram úr, daginn sem hann lét þessi orð falla. Sigurður veit sjálfur að þetta er afskaplega ómaklega mælt. Hann hefur sagt orðin í skyndilegri reiði sem ég ætla að fyrirgefa hon- um,“ segir Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða um þung orð sem Sigurður T. Sigurðs- son, formaður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði, lét falla í hans garð í DV fyrr í vikunni. Pétur hefúr lýst því yfir að hann telji að tvöfalda eigi lægstu laun, sem myndu þá hækka úr 50 þúsundum á mánuði í 100 þúsund. Þegar þessi hugmynd Péturs var borin undir Sigurð sagði hann í DV: „Ef Pétri finnst við hjá Hlíf vera nánasarlegir þá skal Pétur bara berjast og við skulum fylgja honum fast á eftir. En þá má hann ekki hlaupa burt á eftir. Pétur hefur alltaf sungið í hverri kröfugerð og komið svo þegar skrifað er undir og sagt aðra svíkjast undan merkjum. Það hefur verið lenska hjá Pétri." Pétur segir engan ágreining vera á milli þeirra Sigurðar: „Við erum báð- ir jafnsannfærðir um að þeir launa- taxtar sem okkar fólk býr við séu ekki boðlegir. Við höfurn örugglega báðir fullan vilja til þess að leiðrétta þá. Með kröfu minni er ég að sýna fram á að lágu taxtamir í verkalýðsfé- lögunum eru fáránlega vitlausir. Ég bið Sigurð og Hh'farmenn um stuðn- ing til að ná fram breytingum á þeim.“ Bessastaðabækurnar eru á sín- um stað - nema hvað! „Aumingja Davíð Oddsson. Hann virðist alveg staðráðinn í að kom- ast í sögubækur fyrir að vera fyrsti maðurinn sem tapaði for- setakosningum sem hann tók ekki þátt í sjálfur," segir Hrafn Jökuls- son á blaðsíðu 2 ■ Séra Gylfi Jónsson ekki á leið í Langholtskirkju Helga Soffía sækir um „Saga Langholtssafnaðar hvorki letur mig né hvetur," segir séra Helga Soffía Konráðsdóttir. Sá orðrómur að séra Gylfi Jónsson myndi þjóna Langholtskirkju, þar til um- sóknarfrestur um stöðu sóknarprests rennur út og ákvörðun hefur verið tekin um nýjan prest, á ekki við rök að styðj- ast. Gylfi er reyndar héraðsprestur í Reykjavík og sinnir afleysingum, en þar sem um fullt starf í svo langan tíma er að ræða var talið eðlilegra að kalla til annan prest. Aðspurður kvaðst Gylfi ekki ætla að sækja um að þjóna Langholtskirkju. „Ég hef nýverið fengið annað starf og er fyllilega ánægður með það.“ Séra Tómas Guðmundsson fyrrver- andi sóknarprestur og prófastur í Hvera- gerði mun leysa af í Langholtskirkju fram í miðjan nóvember en hann mun ekki sækja sjálfur um brauðið þar sem hann er kominn á efúrlaun. „Ég er gam- all og af mér genginn, orðinn sjötugur og búinn að láta af störfum," sagði Tómas. „Ég hleyp hér aðeins inn í nokkra daga til að bjarga málum.“ Umsóknarfresmr um stöðuna rennur út 15. nóvember en hún verður auglýst í Lögbirtingablaðinu í dag eða næstu daga. Heyrst hefur að einn prestur, Helga Soffía Konráðsdóttir, hafi ekki farið dult með áhuga sinn á Langholtsbrauðinu. ,Já, ég hef hugsað mér að sækja um þetta embætti. Ég mun ábyggilega verða ein á meðal fleiri um- sækjenda en mig langar til að takast á við þetta embætti. Ég er ekki að sækja um vegna þess að söfnuðurinn á sér þessa sögu, það letur mig hvorki né hvetur. Eg hef hinsvegar áhuga á að skipta um starfsvettvang." ■ Stone Free Jim Cartwright kemur til íslands Hið þekkta breska leikskáld Jim Cartw- right kemur til íslands í dag, ásanrt eigin- konu sinni og tveimur bömum þeirra. Hann kernur í boði Leikfélags Islands og verður viðstaddur hátíðarsýningu á verki sínu, Stone Free, í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Jim Cartwright hefur verið í hópi fremstu leikskálda Evrópu síðastliðin ár, frá því fyrsta leikrit hans, Road, kom út ár- ið 1986. Leikrit hans Strœti, Barpar og Taktu lagið Lóa nutu öll mikilla vinsælda á sviðum Þjóðleikhússins, Leikfélags Akur- eyrar og Borgarleikhússins. Nýjasta verk hans, Stone Free, var frumsýnt í Borgar- leikhúsinu 12. júlf f sumar og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan. Nú hafa um 15 þús- und manns séð verkið, sem er þegar orðið vinsælasta leikrit ársins á Islandi. Þreifingar á blaðamarkaði vegna væntanlegrar sölu á Helgarpóstinum Hef rætt við núverandi eigendur - segir Páll Vilhjálmsson rit- stjóri Vikublaðsins. , J2f að þú ert að spyrja hvort Viku- blaðið og Tilsjá ehf., útgáfufyrirtæki þess, hefur gert tilboð í Helgarp- óstinn, þá er svarið nei. Hins vegar hef ég rætt við eigendur blaðsins, for- svarsmenn Prentsmiðjunnar Odda og lagt fram mínar hugmyndir," segir Páll Vilhjálmsson ritstjóri Vikublaðs- ins í samtali við Alþýöublaðið. „En ég hef ekki lagt ffam kauptilboð, eins og sá skilningur er lagður í orðið, í Helg- arpóstinn. Páll segir að sem áhugamaður um blaðamennsku og fjölmiðlun almennt hafi hann fylgst með Helgarpóstinum og nú sé blaðið til sölu. Páll segir að síðast þegar viðræður áttu sér stað milli hans og Odda-manna hafi þeir kvaðst með þeim orðum að viðræðum yrði fram haldið. „En hlutiniir gerast mjög hratt á þessu sviði og hugsan- lega er búið að selja öðrum blaðið í þessum orðum töluðum," segir Páll. Hann vill ekki tjá sig um þær hug- myndir sem hann lagði fyrir Odda- menn - þær gætu hæglega nýst Viku- blaðinu. Aðspurður segir hann að í sínum hugmyndum felist engin tengsl við útgáfu Vikublaðsins sem er í eigu Alþýðubandalagsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.