Alþýðublaðið - 03.10.1996, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
s k o ð a n i r
tífflllBLÍÐIÐ
21187. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Beykjavík Sími 562 5566
Utgefandi
Ritstjóri
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Umbrot
Prentun
Alprent
Hrafn Jökulsson
Jakob Bjarnar Grétarsson
Ámundi Ámundason
Gagarín ehf.
ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Ánægjulegt
frumkvæði ungliða
Þegar Alþingi var sett í fyrradag afhentu fulltrúar pólitískra
ungliðahreyfínga formönnum stjómmálaflokkanna ályktun, þar
sem þess er krafist að kosningalög verði endurskoðuð og atkvæð-
isréttur landsmanna jafnaður. Að ályktuninni standa Samband
ungra framsóknarmanna, Samband ungra jafnaðarmanna, Sam-
band ungra sjálfstæðismanna, Verðandi og ungar kvennalistakon-
ur. Það er sérlega ánægjulegt að svo víðtæk samstaða skuli hafa
náðst milli allra unghðahreyfinganna og ber vott um meiri pólit-
ískan þroska en flestir atvinnustjómmálamenn virðast búa yfír.
Ályktun ungliðasamtakanna nú kemur í kjölfar kröfu sem sömu
samtök settu fram fyrir tveimur ámm. Þar sagði: „Við emm sam-
mála um að ekki er hægt að búa við kosningalög sem mismuna
þegnum þessa lands. Núverandi misvægi atkvæða er óþolandi
- brot á gmndvallar mannréttindum. Kosningalög em homsteinn
lýðræðis í hverju landi og þar eiga allir að sitja við sama borð.
Krafa okkar er að kosningalög tryggi mannréttindi og lýðræði en
ekki hagsmuni stjómmálaflokka eða stjómmálamanna einsog nú
er.“
Leiðin til réttlætis í þessu mikilvæga máli hefur verið löng og
ströng. Nú er svo komið að flestir stjómmálamenn viðurkenna í
orði að jafn atkvæðisréttur kjósenda sé sjálfsagt mannréttinda-
mál, og því sætir furðu að óréttlætið skuli ekki upprætt. Vægi at-
kvæða í smæstu landsbyggðarkjördæmunum er ríflega þrefalt
meira en í Reykjavík og á Reykjanesi. Það er öldungis óviðun-
andi - nema náttúrlega fyrir smáfurstana sem hanga á forréttind-
unum einsog hundur á roði. Afturhaldið á víða skjól í þessu máli,
og einungis innan Alþýðuflokksins og Þjóðvaka virðist skýr og
almennur vilji til þess að atkvæðisrétturinn verði fullkomlega
jafn.
Enginn virðist vita hver er raunveruleg stefna Sjálfstæðis-
flokksins í þessu máli, fremur en öðmm. í stefnuskrá flokksins er
ef til vill að finna ákvæði um jöfnun kosningaréttar, en það er
dauður bókstafur meðan flokksforystan aðhefst ekkert. Fram-
sóknarmenn virðast jafnvel líklegri til að taka af skarið, og hefðu
einhvemtíma þótt tíðindi, því þeir þumbuðust áratugum saman
gegn öllum breytingum á kosningakerfinu. Þingmenn Framsókn-
ar í þéttbýliskjördæmunum hafa látið málið til sín taka og jafnvel
Páll bóndi á Höllustöðum viðurkennir að kerfið sé úrelt. Þá sagði
Valdimar Valdimarsson ritari Sambands ungra framsóknarmanna
í viðtali við Alþýðublaðið í gær, að stór hópur ungs fólks í
flokknum krefðist róttækra breytinga. Alþýðubandalagið hefur
aldrei lagt mikla áherslu á málið og núverandi formaður hefur
reyndar sagt opinberlega að ekkert sé athugavert við það, að at-
kvæði á landsbyggðinni vegi þyngra en á höfuðborgarsvæðinu.
Fjórir stjómmálaflokkar halda flokksþing á næstu vikum, og
verður fróðlegt að sjá hvort þetta mikilvæga mál kemst á dagskrá.
Ungliðahreyfingamar em hér með hvattar til að fylgja fmmkvæði
sínu eftir. ■
Aumingja Davíð Oddsson.
Hann virðist alveg staðráðinn
„Að vísu hef ég verið
að skoða þessa venju..."
Einsog alþjóð veit er forsætisráð-
herra fslands menningarlega sinn-
aður, og meira að segja félagi í Rithöf-
undasambandi íslands. Hann á sam-
eiginlegt með fegurðardrottningum að
fátt er honum eins kært og lestur
góðra bóka, að loknu drjúgu dagsverki
í þágu lands og þjóðar. Og nú er kom-
ið á daginn að akademískur áhugi for-
sætisráðherrans er enn að aukast: Dav-
íð Oddsson er nefnilega orðinn sagn-
fræðingur og hefur uppá síðkastið
stundað viðarrúklar rannsóknir á sögu
húrra-hrópa á íslandi.
Einsog gengur |
í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld var
Davíð spurður hvernig honum hefði
fundist að hrópa húrra fyrir Ólafi
Ragnari Grímssyni. Auðvitað finnst
Davíð að Ólafur sé ekkert til að hrópa
húrra fyrir, en hann svaraði með þess-
um orðum:
„Það vafðist ekkert fyrir mér að
gera það. Við erum að hylla ísland
sérstaklega, nú forsetann einnig. Þetta
er venja sem hefur skapast sér. Að
vísu hef ég verið að skoða þessa
venju, hún er ekki eins gömul og ég
hélt. Þetta var ekki gert í tíð Sveins
Bjömssonar eftir því sem ég best fæ
séð. Það var eingöngu sagt ísland lifi.“
Og það kom fjarrænt sælublik í
landsföðurleg augu Davíðs þegar hann
minntist þeirra sæluríku daga þegar
eingöngu var sagt Island lifi.
Aumingja Davíð Oddsson. Hann
virðist alveg staðráðinn í að komast í
sögubækur fyrir að vera fyrsti maður-
inn sem tapaði forsetakosningum sem
hann tók ekki þátt í sjálfur. Það er
vandasamt að taka bæði sigri og
ósigri. Pétur Kr. Hafstein tók ósigri
sínum með þeim hætti að hann var
maður að meiri. Davíð Oddsson tók
ósigrinum hinsvegar þannig að hann
var maður að minni. Og hann heldur
áfram að minnka.
Það var nógu vandræðalegt þegar
Davíð kom fram í sjónvarpi á kosn-
inganótt og eyddi löngu máli í að út-
skýra aðalpunktinn í hyllingu forseta
og fósturjarðar. Davíð var greinilega
ekki að hugsa þetta mál í fyrsta skipti,
en hafði farið vandlega vfir það með
Tanna og Kjartani Gunnarssyni. Þess-
vegna beið þjóðin í ofvæni eftir að
heyra þennan ósýnilega punkt í fyrra-
dag: „Heill forseta vorum og fóstur-
jörð. [Þetta er alltsvo frægasti punktur
allra tíma] ísland lifi. Húrra, húrra,
húrra, húrra.“
Og nú hafa semsagt sagnfræðirann-
sóknimar á Lynghaga borið þann ár-
angur að alls ekki er sjálfsagt að hylla
forsetann, af því það var ekki gert
íyrstu sjö ár lýðveldisins. Síðan eru að
vísu liðin 44 ár, ellefu forsætisráðherr-
ar og fjórir forsetar, og ekki til þess
vitað að nokkru sinni hafi vafist fyrir
öðmm forsætisráðherra að hrópa hátt
og snjallt húrra fyrir forsetanum. Ólaf-
ur Thors og Bjami Benediktsson vom
harðir andstæðingar Ásgeirs Ásgeirs-
sonar í kosningunum 1952, en ekki er
til þess vitað að þeir nenntu að eyða
tfrnanum í lágkúmlegar aðferðir til að
komast hjá því að hrópa húrra fyrir
honum.
Afhveiju í ósköpunum h'ður Davíð
svona illa? Er maðurinn ekki búinn að
vera forsætisráðherra í fimm ár, og áð-
ur borgarstjóri í níu ár, formaður
stærsta flokksins og einn vinsælasti
stjómmálamaður landsins? Hann ætti
að geta huggað sig við aðUlafur
Ragnar Grfrnsson var ekkert af.þessu
meðan hann tók þátt í-póliMkv.ioji'ifim
Þvert á móti: Ólafur var fonnaður. í
litlum flokki sem logaði í innbyrðis
deilurn, umdeildur fjármálaráðherra
og Islandsmeistari í óvinsældum. Að
slíkur maður næði síðan að sigra létti-
lega í kosningum til æðsta embættis
þjóðarinnar gefur tilefni til húrra-
hrópa, þótt ekki væri annað.
Hvað þarf að gerast til að Davíð
Oddsson átti sig á því að það er búið
að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson sem
fimmta forseta íslenska lýðveldisins?
Já, aumingja Davíð. „Að vísu hefég
verið að skoða þessa venju...“ Það er
eitthvað svo raunalegt að vita af for-
sætisráðherranum okkar að grúska í
gömlum pappírum í því skyni að fmna
leið framhjá húrrahrópum fyrir Ólafi
Ragnari. Davíð lítillækkar sjálfan sig í
hvert sinn sem hann opnar munninn
um þessi mál. Kenning Krists gerir að
vísu ráð fyrir að þeir sem lítillækka
sjálfa sig muni upphafnir verða, en sú
er því miður ekki raunin í þessu til-
viki. f hvert sinn sem Davíð lítillækk-
ar sig með þessu móti upphefur hann
hinsvegar Ólaf Ragnar Grímsson. ■
d a g a t a 1 3. októmber
Atburðir dagsins
1226 Frans frá Assisi, stofn-
andi fransiskureglunnar, deyr.
1542 Gissur Einarsson vígður
Skálholtsbiskup, sá fyrsti í lút-
herskum sið. 1896 Hönnuður-
inn og rithöfundurinn William
Morris deyr. 1903 Konungur
úrskurðaði að skjaldarmerki ís-
lands skyldi vera „hvítur ís-
lenskur fálki á bláum grunni, er
situr og snýr sér til vinstri."
1906 Skammstöfunin SOS við-
urkennd sem alþjóðlegt neyð-
arkall í stað CDQ. 1952 Bretar
sprengja fyrstu kjarnorku-
sprengju sína. 1957 Willy
Brandl, 44 ára, kjörinn borgar-
stjóri Berlínar, sá yngsti í sögu
borgarinnar.
Afmælisbörn dagsins
Eleanora Duse 1859, ítölsk
leikkona. Gore Vidal 1925,
bandarískur rithöfundur. Eddie
Cochran 1938, bandarískur
söngvari.
Annálsbrot dagsins
Eldur í Heklu með miklum
ógangi; stóðu 13 eldar úr fjall-
inu, svo talið varð; heyrði
nokkur dunur þaðan, sást og
einninn mistur og dimma.
Austur um allar sveitir kom
meginmyrkrið með frábæru
öskufalli, svo tók fyrir jörð, og
dó peningur en sumur varð nyt-
laus.
Skarðsárannáll 1636.
Velgengni dagsins
Velgengni karls er fólgin í því
að hafa meiri tekjur en kona
hans getur eytt. Velgengni
konu er að ná í slíkan mann.
Lana Turner.
Málsháttur dagsins
Dag skal að kvöldi lofa, en ævi
að enda.
Mannlýsing dagsins
Þá kemur mér hann í hug, er eg
heyri góðs manns getið. Hann
reyndi eg svo að öllum hlutum.
Jón Ögmundarson biskup um is-
leif biskup Gissurarson.
Orð dagsins
Langt er síðan lék ég hér
lífs með engan dofa.
Fúnir undirfótum mér
frœndur og vinir sofa.
Bólu-Hjálmar: íSvalbaröskirkju-
gardi.
Skák dagsins
Rússneski stórmeislarinn Va-
sjúkov hefur hvftt og á leik
gegn Pribyl í skák sem tefld
var í Ungveijalandi árið 1977.
Hvílu mennimir eru albúnir að
hefja lokasókn og hún er sér-
lega glæsileg.
1. Rc7+! Rxc7 2. Hxe7+!
Kxe7 3. Df6+ Ke8 4. Hd8
Skákog mát!