Alþýðublaðið - 03.10.1996, Side 7
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
S
viskubrunnurinn
1. Hver er yngsti þingmaður-
inn sem nú á sæti á Alþingi?
2. Hvaða bandariska kvikmynd
hefur fengið flest Óskarsverð-
laun fyrr og siðar, hvorki fleiri
né færri en ellefu?
3. Hvaða íslenski rithöfundur
sagði: „Ef djöfullinn væri ekki
til, hefðu menn engar siðferð-
iskenningar til að fara eftir.
Djöfullinn er stærsti siðafröm-
uður og atvinnuveitandi
heimsins."
4. Höfuðborg hvaða rikis hefur
verið kölluð Tvílýsi á íslensku?
5. Ásgeir Ásgeirsson varð for-
seti íslands, Eisenhower sigr-
aði í forsetakosningum f
Bandaríkjunum og Elísabet II
varð drottning Bretaveldis.
Hvaða ár þetta?
6. Bill Clinton reynir nú að
miðla málum fyrir botni Mið-
jarðarhafs, og hefur að undan-
förnu átt viðræður í Hvíta hús-
inu við leiðtoga ísraels, Palest-
ínu og Jórdaníu. Hvað heita
þessir menn?
7. Byggðastofnun er mjög til
umræðu vegna skýrslu Ríkis-
endurskoðunar. Á ellefu árum
útdeildi stofnunin rúmlega 17
milljörðum i formi lána og
styrkja. Hver er núverandi
stjórnarformaður Byggða-
stofnunar?
8. Hver orti:
Og þungur gnýr sem hrynji höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Mín hljóða sorg og hláturþinn,
sem hlutu sömu gröf.
9. (slendingar urðu í áttunda til
tólfta sæti á Ólympíuskákmót-
inu í Armeníu, sem er ágætur
árangur. Hver íslendinganna
fékk flesta vinninga?
10. Hver er maðurinn?
|epjc>N sauueqpr 01 ujn)|e>|s zi! b6u!uuia 8 inem uossuejais Jbíjih seuuen ‘6 .ueuiais uujejs '8 JngeuJS!6u!Cj|e uossuop ufög i_ jn6unuo>|niuepjop
ujessnn 6o ni|eAuejeN ujiuefuaa 'jejejv Jasse^ ‘9 3S6L Jba Quy ‘9 ni6joa0 öjoqQnjoq je jsj|jqj_ f uosjeQjpq jnöjeqjoq £ 6S6L 'jnH ud9 'Z uossujAÖjea >UA9nq i
í
■ Fjölnir Þorgeirsson er óhemju fjölhæfur
náungi og á íslandsmeistaratitla í ótal
greinum; mótorhjólaakstri, þolfimi, hjól-
reiðum, sjómanni... auk þess að hafa ver-
ið atvinnumaður í snóker. Fjölnir rekur nú
um stundir Kaffi Óliver ásamt konu sinni
sem er íslandsmeistari ífegurð
íslandsmeistar-
inn blómstrar
,Já, við tókum við rekstri Kaffi Óliver fyrir stuttu. Þetta
var spennandi í byijun en þetta er erfiður bransi.“
Og þú hefurfengið að kenna ó því?
„Nei, ekki beint en ég veit það núna betur en fyrr að marg-
ir eru að slást um sama bitann"
Bíddu, ertu þd að hœtta?
„Ég tók verkefnið að mér til skamms tíma til að peppa
þetta upp. Svo er ég farinn þegar þetta er komið á það ról
sem ég hafði séð fyrir mér.“
Svonafarandveitingamaður?
, Já. Þetta var hugsað sem þriggja mánaða töm.“
Hvað tekur við?
„Það er margt í bígerð en ekkert ákveðið. Svo er ég alltaf
að gera upp hús.“
Jú, ertu smiður?
„Nei, en ég hef unnið við múrverk í mörg ár og verið í
svona skreytiflísalögn."
En þú ert fyrrverandi billjardmeistari?
, Jú, eða ég var atvinnumaður í snóker en þurfti að hætta
því ég lenti í mótorhjólaslysi, braut á mér öxlina."
Nú, ertu mótorhjólakappi líka ? y
,Já, ég varð meira að segja íslandsmeistari í mótorhjóla-
akstri ’9i.“
En ndðir aldrei meistaratitli í snóker?
„Nei, ég fór svo snemma í atvinnumennskuna og atvinnu-
menn mega ekki keppa á Islandsmótum sem er vitlaust fyrir-
komulag en svona er það. En ég hef náð lengst af þessum
strákum sem hafa lagt fyrir sig atvinnumennsku í snóker.“
Hqfðirðu þokkaiega uppúrþér með spilamennsku ?
„Það var að koma mikið inn í lokin. Ég var að nálgast
topp tvöhundruð og þá grtu farinn að sjá peninga.“
Varstuþd úti íEnglandi?
, Já, í ein þijú ár.“
Erþettaekkisukksamtlífemi?
„Þetta var tengt við óreglu. Þegar ég fór 11 ára gamall
með bróður mínum á Klapparstíginn með bróður mínum,
sem er gamall íslandsmeistari og er dáinn núna, þá var ennþá
sukk í kringum þetta. En það er miklu meira sukk í kringum
Tölvuspilastaði heldur en Billiard nú sem þá. Vinir mínir
sem voru þar voru reykjandi og á fylliríi en þær Billiardstof-
ur sem ég stundaði voru lausar við það.“
Snóker og mótorhjól? Hefurðu lagt stund dfleiri íþróttir?
,Jájájájá, sund, hestamennsku og karate og keppti í þessu
öllu saman.“
Hvað er þetta eiginlega maður? Af hverju getur þú ekki
verið eins og venjulegur maður og verið ífótbolta eða hand-
bolta?
„Ég er einhvem veginn meira fyrir einstaklingssport. Svo
er ég nýkrýndur íslandsmeistari í hjólreiðum núna um helg-
ina og tveimur vikum varð ég íslandsmeistari í sjómanni - 90
kg. Þannig að það er svona hobbí hjá mér að safna íslands-
meistaratitlum.”
Hvað dttu marga?
, Ja, það er þolfimi, sjómann, hjólreiðum, mótorhjólum og
svo var ég í gamla daga í handbolta. Það eru svona sex -
sjö.“
Þolfimi. Eg hélt að það vœri bara einn maður íþolfimi d
Fjölnir Þorgeirsson: Það er svona hobbí hjá mér að
safna íslandsmeistaratitlum.
íslandi?
„Já, ég tók íslandsmeistaratitilinn af Magnúsi Scheving.
Hann mætti ekki - var í einhverri fýlu. Það var meira í svona
grínveðmáli. Ég get farið í sphtt og spíkat einn tveir og sjö
og tekið armbeygjur með annarri þannig að þetta var fremur
einfalt prógramm."
Erþetta ekkifremur ómerkileg íþrótt, þessi þolfimi?
„Jú, ég myndi segja það. Þetta heillar mig ekki enda hef
ég ekkert farið í þolfimi síðan ég tók þennan titil. Hætti á
toppnum."
Það er gott að liœtta d toppnum eða Itvað?
,Já, ég set mér ákveðið markmið og ’iætti þegar ég hef
náð því og menn hættir að veita mér keppni. Þá fer ég í eitt-
hvað annað.“
Þú ert ekkert að þrauka hlutina?
„Nei, en það hefur alltaf tekið mig mjög skamman tíma að
komast inní íþróttir. Mér finnst gaman að prófa margt og nú
er ég að smitast af golfáhuga."
Það er stórhœttulegt.
„Ég hef heyrt það. En ég stefni á að vera kominn með bik-
ar innan árs. Annars verð ég mjög svekktur."
Hvað titlarðu þig eiginlega?
,Ja, ekki neitt eiginlega. Islandsmeistarinn bara.“
En samræmist það íþróttamennskunni að reka veitinga-
stað?
,Ja, ég þekki mjög marga og það nýtist í skemmtanarekst-
ur. Mínir vinir og félagar hafa verið duglegir að sækja stað-
inn og ég hef gaman að því að prófa sem flest. Af hverju
ekki að prófa að reka veitingastað? Það hefur gengið vel,
staðurinn orðinn mjög góður og vel sóttur."
Og þú rekur þetta með þinni konu, Svölu Björk Amardótt-
ur?
,Jájá.“
Og er hún ekki einhvers konar meistari líka?
,Jú, hún er íslandsmeistari í fegurð.“
En ertu ekki með neinn móral yfir því að einoka þetta
svona?
„Að,... semsagt?“
Nei, ég meina... sko, með íþróttirnar. Stela titlum frd
mönnum sem em búnir að leggja stund d stna iþrótt lengi?
„Nei. Þú nýtir reynsluna úr einni íþrótt yfir í þá næstu. Það
er hausinn sem skiptir máli númer eitt, tvö og þrjú, vera
íþróttalega vaxinn, lipur og hafa til að bera sigurvilja." ■
o r m u x i n n
Bókin sem Óttar Ólafur Proppe
er að lesa:
„Bókin sem ég var að lesa núna
heitir High Rise eftir J.G. Ballard.
Þetta er hálfgerð vísindaskáldsaga
sem fjallar um íbúa í fjörtíu hæða
blokk sem brotna niður og umturn-
ast í nágrannaerjum sem enda í
mannáti. Þetta er mjög skemmtileg
og áhugaverð bók um nágrannaeðl-
ið.
Ég er að endurlesa þessa bók eftir
nokkur ár og hún er alltaf ein af
uppáhaldsbókunum mínurn eftir
Ballard. Ballard er enskur rithöf-
undur og hefur einkum einbeitt sér
að sálfræðilegum vísindaskáldsög-
um, en reyndar má deila um það
hvort hann flokkist til vísinda-
skáldsagnahöfunda. Hann er lík-
lega frægastur fyrir bók sfna Emp-
ire ofthe Sun, sem eru æskuminn-
ingar úr japönskum fangabúðum í
stríðinu, og Spielberg gerði kvik-
mynd eftir.
SLIDfS’95
fréttaskot úr fortíð
Sumarið 1963 sagði Alþýðublaðið frá hjónaeijum í Tyrklandi
sem enduðu með harmleik í réttarsalnum
Einhent eiginkona
dregur upp byssu...
Tuttugu og tveggja ára gömul
stúlka, Emine Bir, sat í réttarsalnum í
Istanbul í Tyrklandi og vætti varimar í
ákafri geðshræringu. Þetta var síðasti
dagur árangurslausrar lögsóknar henn-
ar á hendur 40 ára gömlum eigin-
manni sínum, Hasan að nafni.
Emine ásakaði Hasan fyrir að
höggva hægri höndina af henni með
öxi, þegar hann fór að gruna að hún
væri í tygjum við annan mann. Hasan
hélt því hins vegar fram, að hún sjálf
hefði höggvið af sér höndina í bræðis-
kasti, svo að honum yrði urn það
kennt.
Dómarinn settist við að hugsa og
ígrundaði lengi vel. Eftir fjörutíu mín-
útna umræður opnuðust dymar að her-
bergi hans og hann kom út í fullum
skrúða. Dómarinn sneri sér beint að
J málsaðilum. Hann sagði með hárri
! raustu:
- Herra Bir er ekki sekur.
Ekki hafði dómarinn fyrr slepp orð-
inu en hin lágvaxna, þokkafulla Em-
ine stakk hendinni í tösku sína og dró
upp litla svarta byssu. Um stund hélt
fólkið í réttarsalnum að hún mundi
beina henni að höfði sínu og hleypa
af. Svo varð þó ekki - fólkið komst
fljótlega að raun um það.
Emine tók allt í einu viðbragð, sneri
sér að eiginmanni sínum, tók í gikkinn
og hleypti af tveimur skotum. Þegar
eiginmaðurinn hafði oltið úr sæti sínu
niður á gólfið, æpti eiginkonan upp
yfir sig og sveiflaði ijúkandi byssunni
yfir höfði sér: „Nú hefur réttlætinu
verið fullnægt!"
Morðið í réttarsalnum vakti feiki-
mikla athygli. Og nú er það Emine
sem situr í sæti þess ákærða en ekki
Hasan.
Alþýöublaðið, 21. júli 1963.