Alþýðublaðið - 20.11.1996, Page 1
I
■ Össur Skarphéðinsson formaður heilbrigðisnefndar Alþingis gagnrýnir „band-
orm" ríkisstjórnarinnar
Mjög ámælisverð vinnubrögð
Sjúkrahúsum á landsbyggð-
inni gert að skera niður um 160
milljónir. „Umdeildar tillögur
og því reynt að smygla þeim
gegnum þingið," segir Össur.
,JRíkisstjómin er að reyna að læða í
gegn grundvallarbreytingum á lögum
um heilbrigðisþjónustu. Hér er um svo
viðamikið mál að ræða, fráleitt er að
gera þessar breytingar samhliða því
sem verið er að breyta sautján öðmm
lagabálkum," segir Össur Skarphéð-
insson formaður heilbrigðisnefndar
Alþingis um þær breytingar í heil-
brigðismálum sem „bandormur" ríkis-
stjómarinnar felur í sér. „Bandormur-
inn“ er samansafn lagabreytinga sem
ríkisstjórnin þarf að ná fram til að
uppfylla markmið íjárlaga. Össur seg-
ir að. eðli slíkra breytinga sé að þær
eru tímabundnar, en annað sé upp á
teningnum í þessu máli. Þá segir hann
að sumar af tillögum ríkisstjómarinnar
komi ríkisfjármálum ekkert við. „Þetta
em hinsvegar umdeildar tillögur og
- segir Rannveig Guðmunds-
dóttir.
„Það er greinilegt að í þetta fmm-
varp byggir á því að þrengja bótarétt
atvinnulausra á næstum öllum svið-
um,“ segir Rannveig Guðmundsdóttir
alþingismaður um fmmvarp Páls Pét-
urssonar um atvinnuleysistryggingar-
sjóð. „Með fmmvarpinu virðist mér
sefn taka éigi upp hér á landi „danska
kerfiÓ", en það er sniðið að 10-15
prósent atvinnuleysi og hópum sem
hafa verið atvinnulausir langtímum
saman og vilja jafnvel ekki fara á
vinnumarkað," segir Rannveig, sem
hefur miklar efasemdir um að þetta
kerfi henti íslenskum þjóðfélagsað-
stæðum. Rannveig telur að í frum-
varpinu séu nokkur alvarleg skerð-
ingarákvæði. Þar á meðal nefnir hún
ákvæði þess efnis að einstaklingar
yngri en 18 ára eigi ekki rétt á at-
vinnuleysisbótum, jafnvel þótt þeir
hafi verið á vinnumarkaði allt frá
unglingsámm. Annað ákvæði kveður
því er verið að reyna að smygla þeim í
gegn þama. Það er sérstaklega ámæl-
isvert, að lagt er til að ráðherra sé veitt
takmarkalaust leyfi til að breyta starfs-
sviði og verkaskiptingu sjúkrastofnana
sem em reknar af ríkinu, jafnvel sam-
eina þær. Að greininni samþykktri
getur ráðherrann breytt því sem hún
vill, jafnvel sameinaÓ sjúkrastofnanir
án þess að bera það undir þingið."
Össur segir að í greinargerð með
fmmvarpinu sé sagt fullum fetum, að
þetta sé nauðsynlegt til að ná ffarn 160
milljón króna spamaði á sjúkrahúsum
úti á landi. Hann sagði ennfremur:
„Ráðherrann hefur auðvitað fulla
heimild til að leggja fram frumvörp
um þessi mál, en það er í hæsta máta
andstætt vinnuhefÓum þingsins, og úr
takti við kröfur um lýðræðislega um-
fjöllun svo mikilvægra mála, að þessu
eigi að læða í gegn samhliða breyting-
um á sautján öðmm lagabálkum."
Össur segir bersýnilegt að ríkis-
stjómin óttist umræðu um málið, bæði
í eigin liði og annarsstaðar.
á um að þeir sem hafi verið atvinnu-
lausir í fimm ár missi atvinnuleysis-
bætur. Þriðja atriði fmmvarpsins sem
Rannveig gerir athugasemd við er á
þá leið að enginn á að geta fengið
hærri bætur en nemur dagvinnulaun-
um síðustu sex mánuði. I þessu sam-
bandi bendir Rannveig á að dag-
vinnulaun fiskvinnslufólk nemi oft
einungis 60 prósent launa þeirra.
Rannveig segir greinilegt að með
fmmvarpinu og aðgerðum samhliða
því sé verið að ná fram sparnaði.
Áætlaður sparnaður verði 40-50
milljónir árið 1997. 85-105 milljónir
1998 og 135- 160 milljónir 1999. „-
Þetta segir okkur auðvitað að það er
verið að skerða bótaréttinn gífurlega.
Þetta fmmvarp Páls Péturssonar er
skerðingarfrumvarp. Við jafnaðar-
menn viljum gott félagslegt öryggis-
net þar sem réttur hvers einstáklings
er skilgreindur og skýr. Um það er
ekki að ræða í þessu frumvarpi,"
sagði Rannveig.
Hann segir ríkisstjórnina ekkert
samráð hafa við sjúkrahúsin á lands-
byggðinni um málið, og engar tillögur
liggi fyrir um hvernig eigi að ná
spamaÓinum fram. Niðurskurðurinn
eigi að nást 1997, og því aðeins sex
vikur þangað til grípa verður til að-
gerða. Össur sagði vinnubrögð ríkis-
stjómarinnar mjög ámælisverð: „Það á
aÓ auka miðstýringarvaldið í Reykja-
vík, draga úr samráði og ákvörðunar-
rétti landsbyggðarinnar. Það er hlálegt
að þetta gerist á sama tíma og ríkis-
stjómin talar um að auka vald lands-
byggðarinnar í málum sem tengjast
heilbrigðisþjónustunni.“
■ íslensku bókmennta-
verðlaunin
60 bækur
lagðar fram
60 bækur hafa verið lagðar fram
til íslensku bókmenntaverðlaun-
anna en þau verða afhent snemma á
næsta ári. Þama er um að ræða 25
bækur í flokki fræðibóka og 35
skáldverk í flokki fagurbókmennta.
Dómnefndin sem velur bestu fræði-
bækurnar er skipuð Sigríði Er-
lendsdóttur, Hjalta Hugasyni og
Þorsteini Vilhjálmssyni og í dóm-
nefnd um fagurbókmenntir sitja
Baldvin Tryggvason, Dagný Krist-
jánsdóttir og Kristín Steinsdóttir.
Tilnefningar um bestu bækur í
hvorum flokki verða væntanlega
kynntar 9. desember.
■ Forvitnilegar endurminning-
ar Benjamíns H.J. Eiríkssonar
Reginskyssa
Alþýðuflokksins
„Eðlilegast hefði verið, að Héðinn
Valdimarsson og við hinir, sem gátum
ekki sætt okkur við afstöðu og starfs-
aðferðir kommúnistanna, hefðum
gengið í Alþýðuflokkinn. Líklega hef-
ir Héðinn viljað það undir niÓri. En
hann var þykkjuþungur maður og
skapstór og hefir ekki viljað fara bón-
arveg að fyrri flokksbræðrum sínum,
mönnum eins og Stefáni Jóhanni Stef-
ánssyni, Guðmundi í. Guðmundssyni,
Haraldi Guðmundssyni, Finni Jóns-
syni og Emil Jónssyni, en um þau mál
veit ég ekkert. Á þessum örlagaríku
tímamótum gerðu þeir reginskyssu, að
því er mér er sagt. Þeir gerðu sérstaka
samþykkt um það, að þeir vildu að
vísu þiggja fylgið frá honum, Héðins-
mennina, en þeir vildu ekki Héðin
sjálfan. Ég held, að Guðmundur í.
Guðmundsson hafi ráðið meiru um
þetta en formaðurinn, Stefán Jóhann.
Síðar kynntist ég Stefáni Jóhanni vel.
Hann var prýðismaður, hæglátur, vel
skapi faritin, ljúfmannlegur í fram-
komu og mittnti um það á Ásgeir Ás-
geirsson." Þetta segir dr. Benjamín
H.J. Eiríksson í eníurminningum s£n-
um sem Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son hefur skráð, og koma út á næstu
dögum. Alþýðublaðið birtir í dag
kafla úr bókinni um Héðin, klofning
Alþýðuflokksins 1938 og starfshætti
kommúnista á fslandi.
Sjá blaðsíður 6 og 7
■ Stjórnarfrumvarp um atvinnuleysistryggingasjóð
Alvarlega þrengt að
bótarétti atvinnulausra
■ Hörð gagnrýni á útdeilingu styrkja til
heilsárshótela á landsbyggðinni
Nefndarmenn
eru að gefa vinum
sínum peninga
- segir Pétur Snæbjörnsson
hótelstjóri sem hefur kært
stjórnsýslulega meðferð
málsins til umboðsmanns
Alþingis.
„Augljóslega eru nefndarmenn
að gefa vinum sínum peninga og því
verður haldið fram þar til annað
verður sannað,“ segir Pétur Snæ-
björnsson hótelstjóri á Hótel Reyni-
hlíð við Mývatn í samtali við Al-
þýðublaðið.
Einsog blaðið hefur greint firá út-
deildi nefnd undir forystu Sturlu
Böðvarssonar 20 milljónum til 11
hótela á landsbyggðinni. Sturla
sagði í samtali við blaðið að megin-
tilgangurinn væri sá að skjóta stoð-
um undir ferðaþjónustu á ákveðn-
um svæðum á landsbyggðinni. Pét-
ur gefur ekki mikið fyrir þær skýr-
ingar þingmannsins.
„Þetta er fjarstæða og ótnílegt að
Sturla skuli halda þessu fram. Onn-
ur fyrirtæki en þau hótel sem hlutu
styrkina eru miklu meiri burðarás-
ar í ferðaþjónustu. Við höfum ekki
fengið nein svör og samgönguráðu-
neytið hefur ekki getað sýnt framá
það með neinum rökum hvaða fag-
leg sjónarmið réðu því að þessi til-
teknu hótel fengu styrkina,“ segir
Pétur.
Honum þykir einnig sérkennilegt
að Samband veitinga- og gistihúsa
þegi þunnu hljóði vegna málsins og
telur skýringanna að leita í þeirri
staðrevnd að formaður samtak-
anna, Áslaug Alfreðsdóttir, hlaut
styrk sem hótelstjóri á ísafirði sem
og stjórnarmaðurinn Sigurður
Skúli Bárðarsson, hótelstjóri í
Stykkishólmi.
„Þá væri gaman að fá skýringar
Sturiu og félaga á því hvemig fyrir-
tæki á borð við Hótel Stykkishólm
getur verið burðarás og leiðandi afi
í ferðaþjónustu á sama tíma og það
skuldar 9 milljónir í Ferðamála-
sjóð? Ætli hótelið þurfi ekki að
greiða þessar skuldir sínar áður en
það stendur fyrir einhverjum nýj-
ungum á sviði ferðaþjónustu? Og
þá er þægilegt til þess að vita að
einn þriggja nefndarmanna, sem út-
hiutaði styrkjunum, er Bjöm Jósep
Arnviðarson fyrir Ferðamálasjóð.
Sá þriðji er Þorleifu* Þór Jónsson
fyrir Ferðamálaráð. Ég gæti trúað
að lánadrottnum mínum hefði þótt
þægilegt að eiga sinn fulltrúa í þess-
ari nefnd,“ segir Pétur sem telur
það útí hött að hann sé greiði háa
vexti til Ferðamálasjóðs auk skatta
þegar keppinautum hans er siðan
úthlutað styrkjum.
Góður
í samanburði
Neqld vetrardekk fylgja öllum Accent bílum.
HYunpni
til framtídar
[Samanburðurínn hjálpar þér að velja rétt
3 dyra bílar HYUNÖAI vw TOYOTA OPEl NISSAN
Acwnl LSI GolfCL Corolla XLi Astra GL Almera LX
Rúmtak vélar sm2 1341 1398 1330 1389 1392
Hestöfl 84 60 75 60 87
Lengd 4103 4020 4095 4051 4120
Breidd 1620 1696 1685 1691 1690
Vökva- og veltistýri J J J J J
Utvarp + segulb. J J N J/N J
VERÐ 979,000 1.220.000 1.164.000 1.199.000 1.248.000
dyra LSi. Verð frá
•nii
i