Alþýðublaðið - 21.11.1996, Side 1
■ Páll Pétursson félagsmálaráðherra sakaður um að falsa staðreyndir á Alþingi í gær
- segir Jóhanna Sigurðardóttir
sem íhugar að kæra Pál fyrir
forsætisnefnd og telur að hann
áformi að leggja félagslega
íbúðakerfið niður.
„Ég tel vinnubrögð Páls ófyrirleitin
og ámælisverð. f svari ráðherrans
koma fram mjög villandi og beinKnis
rangar upplýsingar sem ég tel að jaðri
við að vera bein fölsun staðreynda,"
segir Jóhanna Sigurðardóttir formaður
Þjóðvaka um Pál Pétursson félags-
málaráðherra í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Jóhanna bar fram fyrirspurn sem
snertir félagslega íbúðakerfið í bytjun
október og Húsnæðisstofnun ríkisins
sendi ráðuneytinu svör 25. október.
Jóhanna telur Pál hagræða staðreynd-
um í svörum sínum nú og þau séu í
engu samræmi við niðurstöður Hús-
næðisstofnunar sem eru félagslega
íbúðakerfmu mjög i hag. Þar segir til
dæmis að 90 fermetra félagsleg íbúð
sé allt að einni milljón króna ódýrari
en sambærileg íbúð á almennum
markaði.
„Ráðherrann ber það á borð fyrir
þingmenn að verð á íbúðum á almenn-
urn markaði sé miklu hagstæðara en
verð á félagslegum íbúðum. Hann vill
ekki svara spurningu um greiðslu-
byrði, segir að samanburðurinn sé fé-
lagslegum íbúðum í óhag. Hins vegar
kemur fram í svari Húsnæðisstofnunar
að ef kaupendur eiga ekkert fé til að
leggja í íbúðina borgi þeir 31 þúsund á
mánuði í félagslega íbúð en tæp 68
þúsund í afborganir af sambærilegri
íbúð á almennum markaði,“ sagði Jó-
hanna.
Hún segir ennfremur að ef við bæt-
ist að sveitarfélögin láni 10 prósent,
eins og heimildir eru fyrir, sé munur-
inn enn meiri eða 18.900 samanborið
við 68 þúsund.
„Það er sama hvar gripið er niður,
ráðherra snýr öllu við,“ segir Jóhanna.
„Þegar spurt er um útreikninga á
greiðslubyrði á almenna markaðinum
á nýrri íbúð og notaðri, ber hann sam-
an notaða gamla íbúð í Bolungarvík
uppá 3 milljónir og nýja félagslega
íbúð uppá 7 milljónir og fær útúr því
að það sé hagstæðara að kaupa á al-
mennum markaði. Hann segir að
greiðslubyrðin sé hagstæðari á al-
mennum markaði eða sem nemur
18.800 krónum. Ef hann notaði réttan
samanburð, sem væri ný íbúð, kemur í
ljós að greiðslubyrðin er 70.800 krón-
ur.“
Jóhanna segir þetta jaðra við fölsun
og íhugar að kæra meðferð málsins til
forsætisnefndar þingsins og fara fram
á að ríkisendurskoðun leggi mat á svar
ráðherrans. Jafnframt að félagsmála-
nefnd þingsins rannsaki málið og gefi
þinginu skýrslu.
„Ráðherra notar ekki svör Húsnæð-
isstofnunar, hunsar þau og býr til svör
sem þjóna lund hans og hann telur sér
hagstæð. I hvaða tilgangi? Ég tel að
hann sé að undirbúa jarðveginn til að
slá af félagslega íbúðakerfið. Líka að
hann sé að fela það hvemig hann hef-
ur eyðilagt kerfið með gífurlegum nið-
urskurði. Þetta er valdníðsla, h'tilsvirð-
ing við þingið og til skammar að
bjóða þingi og þjóð uppá þetta,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir.
Gunnar og Smári á rökstólum
Afdankaður blaðamaður og harðsvíradur mannorös-
morðingi hittast. í blaðinu í dag er ítarlegt vidtal Gunnars
Egilssonar blaðamanns við Smára Egilsson rithöfund.
Til skammar að bjóða
þingi og þjóð uppá þetta
■ BSRB
Launastefna
borgarinnar
harðlega
gagnrýnd
- Ögmundur Jónasson: Ég
vona að það sé ekki samasem
merki milli nútíma jafnaðar-
stefnu og launastefnu Friðrik
Sophussonar.
„Yfirlýst meginmarkmið borgaryf-
irvalda í komandi kjarasamningavið-
ræðum hafa komið mikið á óvart enda
ganga þær þvert á yfirlýsingar forystu-
manna R-listans um að leiðrétta kjörin
og jaífia hlut kvenna,“ segir Ögmund-
ur Jónasson formaður BSRB sem hélt
bandalagsráðstefnu í vikunni. „Yfir-
borganir eru undirrót launamisréttins
milli kynja og því er skrítið ef það á
að koma á launakerfi sem eykur slíkt
misrétti. Á sama tíma og borgin setur
þetta fram er verið að tala um að jafna
launamun kynjanna. Við viljum að
Reykjavíkurborg tjúfi þessa mótsögn
og það gerist ekki með en því að
leggjast á sveif með þeim sem fylgja
ójafnaðarstefnu og spyrða sig saman
við ráðuneyti Friðriks Sophussonar.
Ráðstefnan ályktaði að mótmæla
harðlega stefnu samninganefndar rík-
isins og borgarinnar sem miðar að því
að að draga úr vægi launataxta með
viðbótarlaunum sem eru hugsuð á for-
sendum atvinnurekandans. Ég vona að
það sé ekki samasemmerki milli nú-
tíma jafnaðarstefnu og launastefnu
Friðrik Sophussonar því hún hefur
ekkert með jöfnuð að gera og eykur
hún þvert á móti ójöfnuð."
Ögmundur telur að með yfirlýsing-
unni sé gengið framhjá verkalýðs-
hreyfingunni og í henni sé verið að
draga úr vægi félagslegra ákvarðana
og auka vægi atvinnurekandans.
ora
TAKTU EFTIR NÝJA ÚTLITINU!
Notaðu
m piparköku-
F mótið og búðu
til fiskönd, fisksvín, fiskblóm
eða annað sem börnin vilja helst.
á allra borð
Prófaðu hann til dæmis með:
bökuðum baunum,
brúnuðum lauk og spældu egg:
kartöflusalati og fersku grænmeti
eða skerðu hann í litla bita og
útbúðu spennandi sumarsalat.
►
►
►
►