Alþýðublaðið - 10.12.1996, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996
s k o ð a n i r
MMIVBLMIID
21226. tölubiað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiöjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverö kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Kornhlöður
jafnaðarmanna
Niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar, sem
gerð var fyrir þingflokk jafnaðarmanna, eru athyglisverðar um
margt. Úrtakið var fimmtán hundruð manns og fengust svör frá
1078 eða 71,9 prósenti, og má ætla að það endurspegli þjóðina á
aldrinum 18 til 75 ára allvel. Spurt var hvað svarendur kysu ef
einungis þrír listar væru í framboði: Sjálfstæðisflokkur, Fram-
sóknarflokkur og listi sameinaðra jafnaðarmanna. Sjálfstæðis-
flokkur fékk í könnuninni 37,5 prósent, Framsókn 23 og listi
jafnaðarmanna 39,5. Munurinn á Sjálfstæðisflokki og jafnaðar-
mönnum er ekki marktækur, þarsem vikmörk eru í báðum tilvik-
um 3,3 prósentustig.
Ýmsir talsmenn sameiningar hafa fagnað niðurstöðum könnun-
arinnar, og talið til marks um frjóan jarðveg meðal kjósenda.
Staðreyndin er nú samt sú, að fylgi „lista sameinaðra jafnaðar-
manna“ í könnun Félagsvísindastofnunar er álíka og samanlagt
kjörfylgi stjómarandstöðuflokkanna fjögurra í síðustu kosning-
um. Hugmyndin um sameiningu jafnaðarmanna hefur þannig
t-- engan hljómgmnn öðlast meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar, en þar er hinsvegar dijúgs fylgis að vænta, að mati
ýmissa foringja jafnaðarmanna. Könnunin sýnir því að mikið
verk er fyrir höndum að selja hugmyndina annarsstaðar en hjá
litlu og áhrifalausu stjómarandstöðuflokkunum.
Þegar rýnt er nánar í könnunina kemur sitthvað í ljós sem ætti
að vera jafnaðarmönnum umhugsunarefni. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur þannig talsverða yfirburði meðal kjósenda á aldrinum 18 til
24 ára, fær 44,3 prósent, jafnaðarmenn 34,3 og Framsókn 21,4.
Útkoma stjórnarandstöðunnar hjá ungu fólki er yfirleitt mjög
óglæsileg. Hjá þeim sem ekki höfðu kosningarétt síðast fær Al-
þýðuflokkurinn 10,8 prósent, Alþýðubandalagið 8,1, Kvennalist-
inn 2,7 og Þjóðvaki núll prósent. 8,1 prósent þessa unga fólks
kveðst ætla að kjósa „einhvem vinstri flokk“. Sjálfstæðisflokkur-
inn ber höfuð og herðar yfir aðra flokka hjá nýjum kjósendum,
fær 43,2 prósent og Framsókn fær 16,2. Þannig njóta stjómar-
flokkamir stuðnings um 60 prósenta nýrra kjósenda. En þótt æsk-
an virðist ekki albúin að rétta sameinuðum flokki jafnaðarmanna
örvandi hönd, þá geta þeir huggað sig við að meðal fólks á aldr-
inum 60 til 75 ára hafa jafnaðarmenn mikið forskot á bæði Sjálf-
stæðisflokk og Framsókn.
Vel strokkað tillasmjör
Hallgrímur Helgason
101 Reykjavík
Mál og menning 1996
Woody AUen fór á hraðlestrar-
námskeið og las svo Stríð og frið eftir
Tolstoy á tveim klukkustundum.
Hann minnti að bókin hefði verið um
einhverja Rússa. Með þess konar
lestrartækni er hægt að bruna í gegn-
Bækur
Þórhallur
Eyþórsson
skrifar
um samanlagðar heimsbókmenntimar
á mettíma. Ilíonskviða: fjallar hún
ekki um reiða Grikki sem fóra í stríð
vegna einhverrar konu? Odysseifur
eftir James Joyce: maður á til-
gangslausu hringsóli í Dyflinni.
Islendingasögur: bændur flugust á.
101 Reykjavík: einhver náungi að fróa
sér á milli uppáferða.
Sjálfsfróun og uppáferðir era vis-
sulega fyrirferðarmikil atriði í skáld-
sögu Hallgríms Helgasonar. Sæðið
drýpur á hverri blaðsíðu í bland við
aðra líkamsvessa. Engu að síður er
bókin einlæg (já, einmitt, einlæg)
tilraun til að greina samtíð okkar með
augum manns sem er „óvirkur“ þátt-
takandi í „þessu óljósa samhengi sem
kallað er þjóðfélag". Hlynur Björn
Hafsteinsson, tæplega hálffertugur
„munkur í klámklaustri“, er það sem
eftir af einstaklingnum þegar hann
hefur afklæðst persónuleikanum: „Það
eina sem ég veit er ég.“ Þetta er
tilbrigði eftir William Burroughs um
stef eftir Georg Brandes, eins undar-
lega og það hljómar.
Tilraunin um Hlyn Bjöm heppnast
vegna þess hversu höfundur er óvið-
jafnanlega fyndinn. Hann segir
sannleikann með bros - og sitthvað
fleira - á vör. Hallgrímur er hins vegar
ekki löggiltur þjóðfélagsrýnir. Hann er
meira svona nettengt Erró-dæmi.
Söguna má afhýða á eftirfarandi
hátt. Ungur amlóði, sem býr ennþá
heima hjá móður sinni, er þunglyndur,
innhverfur og fullur efasemda um það
hvort hann eigi að vera eða ekki. Allt í
einu birtist draugur úr fortíðinni, sem
reynist vera faðir hans, og ýjar að
ótíðindum í fjölskyldunni. Ungi
maðurinn er tvístígandi og hefur litla
hugmynd um það hvemig hann eigi að
greiða úr eigin tilvistarvanda, hvað þá
vandamálum sinna nánustu. I augum
annarra er vafasamt að hann sé heill á
geðsmunum, en í raun og vera er það
uppgerð hjá honum til að kaupa sér
frið. Talið er að undarleg hegðun hans
stafi af ást á stúlku nokkurri sem hann
var áður í þingum við en sýndi
skeytingarleysi og ruddaskap. Eftir
sýningu á leikriti fær hann staðfest-
ingu á grunsemdum sínum um
óheillavænlegt samband móðurinnar
og annarrar persónu sem býr á heimil-
inu. Það kemur til orðasennu á milli
hans og móðurinnar. Hann sýnir föður
fyrrverandi unnustu sinnar lítils-
virðingu. Móðir hans og hinn nýi lífs-
föranautur hennar vilja losna við hann
og bjóða honum því í utanlandsferð.
Hann lendir f slagtogi með tveim
delum sem eru ekki allir þar sem þeir
era séðir. Söguhetja vor kemur aftur
heim úr svaðilförinni heil á húfi.
Kærastan er úr leik eftir mikil
harmkvæli en bróðir hennar, algjör
andstæða unga mannsins, hyggst
hefna þeirrar svívirðingar sem hann
telur að fjölskylda sín hafi mátt sæta
af hálfu hans. Endalokin era eins og í
sönnum harmleik.
Hefur nokkur heyrt þetta áður? Ef
svo er þá kann það að vera vegna þess
að amlóðinn ungi í 101 Reykjavík er
enginn annar en Hamlet Danaprins,
frægasta hetjan í heimsbókmennt-
unum (þið munið, þessum sem fjalla
um einhverja Rússa, reiða Grikki,
hringsól í Dyflinni, áflog bænda og
svo framvegis). Að auki er hann með
drætti frá „Odda pussu“ (þessum sem
drap pabba sinn, giftist mömmu sinni
og missti sjónina). Og svo framvegis
eins og í leikritinu, að því smáatriði
frátöldu að Hallgrímur er auðvitað
ekki Shakespeare (og ekki heldur
Sófókles) - og öfúgt.
Hallgrímur er Hlynur Bjöm alveg
eins og hann var Ragga Bima í Þetta
er allt að kotna. Eini gallinn á þeirri
bók var að þrátt fyrir 434 blaðsíður
var hún of stutt. Við þekktum þessa
konu og vildum meira. Þrátt íyrir allan
orðaflauminn í 101 Reykjavík er ekki
orði ofaukið; við áfellumst ekki
Mozart fyrir ansi margar nótur í Don
Giovanni. Þetta er sígild saga um
ungling sem fullorðnast ekki af því að
hann er alltaf að spyrja sjálfan sig:
„To be or not to be? To me or not to
me?“ Það er kallað „apóría“ á grísku
fagmáli og þýðir ógöngur á íslensku
en í Orðskýringum aftast í bókinni
stendur: „hlynur björn veiklyndur
maður í vanda". Ef Veraldarvefarinn
Hlynur Bjöm væri ekki til hefði þurft
að finna hann upp.
Hallgrímur er meira en góður
stflisti. Hann hefur óvenjulegt vald á
blæbrigðum íslensks nútímamáls. í
bland við alnæmt skopskyn hefur það
gert hann að dálítið ofnotuðum gull-
dreng í hverjum hlaðvarpa. Hann er
gullinmunni, krýsostomos. Dæmi um
nákvæma og óskeikula ffásagnartækni
er verðlagning á kvenpersónum í
sögunni. Hófí (40.000), Hillary
Clinton (45.000), Búbba (150.000),
Linda Pé (250.000), Pamela Anderson
(4.700.000). Samanber Verðskrá
aftast. Þetta eru kvenlýsingar okkar
tíma, ekki neitt „kona væn“ hér. I
kjölfar Jane -Austen-endurvakn-
ingarinnar er þó ef til vill ekki óþarft
að minna á svipaða flokkun þar á bæ,
t.d. Miss Grey í Sense and Sensibility
(£50.000).
„Vélstrokkað tilberasmjör" kallaði
Guðmundur Finnbogason á sínum
tíma snilldarlega tilraun ungs höfund-
ar til að hleypa nútímanum inn í íslen-
skar bókmenntir (nafnið á þeirri bók
þýðir núna: „sá gestur samkvæmis
sem vefur hassvindlinga"). Hallgrímur
Helgason leitar ekki skjóls í kóngsins
Kaupmannahöfn eða á slóðum
Vestur-Islendinga. Vel strokkað tilla-
smjör hans drýpur hér og nú í 101
Reykjavík. Það er ekki bara póst-
númer heldur tilvist. Svona er ísland í
dag. ■
Tölur um fýlgi flokkanna í Reykjavík eru þó uppörvandi fyrir
andstæðinga Sjálfstæðisflokksins. Þar fær listi sameinaðra jafn-
aðarmanna 47 prósenta fylgi, Framsókn 17 en Sjálfstæðisflokkur-
inn aðeins 36. Þetta gefur vissulega góð fyrirheit fyrir næstu
borgarstjórnarkosningar, en þá munu Reykjavíkurlistinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn væntanlega leiða hesta sína saman á nýjan leik.
Dágott fylgi Framsóknar í höfuðborginni kann að koma nokkuð á
óvart, en gefur vísbendingu um að Framsókn ætli ekki að tjalda
til einnar nætur í landnámi sínu meðal kjósenda á suðvesturhom-
inu. Hinsvegar virðast kjósendur flokksins á Reykjanesi unnvörp-
um snúa við honum bakinu, enda hafa frambjóðendur flokksins
þar ekki reynst eiga neina innistæðu fyrir fjölmörgum loforðum
sem gefin vom fyrir tæpum tveimur ámm. Sjálfstæðisflokkurinn
heldur sínu á Reykjanesi, en sameinaðir jafnaðarmenn fá þar rétt
um 40 prósent. A landsbyggðinni skiptist fylgi fylkinganna þrig-
gja hnífjafnt, og þar er minnstur stuðningur við lista jafnaðar-
manna.
Jafnaðarmenn geta dregið ýmsa lærdóma af könnun Félagsvís-
indastofnunar, og ekki bara þann hvert máttur sameiningar getur
skilað þeim. Menn ættu hinsvegar að varast fagnaðarlæti úr hófí
fram: Ennþá er mikið starf eftir við að plægja jarðveginn, og því
helstil snemmt að ráðstafa uppskemnni. ■
e s e
Atburðir dagsins
1886 Oscar Nickolin lyfja-
sveinn auglýsti í Þjóðólfi að
hann tæki að sér „tannlækning-
ar án þess að draga tennurnar
út“, og mun þetta fyrsta auglýs-
ingin hérlendis um tannlækn-
ingar. 1901 Nóbelsvcrðlaunin
veitt í fyrsta skipti. 1907 Bif-
reið ekið í fyrsta sinn Norðan-
lands, frá Akureyri að Grund f
Eyjafirði. 1924 Rauði kross fs-
lands stofnaður. Fyrsti formað-
ur var Sveinn Bjömsson, síðar
forseti fslands. 1955 Halldór
Laxness tók við Nóbelsverð-
launum í bókmenntum í Stokk-
hólmi. 1979 Móðir Teresa hlýt-
ur friðarverðlaun Nóbels. 1989
Gustav Husak forseti Tékkó-
slóvakíu sver embættiseið fyrir
hönd fyrstu ríkisstjómar lands-
ins síðan 1948 sem ekki er
skipuð kommúnistum. Að því
búnu sagði Husak af sér. 1990
Kommúnistaflokkur Milosevic
í Serbfu vinnur sigur í lrjálsum
kosningum.
Afmælisbörn dagsins
César Franck 1822, belgískur
tónsmiður. Emily Dickinson
1830, bandarísk skáldkona.
Orti yfir sautján hundruð Ijóð,
en aðeins sjö voru prentuð
meðan hún var á lífi. Olivicr
Messiaen 1908, franskur tón-
smiður.
Annálsbrot dagsins
í Meðallandi á Síðu austur
hvarf maður, Svcrrir að nafni;
fór með öðrum á rótafjall og
fannst ekki aftur, en tveimur
árum fyrir hvarf annar ntaður
giftur af rótafjalli úr santa
plássi og fannst eigi aftur, en
þessi Sverrir, er nú hvarf, eign-
aðist konu hins, og meina
menn, að eitthvert tröll hafi
grandað þeim báðum eður aðrir
vættir.
Setbergsannáll 1626.
Hlátur dagsins
Já ég hef aldrei getað ímyndað
mér neitt eins hlægilegt og ást-
fánginn dómkirkjuprest.
Snæfríður íslandssól I Islands-
klukku Halldórs Laxness.
Málsháttur dagsins
Gott er að telja peninga úr
pyngju annars.
Ofstækismadur
dagsins
Ofstækismaður er maður sem
gerir það sem hann álítur að
guð myndi gera ef hann þckkti
allar staðreyndir málsins.
Finley Peter Dunne.
Orð dagsins
Ég skil ekki upphafið
ég skii ekki ástina
e'g skil ekki dauðann.
Overðskuldað
er þetta þrennt.
Sigfús Daðason; Þrennt.
Skák dagsins
Króatinn snjalli Milo Gavran
hefur hvítt og á leik í skák
dagsins gegn Serbanum Arkan.
Hvítur fær óvænt færi til að
töfra fram eitt kunnasta og
rómantfskasta stef skáksögunn-
ar: eins þótt svartur hóti bæði
máti og því að kála hvítu
drottningunni.
Hvítur leikur og vinnur.
1. RI7+ Kg8 2. Rh6++ Kh8 3.
Dg8+!! Ilxg8 4. Rf7 Skák og
ntát. Sígilt og sjaldséð.