Alþýðublaðið - 09.01.1997, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Stjórnmál og hugmyndafræði
2. grein
Trúarleg viðhojrf til stjórn-
málafræði eni svo aigeng ;að
þau standa stjórnmálabaráttu fyrir
þrifum. Hugmyndafræði er, rétt
eins og önnur afkvæmi mannsand-
ans, fyrirbæri sem breytist fyrir
áhrif einstaklinga og hópa, fyrir
áhrif umhverfsins og fyrir áhrif
reynslunnar sem af hugmynda-
fræðinni hlýst. Þess vegna er leitt
til þess að vita að margir ýmist taka
Pallborð |
Ari Trausti
Guðmundsson
skrifar
hugmyndafræðina sem geirneglda
kreddu eða velja úr mótsagna-
kenndu ferli það sem hentar til að
styðja stefnu eða vinna gegn henni.
Jafn leitt er að vita til þess að marg-
ir skuli reyna að gera hlut
hugmyndafræði sent minnstan í
stjórnmálum og boða að þau séu
„bara praktískar leiðbeinigar um
lausnir á daglegum vandamálum”
eða „spurning um vilja”. I þessu
umhverfi er auðvelt að umgangast
stjórnmál eins og menn gerðu með
öll sín veraldlegu mál á miðöldum:
Grípa stefnuskrár eins og forskriftir
að öllum lausnum, aðhyllast ein-
hvern „ismann” sem lífsstíl og
boðorð og taka mótsagnakennd
ritverk stjórnmálaforingja og lesa
úr þeim hvað eina sem vantar til
lasts eða lofs, eftir hentugleikum.
Loks kemur hið trúarlega viðhorf
fram þegar menn veita sjálfum sér
“aflausn” eða fyrirskipa öðrum slík
siðferðileg uppgjör í nafni sam-
áb.yrgðar (áem reyndar fær svo. ekki
að' éiga við' um sjálf trúarbrögðin og
sögu þerra).
Talsverð eftirvænting ríkir
nú meðal starfsmanna
tímaritaútgáfunnar Fróða
hvort farið verið útí tvöfalda
útgerð á flaggskipi fyrirtækis-
ins, Séð og heyrt. Margir
muna eflaust þegar hinir ví-
greifu ritstjórar blaðsins,
Krisrtján Þorvaldsson og
Bjarni Brynjólfsson, lýstu
því yfir áður en fyrsta blaðið
kom út að takmarkið hlyti að
vera að gefa blaðið út viku-
lega. Siðan þá hafa mörg vötn
runnið til Dýrafjarðar og blaðið
hefur sannarlega fest sig í
sessi á þeim markaði sem ætl-
að var. Á Fróðaheimilinu mun
nú vera grannskoðað hvort
vikuleg útgáfa sé möguleg -
ekki síst hvorttæknilegir ann-
markar kunni að vera á. Bæði
á ritstjórn og skrifstofu telja
menn ekkert því til fyrirstöðu.
Þetta ættu að vera uggvænleg
tíðindi fyrir Helgarpóstinn og
jafnvel helgarútgáfu dv en tal-
ið er að Séð og heyrt hafi helst
stolið lesendum þaðan...
Stjórnmál með trúarlega ballest
eða stjórnmál þar sem hugmynda-
fræðin er látin skipa botnsæti starf-
anna eru uppskrift að lýðræðisdoða,
gagnrýni, nöldri án aðgerða og
stjórnmálaöngþveiti.
Til dæmis hefur íslenskri verka-
lýðshreyfingu gengið best í baráttu
fyrir kjörum, réttindum og
þóðfélagsvöldum þegar deilt hefur
verið um hugmyndafræði eða hún
látin skipa veglegan sess í starfinu.
Vegferð skyndiframboða og klofn-
ingsframboða sýnir hvernig léleg
hugmyndafræðiundirstaða dregur
flokka fljótt til dauða. Pattstaða
íslenskrar, sósíalískrar og sósíal-
demókratískrar hreyfingar núna er
skýranleg með þessum atriðum.
I stjórnmálafræði eru til skýr-
ingar á því hvernig stjórnmálakenn-
ingar þróast með blómlegum
frumsmíðum, jafnvel áratugum
saman, uns tekst að reyna þær í eldi
raunveruleikans; sem hagfræði og
stjórnlist í samfélagi eða með
stjórnarþátttöku. Þá kvíslast kenn-
ingarnar og átök harðna, ekki hvað
síst innan þeirrar hreyfingar sem
ber uppi tiltekna stjórnmálastefnu.
Svona stigskipt saga sést glögglega
af sögu hinna launuðu stétta, frá
öndverðri 19. öld fram að deilum
stórvelda sem kenndu sig við
sósíalisma, 1960-1970, Harður
skóli reynslunnar og margvísleg
misnotkun valdsins, rangar hug-
myndir meðal sósíalista og ófyrit-
séð þróun kapítalismans; allt hefur
þetta margklofið og tvístrað þeirri
tiltölulega breiðu samfylkingu sem
komst á skrið í kringum síðustu
aldamót. Margir telja sig þess
umkomna að vinsa úr þessari sögu,
og þar með hinni fjölþættu hug-
myndafræði, nýtilega stefnu í nú-
tímanum. Væntanlega er slíkt í
samræmi við meginhugmyndir þes-
sara fræða. Aðrir telja sig þess
umkomna að afskrifa „isma” ,
dæma lifendur og dauða og heimta
Femínisminn hefur sýnt sig
sem of einhæfan sjónarhól
og Framsóknarflokkurinn
er í raun þjóðlegur
umbótaflokkur sem hefur
látið hugsjónir Ifða fyrir
dægurmál.
syndaaflausnir þeirra sem halda fast
við grunngildi frelsis, jafnréttis og
bræðralags. I stað þeirra trúarlegu
viðhorfa færi betur á því að
rökræða um höfuðatriðin og setja
fram þéttriðna grunnstefnu; nokkuð
sem ekki er gert. Þar í liggur dauf-
leiki og pattstaða íslenskra stjórn-
mála.
í 20-30 ár hafa íslenskir stjórn-
málaflokkar haft stöðugt fylgi ef frá
eru taldar skammlífar sveiflur og
einn nýr flokkur sem legið hefur á
bilinu 5-10% í kjörfylgi. Mjög
mörgum finnst ærlega að eitthvert
hugmyndafræðiblaður sé allsendis
til óþurftar í þessari stöðu; nóg sé
að blása til samfylkingar um
„brýnustu verkefnin”.
Því miður er staða launamanna
hvergi nærri viðunandi á Islandi;
hvað varðar launakjör, vinnutíma,
menntun, félagsþjónustu, lýðræði,
völd og vegsemd. Ríkjandi hag-
fræði innan hreyfingar þeirra er
kapítalísk. í stað minnkandi vinnu-
tíma og v-evrópskra launa horfir til
atvinnuleysis og æ meira vinnu-
álags, samhjálp í sjúkra- og
félagsþjónustu er á undanhaldi,
menntun er víða á fallanda fæti og
valdabi) vex á milli þeirra sem bara
kjósa á 4 ára frest og hinna sem
valda ákvörðununum. Þá er mest
um vert að koma af stað og halda
uppi hugmyndasmíðum, stefnumót-
um og hugsjónaboðun er meitla
aðalatriðin í nýrri heimsmynd þeir-
ra sem í raun eiga mest í allri
verðmætasmíð og umsýslu: Hins
vinnandi fjölda. Upphaflega spratt
jafnaðarmennska úr hugmyndum
um frelsi launamannsins frá því að
vera háður til lífs hverjum þeim
sem eignaðist fjölþætt framleiðslu-
eða þjónustutæki. Hún boðaði jafn-
an rétt allra til að smíða sér framtíð
án þess að lifa af öðrum. Hún
boðaði samstöðu þegna um grun-
nþarfir og grunngildi og samhjálp
yfir landamæri. Þegar þessu er
snúið vandlega upp á marþætt nútí-
maþjóðfélag verður úr viðamikil
stefna sem mótast og breytist hratt;
eins konar tilbrigði við nokkur
grunnstef. Flokkarnir hafa vanrækt
þessa mótum; vanrækt rökræðurnar,
fræðsluna og deilurnar og faglega
hreyfingin hefur úthýst slíku, nema
praktískustu atriðunum.
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið hafa helst deilt urn fáein
en stórvaxin framkvæmdaatriði.
Báðir hafa flokkarnir hunsað eða
kæft alla nýsköpun til vinstri við
sig. Femínisminn hefur sýnt sig
sem of einhæfan sjónarhól og
Framsóknarflokkurinn er í raun
þjóðlegur umbótaflokkur sem hefur
látið hugsjónir líða fyrir dægurmál.
Við svona aðstæður hefst gerjun;
einmitt á sviði hugmyndafræði. ■
n i n u m e g i n
"FarSide” eftir Gary Larson
Likt og önnur héraðsfrétta-
blöð, sem og reyndar aðrir
fjölmiðlar, hafa VíkrErédir
stundum þurft að glíma við
fremur tíðindalítinn veruleika.
Oft og tíðum hefur stór hluti
þess verið lagður undir ritdeil-
ur við hitt fréttablað þeirra
Suðurnesjamanna, frásagnir
af brúðkaupum og barnsfæð-
ingum. Á fyrsta tölublaði
þessa árs státar blaðið státar
þó af forsíðu sem hvert erlent
stórblað gæti verið stolt af.
Annars vegar er frétt um morð
að morgni nýjársdags og hins-
vegar stórbruna í trésmiðjunni
Víkurás. Á innsíðum er síðan
sagt frá grófu hnífsstungumáli
í Keflavík og innbrotafaraldri í
Grindavík. Nú spyrja menn sig
hvort það ríki skálmöld á Suð-
urnesjum?...
Nú er kröfulýsingafrestur í
þrotabú Miðils hf, sem gaf
út Helgarpóstinn útrunninn, en
hann rann út þann 20. desem-
ber. Stærsti kröfuhafinn er
Gjaldheimtan en eignir búsins
samanstanda aðallega af
ógreiddum auglýsingum og
einhverjum áskriftartekjum. Á
þessu stigi málsins er ólíklegt
að málið verði sent ríkissak-
sóknara. Þeir sem vilja hitta
fyrrum framkvæmdastjóra
þrotabúsins, Þorbjörn Tjörva
Stefánsson þurfa þó ekki á
miðilsfund, sá er orðinn úra-
sölumaður í Kringlunni og
þykir vel til þess fallinn að
selja klukkur...
r
Iblaðinu í gær sögðum við frá
kveðjuhófi sem haldið var
fyrir Þórunni Stefánsdóttur
ritara Rásar 2. Þar slæddist inn
sú villa að þeir félagar Ingólf-
ur Margeirsson og Árni Þór-
arinsson hefðu sviðsett þátt-
inn Á elleftu stundu í hófinu.
Hið rétta er að þeir brugðu
upp atriði úr hinum vinsæla
þriðja manni sem var á dag-
skrá Rásar 2 á stnum tíma.
Þórunn var þeim jafnan til að-
stoðar við þá þætti og því
gjarnan nefnd fjórði maður-
inn...
„Hey, bíðum nú aðeins hægar.
höfum verið að éta gras!"
Þetta er gras! Systur! Við
Fanney Long Einarsdóttir
símavörður: Já, ég fór að sjá
Stone Free.
Siggeir Hafsteinsson
geimfari: Nei, og ætla ekki.
Eg er of upptekinn í öðrum
heimum.
Helga Kjartansdóttir
nemi: Nei, en ég ætla að ftu-a
að sjá Stone Free.
Árni Ólafsson nemi: Nei.
Ég átti ntiða á Svaninn en
komst ekki.
Lillý Oddsdóttir skrif-
stofumaður: Nei, en ég hef
hugsað mér að fara einhvern
tíma í vetur.
m e n n
Fylgifiskar foringjans
sjá ekki svikamylluna því eins
og blindir kettlingar liggja þeir
á spenanum.
Ástþór Magnússon rekur hornin
Kolkrabbann og Bubba foringja - og hikar
ekki viö það. DV í gær.
Þegar forsætisráðherra skipar
nefnd, sem beinlínis er falið að
gera tillögur um lækkun fram-
færslukostnaðar, hljóta það að
vera mikil vonbrigði fyrir hann
eins og marga aðra, að nefndin
skyldi hlaupa frá verkinu af ótta
við að trufla valdamikla aðila í
þjóðfélaginu.
Jónas Kristjánsson verölaunapenni bregöur
fyrir sig háði í leiöara sínum. DV í gær.
í þessum músagangi gerðist
sá sjaldgæfi atburður að mús tók
sár bólfestu í kind.
Frétt í DV um músafaraldur í Fljótum.
Það er líklega aldrei of
varlega farið í baráttunni við
flensuskrattann.
Víkverji Moggans í gær
Ekki er hægt að mæla gegn
því að Winterson sé einstaklega
hæfileikaríkur rithöfundur. Hún
hefur sjálf lýst því yfir og margir
mætir menn hafa tekið undir
þau orð hennar.
Breski rithöfundurinn Jeanette Winterson
hlýtur lítið lof fyrir nýjustu bók sína Gut
Symmetries. Mogginn í gær.
En svona er ísiand í dag,
fullt af skringilegum uppákomum
í fjölmiðlum. Dýrlingar og píslar-
vottar skiptast á athyglinni, einn
er hafinn upp til skýjanna, annar
tekinn af lífi, kannski kona sem
lendir í drekkingarhyl af því hún
var ekki herrunum þóknanleg.
Hlín Agnarsdóttir lætur móðan mása í Degi
Tímanum um afmæli LR og almenna stööu
leiklistar í landinu, hún laumar smá femín-
isma aö til að undirstrika hvar hún stendur.
Getur einlæg meining legið að
baki texta sem er fjöldaframleidd-
ur a< kortaútgáfum. Prentaður
með maskínubleki í jólakort sem
keypt eru í pökkum og send nöfn-
um sem lafa á fornum lista yfir
vini og vandamenn?
Nú eftir átiö og pakka og kortaflóðið
taka aukakílóin og yfirdrátturinn á heftinu
yfir sálarlífið. Þá er ekki úr vegi að gefa
skít í þetta allt. Sigurbjörg Þrastardóttir
skrifar í DT.
smáa letrið
Janúar
Bjartasta reikistjaman Venus er
morgunstjama, en nærri sól og lágt á
lofti. í byijun mánaðar er hún 4° yfir
sjónbaug á suðurhimni við sólampp-
rás í Reykjavík, en í mánaðarlok rís
hún með sól. Satúmus er kvöld-
stjama, allhátt á suðurhintni við
myrkur og sest fyrir miðnætti. Hann
er í fiskamerki. Mars kemur upp fyrir
miðnættið og sest best síðari hluta
nætur. Hann er í meyjarmerki og ein-
kennist að rauða litnum.
Kafli úr mánaðarlegu yfirliti um stöðu
björtustu reikistjarnanna eins og þær
munu sjást frá íslandi árið 1997.
Úr Almanaki Þjóðvinafélagsins.