Alþýðublaðið - 25.02.1997, Side 1
Þriðjudagur 25. febrúar 1997
Stofnað 1919
28. tölublað - 78. árgangur
Skorið á hnútinn í launamálum bankastjóranna
Völdin tekin af bankaráðunum
- segir Guðmundur Árni Stefánsson, sem leggur til að kjaradómur ákveði öll laun og sporslur
bankastjóranna
“Finnur Ingólfsson hefur sagt að
það skorti úrræði til að höggva á
hnútinn í launamálum bankastjór-
anna, af því gildandi lög fyrirskipa
að það séu bankaráðin sem eiga að
ákveða laun þeirra. Valdið til að
breyta því liggur hér hjá okkur á
hinu háa Alþingi. Þessvegna hef ég
lagt til með fjórum félögum mínum
úr þingflokki jafnaðarmanna að Al-
þingi breyti lögunum þannig að
það verði í framtíðinni kjaradómur
sem ákveður laun.bankastjóra rík-
isbankanna, alveg einsog annarra
forstjóra hjá stofriunum ríkisins.”
Þetta sagði Guðmundur Ami Stef-
ánsson, þingmaður, sem á dögun-
um boðaði í utandagskrárumræðu
að hann myndi leggja fram frum-
varp um málið. Það hefur Guð-
mundur nú gert ásamt Rannveigu
Guðmundsdóttur, Lúðvík Berg-
vinssyni, Merði Ámasyni og Öss-
uri Skarphéðinssyni. Aðsurður
kvaðst hann ekki eiga von á öðm
en frumvarpið yrði samþykkt fljót-
lega, því þingmenn hefðu hver í
kapp við annan lýst yfir svipuðum
viðhorfum þegar málið var rætt í
þinginu. “Þeir hljóta að standa við
orð sín, og leggja sig í framkróka
um að samþykkja þetta mál,
þannig að í eitt skipti fyrir öll verði
komið skikk á launamál banka-
stjóranna.”
Guðmundur Ámi kvaðst fastlega
búast við því að Finnur Ingólfsson,
bankamálaráðherra, og ef til vill
fleiri andæfðu tillögunum með því
að segja að hvort sem er yrði tekið
á launamálum bankastjóranna þeg-
ar bankamir yrðu gerðir að hlutafé-
lögum.
“En hver verða afdrif þeirra hug-
mynda? Það veit enginn. Innan
stjómarliðsins er allt upp í loft útaf
hugmyndum ríkisstjómarinnar,
enda hafa margir efasemdir um
málið einsog það hefur verið
kynnt.”
Þingmaðurinn kvað allt þjóðfé-
lagið hafa verið á öðmm endanum
útaf launakjömm bankastjóranna,
og ef þingmenn meintu það sem
þeir sögðu á dögunum, hlytu þeir
að samþykkja þessar tillögur
fimmmenninganna.
Munaðarleysi
fremur en
Framsókn
“Það hafa ýmsir þingmenn
úr öllum flokkum ámálgað við
mig að ganga til liðs við þá. En
ég er kvennalistakona og með-
an hann starfar er ég þar,”
sagði Kristín Ástgeirsdóttir í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Hún sagði aðspurð að færi svo
að Kvennalistinn byði ekki
fram, þá væri hún munaðarlaus
kona.
Sjá bls.5
■ Djöflaeyja Einars Kárasonar kemur út hjá einu stærsta bókaforlagi heims
Einar Kárason sigrar Þýskaland
í maí kemur Djöflaeyja Einars
Kárasonar út í Þýskalandi hjá BTB,
vasabrotsforlagi Bertelsmann, en
Bertelsmann samsteypan er eitt
stærsta bókaforlag heims. Djöflaeyj-
an hefur áður komið út í Þýskalandi í
hinni virtu ritröð Enzensbergers, en
er nú uppseld. Bókin kemur nú út í
fyrsta sinn í kilju og mun Einar verða
auglýstur sem höfundur maímánaðar
hjá þessu umsvifamikla bókaforlagi.
Halldór Guðmundsson, útgáfu-
stjóri Máls og menningar, sagði í
stuttu samtali við blaðið að þessi
samningur væri af allt annarri stærð-
argráðu en menn ættu yfirleitt að
venjast. “Með þessum hætti er höf-
undi komið rækilegar á framfæri á
þýska markaðnum en yfirleitt ger-
ist,” sagði Halldór.
Sama forlag mun gefa út Gulleyj-
una, hugsanlega strax í haust, og síð-
ar Fyrirheitna landið. Hanser forlag-
ið, sem þótti hafa mesta forystu í
uppgötvun norrænna bókmennta í
Þýskalandi, mun síðan taka að sér að
frumútgefa nýrri verk Einars.
Heimskra manna ráð mun koma út
snemma á næsta ári og síðan Kvika-
silfur.
Einar Kárason þarf ekki að kvíða
fjárhagsstöðunni á næstunni því
samningurinn mun færa honum
ágætar tekjur. Einar dvelur nú i
Þýskalandi og er að vinna að nýju
skáldverki.
Carina E Classic er komin. Hlaðin aukabúnaði að verðmæt
allt að 100.000 kr. en verðið er óbreytt.
Hafið samband við sölumenn okkar í síma 563 4400 eða
umboðsmenn um land ailt.
Komdu og skoðaðu.
<SB> TOYOTA
Tákn um gæði
verð frá 1.590.000 kr
Auk rikulegs staðalbúnaðar eru:
* Samlitir speglar og hurðarhúnar
* Nýtt áklæði
* Fjarstýrðar hurðalæsingar
* Viðarmælaborð (2.0 Sedan og Wagon)
* Rafstýrðir speglar (1.8 Sedan)