Alþýðublaðið - 04.03.1997, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 04.03.1997, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997 Menntamálaráðuneytið Laust embætti Embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla er laust til umsóknar. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. júní 1997 að telja. Um laun og starfskjör fer eftir ákvörðun kjaranefndar, sbr. lög 120/1992, um Kjaradóm og kjaranefnd, með síðari breyting- um. Umsóknir, með ýtarlegum upplýsingum um menntun og störf, skulu hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja- vík, fyrir 25. mars 1997. Menntamálaráðuneytið, 27. febrúar 1997 Barnamenningar- sjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar telj- ast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna. Á yfirstandandi ári hefur sjóðurinn 1.500.000 kr, til ráðstöfunar. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyt- inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 2. apr- íl 1997. Stjórn Barnamenningarsjóðs, 28. febrúar 1997 Forval Knattspyrnufélagið Þróttur auglýsir eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna hönnunar á fé- lagshúsi fyrir Knattspyrnufélagið Þrótt í Laug- ardal. Rétt til þátttöku í forvalinu hafa allir þeir, sem rétt hafa til að skila inn aðaluppdráttum til byggingarnefndar Reykjavíkur. Valdir verða þrír til fimm þátttakendur til að taka þátt í tillögugerð. Við val á þeim verður færni, menntun, reynsla, afkastageta og hæfileikar til samvinnu og stjórnunar, lögð til grundvallar. Forvalsgögn liggja frammi hjá byggingadeild borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 5. hæð, 105 Reykjavík. Umsóknum, ásamt fylgiskjölum, skal skila til byggingadeildar borgarverkfræðings, Skúla- túni 2, 5. hæð 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 13.00 fimmtudagirin 13. mars 1997, merktum: “Félagshús Þróttar - Forval”. IJTBOÐ F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir til- boðum í verkið: “Nesjavallavirkjun - raf- stöðvarbygging”. Verkið felst í byggingu raf- stöðvar sem skiptist í vélasal, rofasal, spenna- rými og tengibyggingu í framhaldi af núverandi tengibyggingu. Vélasalur er stálgrindarbygg- ing. Tengibygging, rofasalur og spennarými eru steinsteypt mannvirki á þremur hæðum. Grunnflötur bygginganna er um 2.500 m2 og rúmtak um 20.000 m3. Allur frágangur er sam- bærilegur og á núverandi byggingum. Helstu magntölur eru: Gröftur: 14.000 m3 Fylling: 15.000 m3 Steinsteypa: 2.200 m3 Stálgrind: 150 tonn Áklæðning utanhúss: 3.200 m2 Stálklæðning innanhúss: 3.000 m2 Lagnir: 2.700 m Raflagnir: 13.000 m Loftræstingar 2 kerfi samt.: 64.000 m3/klst. Snjóbræðsla: 1.500 m2 Plön 2.500 m2 Vélasalur skal vera fullfrágenginn að innan 27. febrúar 1998 og verki að fullu lokið að undan- skilinni snjóbræðslu og malbikuðu plani 1. september 1998. Verkinu skal lokið fyrir 15. júlí 1999. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá mið- vikud. 5. mars nk. gegn kr. 30.000 skilatr. Opnun tilboða: Miðvikud. 2. apríl 1997, kl. 14.00 á sama stað. Hitaveita Reykjavíkur býður væntanlegum bjóðendum til vettvangsskoðunar á Nesja- völlum þriðjud. 11. mars nk. kl. 15.00 og skulu þeir koma að stöðvarhúsi virkjunar á þessum tíma. 26/7 F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir til- boðum í verkið: “Geymar - ryðhreinsun og sementskústun 1997”. Um er að ræða ryðhreinsun og sementskústun á 5 vatnsgeymum Hitaveitu Reykjavíkur að innanverðu. Heildarflatarmál stályfirborðs er um 8.200 m2. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 5.000 skilatr. Opnun tilboða: Þriðjud. 18. mars 1997, kl. 14.00 á sama stað. hvr 27/7 F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. er óskað eftir tilboðum í að steypa upp sundlaug í Graf- arvogi við Dalhús. Um er að ræða uppsteypu á sundlaugarhúsi, útilaugarkeri og pottum. Búið er að grafa fyrir húsinu og fylla undir sökkla og girða af svæðið. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 4. mars. nk. Opnun tilboða: Þriðjud. 18. mars 1997, kl. 11.00 á sama stað. 28/7 F.h. Byggingadeildar borgarverkfr., eróskað eftir tilboðum í utanhúss viðgerðir á Síðumúla 39, Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri. Opnun tilboða: Fimmtud. 20. mars 1997, kl. 11.00 á sama stað. bgd 29/7 Menntamálaráðuneytið Styrkir til sumarnám- skeiða á dönskum lýð- háskólum fyrir ís- lenska dönskukennara Sumarið 1997 veitir danska ríkið 10 íslenskum dönskukennurum styrk til sumarnámskeiða á dönskum lýðháskólum. Gert er ráð fyrir a.m.k. tveggja vikna löngu námskeiði. Styrkir þessir eru fyrst og fremst ætlaðir ís- lenskum dönskukennurum, sem lokið hafa BA prófi í dönsku, BEd prófi með dönsku sem val- grein eða hafa sambærilega faglega menntun í dönsku. Styrkþegar þurfa sjálfir að afla sér skólavistar í dönskum lýðháskólum. Hver styrkur er að upphæð 3.000 danskar krónur og er ætlaður til að greiða námskeiðs- kostnað. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um fyrra nám og störf umsækjenda. Jafnframt skal gerð grein fyrir fyrirhuguðu námskeiði. Skila skal stuttri skýrslu um námskeiðið til menntamálaráðuneytisins strax að því loknu. Umsóknir um styrkinn fyrir sumarið 1997 skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 15. apr- íl 1997. Menntamálaráðuneytið, 27. febrúar 1997 Menntamálaráðuneytið Styrkir til framhalds- náms í dönsku Danska menntamálaráðuneytið veitir á skóla- árinu 1997-1998 íslenskum dönskukennurum 3 styrki til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla í Danmörku. Styrkirnir verða veittir: 1. Starfandi dönskukennurum í grunn- og fram- haldsskólum, sem lokið hafa að minnsta kosti BA prófi í dönsku eða Bed prófi með dönsku sem valgrein. 2. Háskólastúdentum sem lokið hafa því námi sem tilgreint er í lið 1. hér að framan og vilja búa sig undir dönskukennslu með frekara námi. Styrkþegar þurfa sjálfir að afla sér skólavistar í háskólastofnunum í Danmörku, en danska menntamálaráðuneytið mun að einhverju leyti geta haft milligöngu um að útvega styrkþegum skólavist. Hver styrkur er að upphæð 50.000 danskar krónur og skal notaður til að greiða ferðakostn- að, uppihald og annan kostnað í Danmörku. Umsóknir um styrkina fyrir skólaárið 1997- 1998 sendist fyrir 15. apríl til: Dansk-islandsk Fond, Stk. Annæplads 5, DK-1250 Köbenhavn K. Umsóknunum skulu fylgja upplýsingar um fyrra nám og störf umsækjenda. Jafnframt skal gerð grein fyrir fyrirhuguðu námi eða rannsóknum. Nánari upplýsingar veitir formaður Dansk-is- landsk Fond: Professor Hans Bekker-Nieísen, Vibækvej 22, Brændekilde, 5250 Odense Sv. Sími 0045 6596 3087. Menntamálaráðuneytið, 27. febrúar 1997

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.