Alþýðublaðið - 18.03.1997, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Œtl
SCB
“Mér fannst þetta ekki ríma
við það sem ég var að pæla,
ég vil vinna mikið, reyna að
þróast og vera mikið að, ekki
bara hangsa og drekka brenni-
vín.“
Hallur Ingólfsson, tónlistarmaður í Mogg-
anum.
“Erlend tryggingafélög sáu
aðallega fyrir sér sölulúgu hjá
okkur fyrir tryggingar sínar,
sem við höfðum engan áhuga
á.“
Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, í DT.
“Hins vegar aðstoðaði ég eitt
sinn organista utan af landi
við að kaupa sér píanó."
Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri
Þjóðkirkjunnar, (Mogganum.
“Ég er ekki með próf í pönnu-
kökubakstri, en það hefur
alltaf þótt gott að geta bjarg-
að sér.“
Guðmundur L. Friðfinnsson, bóndi og rit-
höfundur á Egilsá í Skagafirði, í DT.
“Enn fáránlegra er þó að bera
sölu áfengis saman við sölu á
mjólk eða smjöri. Menn verða
ekki háðir mjólk. Og það er
lítil hætta á að smjörætur
þyrpist út af veitingastöðum
síðla nætur, mengi umhverfið
hvers kyns sóðaskap og fremji
margs konar ofbeldisglæpi
jafnvel mannvíg."
Jón K. Guðbergsson í Mogganum.
“Hví ekki að kaupa þrjá mán-
uði í rithöfundi það myndi
styrkja ritlistina verulega."
Lárus Hinriksson í DT.
“Því öll erum við alheimsver-
ur og guðsneistinn býr í sér-
hverjum manni.“
Helga Sigurðardóttir og l'ris Jónsdóttir í DT.
'FFTlliTl
Eitt og hálft kfló af svínakjöti
325 grömm af svínaspekki
1 matskeið af hökkuðum hvítlauk
og fjórar af grófu salti
2 matskeiðar Fennelfræ
1 teskeið cayenne pipar
1 matskeið af chilipiparflögum
2 teskeiðar malaður svartur pipar
2 matskeiðar pemod, sambuca
eða annar áþekkur líkjör með anís-
bragði.
1/4 bolli kalt vatn.
Blandið öllu saman nema vatni og
hakkið. Vætið í með vatninu og
hnoðið vel. Troðið í garnir eða notið
laust. Þessi uppskrift gefur fjögur
kfló af sterkum ítölskum pylsum.
IBandaríkjunum hafa fjöl-
miðlar fjallað mikið um stað-
hæfingar blaðamannsins og
rithöfundarins Pierre Salinger
um að breiðþota sem fórst við
strendur Bandarkjanna í fyrra
hafi verið grandað með flug-
skeyti. Pierre þessi er fræg-
astur fyrir að hafa verið blaða-
fulltri John Fitzgerald Kenn-
edy, hins ástsæla forseta
sem féll fyrir morðingjahendi.
Kennedy bar sigurorð af
Richard Milehouse Nixon
eftir að hafa bakað hann í
sjónvarpseinvígi, þar sem
glæsilega farðað andlit
Kennedys andspænis fölum
og sveittum Nixon skipti
meiru en orðin sem féllu.
Pierre Salinger var maðurinn
sem „hannaði“ Kennedy fyrir
hið mikilvæga sjónvarpsein-
vígi og varð hluti af klassíkinni
í áróðursfræðum. Angi af
þekkingu Salingers náði alla
leið til íslands, því einn af
nemendum hans og síðar
vinum var íslendingur, sem
átti eftir að hasla sér völl í
auglýsingabransanum hér
heima, og ráða honum að
mestu um tíma. Þad er
Stefánungurinn, jazzpíanistinn
og auglýsingameistarinn
Ólafur Stephensen...
Ein verst ræmda skýrsla á
síðari tímum innan heilbrigð-
iskerfisins er hin svokallað Gula
skýrsla, sem var gerð undir for-
ystu Símons Steingrímssonar
verkfræðings árið 1993. Þegar
þáverandi heilbrigðisráðherra
Guðmundur Árni Stefánsson
tók við henni var hann snöggur
að setja hana niður í skúffu
enda voru tillögur skýrslunnar
með þeim hætti að ekki þótti
koma til greina að hrinda þeim í
framkvæmd. Skýrslan svaf síð-
an svefninum langa þangað til
Ingibjörg Pálmadóttir varð
heilbrigðisráðherra og hófst
handa um að hrinda henni í
framkvæmd. í sjónvarpsþætti á
sunnudaginn áttust þau við,
Guðmundur Árni og Ingibjörg,
og hin síðarnefnda harðneitaöi
að nota Gulu skýrsluna óbreytta
í viðureigninni við sjúkrahúsin á
landsbyggðinni. Guðmundur
Ámi var snöggur upp á lagið og
svaraði að bragði: ‘Pað eralveg
rétt. Þú tókst gulu kápuna og
settir hvíta í staðinnt' Fátt varð
um svör hjá heilbrigðisráöherr-
anum við þetta...
Flórgoðinn er merkileg fugla-
tegund í útrýmingarhættu
og á Alþingi óskaði líffræðing-
urinn Össur Skarphéðinsson
eftir því að Guðmundur
Bjarnason umhverfisráðherra
gerði grein fyrir áætlunum til að
vemda þau fáu pör sem eftir
eru. Af þessu tilefni orti Jón
Kristjánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, eftirfar-
andi vísu:
Össur er jafnan flínkur I sínu fagi,
flórgoðans stofn hann hugsar um
að vonum,
um þennan stofn er þó allt I ágætu
lagi,
Alþýðuflokkurinn hverfurá undan
honum...
"FarSide" eftir Gary Larson
Á Björn Halldórsson hjá fíkniefnadeildinni að svara til saka vegna máls Franklíns Steiner?
Þegar mýsnar bregða á leik
I skrifum Dags-Tímans um
stóriðju á íslandi hefur undan-
fama daga gætt sérkennilegs geð-
klofa. Ritstjórinn, Stefán Jón
Hafstein, hefur verið afar gagn-
rýninn á áform stjómvalda um
aukna stóriðju. Hann ritaði á dög-
unum snöfurmannlega grein þar
sem framkvæmd skoðanakönn-
unar er sýndi mikinn stuðning við
stóriðju var tekin til ítarlegrar
skoðunar og bókstaflega tætt í
sundur. I vikulokin þurfti hann
hinsvegar að yfirgefa stassjónina
fyrir norðan, til að stýra vel-
heppnaðri landssöfnun fyrir hjart-
veik böm á Stöð 2.
Hinar norðlensku mýs notuðu
þegar í stað tækifærið og bmgðu
á léttan sprett í fjarvem hins
þrifalega kattar í stóli ritstjóra. I
Degi-Tímanum birtist á föstudag-
inn bamslega einlægur leiðari
sem minnti helst á skrif norður-
kóreskra blaða á tímum hins ei-
lífa og ástsæla leiðtoga, Kim II
Sung, sem þau hófu reglulega í
guða tölu. Höfundur leiðarans var
Birgir Guðmundsson ritstjómar-
fulltrúi, og er ekki óvanur per-
sónudýrkun því hann ólst upp í
Fylkingunni, þar sem guðinn hét
León Trotský. Seinna fann hann
svo róttækni sinni betri stað í
Framsóknarflokknum, einsog
gefur að skilja. Guðinn sem Birg-
ir lét Dag-Tímann falia fram og
tilbiðja á föstudaginn af einlægni
fermingarbamsins var enginn
annar en góðvinur hans og veiði-
bróðir, Finnur Ingólfsson.
Birgir byrjaði reyndar á því að
gefa Stefáni Jóni velheppnað oln-
bogaskot, þar sem lýst var frati á
skrif hans um óvandaðar skoð-
anakannanir. Engum duldist
sendingin, og innan Framsóknar-
flokksins er áreiðanlega litið á
það sem vott um bæði kjark og
snilld að nota leiðara Dags-Tím-
ans til að gefa mátulega í skyn að
með aðalritstjóranum og ritstjóm-
arfulltrúanum séu nú ekki nema
mátulegir kærleikar.
En þvínæst tók gamli fram-
sóknarmaðurinn við að lýsa Finni
Ingólfssyni af skáldlegri innlifun
sem fágætum kraftaverkamanni,
og kvað hann líkastan laxveiði-
manninum mikla er stæði lengi
dags á árbakkanum og rifi hvert
stóriðjuverið á fætur öðru úr
dimmum djúpum líkt og laxa úr
hyl, þar sem allir aðrir settu öng-
ulinn beint í sinn eiginn aftur-
enda.
Þegar hér var komið sögu var
leiðari Birgis Guðmundssonar
gmnsamlega mikið tekinn að líkj-
ast umsókn um stöðu aðstoðar-
manns iðnaðarráðherra. Þá loks
tók að renna víman af ritstjómar-
fulltrúanum. En það varð ekki til
að hugsunin yrði miklu skýrari.
Eftir að hafa sungið stóriðjunni
lof og dýrð birtist nefnilega undir
lok leiðarans einsog skrattinn úr
sauðarleggnum síðbúin áskomn
til hins ástsæla ráðherra um að
koma nú ekki með meiri stóriðju
inn í landið! Einhvem tíma hefði
skitsófrenía af þessu tagi dugað
til að viðkomandi blaðamaður
hefði annaðhvort verið sendur
lóðbeint í viðtöl til sálfræðinga,
ellegar til hvfldar og afslöppunar
í Hveragerði á sameiginlegan
kostnað skattgreiðenda og Blaða-
mannafélags fslands. En kanski
er önnur skýring á geðhvörfunum
sem birtust í leiðara Dags-Tím-
ans. Á þeirri stundu er flokkshan-
inn gól hið þriðja sinni hefur
Birgir Guðmundsson ef til vill
minnst uppmna síns. Faðir hans
er enginn annar en Guðmundur
Sigvaldason, eldjallafræðingur,
sem er ekki aðeins svamasti and-
Haukur Valdimarsson,
stuðningsfulltrúi:
“Já, að sjálfsögðu.“
stæðingur álversins á Gmndar-
tanga, heldur líka sá sem hefur
andmælt því af mestri andagift og
bestum rökum.
í næsta stóriðjuleiðara Birgis
kemur væntanlega í ljós hvor
vinnur stríðið um samvisku rit-
stjómarfulltrúans: pabbi gamli
eða pabbi í ráðuneytinu.
Jóna Lára Sveinbjörns-
dóttir, nemi:
“Já, tvímælalaust."
Ingunn Sigurðardóttir,
húsmóðir:
“Þetta er allt mjög forvitnilegt
mál sem verður að rannsaka."
Tómas Ragnarsson,
verslunareigandi:
“Menn eiga að vera ábyrgir
gerða sinna og koma með
sannleikan fram í dagsljósið."
Ásgeir Þórðarson skáld:
Já, ef hann er sekur þá er gott,
rétt og æskilegt að hann svari
til saka.“
Hér birtist í fyrsta sinni nýr
þáttur, Pælingar og bæl-
ingar, sem verður hér einu
sinni til tvisvar sinnum í
viku næstu mánuði.