Alþýðublaðið - 20.03.1997, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 20. MARS 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ónarmið
Meira járnblendi og ál!
Nú stefnir hraðbyri í að Grundar-
tangi verði stærsta stóriðjusvæði
landsins - járnblendið stækki og reist
verði álver enda orkuverð hér lang-
lægst í Evrópu og helmingi lægra en
í Noregi. Ymsir kætast nú.
Ríkisstjómin og Alþingi hafa
reiknað sig fram til þess að það borgi
sig að selja raforkuorku á undirverði
og ætla að „græða á umsetningunni“.
Og flottast er að hafa störfin sem
skapast mjög dýr.
Þetta er séríslensk þjóðhagfræði.
Ekkert dútl
I samþykktu svæðisskipulagi
sveitafélaganna sunnan Skarðsheiðar
Pallborð |
Oddur
Benediktsson
skrifar
segir að sækjast eigi eftir 10-50
manna iðnfyrirtækjum á Grundar-
tanga sem falli vel að landi og um-
hverfi. Þetta er auðvitað fásinna!
Hver maður hlýtur að sjá, að það er
miklu betra að reisa þar frekar stór
álver. Við höfum jú nýverið séð þátt í
ríkissjónvarpinu um að kúabúskapur
í næsta nágrenni álvers gangi ekki
bara mjög vel, heldur að mengunin
auki nyt kúnna. Og þó að þýskir
bændur hafi farið í mál við þessa
sömu álverksmiðju þegar hún var í
Þýskalandi (hún er jú svo lítið brúk-
uð) þá er það bara enn eitt dæmið um
óbilgimi bænda.
Hlýtt í gróöurhúsinu
í skýrslu um loftmengun hérlendis
1996 sem utanríkisráðherra sendi
Sameinuðu Þjóðunum segir að senni-
lega muni hækkað hitastig á jörðinni
hafa góð áhrif á íslandi (- það getur
jú verið svo déskoti napurt hér á
skerinu.) Að vísu muni hækkuð sjáv-
arstaða hafa neikvæð áhrif í einhverj-
um sjávarþorpum hérlendis en hvað
um það.
Það er því ráðlegast fyrir okkur að
auka losun á gróðurhúsaloftegundum
sem allra mest. Nú fá Danir það sem
þeir eiga skilið. Maður sér fyrir hug-
skotsjónum Danadrottningu sitjandi
á eyjunni Himmelbjærg.
Súrt regn
Einhverjir skóræktarfíklar klifa á
að súrt regn sem fylgir málmbræðslu
hafi eytt skógum í Evrópu. Þeir virð-
ast hreint ekki gera sér grein fyrir
kostum þess að álver á Gmndartanga
losi brennisteinssým út í andrúms-
loftið sem nægir á 8,000 bílgeyma á
dag. Því það er ekkert að gera annað
en að safna regnvatninu og að setja
að beint á geymana. Hver nennir þá
að stússa í skógrækt?
Ýmsir vatnalíffræðingar telja að
það mundi virkilega bæta bragðgæði
laxins ef hann væri súrari. Þá þyrfti
að ekki að borða sítrónu með honum.
Annars er miklu einfaldara að taka
ámar í kælivatn fyrir stóriðju og
hætta þessu veiðistússi og flytja bara
inn eldislax frá Noregi. Og margir
túristar þola heldur ekki mosa. Það er
því til mikilla bóta að mosinn er
bmnninn í stómm radíus kringum
Straumsvík. Líka óþarfi að vera að
mennta mosafræðinga.
Flúor í vatni
Víða um lönd hefur flúor verið
bætt í neysluvatn. Einn kosturinn við
mikla álframleiðslu er að flúorinn
lendir sjálfvirkt og ókeypis í neyslu-
vaminu. Margir jarðfræðingar telja
að flúorinn sem fylgt hefur eldgosum
hér ár og síð nauðsynlegur fyrir jarð-
vegsmyndunina. Og þó að púddur
hafi drepist úr gaddi í Straumsvík þá
er það undantekningin sem sannar
regluna.
Ryk og reykur
fslendingar eru vanir ryki og reyk.
Kári fór jú létt með að hlaupa úr
brennunni forðum. Eldhúsin í torf-
bæjunum bera líka vott um þetta. Það
era til mannfræðingar sem halda því
fram að íslendingar þrífist ekki nema
í reyk, brælu og sterku rafsviði. Virð-
ist þetta eiga sérstaklega við íslensk-
ar konur og skýrir að þær reykja nú
meira en karlar. Engar læknaskýrslur
eru til hér sem sýna að óhollt sé að
vinna í álveri. Nema síður sé. í stað
þess að leita að gölluðum genum
ættu erfðafræðingar að snúa sér að
því að finna reyk-, raf- og rykþols-
genin í okkur til þess að einrækta svo
álfinna í þúsunda tali og alla eins.
Hér hlýtur að vera raunhæfur
möguleiki á nýrri útflutningsgrein.
Oddur Benediktsson er prófessor í tölvun-
arfræðum viö Háskóla íslands.
Víða um lönd hefur flúor verið bætt í neysluvatn.
Einn kosturinn við mikla álframleiðslu er að flú-
orinn lendir sjálfvirkt og ókeypis í neysluvatn-
inu.
Einsog þessi dálkur Aiþýðu-
blaðsins greindi frá i gær er
Dagblaðið-Tíminn í miðri áskriftar-
herferð þessa dagana, sem geng-
ur afar vel. Ritstjórinn Stefán Jón
Hafstein birtist á skjánum og lofar
blað sitt fyrir að gera mannlífi í
landinu góð skil. í auglýsingunum
er sem betur fer lítið fjallað um
nákvæmni í fréttaflutningi blaðs-
ins, enda hefur blaðið verið örlítið
óheppið með það upp á síðkastið.
I gær var þannig aðalforsíðufrétt
DT uppsláttur um að búið væri að
semja við Dagsbrún og Fram-
sókn. Þegar blaðið kom til les-
enda morguninn eftir var hinsveg-
ar liðinn næstum hálfur sólarhring-
ur frá því samninganefndir félag-
anna höfðu fellt samninginn...
Einn vinsælasti Akureyringurinn
þessa dagana er kratinn Al-
freð Gíslason sem hefur leitt KA
til mikilla sigra á handknattleiks-
sviðinu síðustu árin. Meðan hann
lék suður í Reykjavík tók hann
sæti neðarlega á framboðslista
Alþýðuflokksins og lét þess þá
getið í viðtali að hann gæti vel
hugsað sér að hasla sér völl I
stjórnmálum þegar tfmar liðu
fram. En hann er af sterkum
krataættum, því faðir hans er
enginn annar en Gísli Bragi
Hjartarson sem er bæjarfulltrúi
jafnaðarmanna, og einn mesti
valdamaðurinn í núverandi meiri-
huta þeirra og Framsóknarflokks-
ins. Á Akureyri hafa menn um
sinn horft hýru auga til hans sem
mögulegs frambjóðanda I næstu
þingkosningum, og talið að hann
gæti aflað fylgis langt út fyrir raðir
flokksmanna. Alfreð er nú á leið til
útlanda næstu tvö árin til að þjálfa
handknattleikslið í Þýskalandi.
Áhugamenn um pólitík hafa hins-
vegar reiknað út, að samningur-
inn í Þýskalandi rennur út rétt
áður en kosningabaráttan hefst,
og Alfreð myndi því smellpassa í
næstu kosningar...
að var einmitt Alfreð Gísla-
son sem fékk til Akureyrar
geysisterka handknattieiksmenn á
borð við Kúbverjann Julio Dura-
nona og Rússann Sergei Ziza. í
kjölfar þess að Alfreð hverfur frá
KA hyggja þessir tveir félagar Ifka
til hreyfings. Hinn blóðheiti leik-
maður úr Karabíska hafinu er
sagður orðinn mjög þreyttur á
snjóþunga Akureyrar, og er því að
kanna möguleika sína á því að
leika með liði í Evrópu á næstu
leiktíð. i öllu falli mun hann harðá-
kveðinn i því að vilja að minnsta
kosti flytja suður og leika með
reykvísku liði. Rússinn, sem hefur
leikið ákaflega vel upp á síðkast-
ið, er sagður á sömu buxum, og
innan Vals er mikill áhugi á að fá
hann til liðs við félagið. En með
sleggjuna Duranona, og þá Ziza
og Alfreð alla horfna í brautu er
mikil vá fyrir dyrum KA á næst-
unni...
Steimgrímur St. Th. Sigurðs-
son hefur opnað enn eina
sýninguna, nú í M.A., það er í
gamla húsinu. Steingrímur segir
gott að vera á Akureyri, sérstak-
lega þar sem Simmi hoffmeistari,
hafi breytt miklu, allt sé hlýlegra
en áður var. Steingrímur sagði
Binna var mikinn gáfumann, enda
kominn af sjóreknum Fransmönn-
um. Hann segir Simma snilling í
eldhúsinu, maturinn sé líkastur
því að vera handeraður á Italíu
eða Frakkalndi. Þá er Steingrímur
ekki síður ánægður með Tryggva
Gíslason skólameistara, sem
hann segir vera sérlega þægileg-
an og skapa gott andrúmsloft þar
sem hann er...
"FarSide" eftir Gary Larson
Á meAan Jón bóndi bró sér af ba, komust kýmar I eldhús-
ió og skemmtu sér konunglega - þar til Huppa I granda-
leysi sinu uppgötvaAi...
fimm á förnum vcg i
Saknar þú Stöðvar 3?
Víðir Eðvarðsson, nemi:
“Nei, ég sá hana bara eini
sinni eða tvisvar."
Erling Pétursson,
verslunarmaður:
“Já, ég vil hafa meiri sam-
keppni á markaðnum.“
Halldór Guðmundsson,
tæknifræðingur:
“Nei, ég horfði aldrei á hana.“
Sigurður Albertsson,
verkamaður:
“Nei, ég sakna ekki þess sem
ég veit ekki hvað er.“
Kristfn Þorgeirsdóttir,
Ijósmóðir:
“Já, alveg heilmikið.“
v i t i m 2 n n
“Enginn af forystumönnum
flokksins úr byggðinni var á
fundinum. Enginn af þei sem
mest hafa barist fyrir Johnsen
og Steina í bænum sáust.
Fundurinn var aldrei settur og
aldrei slitiö
Eggert Haukdal, að tala um fyrrum sam-
þingsmenn sína, í Mogganum.
“Ég er ekki endilega að tala
um að vera Bjartur í Sumar-
húsum - þótt ég hafi snertingu
af honum - einsog allir aörir.“
Sigurður Baldursson, bóndi á Páfastöðum
f Skagafirði, í DT:
“Þarna voru atriði sem ekki
vöktu almenna kátínu og er ég
þar að tala um almenna kaup-
taxtann.“
Björn Grétar Sveinsson í Mogganum.
“Ef við höldum okkur við
„Halló Akureyri" þá liggur
Ijóst fyrir að það var ýmislegt
sem mátti betur fara en eins
var margt vel gert.“
Guðmundur Hreiðarsson, forstöðumaður
Upp'ýsingamiðstöðvar ferðamála á Akur-
eyri, að velta sér enn og aftur upp úr hinni
stórkostlegu útihátíð þeirra Akureyringa, í
DT.
“Auk þess hefur Össur á
seinni árum gerst slík fjöl-
skylduvera að hann slær Árna
Sigfússon margfalt út sem
hinn mjúki pabbi. “
Garri í Tímanum að ræða um ástsælan rit-
stjóra Alþýðublaðsins.
“Svo ég tali líkindamál þá
tekst maður á við konuna sína
um uppeidi barnanna, en
maður segir henni ekki upp.“
Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS, í DT.
“Þetta var það eina merkilega
sem ég gerði í leiknum en það
var mikilvægt."
Páll Þórólfsson, handboltamaður í Aftur-
eldingu, en hann gerði sigurmark i kapp-
leik þegar þrjár sekúndur voru ettir af leik-
tímanum. Mogginn.
“Já, það er sorglegt hversu
íslendingar eru að miklu leyti
fáfróðir og þröngsýnir. Verst
er að þjóðfélaginu getur staf-
að hætta af.“
Guðrún Helga Sigurðardóttir í DT.
Harða, blíða, heita sterka sál
hjarta þitt var eldur, gull og stál
ólíkt mér, en allt eins fyrir það
ertu gróin við minn hjartastað.
Matthías Jochumsson orti Ijóó um
Þorbjörgu Sveinsdóttur, eftir dauöa
hennar og þar kemur meðal annars
fyrir þetta erindi.