Alþýðublaðið - 08.04.1997, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
œ I i n
Upprisan og dauðinn á skrifstofu Dagsbrúnar
Verkalýðurinn hefur til skamms
tíma verið heldur til óþurftar í þessu
guðsvolaða landi, þar sem afkomend-
um fátækra tómthúsmanna hefur geng-
ið illa að innræta með sér hæfilega
virðingu fyrir þeim sem fara með vald-
ið. Allt frá dögum Olafs Friðrikssonar,
sem var skeggjaður einsog Messías,
hafa risið upp menn sem hafa æst upp
lýðinn. Síðastur í langri runu slíkra
óþurftarmanna var Guðmundur Jaki,
sem til skamms tíma stjómaði Dags-
brún með harðri hendi, og fékk í vega-
nesti úr fátækraþorpinu undir styttu
Héðins Valdimarssonar við Hring-
brautina að kunna ekki að bera virð-
ingu fyrir því valdi sem styðst við
rangfenginn auð.
Jakinn var að vísu aldrei skeggjaður,
en áreiðanlega geggjaður. Hann hafði
yndi af skrítnum köllum og kellingum,
og vildi heldur umgangast slíkan lýð
en fínu mennina við Garðastræti. Hann
þótti erfiður í samningum, því þegar
hagfræðingastóðið settist að honum til
að skýra út fínni blæbrigði æðri hag-
vísinda setti jafnan að honum langa
geispa. Jakinn var nægilega galinn til
að hafa yndi af lögfræði, og lokaði
stundum sjoppunni til að fara upp í
Hæstarétt að hlusta á málflutning
snjallra lögræðinga. Svo fór hann heim
til frú Elínar og las fyrir hana íslend-
ingasögur og Kiljan, jafnvel lýrík ef
hann var verulega ástfanginn þann
dag.
Hagfræðingastóðið, sem smám sam-
an fór að stjóma Verkó áður en það tók
yfir bankana, leið eðhlega önn og
kvalir fyrir að vinna með slíkum
manni. Hann gerði samninga eftir því
sem innsæið og skrafið við kallana í
skúrunum blés honum í brjóst, en blés
aftur á móti á útreikninga hagfræðing-
anna sem allir litu eins út hvort sem
þeir unnu hjá ASÍ eða VSÍ. Þegar leið
á feril Jakans var einu sinni haft eftir
honum, að hagfræðingar verkalýðs-
hreyfmgarinnar væru alltént að vinna
\
kollega sína hjá Vinnuveitendasam-
bandinu á einu sviði, - í keppninni um
það hver tylldi best í fatatískunni.
Kanski var Jakinn orðinn þreyttur
undir lokin. Þreyttur á því að þvarga
við hagfræðimenntaðar mélkisur sem
skildu aldrei að stéttabaráttan átti ekk-
ert skylt við tölfræði heldur einvörð-
ungu tilfinningar og reisn fátæks
verkafólks sem með verkföllum var
miklu fremur að verja sjálfsvirðinguna
en fjárhaginn. Þreyttur á því að skynja
með ámnum forgengileikann sem fylg-
ir þeirri kvöð formanns Dagsbrúnar að
fylgja til grafar hverjum einasta félaga
sem hélt í aðrar veiðilendur. Kanski
þreyttastur á því að hafa ekki nægan
tíma til að fara með lýrík fyrir frú El-
ínu og upplifa neistaflug þeirrar ástar
sem göfgast með árunum einsog eð-
alvínin í kjöllurum Frakklands.
Þó Jakinn hafi að sönnu aldrei verið
skeggjaður einsog Jesús voru þeir báð-
ir með snert af einhverju sem ekki var
þessa heims, og kanski var það þess-
vegna sem einn stórbrotnasti mynd-
höggvari landsins taldi sér ekki unnt að
höggva Guðssoninn í stein nema hann
fengi formann Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar til að taka sér stopul frí og
gerast fyrirsæta um hríð. Þá lifði leið-
togi róttækra verkamanna sig svo inn í
hlutverkið, að á skrifstofu Dagsbrúnar
sögðu þeir að það hefði þurft kúbein til
að spenna af honum geislabauginn
þegar hann kom aftur niðrá Lindagötu
að halda áfram að leiða stéttabaráttuna.
Guðmundur Jóhann hafði verið for-
maður Dagsbrúnar svo lengi, að félag-
amir héldu líklega að festan í félaginu
væri eitthvað sem fylgdi húsgögnun-
um á skrifstofunni fremur en foringj-
anurn. Þeim þótti það ágætur biðleikur
inn í framtíðina að skipta út gömlum
leiðtoga, sem mokaði neftóbaki í and-
litið á sér í dolluvís og var svo mikill
um sig frá náttúrunnar hendi að það
gekk illa að finna á hann föt sem voru
í sjetteringu við plussið á skrifstofun-
um í Garðastræti ellegar í Karphúsinu.
Silkibindi Halldórs Bjömssonar fóru
vel við ímynd silfurrefsins sem búin
var til af arftakanum, sem kunni að
brosa einsog fyrirsæta í fegurðarsam-
keppni og vann áreiðanlega allar tísku-
keppnir við forystumenn vinnuveit-
enda. Dagsbrún var að mjaka sér inn í
nútímann, og gerði það með því að
mjaka Jakanum aftur fyrir sig.
Svo kom að samningum. I aðdrag-
anda þeirra auglýsti Dagsbrún í heilan
mánuð stríðar áskoranir til félags-
manna um að standa saman um að taka
engum samningum undir 70 þúsund-
um. En nútíminn var sestur við stjóm í
Dagsbrún og silfurrefurinn reyndist
svo klókur foringi, að í þann mund
b Q2 I i n g q r
sem félagið var að ljúka við að sam-
þykkja boðun um verkfall skrifaði
hann undir lægri samninga en svardag-
ar Dagsbrúnar leyfðu. Þegar samn-
inganefndin felldi, bar hann sig vel.
En brosið var horfið, og feldurinn
silfraði úftnn. Eftirleikurinn gat ekki
orðið annað en undanhald samkvæmt
áætlun.
I hinum nútímalega stfl fólst vænt-
anlega að þegar sexhundruð manns
sendu áskomn um félagsfund til að fá
að ræða samninginn yggldi Halldór
Bjömsson sig í fjölmiðlum og sagði að
fyrst menn væru að rífa kjaft, þá kæmi
vel til greina að loka bara félaginu.
Þegar sjónvarpið spurði afhverju
hefðu aðeins hefðu mætt nokkur
hundmð á fundinn sagðist formaður
Dagsbrúnar ekki hafa getað orðið við
óskum um heppilegri fundartíma og
bætti svo við með brosi hins ísmeygi-
lega refs, að auðvitað hefðu þeir búist
við að fáir mættu, enda sunnudagur og
fermingardagur að auki. Þetta em sem-
sagt mennimir sem gæta sjálfsvirðing-
ar íslenskra verkamanna í dag.
Leiðin að Golgata reyndist stígurinn
upp að Karphúsinu. A þeirri hæð var
sjálfsvirðing Dagsbrúnar negld á tré
um síðustu páska, og umhverfis liggur
félagið meirá og minna í tætlum. En
Golgata var líka undanfari upprisunn-
ar, og einn góðan veðurdag kann að
verða bankað hjá Jakanum, þar sem
hann situr í sófanum og les lýrík fyrir
frú sína. Þar gætu verið komnir gamlir
félagar úr baráttunni þeirra erinda að
biðja neftóbaksmann að fóma sér til að
bregða græðandi skugga litríkrar for-
tíðar yfir ben nútímans, - um stund. Þá
mun Jakinn segja humm og jæja, snýta
sér svo drynur í öllu Breiðholtinu, og
gjóta augunum til frú Elínar sem situr í
sófanum að bíða eftir næsta ljóði.
Þann dag einsog jafnan áður mun
upprisan og dauðinn ráðast af fínni
blæbrigðum hinna kvenlegu tilfinn-
inga...
Frumvarp um helgidagafriðun
var til umræðu á þinginu í síð-
ustu viku, en þegar leið á umræð-
una mætti Einar Kristinn Guð-
finnsson, fyrsti þingmaður Vest-
firðinga, heldur brúnaþungur í sal-
inn. Hann fann frumvarpinu því til
foráttu, að gert var ráð fyrir að
engar almennar samkomur mætti
halda að kveldi föstudagsins
langa, fyrr en klukkan sex að
morgni. Einar setti fram breyt-
ingatillögu, sem fól í sér að leyfi-
legt væri að halda mannfagnaði
þegar á miðnætti krossfestingar-
dagsins. Ástæðan mun þó ekki
vera sú, að Einar sé að snúast í
trúnni á frelsara sinn, heldur hafa
ísfirðingar jafnan haldið fræga
skíðaviku á páskum. Einn af há-
punktum hennar hefur verið
dansiball, sem hefst jafnan á mið-
nætti eftir að ísfirðingar hafa með
öðrum landsmönnum minnst
krossfestingarinnar daglangt
daprir í bragði. Hefði frumvarpið
verið samþykkt óbreytt hefði Ein-
ar ekki komist á ballið, sem frá
æsku hefur verið einn af hápunkt-
unum jí páskahaldi þingmanns-
ins... !
Gríðarmikil ólg r meðal stór-
kaupmanna vegna þess sem
stórkaupmenn segja að séu
hörkuleg vinnubrögð Eimskipafé-
lagsins í tengslum við strand Vik-
artinds. Eimskip hefur náðarsam-
legast fallið frá því að krefjast
þess að þeir sem áttu farm um
borð greiði uppskipunargjald, en
senda að öðru leyti fulla reikninga
fyrir farminn, sem nú velkist í
sjónum fyrir Suðurlandi, eða
skemmist fyrir ágangi veðra og
olíu um borð í skipinu. Þetta telja
stórkaupmenn ósvífni af hæstu
gráðu, og í höfuðstöðvum þeirra
eru þessa dagana fundahöld um
hvernig eigi að mæta þessu. En
svo virðist sem margir stórkaup-
menn hafi ætlað að treysta á guð
og lukkuna, og spara sér trygg-
ingagjöldin með því að tryggja
alls ekki. Það flýgur fyrir, að ekki
hafi verið nema fjórðungur alls
farmsins tryggður, en rannsóknar-
dálkur Alþýðublaðsins tekur fram,
að það eru enn sem komið er
óstaðfestar fregnir. Eimskip vísar
hinsvegar til þess, að svona fyrir-
komulag sé hvarvetna í gildi og
beinlínis verið tekið fram í samn-
ingi umfragtina, sem sérhver und-
irritar, sem kaupir flutning með fé-
laginu. Það stefnir því allt í að
Eimskipafélagið þurfi að siga lög-
fræðingaher á hina óstýrilátu stór-
kaupmenn, sem nú hafa tekið
upp frægt slógan ítalska anarkist-
ans Daríó Fó: Við borgum ekki...
Meðal þeirra sem eiga um sárt
að binda vegna strands Vik-
artinds er heildverslunin Ágúst Ár-
mann hf sem átti að sögn vörur
fyrir fimm milljónir króna í skipinu.
Þar var um að ræða sportfatnað
sem átti að selja í húsakynnum
fyrirtækisins í Kringlunni og víðar
fyrir páskana, en tókst ekki. Nú
hefur Ágúst Ármann komist að
því út frá flutningaskýrslum að
gámurinn með vörunni er neðst í
lest Vikartinds, þar sem olían er
væntanlega byrjuð að sullast í
sjónum og ólíklegt að sportfatn-
aðurinn sem þar liggur eigi eftir
að skreyta búka margra iþrótta-
sinnaðra íslendinga. Vonandi var
hann þó tryggður, því einsog kell-
ingin sagði: Þú tryggir ekki eft-
irá....
"FarSide" eftir Gary Larson
hinumggin
Stefán Stefánsson,
iðnverkamaður:
“Ég hef ekki skoðun á því.“
Jóhannes Ágústsson,
verslunarmaður:
“Nei, það er alveg fáránlegt
og á ekki við á okkar tímum.“
Sjúrður Höjgaard:
Já, mér finnst rétt að kæra
þá.“
Vignir Jón Jónasson,
verslunarmaður:
“Nei.“
Hallgrímur Halldórsson,
verslunarstjóri:
“Nei, það á ekki að lögsækja
þessar elskur."
v i t i m q n n
“Fyrir viku sat ég heima hjá
vinafólki mínu í kvöldheim-
sókn; eftir Ijúfa máltíð, létt
spjall og klapp á köttinn varð
ekki undan því komist að horfa
á Spaugstofuna. Ég er einn af
þeim sem er búinn að útskrifa
þá félaga af minni húmors-
deild fyrir all löngu. Ég lét
mig hafa það í vináttuskyni
við gestgjafana að horfa - og
til að koníakið yrði ríflegar
skammtað ef hlegið væri hátt í
ranni.“
Stefán Jón Hafstein í DT. Það er vonandi
að hann hafi fengið nóg af ókeypis koníaki
fyrir fórnina.
“Ég er meira að segja á því að
Spaugstofan eigi að fá að
vaða uppi með sinn aula-
húmor.“
Stefán Jón í DT. Verum minnug þess að
Spaugstofan hefur gert grín að ritstjóran-
um, ætli það hafi mótað skoðanir hans á
vinsælasta sjónvarpsefninu?
“Það var reynt þegar einn
heimiliskötturinn, ættaður frá
Höllustöðum, keyrði í gegn
restarnar af nýju vinnulöggjöf-
inni.“
Magnús Norðdahl lögmaður í Alþýðublað-
inu.
“Ég þurfti nánast að borga
með mér þegar ég var að gera
útvarpsþættina. Ég varð yfir-
leitt að kaupa hvítvín og hella
ofan í viðmælendurna til að
liðka um málbeinið á þeim
svo það var lítið eftir af kaup-
inu.“
Magnús Tómasson myndlistamaður í
Mogganum.
“Ég vakna, stekk fram af
byggingum og klessukeyri
bíla, fer á hestbak og slæst
með sverðum og svo fé ég
borgað fyrir þetta.“
Tom Lucy áhættuleikari að lýsa starfi sínu
í Mogganum.
“Ég hef kosið að kalla hand-
bragðið á þessum verkum
aulafölsun, því þau eru með
þeim hætti að sá sérfræðingur
sem ekki hefði greint að eitt-
hvað væri athugavert við þau,
væri blindur.“
Ólafur Ingi Jónsson í Mogganum.
“Jú, sennilega er sannleikur-
inn í listinni og hvergi annars
staðar."
Sveinn Björnsson rannsóknarlögga og list-
málari í Mogganum.
Sárt er að skilja, gráti gelzt
gleðin þiggðu kossa mína!
Rétt sem örskot tæpur telst
tíminn mér við kossa þína,
Jónas Hallgrímsson í Kossavísu, þýðingu
á kvæöi þýsk/franska skáldsins Adelbert
Von Chamisso.