Alþýðublaðið - 08.04.1997, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1997
Kópavogsbúar-
Aöalfundur
Alþýðuflokksfélag Kópavogs heldur aðalfund sinn mánu-
daginn 14. apríl kl. 20:30 í húsnæði félagsins Hamraborg
14a. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velunnarar
félagsins velkomnir.
Fh. stjórnar, Magnús Árni Magnússon formaður
Jafnaðarkonur - jafnaðarkonur
„Súpa og salat“
fimmtudaginn 10. maí kl. 19-21 á Litlu Brekku í Banka-
stræti. Prófessor Jón Torfi Jónasson flytur fræðsluerindi
um menntamál á íslandi í nútíð og framtíð.
Allar konur velkomnar
Stjórn Sambands Alþýðuflokkskvenna
Kópavogsbúar-
Vorhátíð
I tilefni vorsins og komandi aðalfundar boðar Alþýðu-
flokksfélag Kópavogs til skemmtikvölds föstudaginn 11.
apríl kl. 20:00. Þar verða léttar veitingar og matur á vægu
verði. Nánar auglýst síðar.
tJTBOÐ
F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur er óskað eftirtilboðum í lagn-
ingu aðalæðar við Strandveg frá Hallsvegi að Borgarvegi.
• Lengdarmetrar 1,400m - 6000 Duc.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 10.000 kr
skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 16. apríl 1997, kl. 14:00 á
sama stað. wr 53/7
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjórans í Reykja-
vík, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Vatnsveitu Reykjavík-
ur og Pósts og Síma h.f. er óskað eftir tilboðum í verkið:
„Endurn. gangstétta og veitukerfa 3. áf. 1997, Melar
o.fl.“
Endurn. skal gangstéttir, dreifikerfi hitaveitu og annast jarð-
vinnu fyrir aðrar veitustofnanir í Melum, Frakkastíg, milli
Hlemms og Borgatúns og við Miklubraut.
Helstu magntölur:
Lengd hitaveitulagna alls 5.000 m
Skurðlengd 4000 m
Steyptar stéttar 1.750 m2
Malbikun 1.400 m2
Hellulögn 1.200 m2
Þökulögn 750 m2
Útboðsgögn fást á skrifst. vorri frá miðvikud. 9. apríl
1997, gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 22. apríl 1997 kl. 14:00 á
sama stað. hvr54/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í að byggja 180 fermetra viðbyggingu við leik-
skólann Grænuborg Eiríksgötu 2, ásamt tengingu við
eldra hús og frágangi lóðar.
Verkinu á að vera lokið 26. september 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriðjudeg-
inum 8. apríl 1997.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 23. apríl 1997, kl. 15:00 á
sama stað. bgd55/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í lóðarframkvæmdir við leikskólann Ásborg.
Helstu magntölur eru um:
Hellulagnir 350 m2
Gróðurbeð 100 m2
Malbikun 250 m2
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 29. apríl 1997, kl. 14:00 á
sama stað. bgd 56/7
INNKA UPASTOFNUN
REYKJA VIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
skoðun
■ Kjartan Helgason skrifar
Vinnan gerir menn frjálsa
Rétt eftir stríð kom ég í fangabúð-
ir í Buchenwald þar sem yfir inn-
gönguhliðinu í búðimar var útskorin
þessi setning: „Vinnan gerir menn
frjálsa". Stærsti hluti búðanna var
rúst ein, en eftir stóðu örfá hús sem
búið var að gera að safni um fanga-
búðirnar. Ekki verður safni þessu
gerð hér skil. Um þær er aðeins hægt
að segja eitt. Þær voru hræðilegar.
Leiðsögumaður í þessari ferð hafði
verið í þessum búðum og gaf hann
lýsingar af lífinu þar. Sagt er að þess-
ar búðir hafi verið þrælabúðir.
Vinnuafl hagnýtt þar til alls kyns
framleiðslu. Ekki á ég von á að vinn-
an í þeim hafi gert menn frjálsa. Því
detta mér í hug þessi orð, að þessa
dagana er verið að þrátta um vinnu-
laun og reyndar önnur kjör fslend-
inga á vinnumarkaðinum.
Svo undarlega vill til, að það virð-
ist kannski ekki vera sami hugsunar-
hátturinn að baki hugmyndum at-
vinnurekenda og ríkisstjómar og var
um rekstur Buchenwald en það jaðr-
ar þó við að vera frekar í þá áttina.
Eða á að skilja tillögur atvinnurek-
enda í þá áttina að hér sé verið að
greiða hærri laun fyrir unnar vinnu-
stundir? Ekki skal farið út í að reikna
út þetta skötulíki þeirra. Það gagnar
engum. Hitt vekur athygli mína að
það er eins og forsætisráðherra skilji
hvorki upp né niður í þessum tillög-
um samanber fund hans með forystu
ASÍ, þar sem hann kvað sig reiðubú-
inn að leiðrétta. Halldór utanríkisráð-
herra var þó búinn að fegra þetta á
sama fundi og útskýra. Friðrik Soph-
usson var þó hreinskiiinn að vanda
og sagði aðspurður að þetta kæmi allt
til baka í ríkiskassann. Það vom orð
að sönnu. Höllustaðabóndinn þagði
aldrei þessu vant og eitthvað hefur
náttúmgreind hans sagt til sín. Berin
vom súr.
Það vakti þó enga undran hjá mér
að Davíð forsætisráðherra skyldi
vera úti á þekju. Það var algjört auka-
atriði hvaða laun alþýðan bar úr být-
um. Þar að auki voru uppáhalds-
verkalýðsleiðtogamir í verkalýðs-
hreyfingunni búnir að marka leiðina.
Ekki varð hún vörðuð betur.
Fyrir nokkmm ámm óð allt á súð-
um hjá Framsóknarflokknum. SÍS
var að geispa golunni. Gagnmerk
blaðakona sem var í tísku skaust
fram úr fylgsnum sínum og skrifaði
framhaldssögu um Landsbankann,
SÍS og dótturfyrirtækin. Hefur hún
ekki sést síðan á síðum Morgun-
blaðsins, að því er best verður séð.
Kannski er hún í sérverkefnum? Sagt
er að Landsbankinn hafi ekki borið
sitt barr síðan. Eiginfjárstaða verið í
lakara lagi og vart náð þeim mörkum
sem alþjóðlegir kaupahéðnar gera
kröfur til banka um. Eitthvað hefur
þetta farið fyrir hjartað á þeim sem
að vonum hafa litið á Landsbankann
sem óskabarn þjóðarinnar. Margar
laxveiðiár peningakerfisins hafa ver-
ið plægðar og lítið gefið í aðra hönd.
Finnst þá ekki gamalgróið fyrirtæki,
sem allir vom búnir að gleyma, jafn-
vel eigendur, bmnabótafélagið, eða
öllu heldur eignahaldsfélag þess.
Virtist, eftir allt, vera töluvert eigna-
hald í því. Gafst þama kjörið tæki-
færi til að rétta af gengi Landsbank-
ans áður en hann yrði seldur. Hvílík-
ur hvalreki. Næstum eins og á lukku-
hjólinu hans Hemma Gunn.
Að vísu á eftir að leita samþykkis
eignarhaldsfélaga, sem nú ku vera
orðnir hundrað. Greiðsla á ræskninu
gat farið fram á þremur ámm svona
eins og verið væri að kaupa smáferð
til útlanda á raðgreiðslum frá VISA.
Eitthvað em aðrir bankar óhressir
yfir þessu og tala um lagabrot og em
allir sérfræðingar þeirra banka sam-
mála um það en ekki sama tegund af
sérfræðingum Landsbankans. Svona
geta skólamir útskrifað fjölbreytta
flóm sérfræðinga.
Eitthvað á þetta að verða til að
spoma við ásælni útlendinga í að
stofna banka á Islandi. Hvaðan menn
hafa þá vitneskju veit ég ekki. Ég
held að þeir væm fyrir löngu búnir
að stofna hér banka ef þeim sýndist
svo því dymar era galopnar. Eða eru
þær kannski bara hálfopnar?
Allt verður Islands óhamingju að
vopni. Norðmenn hafa séð sitt
óvænna og boðið 20 þúsund norskar
krónur í jámblendið á Grundartanga.
Er þar allt klappað og klárt. Yfírlýs-
ingar iðnaðarmálaráðherra um 500
milljóna aukagreiðslur úr ríkissjóði
em fyrir borð bornar. Ekki er að
spyrja að reikningsskilum hans. Sult-
artangavirkjun er borgið og það er
bara örlítið svæði sem fer til spillis.
Eitthvað er farið að snjóa þama brún-
um snjó þó. Svo það hlýtur allt að
vera í lagi með mengun. Þetta er bara
moldrok sem var einum til tveimur
mánuðum of snemma á ferðinni. Ak-
umesingar og Guðmundur J. halda
að þama muni skapast mörg atvinnu-
tækifæri. Er þá ekki bara allt komið í
lag? Það gerir ekkert til þó að Akur-
nesingar og Guðmundur J. hafi
gleymt því að bráðum verða mold-
vörpugöngin klöppuð og klár undir
Hvalfjörð. Ingibjörg Sólrún búin að
tryggja sér að Reykjavík nái að öðr-
um enda gangnanna. Þá eru það bara
spurningamar: Fer ekki að rísa upp
byggðakjami við Saurbæ á Kjalar-
nesi? Og hvað þá ungi maður?
Ekki er spurt um arðsemi þessa
alls. Það er nokkuð Ijóst að laun
verða eitthvað hærri en á almennum
vinnumarkaði Dagsbrúnar. Enda
verður þama vaktavinna. Of dýrt er
að slökkva á hnappnum. Þessum eina
sem Guðmundur J. telur að þurfi að
vera. Verður hann kannski í fanga-
húsinu við Lækjartorg eða flytjum
við kannski Davíð bara í Landsvirkj-
un? Er það ekki bara sniðugra, þá
villir hann ekki á sér heimildir leng-
ur. Þá getur Halldór utanríkisráð-
herra farið að reikna út í friði arð-
semina. Laus við allt nöldur út af
smugum og öðrum slíkum óhag-
kvæmum atvinnuvegum. Mér finnst
að krafan um tuttugu álver ætti raun-
verulega að vera í skjaldarmerki ís-
lands svona eins og menn hugðust
hafa þar þorsk í gamla daga. Það
væri kostulegt hefðu forfeður okkar
komist upp með slíkt.
Það er bara þetta með álverin. Ég
hef illan bifur á þeim eftir að ég
heyrði frétt á gufunni um daginn, að
blessað „alusviss" starfaði undir nýju
nafni. Hefði jafnvel rekið eða staðið
að rekstri fangabúðanna í
Buchenwald á stríðsámnum. Ég sel
það ekki dýrara en ég keypti það. Ef-
laust geta sagnfræðingar sagt okkur
betur um þetta. Það kemur svo margt
á gufunni eins og menn vita.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
deildarsérfræðings f menntamála-
ráðuneytinu
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu
deildarsérfræðings í lista- og safnadeild í skrifstofu menn-
ingarmála. Um er að ræða fullt starf tímabundið í 4 ár.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi. Góð tungu-
málakunnátta er æskileg og reynsla af stjórnsýslustörfum.
Laun greiðast samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Starfsmaðurinn þarf að geta hafið störf hið allra fyrsta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri lista- og
safnadeildar.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík fyrir 23. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið,
4. aprfl 1997
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
Aðalfundur verður haldinn í kvöld, þriðjudagskvöld kl.
20:30 í kennarastofu Garðaskóla (sami inngangur og á
Bókasafnið).
Gestur fundarins: Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri
Garðabæjar.
Félagar takið með ykkur gesti. Stjórnin