Alþýðublaðið - 18.04.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ó n a r m i ð
Engin andarteppu- og þykjustuviðtöl
“í samskiptum mínum við fjöl-
miðlafólk á löngum tíma hef ég
einatt haft fjölmiðlamenn að háði og
spotti fyrir andarteppuviðtöl, fyrir
þykjustuviðtöl, fyrir hroðvirknislega
undirbúnar spumingar sem ekki er
fylgt eftir, fyrir að gefa sér aldrei
tíma til að halda þræði eða huga
nokkurt mál til enda,“ segir Jón
Baldvin Hannibalsson í viðtali við
Helgarpóstinn. Jón Baldvin sér eins
og kunnugt er um vikulegan þátt á
Stöð 2 „í annan stað“ og viðtalið
snýst um hlutverk þessara þátta.
Jón Baldvin segir þættina ekki
eiga að vera afþreyingu. „Hugmynd-
in er að velja til viðtals mann sem
hefur eitthvað að segja, getur haldið
þræði í frásögn um það bil hálftíma
og er, að mínu mati, líklegur til þess
að standa fyrir máli sínu eða segja frá
þannig að hann gæti gert málið
áhugavert," segir Jón Baldvin. „Það
hefur verið nokkuð vandasamt að fá
fólk til þátttöku. Það hafa margir
hafnað. Ýmsir héldu að fyrir mér
vekti að hakka fólk í spað. Það orð
fór víst af mér að ég væri illskeyttur
í viðræðum. Aðrir töldu að þeir hefðu
ekki nægilega mikið fram að færa.
Sumir þora svo ekki að tjá sig vegna
starfa sinna. Það er nú eitt sem hefur
orðið mér umhugsunarefni. Mér
finnst vera andskoti mikil skoðana-
kúgun í þessu landi. Menn sem eiga
eitthvað undir öðrum - fjármálakerf-
inu, bankakerfinu, pólitíska kerfinu -
hika við það að segja hispurslaust
skoðun sína, jafnvel þótt þeir tjái sig
afdráttarlaust í einkaviðræðum,
vegna þess að þeir óttast að það bitni
á þeim eða skaði þá að einhveiju
leyti.“
Jón Baldvin segir þetta áberandi
hjá ýmsum forsvarsmönnum í at-
vinnulífi og ýmsum sérfróðum
mönnum sem eru embættismenn eða
starfa að verkefnum á vegum opin-
berra aðila.
“Menn sem eiga eitthvað undir öðrum - fjár-
málakerfinu, bankakerfinu, pólitíska kerfinu -
hika við það að segja hispurslaust skoðun sína,
jafnvel þótt þeir tjái sig afdráttarlaust í einkavið-
ræðum, vegna þess að þeir óttast að það bitni á
þeim eða skaði þá að einhverju leyti.“
“Mér finnst ótti við að tjá sig og
bæling frammi fyrir meintri skoðana-
kúgun mest áberandi í viðskiptalíf-
inu,“ segir Jón Baldvin. „Þar eru
menn sem hafa mjög ákveðnar skoð-
anir og eru oft ágætlega menntaðir en
forðast að tjá sig opinberlega vegna
þess að þeir gætu með því móti vak-
ið styr og sætt gagnrýni, jafnvel ver-
ið látnir gjalda þess beinlínis í fjár-
hagslegum eða pólitískum fyrir-
greiðslum."
Undir lok viðtalsins segist blaða-
maður Helgarpóstsins hafa góðar
heimildir fyrir því að Jón Baldvin sé
á leið til Bandankjanna til að taka
við sendiherraembætti.
“Þú ert nú ekki fyrsti maðurinn
sem þykist hafa góðar heimildir fyrir
því,“ svarar Jón Baldvin. „Ég hef
ekki heimildir fyrir því svo ég get
ekkert um það sagt. Ég hef sagt að ég
ætla ekki að bjóða mig fram til þings
næst og það er líka rétt að ég ætla að
taka mér frí frá íslensku þjóðfélagi
og skoða það svolítið úr fjarlægð."
Menn velta því nú fyrir sér
hvort farið sé að kólna á
millum Jóns Ólafssonar á
Stöð 2 og DV-veldisins, þar
sem íslenska Útvarpsfélagið er
drjúgur aðili. Nýlega réðu
nefnilega feðgarnir Eyjólfur og
Sveinn R. Eyjólfsson fyrrver-
andi fréttastjóra Stöðvarinnar,
Elínu Hirst til að hressa upp á
fréttasíður DV. En brottför Elín-
ar af Stöð 2 var ekki hljóða-
laus einsog menn muna, og
hún vandaði ekki Jóni Ólafs-
syni kveðjurnar. Það sér hins-
vegar strax á útliti og fréttatök-
um DV að nýtt blóð streymir
um æðarnar, og þó upphaflega
hafi aðeins átt að hafa Elínu í
tímabundnu verkefni upp í þrjá
mánuði á DV, eru menn strax
farnir að velta fyrir sér hvort
dvöl hennar verði lengri en
upphaflega var kynnt...
egar Joe Boxer fyrirtækið
kom hingað og kynnti
framleiðslu næsta árs í flug-
skýli 4 síðastliðið laugardags-
kvöld var atburðinum gerð góð
skil í flestum fjölmiðlum. Rit-
stjóri Dags-Tímans, Stefán
Jón Hafstein skrifaði heilsíðu
um nærbuxur Joe Boxer, önn-
ur blöð gátu kynningarinnar
dyggilega, sömuleiðis útvörpin
og meira að segja Ríkissjón-
varpið gerði kvöldinu góð skil.
Einn af aðstandendum og
hvatamönnum kynningarinnar
hér á landi var Sigurjón Sig-
hvatsson kvikmyndaframleið-
andi í Hollívúdd, og kona
hans, Sigríður Þórisdóttir,
setti kynninguna með ræðu.
Með tilliti til þess að Sigurjón
er einn aðaleigandi Stöðvar 2
þótti mönnum því kyndugt, að
eini fjölmiðillinn sem gat tæp-
ast um kynningu Joe Boxer
hér á landi var einmitt Stöð 2...
Ahugamenn um hvalveiðar
ná ekki upp í nef sitt af
reiði vegna loðinnar afstöðu
ríkisstjórnarinnar í málinu.
Hver ráðherrann á fætur öðr-
um hefur lýst yfir að hvalveið-
um verði fram haldið, en efndir
eru engar. Sérstök nefnd á
vegum Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra hefur ný-
lega skilað af sér skýrslu, en
niðurstaðan þótti svo klén að
farið er með skýrsluna sem
mannsmorð. Fylgjendur hval-
veiða hugsa sér nú til hreyf-
ings, og snemma í morgun,
föstudag, héldu þeir lokaðan
fund með nokkrum þingmönn-
um, sem vilja hvalveiðar. Þar
var rætt um hvernig á að
reyna að aka ríkisstjórninni til
einhverra aðgerða...
Ríkisstjórnin er raunar þegar
farin að óttast gagnrýni
vegna afstöðuleysis í hval-
veiðimálunum og í dag er
áformað að halda fund með
formönnum stjórnarandstöð-
unnar, þar sem efni skýrslunn-
ar er kynnt. Þegar er búið að
senda þeim skýrsluna í trún-
aði, og mun eiga að leita ráða
og liðsinni stjórnarandstöðunn-
ar í málinu. Mönnum þar á bæ
þykir það heldur seint í rassinn
gripið, og hafa þingmenn
stjórnarandstöðunnar lítinn
áhuga á að ýta ríkisstjórninni
af skerinu sem hún er kyrfilega
föst á í málinu....
hinumcgin
"FarSido" eftir Gary Larson
Guðmundur Símonarson,
sölumaður:
“Já, þar sem það á við.“
Sigurbjörn Björnsson,
standsetningamaður:
“Nei, og hef ekki hugsað mér
að gera það.“
Davíð Ólafsson,
standsetningamaður:
“Nei, það hef ég ekki gert.“
Sigurjón Þór Skúlason,
standsetningamaður:
“Nei, það hef ég aldrei gert.“
Skúli Kristinn Gíslason,
vélfræðingur:
“Ég nota það þegar svo ber
undir.“
v i t i m e n n
“Við teljum okkur vera svo
mikið með á nótunum sem við
erum alls ekki.“
Daöi Guðbjörnsson myndlistamaður, í
Mogganum.
“Ég hef alltaf reynt að vera á
undan lóunni.“
Bergur Hallgrímson I DT.
“Annars er ekki allt með
felldu með þessa sýningu
mína. Það eru hér myndir sem
ég kannast ekkert við að hafa
málað. Þær eru merktar mér
en eru sennilega danskar, ef
ekki franskar."
Grétar Hjartarson við opnun sýningar sinn-
ar, f Mogganum.
“Það er að minnsta kosti auð-
veldara fyrir fátækt fólk að út-
vega sér eina bjórdós í stað
sex.“
Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli, í DT,
þegar hann var spuröur hvort rétt sé hjá
ÁTVR að selja bjórdósir I stykkjatali.
“Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér.“
Georg Árnason, starfsmaður Áburðarverk-
smiðjunnar, í Mogganum. Þetta hefur
heyrst áður, ekki rétt?
“Og Ijósastaurarnir sveifluð-
ust - eins og strá í vindi.“
Sigrún Kristjánsdóttir, á Kópaskeri, að
minnast jarðskjálfta, í DT.
“Að halda í íslenskuna er bara
þrjóska og geðveiki. “
Júlíus Kemp kvikmyndagerðamaður, i DT.
“Sá sem nú er félagsmála-
stjóri þekkir sama og ekkert til
í bænum og kemur ókunnugur
að sunnan. Það er einhver
lenska að ráða aðkomumenn í
allar toppstöður og þetta fólk
er aldrei við á stnum vinnu-
stað og oftast fyrir sunnan,
þar sem það á heima í raun
og veru.“
Gísli Hjartarson á ísafirði I HP.
iross c
Sárt er að skilja, gráti gelzt
gleðin þiggðu kossa mína!
Rétt sem örskot tæpur telst
tíminn mér við kossa þína,
Jónas Hallgrímsson I Kossavlsu, þýöingu
á kvæði þýsk/franska skáldsins Adelbert
Von Chamisso.