Alþýðublaðið - 18.04.1997, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður
haldinn mánudaginn 21. apríl kl. 20.30 á Grand Hótel
Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Sumargleði
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði halda sumargleði mið-
vikudaginn 23. apríl n.k. (síðasta vetrardag) í Hraunholti,
Dalshrauni 15.
Miðaverð kr. 2.200.
Dagskrá:
Kl. 19.00 Húsið opnar
20.00 Sest að snæðingi - hlaðborð hússins (nóg að
borða)
Hátíðin sett
Málmblásarakvintettinn Þeyr skemmtir
Gunnar Svavarsson stendur fyrir uppákomu, en
hvað???
Söngur - glens - gaman
Kl. 23.00 Hljómsveitin Hvos leikur fyrir dansi til kl. 02.00.
Veislustjóri er engin önnur en stórkratinn Ásthildur Ólafs-
dóttir.
Sjáumst hress og kát síðasta vetrardag og gerum kvöldið
ógleymanlegt.
Skráning og allar upplýsingar hjá skemmtilegu nefndinni:
Vala s. 555 1920
Jóna Ósk s. 565 4132
Hafrún Dóra s. 565 1772
Guðfinna s. 555 2956
Brynhildur s. 565 1070 - í Alþýðuhúsinu s. 555 0499
þriðjudaga og föstudaga e.h.
Kópavogsbúar-
Opinn fundur með
Sighvati Björgvinssyni
Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, verður
á fundi í Alþýðuflokksfélagi Kópavogs n.k. mánudags-
kvöld 21. apríl klukkan 20:30 í húsnæði félagsins, Hamra-
borg 14a. Allir velkomnir, heitt á könnunni.
F.h. stjórnar, Magnús Árni Magnússon, formaður
Kópavogsbúar-
Sumarhátíð
í tilefni sumars blæs Alþýðuflokksfélag Kópavogs til sum-
arhátíðar í nýuppgerðu húsnæði félagsins, Hamraborg
14a, föstudaginn 25. apríl kl. 20:00. Matast verður í upp-
hafi hátíðar og um kvöldið verður hægt að nálgast léttari
veitingar. Þeir sem áhuga hafa á að vera með í matnum
eru beðnir um að hafa samband við einhvern stjórnar-
manna, ellegar tala inn á símsvarann á skrifstofu félags-
ins í síma 554-4700 og láta vita. Allir velkomnir - fögnum
sumrinu saman með glæsibrag.
F.h. stjórnar, Magnús Árni Magnússon, formaður
Kristján Ragnarsson kraföist þess að bankastjórinn
bæðist afsökunar.
■ Útvegsmenn óánægðir
Hótuðu
Stefán Pálsson bankastjóri baðst afsökunar og kom
sér undan málssókn.
banka-
stjóra málssókn
- vegna fréttar sem birtist í Morgunblaðinu
LÍÚ hótaði Stefáni Pálssyni,
bankastjóra Búnaðarbankans, máls-
sókn tæki hann ekki aftur orð sem
birtust, höfð eftir honum, í Morgun-
blaðinu. Útgerðarmennimir buðu
Stefáni að draga orðin til baka í blaði
LÍÚ, Útvegi, að öðrum kosti yrði
honum stefnt til að fá orð hans dæmd
ómerk. Stefán þáði ekki boð LÍÚ.
Mánuði síðar skrifaði Stefán LÍÚ
bréf þar sem hann sagði að í frétt
Morgunblaðsins væri ekki haft rétt
eftir sér. Útgerðarmenn þrýstu á Stef-
án að birta leiðréttingu í Morgun-
blaðinu, að öðmm kosti yrði honum
stefnt. Tveimur mánuðum síðar, eða
18. mars, kom leiðrétting í Morgun-
blaðinu.
I hinni umdeildu frétt í Morgun-
blaðinu er haft eftir Stefáni: „Stað-
reyndin er að þetta er eign einstak-
linga og það er fjöldi manns, sem
gerir ekki neitt og á bát og leigir
kvótann og lifir í vellystingum." I
blaði LÍÚ segir að þessi ummæli séu
ærameiðandi, ekki síst þar sem þar
tali forsvarsmaður einnar öflugustu
lánastofnunar í landinu.
í síðbúinni leiðréttingu í Morgun-
blaðinu segir: „Að gefni tilefni skal
tekið fram, að þótt ummæli hafi fall-
ið efnislega á þennan veg í samtali
blaðamanns og bankastjórans voru
þau að hálfu hins síðamefnda ekki
ætluð til birtingar og alls ekki með
þeim hætti að um alhæfmgu væri að
ræða, heldur sagt að dæmi væri um,
að menn ættu kvóta og gerðu út á að
leigja hann.“
Útvegsmönnum þykir Morgun-
blaðið en eiga eftir að byðjast afsök-
unar á að hafa unnið upphaflegu
fréttina.
Útgvegsmenn era ekki sáttir við
hversu lengi leiðréttingin beið á rit-
stjóm Morgunblaðsins, en blaðið
segir það hafa orðið vegna
handvammar.
Aðalfundur
1997
Þormóöur rammi hf
Aðalfundur Þormóðs ramma hf. verður haldinn að Hótel Læk, Siglufirði,
föstudaginn 25. apríl n.k. kl. 15:30.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Heimild félagsins til að eiga eigin hluti.
3. Tillaga um sameiningu Þormóðs ramma hf. við Sæberg hf., Hraðfrystihús
Ólafsfjarðar hf. og Dalberg hf.
4. Breytingar á samþykktum félagsins.
5. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta mætt en hyggjast gefa umboð þurfa að gera slíkt
skriflega.
Stjóm Þormóðs ramtna hf.