Alþýðublaðið - 30.05.1997, Side 6
I
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997
Hveriir eiga Granda
Mikil umsvif Granda bæði hérlendis og erlendis
Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri eins stærsta fyrirtækis landsins sem
bæði hérlendis og erlendis.
Grandi var stofnaður í nóvember
1985 þegar ísbjörninn hf. og Bæj-
arútgerð Reykjavíkur voru sam-
einuð. I september 1990 samein-
uðust Grandi hf. og Hraðfrysti-
stöðin í Reykjavík hf.. Á árinu
1995 störfuðu að meðaltali 420
starfsmenn hjá Granda hf. miðað
við heilsársstörf.
Grandi er eitt stærsta eða næst
stærsta sjávarútvegsfyrirtæki lands-
ins með gífurlegt umfang og rekstur.
Það þykir afar faglega og vel rekið
og stendur vel á mörkuðum. Upplýs-
ingamar um fyrirtækið á þessari síðu
eru m.a. unnar úr heimasíðu fyrir-
tækisins á netinu.
Hagnaður Granda og dótturfyrir-
tækis þess, Faxamjöls, nam 215
m.kr. á fyrstu sex mánuðum sl. árs.
Árið áður var hagnaðurinn 141 m.kr.
fyrir sama tímabil. Rekstrartekjur
samstæðunnar á fyrra árs-
helmingi 1996 námu 2.209 m.kr. og
er það um 3% aukning frá sama
tímabili árið áður.
Stórfyrirtæki með fjöl-
þættri eignaraðild
Mörg öfl koma saman í Granda.
Sumir vilja halda því fram að Grandi
sé dæmigert „kolkrabbafyrirtæki“ í
sjávarútvegnum, þ.e. fyrirtæki sem
sé í raun í eigu voldugustu klíkunnar
og ættanna sem eiga ísland. Aðrir
telja að þvert á móti sé Grandi í
eignalegri andstöðu við harðasta
kjamann í kolkrabbanum, þ.e. í
kringum Eimskipsklíkuna.
Hlutafé félagsins nam 1.194,5
m.kr. þann 30. ágúst s.l. og þá var
íjöldi hluthafa 822. Eftirfarandi er
yfírlit yfir 10 stærstu hluthafa og
hlutfallslega eign þeirra þann 30.
ágúst 1996:
Vogunhf. 28,14%
Haf. hf. 13,56%
Hampiðjan hf. 11,49%
Sjóvá-Almennar Tryggingar 5,44%
Olíuverslun íslands hf. 3,72%
Ingvar Vilhjálmsson sf. 3,33%
Lífeyrissjóður Verslunarmanna 2,81 %
Hlutabréfasjóðurinn hf. 2,41%
Fiskveiðihlutafélagið Venus 2,37%
Olíufélagið Skeljungur 1,76%
Stærsti hluthafinn í Granda er Vog-
un hf. sem er félag í eigu Hvals hf..
Hvalshluthafar höfðu forgöngu undir
forystu Áma Vilhjálmssonar prófess-
ors, að kaupa hlut Reykjavíkurborgar
í Granda á sínum tíma. Aðrir eigend-
ur vom þá Isbjöminn hf. en með
Hval komu nýir hluthafar, - hefð-
bundin félög í sjávarútvegi s.s.
Hampiðjan og Sjóvá -Almennar.
Þegar Grandi og Hraðfrystistöðin
sameinuðust breikkaði hópurinn enn.
Nú eru tæplega þúsund hluthafar og
margt af starfsfólkinu á hiut í
Granda.
Grandi þykir nútímalegt og fram-
sækið fyrirtæki sem sést t.d. á þátt-
töku í öðmm fyrirtækjum. Sérvinnsla
fyrirtækisins er í karfa og er það
langstærsta framleiðslufyrirtæki á
karfa hérlendis.
teygir anga sína um víðan völl,
Stjórnendur
fyrirtækisins
Stjómarmenn endurspegla hverjir
em stærstu hluthafamir í fyrirtækinu.
Aðalmenn í stjórn eru: Árni Vil-
hjálmsson formaður , Ágúst Einars-
son, Benedikt Sveinsson, Gunnar
Svavarsson, Grétar Br. Kristjánsson
og Jón Ingvarsson. En varamenn í
stjóm em: Bjami Bjömsson, Bragi
Hannesson, Halldór Vilhjálmsson,
Ólafur Bjarki Ragnarsson og
Ingi Ú. Magnússon
Framkvæmdastjóri er Brynjólfur
Bjamason, fjármálastjóri er Kristín
Guðmundsdóttir, Sigurbjöm Svav-
arsson er útgerðarstjóri, Svavar
Svavarsson, framleiðslustjóri og
Gunnar Sæmundsson er forstöðu-
maður tæknideildar.
Víðtæk eignaraðild að
öðrum fyrirtækjum
Grandi hefur komið víða við
heima og erlendis eins og hin stærstu
félögin í sjávarútvegi á síðustu miss-
emm. Samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu fyrirtækisins á alnetinu
em dóttur- og hlutdeildarfélög þessi:
Fiskimjölsverksmiðja
dótturfyrirtæki
Dótturfyrirtæki Granda hf. er
Faxamjöl hf. sem stofnað var 1989.
Á Siglufirði starfar Þormóður rammi með um 200 starfsmenn. Grandi á 23% í þessu öfluga fyrirtæki.
Pad tekur adeins
einn virkan dag..
...að koma póstinum
þínum til skila
t
PÓSTUR OG SÍMI HF