Alþýðublaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1997 m 2 n n i n Fjórir fyrirlesarar á nýafstöðnu Söguþingi velta fyrir sér í samtali við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur afhverju þ Femínisminn spyr nýrra spurnir - segja Sigríður Matthíasdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Unnur Dís Skaptadóttir, fjórir fræðimenn ., • £ • zf< : -■ . ■ ■;- .. | ...... . . 'j “Það er ekki skylda á svona þing- um, en við höfum hist fjögur og rabbað saman yfir kaffibolla þegar við höfum haft tækifæri til meðan við undirbjuggum fyrirlestrana,11 segja fjórir fræðimenn, þau Unnur Dís Skaptadóttir mannfræðingur, Sigríður Matthíasdóttir og Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingar, Ingólf- ur Ásgeir Jóhannesson menntunar- fræðingur, en þau voru með erindi á Söguþingi, í þættinum Kyn og saga, og hafa stundað rannsóknir með áherslu á kynferði eða gender, sem þau segja að sé eitt mikilvægasta við- fangsefni sagnfræðinnar á síðustu árum. Nú heyrði ég gagnrýnt að svo miklu púðri vœri eitt í kynjarann- sóknir eins og að hafa eitt þemað á Söguþinginu sérstaklega um þetta efhi Kyn og sögu? “Á Heimsþingi sagnfræðinga, í Montreal var þetta eitt af aðalefnun- um og einn best sótti liðurinn á þing- inu, sömu sögu er að segja af Nor- ræna sagnfræðingaþinginu, síðasta," segir Ólöf. „Þar var einn stærsti lið- urinn kynferði og það sköpuðust mjög líflegar umræður. Þetta er því eitt mikilvægasta viðfangsefni sagn- fræðinnar á síðustu árum.“ “Mér fínnst ótrúlegt að fólk sé að gagnrýna þetta,“ segir Sigríður Matthíasdóttir.“ Ólöf: „Úti í heimi er þetta aðal- málið en það fær hálfan dag á íslandi og þykir mikið.“ “Það eru ekki kvennarannsóknirn- ar einar og sér sem hleypa fólki upp á háa séið,“ segir Sigríður Matthías- dóttir, „heldur það að sagnfræðin skuli tengjast post-módemismanum eða post- strúktúalismanum, en það gerir hún óneitanlega í gegnum femínískar rannsóknir." En afhverju kvennarannsóknir eða þessi áhersla á kynferði? “Ég er sagnfræðingur að mennt,“ segir Ólöf Garðarsdóttir. “Það var ekki mjög mikið komið inn á kvennasögu í mínu námi en þetta er mjög mikilvægur þáttur í rannsókn- um síðastliðnum árum og óneitan- lega, þar sem ég er kona, fer ég að hafa mjög mikinn áhuga á því til dæmis hvaða stöðu konan hefur í samfélaginu á mismunandi tímum. Fortíðin er ekki það sama og saga. Ég vex úr grasi sem venjuleg milli- stéttarstelpa en ég spyr ég spurninga sem eru sprottnar úr minni reynslu, ekki bara sem sagnfræðingur, heldur líka sem kona með böm í íslensku samfélagi. Öll mín reynsla hefur áhrif á það hvemig ég spyr og hvað ég spyr um. Ég tek sem dæmi afhverju ég er að fjalla um bamavinnu. En við rann- sóknir mínar hef ég beitt aðferðum sköpunarhyggjusinna, hvernig hug- myndir okkar um bemskuna breytast í tímans rás. Ástæðuna fyrir því að ég skoða þetta efni er líka að finna í mínum uppmna, ég er að hluta til alin upp í útlöndum þar sem böm vinna ekki. 1 dag snúast áherslur kynjarann- sókna fyrst og fremst um samspil kynjanna, valdahlutföll og annað því tengt. í upphafi var helst verið að reyna að finna konum stað í sögunni, búa til nýjan bás og bæta aftan við allan halann. í því fólst ekki sú gagn- rýna söguskoðun sem viðgengst í þessu fagi í dag, nú er allt endurmet- ið og öllum forsendum snúið við.“ “Málið er að áður var ekki fjallað um konur á sömu forsendum og karla,“ segir Unnur Dís. “Nú snýst spumingin um hvernig þessir tveir heimar, kvenna og karla, spila saman, og jafnframt um valda- samspilið f þjóðfélaginu yfirleitt," segir Ólöf. „Það er gagnrýni á það sem við köllum eðlishyggju sem er meginviðfangsefni genderrannsókna, en það þýðir kynjarannsóknir og er útvíkkun á þessu hugtaki. “Þetta er félagslega skilyrt ástand en ekki náttúmlegt fyrirkomulag sem við búum við, og það verður að sónuleg mál og pólitísk em þar skoð- uð sem órofa heild, samoftn, og menn hljóta að setja sér ákveðin markmið þegar þeir skoða þessa hluti. Ég vil að karlar skoði forrétt- indi sín og reyndar konur líka sem fyrirbæri og setji sér þau pólitísku markmið að draga úr þeim. Ég vil líka að við skoðum fyrirbæri eins og karlmennskuna og ímynd hennar. Hvað merkir karlmennska? Hefur setja þær í valdakerfinu? “Áherslumar hafa tekið miklum breytingum. Eins og ég tek á því, segir Sigríður, þá tengi ég það mín- um bakgmnni í náminu. Ég er að byrja í doktorsnámi en ég hef helst verið að stúdera þjóðemisstefnu. Núna ætla ég að taka kynferði inn í þær vangaveltur og doktorsritgerðin mín mun snúast um þjóðerni og kyn- ferði. Menningarleg þjóðemisstefna menn á sama tíma á rökstólum um hvort konur eigi að hafa kosninga- rétt, þar er þessi þversögn, þær em hluti af heildinni, fjölskyldunni, og hafa þar skyldum að gegna, En þær hafa ekki réttindi innan þjóðríkisins til samræmis við það.“ Með þessu er ég ekki að segja að konur séu og haft eingöngu verið fómarlömb, þær höfðu þó ekki kosn- ingarétt, þær vom ekki metnar sem , smm Blaðamaður við borðsendann gegnt fjórum fræðimönnum af Söguþingi, hægra megin er Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Ólöf Garðarsdóttir, vinstra megin Sigríður Matthíasdóttir og Unnur Dís Skaptadóttir. skoða sem slíkt,“ segir Ingólfur Ás- geir Jóhannesson lektor við Háskól- ann á Akureyri flutti fyrirlestur sem hann nefndi karlafræði eða karla- fræði, vangaveltur um forsendur sagnfræði “Það að tala um náttúmlegt fyrir- komulag felur í sér að um er að ræða óumbreytanlegt ástand og slík hugs- un viðheldur ríkjandi valdi í samfé- laginu,“ segir Unnur Dís. „Það að konur sinni ákveðnum störfum þykir eðlilegt í okkar samfélagi en í öðmm samfélögum gæti það þótt eðlilegt að þau væra í verkahring karlmanna." “Það er eitt atriði, um feminis- mann sem sjónarhom sem ég tel að sé mikilvægt segir Ingólfur. „Per- hún vonda þýðingu, verða karlmenn fyrir barðinu á henni? Það er ljóst að karlar verða líka fyrir barðinu á karl- mennskunni og þeim vemleika sem hún hrærist í. Hetjuskapur er til að mynda ekki óskaplega hollur í reynd.“ Hvenœr hófust kvennarannsóknir á sögu Islands? “Það hafa margir skrifað um konur í sögunni eins og Sigríður Th Er- lendsdóttir og Margrét Guðmunds- dóttir,“ segir Ólöf Garðarsdóttir. „Það er þó ekki fyrr en um 1980, það má segja að Sigríður Th sé okkar helsti frumkvöðull á þessu sviði . Var þar um að ræða endurmat á þætti kvenna, en ekki aðeins að stað- eins og hún hefur þróast á íslandi er guðleg að uppmna, og byggir mikið á heimspeki þýska heimspekingsins Herder, en hann þróaði hugmynda- fræði þar sem þjóðin er ein fjöl- skylda, ein heild. Þegar maður fer að skoða söguna fer maður að spyrja hversu mikil heild var hún. íslenska þjóðríkið byggir á þessari hug- myndafræði. Frelsisdraumur þjóðar- innar átti rætur sínar að rekja til frönsku byltingarinnar og hugmynd- arinnar um að allir menn ættu að vera jafnir, þegar sjálfstæðisbaráttan fer af stað, er hún réttlætt með tilvísun í frelsi mannsins og þjóðarinnar sem eigi ekki að vera undir einvalda kon- ungi. Þrátt fyrir það sitja alþingis- borgarar í nútíma lýðræðisríki, en við væram, komin út algera afstæðis- hyggju ef við værum að halda því fram að það sé í himnalagi." “Það er mjög viðtekin skoðun í kvennafræðunum núna að vara sig á fómarlambshugtakinu en það er of einhliða viðhorf," segir Ólöf. „Þetta er partur af pöstmodernismanum, en innan hans er stundum tilhneiging til að líta á allt sem leyfilegt. Það verð- ur að líta á konur, að mínu mati sem hvorttveggja, fómarlömb og gerend- ur í samfélaginu, því þótt konan haft haft mjög slæma félagslega stöðu á ákveðnum tímum, þá voru þær ger- endur innan þess ramma. Þær eru einstaklingar með sín sérstöku ein-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.