Alþýðublaðið - 16.07.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ÖRSOGUR
Fjártiagskröggur Hallvarðs
Einvarössonar ríkissaksókn-
ara hafa verið í mikilli umræðu
Hallvarður: Grunnt á því
góða milli hans og dóms-
málaráðherra...
síðustu viku. Hallvarður er bróðir
Jóhanns Einvarðssonar, sem á
sínum tíma var þingmaður
Framsóknar. Hann var þar að
auki skipaður í núverandi
embætti sitt af þáverandi
dómsmálaráðherra og formanni
Framsóknarflokksins, Ólafi
heitnum Jóhannessyni. Margir
Sjálfstæðismenn hafa því löngum
litið hann homauga sem Fram-
sóknanmann, og um langa hríð
hefur verið mjög grunnt á því
góða milli hans og Þorsteins
Pálssonar, dómsmálaráðherra.
Hann hefur þó átt hauk í homi
þar sem er gamall nemandi hans
úr lagadeild Háskólans, en það er
enginn annar en sjálfur forsætis-
ráðherrann Davíð Oddsson. Það
hefur ekki orðið til þess að auka
vinsældir hans á skrifstofu
dómsmálaráðherrans...
Meðal veislugesta í 75 ára
afmæli ingibjargar
Johnsen, móður Árna þing-
manns, sem haldið var í Sjálf-
stæðishúsinu fyrir skömmu, pró-
fessor Þorsteinn Ingi Sigfússon
stjómarformaður Raunvísinda-
stofnunar Háskólans. Hann er
náfrændi mæðginanna auk þess
að vera einnig bróðir Árna Sig-
fússonar borgarstjóraefnis í
Reykjavík. Prófessorinn var
staddur i Eyjum á sérstökum Evr-
ópudögum sem efnt var til vegna
þátttöku Eyjamanna í nýju sam-
starfsverkefni undir hatti Evrópu-
sambandsins. Svo vildi til að ein
af gjöfum afmælisbamsins var
Gauji Bæjó: Nýstárlegt
framlag til ESB...
einmitt ferð til meginlands Evr-
ópu. Það varð Guðjóni Hjör-
leifssyni, bæjarstjóra, eða Gauja
bæjó einsog hann er kallaður í
daglegu tali, tilefni til að greina frá
því í ræðu sinni að byrjun Eyja-
manna á samstarfinu væri ekki af
verri endanum þvf tyrsta framlag
þeirra til samstarfsins við Evrópu-
sambandið væri að senda frú
Ijgibjörgu til Evrópu...
Iaðdraganda nýs árþúsunds
hefur kviknað mikill áhugi á
landafundum íslendinga vestan
hafs, og ekki hefur stöðug
áhersla Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta á vesturferðir
víkinga dregið úr honum. Einn
þeirra sem hefur lagst í slíkar
Páll Bergþórsson: Merkar
kenningar um vesturferðir
víkinga...
pælingar er fyrrverandi Veður-
stofustjóri, Páll Bergþórsson, en
einsog örsagnir Alþýðublaðsins
greindu frá er að vænta bókar frá
hans hendi um málið. Hann hefur
reynt að kortleggja ferðir Leifs
heppna Eiríkssonar, og í bókinni
verður meðal annars greint frá
kenningum hans um hvar
Leifsbúðir voru. En frá þeim segir
í Eiríks sögu rauða. Af frásögnum
má ráða að á slóðum búðanna
hafi vaxið villtur vínviður, sjálfsáið
kom og harðviður sem í munni
víkinga hét mösur. Samkvæmt
kenningu Páls sigldi Leifur heppni
vestur með suðurströnd
Lawrence flóa og inn til Quebec,
þar sem borgin stendur núna.
Fyrir ofan hana telur Páll að
Leifsbúðir hafi staðið. Það styrkir
óneitanlega þessa ágætu
kenningu að á þessum slóðum
finnst í dag harðviður, sem nefnist
sykurhlynur og gæti hafa verið
mösur Leifs. En auk þess er enn
að finna á sömu slóðum afbrigði
af sjálfsánu komi og smágerðri
tegund villtra vínberja...
Báðum fréttastofum sjónvarps-
stöðvanna hefur bæst liðs-
auki á síðustu vikum, sem hefur
bætt langþráum frískleika á
fréttatímana. En þreytan á
fréttastofunum hefur verið slík, að
leiðindin beinlínis geisla af föstum
fréttamönnum stöðvanna.
Kristján Ari: Sérfræðingur
Stöðvar tvö í Steingrími
bróður...
Langreyndur fréttahaukur af DV,
Kristján Ari Arason, er kominn á
Stöð tvö, og virðist einsog fæddur
fyrir skjáinn. Hann sérhæfir sig f
fréttum sem tengjast ríkis-
fjármálum og efnahagslífinu.
Væntanlega verður það ekki til að
gera bróður hans lífið léttara í
núverandi starfi, en það er enginn
annar en Steingrímur Ari
Arason, sem er aðstoðarmaður
Friðriks Sophussonar,
fjármálaráðherra...
r
Afréttastofu Ríkissjónvarpins
er Eva Bergþóra Guð-
bergsdóttir einhver efnilegasti
byrjandi sem lengi hefur sést á
skjánum. En ef að líkum lætur
mun frábær rödd og náttúrulegt
sjónvarpsandlit þó síst auðvelda
henni að fá fastráðningu. Eva á
annars ekki langt að sækja
þekkingu á sjónvarpi og fréttum,
því móðir hennar er Elín Þóra
Friðfinnsdóttir, sem um margra
ára skeiö hefur verið upptökustjóri
hjá Sjónvarpinu, og meðal annars
starfað að framleiðslu
fréttatímanna...
Tragikómedfan um
ástarævintýri
Alþýðubandalagsins og
Helgarpóstsins heldur áfram.
Þegar upp komst að flokkurinn fór
Páll: Reyndi að selja Fróða
hlut í HP...
með næstum því helming
hlutafjár í blaðinu var því lýst yfir
að aðild Alþýðubandalagsins
væri einungis til bráðabirgða,
og starfsmenn blaðsins
hyggðust kaupa hlut flokksins.
Hinsvegar er lítil von til þess að
starfsmennirnir tefli eigum
slnum í slíka tvísýnu enda allir
taldir með fullu viti. Ritstjórinn
Páll Vllhjálmsson hefur því
farið á fjörumar við fleiri en eitt
fyrirtæki sem tengjast útgáfu.
Hermt er að fyrir allnokkru hafi
Árvakur hf kurteislega afþakkað
gott boð, og nú síðast ræddi
Páll við stjórn Fróða hf, en sneri
bónleiður til búðar af fundi
Magnúsar Hreggviðssonar.
Gárungamir segja að nú sé
ekkert til bjargar nema kanna
hug Jóns Ólafssonar gagnvart
kaupum á Helgarpóstinum, en
sem kunnugt er hefur Páll verið
með hann á heilanum síðasta
misserið...
r
IFIókavörðu hinni nýrri sem nú
skreytir Hvaleyrarholtið er að
finna sérstaka steina, sem
teknir ern úr nokkrum
bæjarfélögum, sem tengjast
(slandi gegnum Sögumar, og
liggja nálægt Sveio Kommune.
Einn steinninn er þannig úr
Haugasundi, þar sem norskir
konungar, sem tengdust sögu
(slands, eru heygðir. Annar er frá
Karmoy, sem liggur við
Haugasund, en þaðan komu
einmitt fræknir bardagavíkingar
sem sýndu listir sínar á
víkingahátíðinni í síðustu viku,
bæði á Þingvöllum og í
Hafnarfirði. Einnig er þar að sjá í
hleðslunni fjörgamlan myllusteinn
sem fannst í rústum gamals
húss, sem lá nákvæmlega yfir
mörk Rogalands og Hörðalands,
en þaðan segir Landnáma að
Hrafna-Flóki hafi lagt upp í
íslandsferð sína. Merkasta grjótið
er þó tekið úr hátindi hæsta fjalls
á svæðinu, en það er Siggen á
eynni Bomlo. Það er skylt tinnu,
og finnst hvergi annars staðar í
Noregi. Margvíslegar menjar frá
steinaldartímanum víðs vegar um
vesturströnd Noregs sýna, að
íbúar á þeim tíma hafa sótt grjótið
langt að til að búa til spjótsodda
og önnur áhöld. Þess má geta að
Siggen er getið í dagbókum
landkönnuðarins Friðþjófs
Nansen, þegar hann var að
reynslusigla hinu fræga
leiðangursskipi sínu, Fram, á
Norðursjónum. Þar getur hann
þess, að jafnan sé Siggen fyrsta
kennileiti sem rísi úr hafi þegar
siglt er að ströndum Noregs, og
þá viti sérhver Norðmaður að
skammt sé heim. Gamlir
Norðmenn geta því skoðað
steininn í norðurhlið Flóka-
vörðunnar á Hvaleyrarholti og
leyft heimþránni að flæða...
Helsti fjárfestirinn í uppsetningu
Evitu er enginn annar en
Ásgeir Sigurvinsson,
Eyjapeyinn sem gerði það gott
sem atvinnumaður i knattspymu
og lék meðal annars með
Stuttgart og Bayem Munchen. En
bróðir Ásgeirs er leikstjórinn
sjálfur og frumkvöðull að
uppsetningunni hér á landi,
Andrés Sigurvinsson, sem
hefur gert það gott með mörgum
smærri leikhópum og hefur nú
ráðist í stórvirki þar sem Evíta er.
Ásgeir mun ekki þurfa að óttast
um ávöxtun fjár síns því
Ásgeir: Tapar ekki á fjár-
festingum sínum í Evítu...
uppfærsla Andrésar bróður hans
á leikritinu um eiginkonu argen-
tínska fasistans Juan Peron þyk-
ir afar góð, og pantanirnar
streyma inn...
r
IEvítu þykja þau Egill Ólafsson
og Andrea Gylfadóttir standa
sig mjög vel í hlutverkum
hjónanna Jóns og Evítu Perón.
Vigdís Hrefna: Siær í gegn
í Evítu...
Úr röðum leikara heyrist þó, að
sá sem slær i gegn í söngleikn-
um sé ung stúlka, sem leikur hjá-
konu Peróns og syngur engiltærri
röddu frábært lag. Hún heitir
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, nítján
ára Reykjavíkurmær sem út-
skrifaðist úr Menntaskólanum í
Reykjavík tveimur dögum fyrir
fmmsýningu og ætlar eriendis í
haust að læra leiklist...
inumegin
“FarSlde” eftir Gary Larson
Efir að hafa verið í frosti í tíu þúsund ár, gefur Thag út
sjálfsævisögu sína.
imm q förntim vcg
| Eiga samkynhneigðir að eiga rétt á kirkjulegri hjónavígslu?
Davíð Stefánsson: Susanne Martin:
Þú spyrð eins og fávís Já.
kona.
Hannes Pálsson:
Já.
Helen Þorkelsson frá Ak-
ureyri:
Já, það finnst mér.
Hólmtríður Gröndal:
Alveg hiklaust.
v i t i m q n n
Ég má ekki sjást ganga eftir
hafnarbakkanum og þá er
kvartað undan hávaða.
Jörundur Guðmundsson tívolíumboðsmað-
ur, I Mogganum.
Mér hefði aldrei dottið annað í
hug en að sjálfstæðismenn
myndu styðja sóknarstýringu,
en það er óþefur af þeirri
íhalds- kvótastefnu, sem hefur
gripið margan þingmanninn.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson í Mogganum.
Upphaflega var áætluð lántaka
Búnaðarbankans 50 milljónir
bandraríkjadollara, en vegna
góðrar móttöku á markaðnum
og hagstæðra kjara var ákveð-
ið að hækka lánsfjárhæðina í
100 milljónir bandaríkjadoll-
ara.
ÚrDT.
Það er alveg sama hvort það
erlangur Laugavegur eða ein-
hver tilboð. Ef það er lækkun
verður allt brjálað.
Bryndis Björk Sigurjónsdóttir afgreiðslu-
stúlka í DT.
Þau gátu til að mynda oft
fengið kartöflupoka að launum
eða einhverja vasapeninga.
Sigurgeir Hreinsson, bóndi að Hrfshóli í
Eyjafjarðarsveit, að ræða laun krakka sem
sendir eru eða voru í sveit, í DT.
Það er hægt að komast hjá
gagnrýni, með því að segja
ekki neitt, gera ekki neitt og
vera ekki neitt.
Jonni á Uppsölum, í DT.
Ljótt og illa unnið tímarit kom
á markaðinn fyrir nokkrum
dögum og heitir Tízka.
Fjölmiðlarýni DT.
Ég er alfarið á móti heræfing-
um á íslandi, hvort heldur er
utan ferðamannatímans eða á
honum. Ég er einnig alfarið á
móti heræfingum, dulbúnum
undir regnhlíf almannavarna.
Birna Þórðardóttir í DT.
Ef ferðamanni væri sagt að slikur
maður væri stjórnmálaleiðtogi, þá
gæti það vel orðið til að auka skiln-
ing hans á því hvers vegna Egyptar
tilbáðu skordýr.
Benjamin Disraeli forsætisráðherra Breta
um annan breskan forsætisráöherra John
Russeli.