Alþýðublaðið - 16.07.1997, Side 6

Alþýðublaðið - 16.07.1997, Side 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1997 ■ Rúmum 13 milljónum veitt í húsverndunarstyrki: Borgin getur ekki skipað nein- um að viðhalda gömlum húsum _ er svar Bryndísar Kristjánsdóttur formanns umhverfismálaráðs Reykjavíkurborgar við spurningum um styrkveiting- ar borgarinnar til húseigenda úr Húsverndarsjóði. Miðstræti 4: Timburhús byggt 1905. Fyrsti eigandi var Jón Reykdal málari. Húsið er hluti einnar best varðveittu götumyndar frá síðasta skeiðinu í þróun íslenskra timbur- húsa. Varðveislugildi þess er því talið mjög mikið. Þær 2,5 milljónir sem Edda Arnljóts- dóttir og Ingvar E. Sigurðsson fengu í styrk verða meðal annars notaðar í viðgerðir á kjöljárni, þakskeggi og gluggum. Eigendur fimmtán húsa í miðbænum í Reykjavík fengu af- henta styrki úr nýstofn- uðum Húsverndarsjóði borgarinnar 10. júlí síð- astliðinn. Lægsti styrk- urinn var 190.000 krón- ur til viðgerða á skor- steini hússins að Mið- stræti 6, en hæstan styrk fengu eigendur húss númer 4 við sömu götu, 2,5 milljónir. Húsvemdarsjóður var upphaflega lánasjóður en núverandi meirihluti borgarstjómar ákvað að breyta honum í styrkt- arsjóð. Bryndís Krist- jánsdóttir, formaður umhverfismálaráðs Reykjavíkurborgar, segir að lánasjóðurinn hafi „lokið hlutverki sínu“. Hann hafi enda verið stofnaður „þegar erfiðara var að fá lán til viðgerða á eldri húsum. Okkur sem sitja í um- hverfismálaráði þótt ótækt að leggja sjóðinn niður og lögðum því til að honum væri breytt í styrktarsjóð.“ Bryndís segir að breytingin á starf- semi Húsvemdarsjóðs sé í anda þeirrar stefnu borgarstjómar að leggja áherslu á vemdun húsa í Reykjavík sem teljast merkileg út frá byggingar- eða menningarsögulegu sjónarmiði. „Sérstök húsverndar- nefnd var skipuð til að móta hús- verndarstefnu fyrir borgina. Starfs- hópuar á hennar vegum, sem í eiga sæti þeir embættismenn borgarinnar sem einna helst fjalla um húsbygg- ingar, gerði úttekt á húsum í mið- borginni og flokkaði eftir varðveislu- gildi.“ Hvemig er varðveislugildi hús- anna metið? „Hús og götur em sett í mismun- andi flokka eftir staðsetningu og uppmnalegri mynd húsanna. Húsin eru síðan metin út frá listrænum sér- kennum eins og byggingarstíl og út frá því hvort þau tengjast á einhvem hátt sögu borgarinnar." Hvers vegna veitir borgin einstak- lingum styrk til viðhalds húsunum í stað þess að sjá um það sjálf? „Flest þessara húsa eru í einka- eign, borgin getur því ekki skipað neinum að viðhalda þeim í uppruna- legri mynd. Okkur finnst eðlilegra að styrkja þá íbúa þessara merkilegu húsa sem hafa áhuga á að varðveita söguna. Áhuginn fyrir varðveislu gamalla húsa hefur farið vaxandi, ekki síst hjá þeim sem eiga heima í gömlum hverfum. Borgin lítur á þennan styrk sem hvatningu og vonast til að hann eigi eftir að hafa margföldunaráhrif, að áhugi fólks aukist enn frekar þegar það sér hve mörg falleg hús eru í Reykjavík." Hvernig eru styrkþegarnir valdir? „Við auglýstum eftir umsækjend- um um styrkina. Með hverri umsókn þurftu að fylgja ákveðin plögg með lýsingu á þeim viðgerðum sem um- sækjendur vildu framkvæma og um- sögn borgarminjavarðar. Borg- arminjavörður leggur mat á hvert hús og hvort fyrirhugaðar viðgerðir um- sækjendur séu samkvæmt upp- runalegri mynd hússins. Stykurinn er ekki veittur í almennt viðhald heldur viðahald og viðgerðir sem miðast að varðveislu húsanna eða endurgerð þeirra. Umhverfismálaráð fer yfir umsóknimar og metur hverjir em styrkhæfir." Ætlar ráðið að fylgja því eftir hvort styrkþegar nota styrkinn í til- teknar framkvœmdir? „Samkvæmt reglum Húsvemdar- sjóðs ber styrkþegum að undirrita yf- irlýsingu þess efnis að þeir muni nota styrkinn samkvæmt umsókninni. í reglunum er einnig gert ráð fyrir að greiða megi styrkina út í hlutum eftir því hvemig verkinu rniðar." Hvað gerist ef umsœkjandi notar styrkinn ekki íþað verkefni sem hann sótti um? „Ef það kemur í ljós að fólk hefur ekki notað styrkinn í tiltekin verkefni ber því að endurgreiða hann.“ Hversu langan tíma hefur umsœkj- andi til að Ijúka framkvœmdum? „Þar sem þetta er nýtt er það ekki alveg fastmótað ennþá, en ætli það megi ekki telja eðlilegt að fólk verði að hafa lokið fyrirhuguðum fram- kvæmdum innan eins til tveggja ára, allt eftir því hve miklar framkvæmd- imar eru.“ Hvemig eru upphœð hvers styrks ákveðin ? „Upphæðin er metin eftir umsókn- inni. Það fylgir henni kostnaðaráætl- un.“ Geta þeir sem þegar hafa fengið styrk sótt um aftur? „Fyrst um sinn teljum við eðlilegt að styrkir séu veitir fyrir nýtt hús hverju sinni. Þó getur átt eftir að koma fyrir að sama húsið fái aftur styrk.“ Ykkur bárust tuttugu og fjórar um- Kirkjutorg 6: Byggt 1860. Timbur- hús. Tilheyrði fyrst Austurvelli 3b og síðan Pósthússtræti 14a. Fyrsti eigandi hússins, Jakob Sveinsson snikkari, var virtur borgari í Reykjavík og var hús hans þriðja tvílyfta íbúðarhúsið í borginni. Húsinu hefur verið lítið breytt í gegnum tíðina og er óvenju upp- runalegt. Hólmfriður Garðarsdottir og Páll Biering fengu 700.000 krónur til endurnýjunar á austur- hlið og kjallara. sóknir en aðeins fimmtán fengu styrk. Hvers vegna fengu sumir um- sœkjendur styrk en aðrir ekki? „Sum húsin vora einfaldlega of ný eða höfðu ekkert sérstakt menningar- sögulegt gildi. Flestar umsóknimar vora til viðgerða á húsum á því svæði sem búið er að gera varð- veisluskrá yfir eða í miðbænum. Skólavörðustígur 4c: Reist 1904. Húsið er timburhús, byggt sem smíðaverkstæði, en fyrsti eigandi þess var Ólafur Magnússon smiður. Árið 1910 var húsinu breytt í íbúðarhús. í dag er það allt fremur upprunalegt. Einhverntíma var gjuggum hússins breytt, en þeir hafa nú verið færðir í upprunalegt horf. Benóný Ægisson og Ása Hauksdóttir fengu 800.000 krónur til við- haids og viðgerða á klæðningu, gluggum, hurðum og fleiru. Bergstaðastræti 9a: Timburhús byggt 1903. Fyrsti eigandi hússins var Steingrímur Guð- munsson trésmiður. Páll Baldvin Baldvinsson fær 1,7 milljóna króna styrk í viðgerðir og við- hald á tréverkl, gluggum og bárujárni.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.