Alþýðublaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 8
T
Jlooí MPYÐWBIMÐ
Fimmtudagur 24. júlí 1997
98. tölublað - 78. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Renault verksmiðjunni í Vilvorde lokað:
womjjw/ae EXPrtESs
Nýtt aðalnúmer
5351100
Það er alltaf talað um
gróða aldrei um fólk
- segir Jean Pas sem sagt var upp störfum
Hann heitir Jean Pas og er 46 ára.
Harni er einn þeirra 3100 verka-
manna sem sagt var upp störfum hjá
Renault þegar bflaframleiðandinn
ákvað fyrir fjórum mánuðum að loka
einni af verksmiðjum sínum, þeirri
sem staðsett er í smábænum Vflvorde í
Belgíu í júlíbyijun. Gífurleg reiði
braust út meðal starfsmanna þegar þeir
fengu fréttina um leið og reisupassann
enda eygja fæstir þeirra von um aðra
vinnu. Þeir reyndu að vekja athygli á
afleiðingum lokunarinnar með mót-
mælaaðgerðum heima fyrir og í
Frakklandi í vor þar sem þeir kröfðust
aðgerða frönsku ríkisstjómarinnar.
Hún gat hins vegar ekkert að gert þar
sem franska ríkið er ekki lengur meiri-
hlutaeigandi í fyrirtækinu. Belgíska
ríkisstjómin hefur reynt að fmna úr-
ræði, því aðeins 400 þeirra sem sagt
var upp hafa fundið aðra vinnu. 622
em komnir yfir fimmtugt og eiga því
rétt á að vera settir á eftirlaunum þótt
þeir séu ekki komnir á löglegan eftir-
launaaldur. 400 aðrir eiga von á að fá
vinnu hjá öðmm Renault verksmiðj-
um eða í nyrri verksmiðju á sama
svæði, ef slík verkmiðja verður þá
opnuð. Allsendis óvíst er um afdrif
1700 starfsmanna, en þeir geta átt eft-
ir að kosta fr anska bflaframleiðandann
1,2 milljarða franka (tæpar 20 millj-
arða íslenskra króna). Þar sem 1000
þeirra em á fimmtugsaldri og vonlaus-
ir um að fá aðra vinnu hefur Karel
Gacoms, talsmaður belgíska verka-
lýðsfélagassambandsins óskað eftir
því að Renault haldi þeim á launaskrá
þangað til þeir verða fimmtugir og
komast á þessi svokölluðu „fyrirtíma
eftirlaurí*.
Jean Pas er orðinn 46 ára og því
einn þeirra sem gerir sér engar grillur
um framtíðina. Hann hefur unnið nær
allan sinn starfsaldur hjá Renault eða
síðan 1973:
,JÉg bytjaði að vinna hjá Renault
þegar ég var 22ja ára. Á þeim tíma var
nóga vinnu að fá í Belgíu. í byijun
hverrar viku vom um þijátíu manns
ráðnir, en í vikulokin vom kannski
fimmtán eftir, hinir höfðu allir farið í
aðra vinnu sem þeim lflcaði betur.
Færibandavinnan var alls ekki svo illa
launuð. Þar sem ég ætlaði að gifta mig
og stofna fjölskyldu byijaði ég með
því hugarfari í Vilvorde að bráðlega
myndi ég leita að annarri vinnu sem
kannski væri ekki eins vel borguð, en
betri. Af því að færibandavinnan er
bæði erfið og forheimskandi.
Síðan skall olíukreppan á og þá var
allt í einu ekki neina vinnu að hafa
lengur. Svo ég var áiram. Og ég hef
alltaf unnið í sætadeildinni, það er að
segja við að setja áklæðið í bflana. Síð-
astliðin átta árin hef ég verið kosinn í
stjóm starfsmannafélagsins.
Níu stunda vinnudagur
Fyrir þremur eða fjómm ámm fór
stjómin að tala um sveigjanleika. Hún
Ég og konan mín vomm búin að
gera áætlun fyrir lífið: Við ætluðum að
borga upp húsið á tuttugu áram, koma
bömunum upp og þegar því væri lok-
ið ætluðum við að byija að spara til
elliáranna; samanlagt þénum við um
200.000 íslenskar krónur á mánuði. I
dag er staðan þannig að við emm
nýorðnir skuldlausir eigendur að hús-
inu okkar og ég er búinn að missa
vinnuna; ég veit að atvinnuveitendur
vilja heldur ráða menn um þrítugt. En
ég er svosem ekkert að kvarta. Margir
starfsbræður mínir skulda ennþá heil-
mikið í sínum húsum, skuldir sem á
eftir að taka tíu til fimmtán ár að
greiða niður.
Sú menntun sem ég hef hlotið síð-
ustu tuttugu árin tengist verksmiðjunni
á einn eða annan hátt. Tölvur? Þær em
ekki mín grein. Ég á tvo syni, 20 og 22
ára. Annar þeirra er að læra til íþrótta-
kennara, en ég er ekki viss um að hann
eigi eftir að finna starf við sitt hæfi.
Stærsta vandamálið núna er: Hvemig
á ég að eyða deginum, aleinn? Ég get
málað aðeins og snyrt til í garðinum,
en það endist mér ekki til eilífðar. Og
svo? Ég er fyrirffam svoh'tið uggandi,
en mér dettur ekkert í hug. Ég hef ekki
haft neinn tíma til að hugsa um það,
hvað verður svo.“
Stoliö úr L'Evenement du jeudi.
sagði: „Ef þið samþykkið að vinna níu
stunda vinnudag þá verður enginn at-
vinnulaus árið 2000.“ Þetta átti að vera
besta keríið og við ætluðum okkur að
verða besta verksmiðjan í Evrópu. Eft-
ir að hafa skrifað undir samninginn
sögðu þeir starfsmenn sem ekki áttu
eigið húsnæði: „Við ætlum að kaupa
hús, núna getum við gert áætlanir um
framtíðina."
Áður en þetta vinnufyrirkomulag
var samþykkt unnum við til klukkan
10 á kvöldin aðra hveija viku. Ég er
svo heppinn að búa ekki mjög langt í
burtu ffá verksmiðjunni og gat því
verið kominn heim klukkan hálf ell-
efu. Ljósin vom enn logandi og ég gat
spurt konuna mína og börnin hvemig
þeirra dagur hafði verið. Frá því við
breyttum yfir í níu tímana er ég kom-
inn heim fimmtán mínútur yfir mið-
nætti. Þar sem koman mín mætir í
vinnu klukkan sjö þýðir ekkert að ætla
sér tíma til að spjalla saman. Sam-
skipti flestra verkamannanna hjá
Renault við eiginkonur sínar fara fram
með hjálp pappúsmiða. Það er orðið
mjög erfitt að stunda félagslff. Ungu
mennimir sem spila blak eða fótbolta
komast ekki á æfingar nema aðra
hveija viku. Og ef þú kemur ekki á æf-
ingar færðu ekki að spila leiki. Að vísu
emm við heima næstum alla föstudaga
síðan við byijðum að vinna í m'u tím-
ana. Ég hvfli mig, tek svolítið til, en
það er enginn annar í húsinu og það er
ekkeit sérstaklega skemmtilegt að
vera einn heima.
Stoltir af gæðunum
Þetta er ekkert sérstaklega gott líf að
vinna svona, en það er ekki gott held-
ur að hafa enga vinnu. Helmingur
fólks verður að vinna eins og bijálæð-
ingar á meðan hinn helmingurinn er
atvinnulaus. Þetta er ekki eðlilegt.
Hvers vegna getum við ekki deilt með
okkur vinnunni? Það er alltaf verið að
tala um ágóða en það er aldrei talað
um fólk. Þeir sem ráða hafa aldrei ver-
ið verkamenn. Þeir vita ekki hvað það
er að hafa magaverk yfir því að þurfa
að mæta í vinnuna. Það er ekkert sér-
staklega skemmtilegt að þurfa að
vakna klukkan hálf fimm á morgnana
þær vikur sem vaktin byijar korter í
sex.
Þar til á þessu ári hafði fyrirtækið
sett sér það takmark að framleiða
margar bflategundir í hverri verk-
smiðju. Til að það væri hægt var mik-
illar vinnu krafist af okkur og við vor-
um stoltir af bflunum okkar. Ef við
keyptum okkur Renault, þá var það
Renault frá Vilvorde. Ekki af því við
væmm vemdarsinnar heldur af því við
vomm stoltir af gæðunum. Svo, einn
daginn, sagði stjómin: „Við höfðum
rangt fýrir okkur, núna verður aðeins
ein tegund ffamleidd í hverri verk-
smiðju, við lokum Vilvorde. Svo þeir
sem hafa unnið hér verður vísað á
dyr.“ En stjómin situr áfram þrátt fyrir
þessi alvarlegu mistök sín. Ég er ansi
hræddur um að ef verkamaður gerði
jafn stór mistökum yrði hann sam-
stundis rekinn.
Velkomin um borð
arferjuna Baldur
ffiinii
Frá Stykkishólmi kl. 10.00 &16.30
Frá Brjánslæk kl. 13.00 & 19.30
Símar: 438-1120 Stykkishóimi
456-2020 Brjánslæk
Fax: 438-1093 Stykkishólmi