Alþýðublaðið - 01.08.1997, Síða 5

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Síða 5
FÖSTUDAGUR 1.ÁGÚST1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Okkar bíður spennamCi verkefhi - segir Sigfivatur Björvinsson, og fiveðst hiafika tií sarnstaifs um að bygejja npp nýjan og ferskan jjöimiðií nteð fvjarta sem siœr vinstra tnegin Sighvatur Björgvinsson: Þakklátur öllum þeim, sem hafa lagt vinnu og aluð í að vinna Alþýðublaðið nú og áður. En nú bíða okkar allra ný verk- efni. „Þetta er erfið ákvörðun að taka. Alþýðublaðið hefur verið nátengt störfum mínum frá því ég kom í Al- þýðuflokkinn. Eg var komungur þegar ég lagði til verulegt fjármagn til að blaðið næði fótfestu. Þetta voru peningar sem skiptu ungan mann miklu, ég held ég hafi verið fimm eða sex ár að borga þetta upp. Síðar var ég ritstjóri blaðsins í nokkur ár og kynntist þá erfiðleikum blaðsins og þeirri miklu vinnu sem starfsfólk þess lagði á sig til að koma því út. Ég hef tvisvar þurft að taka við rekstri blaðsins, þegar hann var kominn í al- gjört óefni og tókst að tryggja því áframhaldandi útkomu. Þannig að Alþýðublaðið er mjög nátengt starfi mínu í flokknum og ég hef sterkar tilfinningar til þessa blaðs. Það er ljóst að mikil eftirsjá er að Alþýðu- blaðinu, en við emm ekki hætt að gefa það út. Það mun koma út nokkrum sinnum á ári. Hitt er óneit- anlega spennandi verkefni að eiga aðild að því að búa til sterkt og stórt dagblað, vinstra megin við miðju. Það höfum við gert ítrekaðar tilraun- ir til að gera það af eigin rammleik, en það hefur ekki tekist. Nú eigum við í samstarfi við Alþýðubandalag- ið, Þjóðvaka og Dagsprent um að búa til slíkt blað. Það er spennandi verk- efni sem ég vona að takist,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, um þau tímamót sem Alþýðuflokkurinn er á, þegar blað flokksins hættir að koma út sem dagblað eftir tæplega áttatíu ára sam- fellda sögu. Að vera með hjartað vinstra megin - Nú hlýtur að vera spurt, hvernig blað sérð þú fyrir og hver verður að- koma Alþýðuflokksins að því blaði? „Ég sé fyrir mér blað sem verður að þjóna þeim lesendahópi sem það er skrifað fyrir. Blaðið verður að vera ineð hjartað vinstra megin í brjóst- inu. Það hefur sýnt sig að það er ekki til heilla að stjómmálaflokkar hafi bein afskipti af blaðaútgáfu og segi ritstjóm og blaðamönnum fyrir hvemig þeir eiga að skrifa. Það hef ég ekki gert meðan ég hef verið for- maður Alþýðuflokksins og ekki skipt mér af skrifum blaðsins eins og þú getur borið vitni um. Ég hef haft skoðanir á því sem hefur verið í blað- inu, en ekki látið þær í ljós, hvorki við ritstjómina né aðra. Það er ekki til heilla, að mínu viti, að flokkar hafi bein áhrif á ritstjóm, eða reyni það, og að blöð séu gefin út á flokkspóli- tískum gmndvelli. Ég sé fyrir mér sjálfstætt blað, en um leið málsvara jafnaðarmanna og samvinnumanna, félagshyggjublað í eðli sínu, en að sjálfsögðu sjálfstætt og laust frá klafa flokkaveldisins." - Stangast þetta ekki aðeins á, blaðið á að vera félagshyggjublað. Er þá ekki um leið búið að gefa rit- stjórn þess óbeint til kynna hvemig hún á að staifa? „Auðvitað er það þannig að öll blöð hafa skoðanir. Það er ekki þar með sagt að þær skoðanir séu í öllum atriðum í samræmi við þær skoðanir sem stjómmálaflokkar hafa. Við trú- um því hins vegar að það sé pláss á íslenskum blaðamarkaði fyrir öflugt blað sem aðhyllist þau sjónarmið sem jafnaðarstefnan stendur fyrir. Ég tel að það samstarf sem við emm nú að leggja í þjóni því, og óttast ekki, að það verði ekki með hjartað á rétt- um stað. Við höfum gert ítrekaðar til- raunir til að gera slíkt blað af eigin rammleik, en það hefur ekki tekist. Svona blað vantar. Alþýðublaðið hefur verið ágætt blað, stundum frá- bært, en það sem hefur háð því er að það hafa alltof fáir lesið það. Blaðið hefur ekki haft eðlileg áhrif miðað við þann boðskap sem það hefur ver- ið með. Við teljum að það sé full- reynt að gefa út blað á vegum stjóm- málaflokka, enda hafa allir stjóm- málaflokkar gefist upp á því. Það sem blað sem kemur út, í endanlegri mynd á að höfða til þessa fólks. Mál- flutningur blaðsins verður að taka mið af skoðunum og lífsviðhorfum þeirra einstaklinga sem ætlunin er að kaupi blaðið.“ Fullviss að þetta tekst - Nú er Ijóst að þeir hópar sem standa að blaðinu eru ólíkir. Hvað sérð þúfyrir þér að geti orðið stœrsti tálminn í samstarfinu að hinu nýja blaði? „Það hættulegasta í þessum ferli er auðvitða ef þessi tilraun tekst ekki. Þá sé ég ekki fram á að annað tæki- færi bjóðist. En ég er þess hinsvegar fullviss að þetta tekst. Ég segi það fullum fetum, og vísa til vinar míns Össurar Skarphéðinssonar, núver- andi ritstjóra, að samstarfið við Svein R. Eyjólfsson og síðar son hans Eyjólf, hefur verið mjög gott. Ég þekki Svein frá því við Gylfi Þ. Gíslason vorum að gefa út Alþýðu- blaðið með honum skömmu eftir 1972, og á betri samstarfsmann verð- ur ekki kosið. Orð hans em gull, og hann er maður sem ég treysti. Það getur vel verið að hann hafi áðrar stjómmálaskoðanir en ég, eða aðrir í kringum mig, en hann kann að gefa út blað, og um þessa sameinuðu út- gáfu fara hagsmunir okkar jafnaðar- manna saman við þeirra. Þeir telja einfaldlega að það sé markaður fyrir blað af þessu tagi, og ég er þeim sammála. Einsog menn segja stund- um á bryggjunum fyrir vestan. Það er best að vinna með vönum mönnum. I þessu tilfelli er verkáætlunin skýr. Við ætlum að búa til blað sem er með hjartað á sama stað og það slær í okkur sem viljum sem breiðast sam- starf á grundvelli jafnaðarstefnu og félagshyggju.” Sighvatur kvað það skoðun sína, að nú væri að hefjast áhugaverðasta tilraunin sem hefur verið gerð um fjölmiðil af þessu tagi. „Ég er sam- starfsmönnum mínurn í þessu verki einfaldlega sammála um að það hefði verið hættulegt ef tök flokkanna á slíku blaði væru of sterk. Ef ritstjórn blaðs, sem á að ráða ferðinni, væri eilíflega undir flokksaga, það væri ekki gott. Þess vegna tel ég ekki til skaða, heldur ánægjuefni, að flokk- amir hafi ekki í þessu samstarfi rétt til þess að skipa flokkspólitískt í störf eða stöður. Ég tel það af hinu góða, en ekki hinu illa. Ritstjóm sem væri samsett af hópum, þar sem einn kæmi frá Alþýðuflokki, einn frá Al- þýðubandalagi og einn frá Fram- sóknarflokki og þeim væri ætlað að gæta hagsmuna flokkanna. Slíkt samstarf gæti ekki gengið. Nú treyst- um við því fólki, sem mun starfa á ritstjóm þessa blaðs, til að starfa sjálfstætt en auðvitað á grundvelli þeirrar lífsýnar sem þetta blað á að standa fyrir.“ Ekki ein einasta andmælarödd - Efþú bjartsýnn að í kjölfar þess- arar ákvörðuna verði innan skamms hœgt að kaupa nýtt, gott og sterkt blað? „Tvímælalaust. Ef ég tryði því ekki í hjarta mínu, hefði ég ekki beitt mér fyrir þessu máli af þeim krafti sem ég hef gert innan flokksins. Og ég fullyrði það eftir fundinn í flokks- stjóm Alþýðuflokksins, að í þessu máli er hreyfingin öll samstiga. Það kom ekki ein einasta andmælarödd á fundi flokkstjómarinnar, sem þó var óvanalega fjölmennur. Ég er því afar bjartsýnn í dag. Þetta er áhugaverð- asta tilraun sem gerð hefur verið lengi. Það er ekki lítið mál að leggja blað með áttatíu ára sögu inn í það samstarfsverkefni. Það er okkar framlag. Ég tek það auðvitað fram að þetta hefur engin áhrif á önnur út- gáfumál Alþýðuflokksins. Við mun- um áfram gefa út okkar flokksblöð £ öllum kjördæmum landsins. Ég mun halda áfram að gefa út minn gamla góða Skutul með mínum góða félaga Gísla Hjartarsyni á Isafirði, og öðr- um samverkamönnum okkar þar. Það er líka ánægjuefni að allt starfsfólk Alþýðublaðsins fær atvinnu á vegum útgáfunnar. Mér er annt um það fólk, ekki aðeins af því ég hef vissar skyldur gagnvart því sem formaður flokksins, heldur af því mér þykir vænt um það, og lít á það sem vini mína.“ Sighvatur sagðist ekki vera í nokkrum vafa um að starfsfólk Al- þýðublaðsins héldi áfram að skrifa í hinn nýja miðil í þeim anda sem það hefur gert á Alþýðublaðinu. „Ég hef heldur enga trú að þetta fólk láti segja sér fyrir um önnur lífsviðhorf en það hefur haft. Haldi áfram að starfa sem sjálfstæðir blaðamenn eins og það hefur gert á Alþýðublað- inu. Þetta fólk hefur aldrei fengið fyrirskipanir frá mér. Nú eigum við einfaldlega að fylkja okkur um hið nýja verkefni þessa samstarfs og búa til verulega góðan og öflugan miðil. Þessvegna eru það hvatningarorð mín til allra lesenda blaðsins um að taka rösklega á með okkur, kaupa ekki aðeins blaðið sem að lokum verður til úr þessu spennandi sant- starfi. heldur líka hafa áhrif á það með því að skrifa í það og aðstoða það á annan hátt. Dagblað þjónar alltaf þeim sem lesa það, og það verður aldrei betra en fólkið sem læt- ur sér annt um það.“ ffACpýðuBCaðið íiefur verið ágcett bCaðj stundumfrábcertj en það sem fiefur háð þvi er að það fiafa atttoffáir Cesið það. MáCfCutnirujur nýs miðiCs verður að taka mið af skoðunum og Cífsviðhorfum þeirra einstak- Cinqa sem cetíunin er að kaupi bCaðið."

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.