Alþýðublaðið - 01.08.1997, Síða 10
10
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
Jón Batdvin Hannibaísson skrifar um kraftaverkamanninn
Finnboga RútVaídimarsson - manninn sem ájjórða áratugnum
tjerði Aífýðubíaðið að fieimsöíaði og má með samti kaíCast
faðir nútíma jjöímiðíunar á ísCandi
Vestfirski
fieims borg arinn og
Aíþýðubíaðið
„Hindenburg verður kosinn - en
Hitler hefur sigrað". Þetta er fyrir-
sögn á grein sem birtist í Alþýðu-
blaðinu 9. apnl 1932. Tilefnið var
forsetakosningar í Þýskalandi, sem
reyndar fóru fram daginn eftir. Höf-
undur skrifar frá Berlín og kallar sig
sósíalista.
I greininni eru færð að því rök, að
þrátt fyrir sýndarósigur hafi nasism-
inn sigrað í Þýskalandi; ný heims-
styrjöld sé þvf óumflýjanleg - innan
sjö ára.
Það kvað við allt annan tón í um-
fjöllun vestrænna stórblaða um þess-
ar sömu sögulegu kosningar í Þýska-
landi. í leiðara New York Times er
lýst yfir ósigri Hitlers og framtíð lýð-
ræðis í Þýskalandi talin tryggð. Sama
glámskyggnin blasti við á forsíðum
The Times í London og reyndar
flestra annarra stórblaða álfunnar.
Óskhyggjan hefur reyndar leitt með-
almennskuna á asnaeyrunum.
Hver var hann, þessi skarpskyggni
fréttaskýrandi Alþýðublaðsins í
Berli'n? Hann hét Finnbogi Rútur
Valdimarsson.
Um það bil ári eftir að Finnbogi
Rútur skrifaði þessa frægu grein tók
hann við ritstjóm Alþýðublaðsins.
Þar hélt nútíminn innreið sína í ís-
lenska blaðamennsku.
Maður andstæðna
Finnboga Rút var einatt lýst sem
hinum dularfulla huldumanni ís-
lenskra stjómmála. Og það var hann.
Persónuleikinn var margslunginn og
torráðinn og lífshlaup hans fullt af
andstæðum. Hann var annálaður
námsgarpur í skóla; samt vildu
fræðaþulir hins lærða skóla í Reykja-
vík tregðast við að brautskrá hann
með láði. Hann var í ættir fram kom-
inn af vestfirskum sjósóknumm og
útkjálkamönnum; samt hafði hann á
sér snið heimsborgara svosem hann
hefði verið handgenginn hámenn-
ingu frá blautu bamsbeini. Hann var
náms síns vegna sérfróður um al-
þjóðarétt og alþjóðasamskipti; samt
varð það kórónan á sköpunarstarfi
hans að gerast brautryðjandi tómt-
húsmanna sem með bemm höndum
byggðu næststærstu borg íslands á
klöppum og hrjóstugu berangri
Kópavogs.
Þessi hámenntaði vestfirski bóhem
og lífsnautnamaður sýndist mörgum
innhverfur og einrænn; samt hlotnað-
ist honum meiri lýðhylli fátæks fólks
en flestum þeim stjómmálamönnum
sem alþýðlegri þóttu í fasi. Reyndar
Á ótrúlega skömmum tíma gerfli Finnbogi Rútur þetta litla útkjálkablað að stórveldi í fslenskum stjórnmálum,
sem ógnafli útbreiðslu Morgunblaðsins og tók því langt fram að efni og áhrifum.
var Finnbogi Rútur trúlega mesti
kosningasigurvegari í stjómmála-
sögu 20. aldar - jafnvel að Hannibal
bróður hans ekki undanskildum.
Fullmótaður jafnaðar-
maður
Finnbogi Rútur nam þjóðarrétt og
alþjóðastjómmál í París, Genf og
Berlín á ámnum kringum 1930; ein-
hverju mesta umbrotaskeiði aldar-
innar. Á þessum ámm sökkti hann
sér niður í stúdíu á stjómmálakenn-
ingum samtímans. Öfugt við marga
samlanda hans frá þessum tímum
hafði hann aldrei minnstu tilhneig-
ingu til að slást í hópinn með Sovét-
trúboði Weimarróttæklinga. Greining
hans á eðli þýska nasismans, sem
birtist með skýmm hætti í blaða-
greininni sem vitnað var til í upphafi,
sýnir berlega að hann hafði ekki
meiri skömm á öðmm mönnum en
agentum Komintem, jafnt í þýskum
stjómmálum sem íslenskum. Hann
vissi alltof mikið um vemleika evr-
ópskra stjómmála og sögu tii þess að
vera ginnkeyptur fyrir draumóramgli
hinna fáfróðu forsöngvara Stalínstrú-
boðsins meðal evrópskra mennta-
manna.
Vissulega var hann gagnrýninn á
blauða og deiga forystu þýska sósí-
aldemókratísins. En honum var full-
ljóst að útsendar Stalíns vom
óvinafagnaður innan verkalýðshreyf-
ingarinnar. Með blindum hatursá-
róðri sínum gegn sósíaldemókrötum
lömuðu þeir baráttuþrek verkalýðs-
hreyfingarinnar gegn svartstökkum
Hitlers og raddu glæpahyski nasism-
ans þannig leiðina til valda. Greinar
Finnboga Rúts í Alþýðublaðinu, sem
hann sendi heim á seinni hluta náms-
áranna, staðfesta að þar heldur á
penna maður, sem er orðinn fullmót-
aður jafnaðarmaður af klassískum
skóla.
Innreið nútímans
Það var Jón Baldvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins og Alþýðusam-
bandsins, sem veitti athygli pólitísku
raunsæi þessa unga frænda síns, sem
birtist í greinum hans frá Berlín. Þeir
Héðinn Valdimarsson beittu sér fyrir
því að Finnbogi Rútur yrði ráðinn rit-
stjóri Alþýðublaðsins árið 1933. Þótt
Finnboga Rúti stæði til boða að
ganga í þjónustu Þjóðabandalagsins
sem alþjóðlegur diplómat, afréð
hann að taka þessu bpði og snúa
heim. Og þar með hélt nútíminn inn-