Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 20

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 20
 20 ALÞYÐUBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. AGUST 1997 Ásta B. Þorsteinsdóttir varaformaður Alþýðuflokksins Tregablandnar tilfinningar Áttatíu ára gamalt blað er að ljúka göngu sinni, að minnsta kosti um sinn. Slík tímamót kalla fram í hugann sterkar og tregablandnar tilfinningar hjá alþýðu- flokksfólki, í huga okkar takast á söknuður vegna þess, sem við erum að missa, og skynsemi og eftirvænting vegna þess, sem koma skal. Við stöndum frammi fyrir því, að breytingar í fjölmiðlum krefjast þess, að við endurskoðum og endurskipuleggjum útgáfumál flokksins eins og aðrir stjóm- málaflokkar hafa þurft að gera á undan okkur. Alþýðublaðið hefur ekki verið stórt blað, ef miðað er við blaðsíðufjölda, en rödd þess og áhrif hafa náð langt út fyrir raðir áskrifenda, enda róttækt, framsækið, stefnu- og skoðanamyndandi blað. Flokk- stjóm Alþýðuflokkus hefur tekið um það ákvörðun, að ganga til víðtæks samstarfs um útgáfu nýs blaðs, undir nýju nafni, sem er ætlað að verða öflugur málssvari jafnað- ar- og samvinnumanna. Með þessari ákvörðun sýna alþýðuflokksmenn, að þeir hafa þor og að þeir em reiðubúnir til að fara nýjar slóðir til þess að efla samstarf og sameiningu jafnaðarmanna. Þrátt fyrir þær blendnu tilfmningar, sem em tengdar þessum tímamótum, skulum við hafa það hugfast, að dagblað er það sem við lesendur og starfsmenn þess vilj- um gera það að. Því höfum við alla mögu- leika til þess að gera hið nýja dagblað að okkar. Hinu frábæra starfsfólki, sem nú mun færa sig um set yfir á nýtt félagshyggju- blað, treysti ég fullkomnlega til þess að færa fjöregg okkar, jafnaðarstefnuna, inn í hið nýja dagblað og að móta það í okkar anda. Þeim fylgja þangað góðar óskir og þakklæti fyrir ómetanleg störf í þágu Al- þýðublaðsins. r Jafnaðarmenn Síðsumarferð/Fjölskylduferð Laugardaginn 23. ágúst 1997 Ferðinni er heitið í fyrsta áfanga til Þorlákshafnar, Eyrarbakka, Stokkeyrar og Selfoss. Leiðsögumaður er Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Síðan verður ekið til Þingvalla þar sem Össur Skarphéðinsson alþingismaður og rit- stjóri mun fræða okkur um urriðann í Þingvallavatni. Þá er ferðinni haldið að Nesjavöllum þar sem Pétur Jónsson borgarfulltrúi fræðir okkur um starfsemina. Ferðinni lýkur í ráðsstefnusal Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar að Úlfljótsvatui við grill, söng og samveru. Alþýðufokksfélag Reykjavíkur. Alþýðufokkurinn- Jafnaðarmannaflokkur íslands. L J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.