Alþýðublaðið - 31.10.1997, Blaðsíða 1
Föstudagur 31. október 1997 Stofnað 1919
Sameiningarmál í
ReykjanesKjördæmi
Á laugardaginn 25.október var haldin
ráðstefna í Hafnarfirði sem stofnað var
til af fulltrúum Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags þar sem sameiningar-
málin voru rædd.' Farið var yfir stöðu
rnála fyrir komandi Sveitastjómar-
kosningar en allt virðist benda til að
sameiginlega verði boðið fram í flestum
sveitarfélögum kjördæmisins.
Tímamót
Eyjólfur Sæmundsson, formaður kjör-
dæmaráðs Alþýðuflokksins, var einn af
skipuleggjendum ráðstefnunnar og var
hann mjög ánægður með ráðstefnuna.
„Hún tókst nijög vel og markaði
tímamót í samstarfi jafnaðarmanna hér
á Reykjanesi því aldrei fyrr hafa
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag í
Reykjanesi haldið sameiginlega
ráðstefnu." Eyjólfur taldi að um 80-100
manns hefðu mætt á fundinn. „Það var
mikill og góður andi í fundarmönnum
og menn unnu af heilindum í málefna-
starfmu og það var samþykkt á fund-
inum að haldin yrði önnur ráðstefna í
janúar þar sem við höldum þeirri vinnu
áfram og hefjum af krafti undirbúning
fyrir sveitastjómarkosningar."
Sameiginleg framboð í
stærstu sveitrarfélögunum.
Þess má geta að Sameiginlegir fram-
boðslistar milli Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags og annara í Reykja-
nesi verða í næstu kosningum í
Kópavogi, Reykjanesbæ og líklega
Seltjamamesi en einnig er reynsla fyrir
því í Sandgerði og í Vogum. Einnig er
verið að vinna að sameiginlegum fram-
boðum á Akureyri, ísafirði, Borgamesi
og á Akranesi. Þetta gefur vísbendingu
um að jafnaðarmenn allra flokka em að
ná saman að minnsta kosti í nokkmm af
stærstu sveitarfélögum landsins.
Málefnastarf
Eyjólfur sagði að gott starf hefði verið
unnið í málefnahópunr. „Við unnum í
málefnahópum sem fjölluðu um þrjú
málefnasvið, fjármál sveitarfélaga,
umhverfismál og sá síðasti fjallaði um
það hvemig jafnaðarmenn sjá fyrir sér
félagslega þjónustu í framtíðinni í þeim
sveitarfélögum þar sem þeir fara með
stjóm mála. Málefnastarfið mun halda
áfram á næstu ráðstefnu sem ráðgerð er
í janúar" sagði Eyjólfur að lokum.
Ályktun
Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi
ályktun: Kjördæmisráðstefna Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags er sammála
um að sveitarfélag jafnaðar- og félags-
hyggjufólks byggir á frelsi og félags-
legu- og efnahagslegu jafnrétti.
Ráðstefnan vill að samfélag sem tryggir
að allir eigi kost á að njóta þeirra tæk-
ifæra sem að samfélagið hefur að bjóða
og þar sem markvisst er unnið gegn
hvers konar mismunun.
Samfélag þar sem raunverulegt jafn-
rétti kynjanna er til staðar, þar sem
bamauppeldi er viðurkennt sem mikil-
vægt samfélagslegt verkefni og uppeld-
is- og umönnunarstörf metin sem mikil-
vægar undirstöðugreinar. Samfélag þar
sem framlag aldraðra er virt í verki,
öryggi þeirra tryggt sérstaklega hvað
búsetu og þjónustu snertir. Þar sem
fötluðu fólki standa opnar leiðir til þros-
ka og mannsæmandi lífs. 1 samfélagi
jafnaðar- og félagshyggjufólks er það
viðurkennt að uppeldi og menntun
stuðli að því að gera fbúana hæfari til að
móta eigið líf og umhverfi.
Ráðstefnan telur nauðsynlegt að
samþætta allt uppeldis- og skólastarf í
hverju sveitarfélagi og tryggja að öll
böm sitji við sama borð, einnig hvað
varðar félagslega þátttöku.
Kjördæmisráðstefnan er sammála um
að þegar sameiginleg framboð birta
áherslur sínar verði jafnframt gerð skýr
grein fyrir því hvemig þau hyggist ná
markmiðum sínum með breyttri og rétt-
látari skattheimtu, tilfærslum og
útfærslu á því hvaða verkefni verði á
hendi hins opinbera og hvað sé skyn-
samlegra að fela öðmm aðilum í sam-
félaginu. Við undirbúning sameiginle-
gra framboða verði lögð áhersla á
útfærslu skattheimtunnar og með hvaða
hætti sveitarfélögin ætla að setja sér
fjöl- skyldustefnu og útfæra samræmda
fjölskylduþjónustu.
Ahugasamir jafnaðarmenn á ráðstefnunni í Hafnafirði.
L
Landsbanki
íslands
/ forystu til framtíðar
104.Tölublað - 78. Argangur
Össur
ritstjóri DV
Össur Skarphéðinsson alþingismaður
hefur verið ráðinn ritstjóri DV á móti
Jónasi Kristjánssyni og hefur hann
störf urn áramótin. Össur er þing-
maður og hefur hann verið þingmaður
fyrir Alþýðuflokl inn í sex ár.
Össur er hvorki ókunnur blaða-
mennsku né hlutverki ritstjórans því
hann hefur áður starfað sem ritstjóri
Þjóðviljans og Alþýðublaðsins. Þar að
auki hefur hann skrifað eina bók um
áhugamál sitt. urriðann í
Þingvallavatni, sem mæltist vel fyrir.
Það má því segja að það sé hagur fyrir
þá DV menn að fá mann með slíka
reynslu til starfa.
Miðað við þennan gang mega þeir
Styrmir og Matthías fara að vara sig.
KVOLDSTUND MEÐ
TÓNI BALDVINI 0G BRYNDÍSI
Stjórn Alþýðuflokksins og aðrir vinir og félagar Jóns Baldvins og
Bryndísar efna til kvöldfagnaðar til heiðurs þeim hjónum laugardaginn
8. nóvember n.k. í tilefni þess að þau hverfa nú senn til annara starfa.
Kvöldfagnaðurinn verður í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni) og hefst
kl. 19:30 með fordrykk. Klukkan 20:30 verður gengið til borðs og
snæddur veislukvöldverður.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði í umsjá listamanna úr hópi vina þeirra
hjóna. Tónskáldin Atli Heimir Sveinsson og Hjálmar H. Ragnarsson
hafa veg og vanda af flutningi hljómlistar og rithöfundarnir Guðmundur
Andri Thorsson og Hallgrímur Helgason sjá um texta og talað mál.
Töframaðurinn Pétur Pókus fremur galdra og gjörninga.
Veislustjóri verður Jakob Frímann Magnússon, fjöllistamaður.
Hljómsveit Andra Bachman leikur fyrir dansi.
Verð miða er 2.500 kr.
Pantanir óskast gerðar á skrifstofu Alþýðuflokksins, Jafnaðarmannaflokks íslands, Alþýðuhúsinu í Reykjavík, sími 532-9244,
og þar verða miðar afgreiddir. Einnig má kaupa miða við innganginn.
Allir vinir Jóns Baldvins og Bryndísar innan og utan Alþýðuflokksins eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Eigum góða og skemmtilega kvöldstund með Jóni Baldvini og Bryndísi!
Vinir og félagar jóns Baldvins og Bryndísar.