Vísir - 02.03.1976, Síða 1

Vísir - 02.03.1976, Síða 1
Þriðjudagur 2. mars 1976™ 4I'- tbl- 66- ár8 Stór dagur í „ríkinu" — Þetta var stór mánudagur, en miðað við ýmsa aðra daga var salan ekki óeðlilega mikil, sagði Ragnar Jónsson, skrifstofustjóri hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Salan þennan fyrsta dag eftir lokunina var tæpar 14 milljónir króna. Sjá nánar á bls. 3. —VS TOPUÐU 10 MILUONUM Á NORGLOPAL í VÍRKFALUNU Hefðu getað tekið ó móti 10 þúsund tonnum i verkfallinu Beint tap sem leigj- endur Norglobal urðu fyrir vegna stöðvunar á bræðslu meðan á verk- fallinu stóð er um 10 milljónir króna. Þetta kom fram i samtali við Jón Ingvars- son framkvæmdastjóra ísbjarnarins i morgun. Jón sagði að auk þessa beina taps kæmi oliukostnaður vegna siglinga og véla sem hefðu þurft að vera i gangi þó ekki væri verið að bræða. Þá má benda á óbeint tap sem hlaust af þvi að hafa misst úr hluta loðnuvertiðar, en Norglobal hefði getað tekið við um tiu þús- und tonnum af loðnu á meðan á verkfallinu stóð. Jón sagði að ekki væri enn full ráðið hve lengi skipið yrði haft á leigu, það réðist af gangi loðnu- vertiðarinnar. Norglobal er núna út af Stapa og tekur á móti loðnu. Frá upphafi er skipið búið að taka á móti 26-27 þúsund tonnum af loðnu. — EKG SKOÐUN LURIES Skoðun Lurie ó þorskastríðinu Hinn heimsfrægi bandariski teiknari Lurie sem lesendur Visis þekkja af erlendum frétta- siðum blaðsins, gerir þorska- striöið að umfjöllunarefni á einni teikninga sinna. Teikningar Luries birtast i dagblöðum og timaritum um allan heim. Hann teiknar þvi nær eingöngu skopmyndir af at- burðum sem eru mjög framar- lega i sviðsljósi á alþjóðavett- vangi. Þorskastriðið milli breta og fslendinga hefur þvi vakið mikla athygli. A teikningunni er islenski þorskurinn að gleypa kafbát Nato, en breski fiskurinn, sem táknar breska fiskveiðiflotann, er að gleypa islenska þorskinn. Lurie bendir þarna á ofveiöi breta á þorski á tslandsmiðum, en bendir um leið á þann þrýst- ing sem Nato verður fyrir af völdum stiðsins. — ÓH. „Þar sem ekki er sameiginleg atkvæðagreiðsla í öllum sjómannafélögunum heldur í hverju félagi fyrir sig, get- ur það breytt eitthvað hljcðinu í mönnum. Menn sjá ýmsa báta sigla út en verða að vera sjálfir i landi", sagði Guðmundur Hallvarðsson sem sæti á í stjórn Sjómanna- félags Reykjavíkur í samtali við Visi í morgun. Það virðast ekki allir sammála um að vera áfram i verkfalli. Þrátt fyrir að samþykkt hafi ver- ið i Sjómannafélagi Reykjavikur að halda áfram verkfalli — sigldi Guðmundur RE úr höfn í gær- kvöldi og mun hafa ætlað á loðnu- miðin. Visir hafði samband við Pál Guðmundsson einn eiganda Guð- mundar i morgun, og kvaðst hann ekkert geta um málið sagt, hér væri um að ræða ákvörðun skip- stjórans. Guðmundur Hallvarðsson sagði að ekki væri nema að leita til dómstóla að gera afla Guðmund- ar RE upptækan i verkfallssjóð. ..Þetta virðist ætla að verða kaos", sagði Guðmundur. ,,ef að minnsta kosti eitt loðnuskip heldur á miðin' — þó að verkfall riki þar sem það er gert út." Hilrnar Jónsson formaður Sjó- mannafélags Revkjavikur. sagði i morgun að ekki væri fullljóst hver næstu skref Sjómanna- félagsins yrðu. enda væru atburð- ir sem þessir fáheyrðir og hefðu ekki gerst i áraraðir. Fundur i stjórn og trúnaðar- mannaráði Sjómannafélags Reykjavikur verður i kvöld og má þá vænta ákvörðunar i málinu. — EKG/Ljósm.: BG. Vísismenn stefna Ólafi Jóhannessyni Ritstjóri Vísis og þrir af stjórnarmönnum Reykjaprents hf. hafa stefnt ólafi Jóhannessyni dómsmálaráöherra vegna ummæla hans í útvarps- þættinum bein lina 1. febrúar sl. Stefnendur krefj- ast ómerkingar á ummælum ráöherrans. Málið verður þingfest n.k. fimmtudag. Sjá frásögn á bls. 3.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.