Vísir - 02.03.1976, Blaðsíða 13
Sannur stuöningsmafiur
Til aö gera Birdie, miklum stuliningS'
manni Milford tU hsfis hefur Alli
lofali aft prófa ungan frænda hans.
Alli þarf aft fara I burtu þegar æfingaleik
urinn hefst og aftstoftar maftur hans Bob
Driscoll hrifst ekkí af piltinum —
jafnvel þó hann skori mark....
Hcppni Bob^.strákurinn var bara á
réttum staft á réttum tima, þegar rétti
. boltínn kom — hvafta klaufi sem er y
^^-^_heffti getaft skoraft. .
Sportvöruverzlun Ingolfs Óskarssonar
[Holagorði í Breiðholti • Sími 7-50-20
m
Þriðjudagur 2. mars 1976. vism
vism Þriöjudag
ur 2. mars 1976.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal
Sólgleraugu jafn nauð-
synleg og tennisspaði!
Sólin óvinur númer eitt í skemmtilegu unglingamóti í badminton í
íþróttahúsinu í Njarðvík, þar sem keppt var í fimm flokkum pilta og stúlkna
Mjög góö þátttaka og
skemmtileg keppni var I opna
unglingamótinu i badminton,
sem háö var i iþróttahúsinu i
Njarövik á sunnudaginn. Var
þar mikið siegiö og hart barist i
þeim fimm aldursflokkum sem
keppt var i.
Aö sjálfsögðu var badminton-
spaðinn og fjaðrarboltinn aöal-
vopn keppenda á mótinu, en
einnig voru sólgleraugu mjög
mikilvægur hlutur i sumum
leikjunum. Angraði hún marga
keppendur þar sem hún skein
inn um gluggana á annarri hlið
hússins, og urðu hinir ungu
keppendur að nota sólgleraugu
til aö sjá boltann þegar þeir léku
á móti sól.
Er það að verða mjög algengt
i badmintonmótum að keppend-
ur noti sólgleraugu, og þá sér-
staklega i hinum nýju Iþrótta-
húsum viða um land — og er aö
sjálfsögðu litil ánægja með það
meðal badmintonfólks.
Eins og fyrr segir var keppt i
fimm flokkum á þessu opna
unglingamóti, og urðu úrslit þar
sem hér segir:
1 flokki pilta sigraði Friðrik
Arngrimsson KR Sigurö Kol-
beinsson TBR eftir oddaleik —
10:15, 15:12 og 18:13. Friðrik
varð einnig sigurvegari I tvi-
liðaleik, þar sem hann lék til úr-
slita ásamf Jóhanni G. Möller
TBR. Sigruðu þeir þá Sigurö
Kolbeinsson TBR og Emil Jón
Ragnarsson Val 15:10 og 15:9.
t stúlknaflokki sigraði Kristln
Kristjánsdóttir TBR i einliða-
leik. Lék hún til úrslita við
Bjarnheiði tvarsdóttur, Val —
11:2 og 11:6. Kristín sigraði
einnig i tviliðaleik — ásamt
nöfnu sinni Magnúsdóttur — en
þær nöfnurnar sigruðu Asu
Gunnarsdóttur og Bjarnheiði
tvarsdóttur i úrslitaleiknum
15:4 og 15:7.
Kristinn Helgason KR varð
sigurvegari ieinliðaleik drengja
— sigraöi Reyni Guðmundsson
KR i úrslitaleiknum 11:4 og
11:4. Þeir léku siðan saman i úr-
slitum i tviliðaleik, þar sem þeir
sigruðu Brodda Kristjánsson og
Guðmund Adolfsson TBR — eft-
iroddaleik —6:15, 15:11 og 15:1.
1 sveinaflokki varð Gunnar
Jónatansson Val sigurvegari i’
einliðaleik — sigraði Þorstein
Hængsson TBR i úrslitaleiknum
11:4 og 11:1. Hann varð einnig
sigurvegari I tviliðaleik, þar
sem hann lék með Þorsteini
Jónssyni, Val. Sigruðu þeir þá
Skarphéðin Garðarsson og
Gunnar Tómasson TBR 15:8 og
15:10.
1 meyjaflokki — yngsta flokki
stúlkna — sigraði Kristin
Magnúsdóttir, TBR. Lék hún til
úrslita við Björgu S. Friöleifs-
dóttur KR i einliðaleik — og
sigraði 11:0 og 11:2.
Björg bætti þetta upp i úr-
slitaleiknum I tviliðaleik, þar
sem hún lék til úrslita með Þór-
unni óskarsdóttur KR, en þess-
ar stúlkur eru dætur hinna
kunnu badmintonmanna úr KR
Friðleifs Stefánssonar og
Óskars Guðmundssonar. Þær
sigruðu Bryndisi Hilmarsdóttur
og Dröfn Rafnsdóttur i úrslita-
leiknum 15:4, 6:15 og 15:7.
SáJ/—klp —
Fimm nýir
í landsliðið
Landsliösnefnd Körfuknatt-
leikssambands isiands hefur
valiö landsliöshópinn sem á aö
æfa fyrir landsleikina viö Portú-
gal, sem verða hér I næsta
mánuöi, svo og Polar Cup-
keppnina sem veröur i Kaup-
mannahöfn i sama mánuði.
t hópnum eru 17 menn, þar af
eru fimm, sem ekki voru i
landsliðinu, s'em lék við Bret-
land her i Laugardalshöllinni i
siðasta mánuði. Þeir eru: Þórir
Magnússon Val, Agnar Frið-
riksson 1R, Birgir Jakobsson
IR, Simon Ólafsson, Armanni,
Bjarni Gunnar Sveinsson IS og
Jón Héðinsson ÍS.
Þrir menn sem voru með i
leikjunum við Bretland voru nú
ekki valdir, en það eru þeir
Stefán Bjarkason UMFN, Björn
Magnússon, Armanni og Birgir
Orn Birgis, Ármanni.
Landsliðshópurinn er annars
skipaður þessum mönnum:
Jón Sigurðsson, Armanni,
Kristinn Jörundsson, 1R,
Kolbeinn Kristinsson, 1R,
Kolbeinn Pálsson, KR,
Kári Marisson, UMFN,
Guðsteinn Ingimarss, Arm.
Gunnar Þorvarðarss. UMFN,
Agnar Friðriksson, ÍR,
Simon Ólafsson, Armanni,
Torfi Magnússon, Val,
Bjarni Jóhannesson, KR,
Þórir Magnússon, Val,
Birgir Jakobsson, 1R,
Jón Jörundsson, 1R,
Jón Héðinsson, IS,
Jónas Jóhannesson UMFN,
Bjarni Gunnar Sveinss. ÍS.
— klp —
Eitt besta sundmót
sem af er vetrinum!
Éins og við sögöum frá í blað-
inu i gær voru sett tvö ný is-
landsmet og fjögur drengjamet
á sundmóti Ægis sem háö var i
Sundhöllinni á sunnudaginn.
Þórunn Alfreðsdóttir setti met i
400 metra fjórsundi kvenna,
sveit Ægis i 4x200 metra skriö-
sundi karla og Brynjólfur
Björnsson, Ármanni, setti fjög-
ur drengjamet, þar af þrjú i
skriðsundi.
Þetta mót var eitt af betri
sundmótum vetrarins hvað
árangur snertir og sannaði það
að sundfólk okkar er á mikilli
uppleið, þótt enn sé nokkuð i
land hvað varðar breidd og
árangur i einstökum sundgrein-
um — miðað við þegar best gekk
hér fyrir nokkrum árum.
Fyrir utan metin náðist mjög
góður árangur i öðrum grein-
um. Má þar t.d. nefna 400 metra
fjórsund karlá, þar sem Axel
Alfreðsson Ægi sigraði á 5:05,6
min. — og Árni Eyþórsson, Ár-
manni, synti á 5:06,3 min. Er
þetta annar og þriðji besti timi
hjá tslendingum i þessu sundi —
þann besta á Guðmundur Gisla-
son 4:59,7 min.
I 100 metra skriðsundi karla
náði Sigurður Ólafsson, Ægi,
sinum besta tima til þessa —
55,7 sek. — og sigraði. Axel Al-
freðsson, Ægi, varð annar á 58,1
sek. Þarna fór Bjarni Björns-
son, Ægi, i fyrsta sinn undir
minútu á þessari vegalengd.
Bjarni hjó nálægt meti Guð-
mundar Gislasonar i 200 metra
baksundi — synti á 2:24,1 min,
en met Guðmundar er 2:23,4
min. Axel Alfreðsson varð ann-
ar á 2:28,9 min sem er besti tim-
inn sem hann hefur náð á þess-
ari vegalengd.
I 1500 metra skriðsundi karla
náðist mjög góður árangur —
Sigurður Ólafsson, Ægi 17:40,4
min, Bjarni Björnsson, Ægi
17:44,9 min og Brynjólfur
Björnsson, Armanni 17:57,9
min. Er þetta annar, þriðji og
fjórði besti timi sem okkar
sundmenn hafa náð á þessari
vegalengd.
Eins og áður bar mest á Þór-
unni Alfreðsdóttur i keppni
kvenfólksins. Hún setti met i 400
metra fjórsundi og sigraði i 100
metra skriðsundi, þar sem búist
var við hörku-keppni á milli
hennar og Vilborgar Sverris-
dóttur SH. En það varð ekki —
Þórunn synti á 1:04,8 min. en
Vilborg á 1:07,1 min. Þá sigraði
hún i 1500 metra skriðsnndi, en
tapaði i 200 metra bringusundi
fyrir Elinborgu Gunnarsdóttur,
HSK.
Keppni unglinganna var oft
mjög skemmtileg og eru þar
mörg efpi á ferðinni. I 50 metra
bringusundi telpna sigraði einn
yngsti keppandinn, Unnur
Brown, Ægi, sem er aðeins 10
ára gömul — synti á 46,5 sek. Þá
sigraði Ingibjörg Jensdóttir,
Ægi i 100 metra skriðsundi
telpna, en hún gæti náð langt ef
hún legði meiri rækt við æfingar
en hingað til.
Þá var keppnin i 50 metra
bringusundi sveina skemmtileg,
en þar sigraði ungur piltur úr
Viking!! — sundfélagi banda-
riskra unglinga á Keflavikur-
flugvelli — og var hann þó nokk-
uð á undan islensku strákunum i
mark.
— klp —
SKÁRU iYRAÐ AF
DÓMARANUM!
Griskur dómari, Stepros
Kamos, varö fyrir órás áhang-
enda I. deildarliðsins Kastoria
uin helgina, sem gerðu sér litið
fyrir og skáru annaö eyrað af
vesalings dómaranum — og er
hann nú á sjúkrahúsi eftir
tilræöið.
Árásin átti sér stað eftir leik
Kastoria gegn PAOK seni var á
heimavelli Kastoria og lauk
með sigri PAOK 2:0. Heima-
menn voru ekki allskostar
ánægöir með störf dómarans og
ákváðu þvi að veita honum
ráðningu sem hann ekki
gleymdi.
— BB.
Axel Alfreösson Ægi á fullri ferö I 400 metra fjórsundi á sundmóti Ægis i Sundhöllinni á sunnudaginn. Hann varö þar fyrstur i mark á
öðrum besta tima, sem Islendingur hefur náö á þessari vegalengd. Ljósmynd Einar.
Ettlr leUúnn...
Jæja hr. Driscoll,
þér um strákinn, er hann
.. ........
íþróttamenn
Kyrrsetumenn
Trimmbandið hjálpar þér við æf ingarnar
— hvort sem þú ert í góðri æfingu eða
vilt byrja að æfa upp þróttlitinn líkama.
TíaDdÖÍSAííílS) ^ .
Qz> rt
©nti^(p®ípfe A *
Myndskreyttur æfingabæklingur fylgir
hverju bandi.
; Pat Jennings, markvörður Tottenham og Noröur-írlands sem i gær var kjör-
inn knattspyrnumaöur ársins I Englandi af iþróttafréttariturum.
Jennings kosinn
nattspyrnumaður
órsins í Englandi!
Norður-Irski. landsliðsmaöurinn
Pat Jennings sem leikur i markinu
hjá Tottenham Hotspur var i gær
kosinn knattspyrnumaður ársins í
Englandi af þarlendum iþrótta-
fréttariturum: Einnig var útnefnd-
ur efnilegasti leikmaöur ársins —
og þann titil hlaut Pete Barnes,
Manchester City.
Jennings hefur um árabil verið
einn litrikasti leikmaöurinn i ensku
knattspyrnunni og hann var m.a. I
liöi Tottenham sem sigraöi i ensku
bikarkeppninni 1967 og í UEFA
keppninni 1972. Auk þess aö hafa
leikiö yfir 500 deildarleiki meö
Tottenham hefur Jennings ieikiö 54
landsleiki fyrir N-trland, og mun
aö öllum likindum slá met fram-
kvæmdastjóra sins Terry Neil, sem
hefur 59 sinnum klæöst irsku lands-
liöspeysunni.
Þetta er i annað skipti sem Jenn-
ings er kosinn knattspyrnumaöur
ársins i Englandi. Hann hlaut þessa.
útnefningu lika 1973. Aðeins þrir
aðrir knattspyrnumenn hafa hlotið
þennan titil tvisvar: Stanley
Mathews 1948 og 1963, Tom Finney
1955 og 1958ogDanny Blanchflower
1959 og 1962.
Alan Mullery var kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins i fyrra og árið
þar áður var það Ian Callaghan.
Peter Barnes sem var kosinn
efnilegasti knattspyrnumaöurinn
er 19 ára — og það var hann sent
skoraði fyrra mark Manchester
City gegn Newcastle i úrslitaleik
enska dcildarbikarsins á Wembley
á laugardaginn. Pabbi Peter
Barnes, Ken stjornar öllu ung-
lingastarfi hjá City og var áður
kunnur leikmaður meö liöinu.
— BB.
„Cull-björninn"
kominn af stað!
„Gullbjörninn” Jack Nicklaus og
J.C. Snead hafa forystuna i
„Tournament Players Champhi
ons” sem fram fer I Florida I
Bandarikjunum þessa dagana.
Þetta er ný keppni sem mætti kalla
á Islensku „Keppni meistara úr
ýmsum stórmótum”. Verölaunin
eru hvorki meira né rninna en 300
þúsund daiir sem skiptast á milli
sigurvegaranna — og hefur svo há
upphæö aldrei verið I boöi fyrr.
t dag er siöasti keppnisdagurinn
og hafa þeir Nickiaus og Snead eins
högga forystu. Þeir léku báðir á 68
liöggum I gær eöa 4 undir pari og
eru á samtais 204 höggum. Fast á
eftir koma þeir Mark Hays og Rog-
er Maltbie á 205 höggunt og lék
Maltbie best I gær — hann var á 65
höggum eöa 7 undir pari.
Af erlendu golfleikurunum eru
ástrallumennirnir Bruce Crampton
og David Graham bestir. Þeir eru
bóöir á 212 höggunt — og á eftir
þeim kemur englendingurinn
Garry Player sem er á 214 höggunt.
Heldur hefur veriö hljótt um
„gull-björninn" i vetur, hann hefur
eins og fleiri frægir golfleikarar
haft hægt um sig og ekki keppt á
mörguin mótum. Stafar þaö af þvi
aö verölaunin eru ekki há og þeir
hafa meira upp með auglýsinga-
starfsemi. En nú er Nicklaus sem
sagt kominn af staö, enda há
peningafúlga i boöi og veröur ekki
annað sagt en aö hann standi fyili-
lega undir viðurnefni sinu — „gull-
björn”.
— BB.
Jón Héöinsson, ÍS, er aftur kominn i landsliöshópinn I körfuknatt-
leik eins og félagi hans, Bjarni Gunnar, sem er lengst til hægri á
þessari mynd. Ljósmynd Einar.
Elías byrjaður að
keppa fyrir KR!
Hinn kunni frjálsiþróttamaö-
ur Elias Sveinsson, keppti I gær-
kvöldi f fyrsta skipti fyrir sitt
nýja félag KR, en Elias hefur i
nokkur árkeppt undir merki tR.
Elias keppti þá i 50 m hlaupi á
innanfélagsmóti hjá KR og varö
annar, hljóp á 6.0 sekdndum.
líjarni Stefánsson sigraði i
hlaupinu, hann hljóp á 5.8
sekúndum sem er jafnt islands-
metinu — og hefur nú fjóru
sinnum jafnað inetiö á skömi
um tima. Það viröist þvi aöei
vera spurning livenær Bjari
tekst aö bæta þetta met.
Þá gengust KR-ingar fyi
stangarstökkskeppni á lauga
daginn og þar sigraði gam
kempan Valbjörn Þorláksson
stökk 4.25 metra.
— B