Vísir - 13.03.1976, Side 1

Vísir - 13.03.1976, Side 1
ALÞYÐUBANKAMALIÐ TIL SAKSÓKNARA — Hannsókn er lokið og verið er að ganga frá málinu til saksóknara, sagði Sverrir Einarsson, sakadómari þegar Vis- ir innti hann eftir gangi rannsóknar i Alþýðubankamálinu. Rikissaksóknari fær nú málið til umsagnar og tekur ákvörðun um hvort ákært verður. Telji hann ástæðu tii þess gefur hann út formlega ákæru og sendir málið aftur til saka- dóms til dómsmeðferðar. — VS. HEIFTARLEG A- SIGLING Á TÝ — harðasti órekstur sem varðskipið hefur lent í — Týr lék á Júnó, og freigátu- skipstjórinn varð óður af brœði Frá óla Tynes um borð í Tý: Mikil spenna rikir nú á mið- unum eftir að breskar freigátur sigldu fimm sinnum á islensk varðskip á miðunum i gær, þrisvar á Þór og tvisvar á Tý. Fyrri aðförinni á Tý er lýst á bls. 3, en hún varð um hádegið i gær. Siðari árásin var að þvi er virtist alveg að tilhæfulausu. Ilelst tel ég að sjónvarpsmenn sem voru um borð i Juno hafi ekki náð nógu góðum myndum við fyrri áreksturinn og þvi endurtekið leikinn. Togararnir voru i töluveðri fjarlægð og Týr var ekki i sóknarstefnu þegar freigátan renndi sér upp að. Guðmundur Kjærnested hringi út áhöfnina og voru menn við öllu búnir eftir fyrri árásina. Um skeið sigldu skipin samsiða á hægri ferð og freigátan nálgaðist nokkuð. Guðmundur jók þá ferðina til að losna frá henni og stefndi að togurunum. Freigát- an jók þá ferðina og renndi sér upp að og beygði svo skyndilega á bakborða. Hún skall harka- lega inn i stjórnborðshlið Týs og þar sem hún var á öldutoppi lagði hún inn skorsteininn ofar- lega. Ekki voru sjáanlegar skemmdir á freigátunni. Týr er aftur á móti þrátt fyrir ásiglingarnar i ágætlega sjófæru ástandi og eftirlitsstörf- um á miðunum er haldið áfram. ÓT/VS Sjá frásögn blaðamanns Visis um borð i Tý af ásiglingunum á bls. 3. ***... Jónatan Livingstone máfur? Ekki er þaö nú vfst, en að minnsta kosti er þetta frændi hans. Ljósm. Guðmundur Sigfússon Vestmannaeyjum. STÆRRI MÖSKVA — segir Ólafur K. Pálsson, sem telur smáfiskadráp of mikið ,,Það má segja að við höfum gert ráð fyrir meiri smáfiski,” segir Ólafur K. Pálsson sem er nýkominn úr rannsóknarieiðangri á llafþóri fyrir norður-, norð-austur og austurlandi. Hann segir þó smáfiskadrápið of mikið og viö þurfum að auka möskvastærðina og hafa virkara eftirlit með þvi að ekki sé veiddur smáfiskur. Sjá bls. 3. Nýtt hlutafélag um Air Viking Þrjátiu einstaklingar, flestir úr Keykjavik, gangast nú fyrir stofnun hlutafélags til að endur- reisa starfsemi Air Viking og slá skjaldborg um frjálsa samkeppni i islensku millilandaflugi. Meðal ástæöna sem tilgreinar eru fyrir þessu framtaki segir, að flugfélagið Air Viking hafi á undanförnum árum flutt um það bil helming þeirra islendinga sem notið hafa orlofsdvalar erlendis. Telja þessir aðilar aö stór hlúti þessa fólks hafi ekki átt þess nokkurii kost að njóta utanlands- ferðar, ef flugfélagið hefði ekki verið til sem samkeppnisaðili i utanlandsflugi. Þá segja þeir einnig að það sé brýnt hagsmunamál almennings að koma i veg fyrir einokun á þessu sviði og þvi gangist þeir fyrir stofnun hlutafélagsins. Þeirsem hafa áhuga á þátttöku geta snúið sér til Ragnars Ingólfssonar, i sima 18499 milli kl. 5 og 7 s.d. en næstu daga verður opnuð skrifstofa til undirbúnihgs félagsstofnuninni. SKULD RIKISSJOÐS VIÐ SEÐLABANKANN 10.000 MILLJÓNIR Skuld rikissjóðs við Seðlabank- ann umfram inneign nam um áramótin 9,9 milljöröum króna. i janúar lækkaö skuldin um 58 milljónir og er það mun betri út- koma en var á sama tima i fvrra. þvi i janúarmánuöi 1975 hækkaði skuld ríkissjóös við bankann um 382 milljónir. Ekki lágu fvrir i Seðlabankanum upplýsingar unt breytingu á stöðunni i febrúar- mánuði. — SJ.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.