Vísir - 13.03.1976, Side 7

Vísir - 13.03.1976, Side 7
7 Við morgunverðarborðið „Nei, reyndu sko ekki að koma nærri fyrr en ég er búin að fá nóg”. Þessi skeleggi kvenkyns máfur sem ljósmyndari kom auga á við kvistglugga i ósló, varðist öllum tilraunum hins máifsins til að fá að snerta á morgunverðinum sem lá úti fyrir glugganum. Hún nartaði i matinn á milli þess sem hún goggaði I hinn máfinn, þegar hann reyndi að setjast. En hún torgaði ekki öllu, og vinurinn fékk afganginn. Skólastjóri froskaskóla Bili Steed er skólastjóri hjá heldur ó'venjulegum skóla. Skólinn heitir „Croaker College”, eða kvakskóiinn, og er rekinn til að gera froska útiærða i ýmsum listum'. Skóiinn er til húsa i Sacra- mento í Kaliforniu. Bill dáleiðir hér einn nemenda sinna meö þvi að strjúka á honum kviðinn. Tilgangurinn er að finna út hvort sólhitari sem Bill setti I laug froskanna sé heilsusamleg fyrir þá. á Spáni óeirðir hafa verið i baska- héruðum Spánar undanfarna daga og vikur. Nokkrir menn hafa verið drepnir þegar iög- reglu og verkfallsmönnum hefur lostið saman. i mót- mælaskyni við drápin hafa verkamenn efnt til fleiri verk- falla og mótmæla, sem fyrir bragðið skapa af sér meiri óeirðir og fieiri manndráp. Myndin er af stúdentum i Madrid, sem fóru i mótmæla- göngu til menntamálaráðu- neytisins, en lögregla dreifði hópnum. Heróín fyrir 4,8 milljarða Sænsk yfirvöld komust I feita sendingu af heróini á flugveliinum i Nörköping i vikunni. Hér skoðar yfirmaður tolllögreglunnar i Stokkhólmi fenginn, sem voru 13,5 kg af hreinu heróini. Sending- in er metin á 120 milljónir sænskra króna, eða 4,8 milljaröa Is- lenskra króna. Eigendur fikniefnanna hafa ekki fundist. Landamœra gœtt Ródesiskir hermenn gæta landamæranna við Mózambique, eftir að forseti siðarnefnda landsins lokaði öllum samgangi á milli rikjanna tveggja. Spennan eykst dag hvern við iandamærin, og grunur leikur á að rússar og kúbumenn muni styrkja Mózam- bique, ef til styrjaldar milli landanna kemur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.