Vísir - 13.03.1976, Síða 8

Vísir - 13.03.1976, Síða 8
8 Laugardagur 13. mars 1976 VÍSIR Útgefandi: Iteykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: DaviO Guðmundsson Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Ifverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Síðumúla 14. simi 86611. 7 linur •x Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. t lausasögu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Við dæmum engan úr leik Hjálparstofnun kirkjunnar og æskulýðssamtök hennar hafa undanfarna daga kynnt málefni og að- stöðu þroskaheftra barna i þjóðfélaginu. Tilgangur árlegrar fórnarviku þessara aðila er að þessu sinni sá að efla stuðning við málefni þessara barna, sem i svo rikum mæli verða að treysta á hjálp samfélags- ins. Hér er unnið að merkilegu málefni og forvigis- menn þess eiga miklar þakkir skildar. Að baki þessu starfi stendur sú grundvallarhugmynd, að engan þjóðfélagsþegn má dæma úr leik. Heilbrigðir geta ekki krafist aukinnar velferðar sér einum til handa. Hagsældina verðum við að nota til þess að koma þeim tii aðstoðar, sem við erfiðieika eiga að etja. Skipulegt starf á þessu sviði er i deiglunni. Ýmis- legt hefur verið gert til þess að bæta aðstöðu þeirra barna, sem hér eiga i hlut, en þau verkefni eru mikiu stærri og viðameiri, er enn biða óleyst. í þessum efnum sem ýmsum öðrum hefur meira ver- ið unnið á þéttbýlissvæðinu en i hinum dreifðu byggðum landsins. Utan Reykjavikursvæðisins eru aðeins tvær stofnanir til aðstoðar þroskaheftum börnum. Það eru þvi æði mörg þroskaheft börn á íslandi sem fá enga eða mjög takmarkaða aðstoð aðra en þá, sem foreldrar og aðrir aðstandendur geta upp á eigin spýtur látið i té. Við slikar aðstæður næst ekki viðunandi árangur. Foreldrar eiga eðlilega i miklum erfiðleikum með að glöggva sig á þeim vandamálum, sem við er að glima og þeim möguleikum, sem þrátt fyrir allt eru fyrir hendi. Einmitt fyrir þær sakir telja sérfræð- ingar brýnt að koma upp sérstakri greiningar- og ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra þroskaheftra barna. Margrét Margeirsdóttir, félagsráðgjafi, segir i viðtali við Visi i gær, að slikar stöðvar kanni i hverju fötlun er fólgin og hvernig megi veita börn- um þjálfun fram að skólaaldri. Foreldrum eru einn- ig veittar ráðleggingar um það, hvernig best og skynsamlegast sé að standa að uppeldi barns. Við höfum nú þegar fengið visi að slikri grein- ingarstöð. Sú starfsemi er rekin i svonefndu Kjar- valshúsi á Seltjarnarnesi. Engum vafa er þó undir- orpið, að einmitt á þessu sviði þarf að koma upp miklu mun betri aðstöðu og starfsemin þarf að vera viðtækari. Enginn þarf að fara i grafgötur um, að aðstoð við þroskaheft börn er þeim og fjölskyldum þeirra afar þýðingarmikil. Sú aðstoð, sem veitt er i þessum efn- um sýnir að ná má miklum árangri. Mestu máli skiptir að aðstaða sé fyrir hendi til þess að beita réttum aðferðum i eðliiegu umhverfi. í seinni tið hefur það færst i vöxt, að aðstoð við þroskaheft börn hefur m.a. farið fram með þeim, sem ekki eiga við vanheilsu að búa. Þetta á bæði við um vangefin og fötluð börn. Hér hefur þessari að- ferð verið beitt a.m.k. á tveimur heimilum. Slíkt er ekki aðeins uppörvun fyrir þá sem vanheilir eru, heldur horfir það einnig til aukins þroska fyrir þá heilbrigðu. Þroskaheftir þurfa að búa við sem líkust skilyrði i þjóðfélaginu og aðrir þegnar þess. Að þessu marki þarf að vinna. Fjölmargir aðilar hafa lagt þessu málefni gott lið. En til þess að gera verulegt átak þarf samstöðu og vilja alls almennings. Fórnarvika kirkjunnar á að verða hvatning til nýrra átaka i þessum efnum. V. vísm Hafréttarráðstefna Samein- uðu þjóðanna hefst á nýjan leik i New York á mánudaginn. Þorskastriðið á tslandsmiðum mun brýna ráöstefnufulltrúana til að láta það helst ekki bregðast að komast að lokaniðurstöðu um það, hvernig riki veraldar skipti með sér gæðum hafsins. Þeir ganga þess ekki lengur gruflandi, að náistekki alþjóðlegt samkomulag, sem marka muni heildarstefnu um hversu stóra auðlindalögsögu þau lönd, sem liggja að höfunum, eigi að taka sér, muni hvert rikið á eftir öðru fylgja fordæmi islendinga um aö lýsa einhliða yfir útvikkun land- helginnar eða tilkomu auðlinda- lögsögu. — Sennilegast yrði það þó 200 milna lögsaga, eins og ts- land tók sér, þvi 200 milurnar njóta vaxandi fylgis meðal þjóða heims. — Hætt þykir þá við þvi að fleiri þorskastrið brjótist út i kjöl- far slikra aðgeröa. Þetta verður þriðji áfangi haf- réttarráöstefnunnar, sem hófst sumarið 1974 i Caracas, eins og menn minnast. I upphafi var ætlunin, að henni lyki i einum áfanga, en þegar til kom reyndust sjónarmiðin svo mörg og ólik, og sérhver fulltrúi þeirra 150 þjóöa sem aðild eiga að ráðstefnunni, varð að létta af hjarta sinu, svo að umræðurnar hafa að vonum dregistá langinn. Voru þó gerðar ráðstafanir til þess að koma i veg fyrir, að ráðstefnufulltrúar drekktu hverjum öðrum i málæði. En þeir hagsmunir, sem i húfi eru, skipta svo miklu fyrir milljónir jarðarbúa, að það er vonlegt, að menn vilji ekki flana að neinu. Gifurlegar auðlindir oliu, kóbalts, kopars, gulls, nikkels, svo að ekki sé nefndur fiskur og ýmis saltefnasambönd, eða fæðumöguleika, sem finna má i sjónum,þurfa aö deilast sem sanngjarnast niður. Það reyndist of mikil bjartsýni að búast við þvi, að menn mundu strax á eitt sáttir um, hverjir sæktu sér gull i þessa fjárhirslu. Þegar svo inn i þetta blönduðust áhyggjur manna af þvi, að frjáls- ar siglingar skipa um sund og aðrar sjóleiðir kunni að veröa hindraðar, með þvi aö einstök riki helgi sér stór hafsvæði, þá rann það fljótt upp fyrir mönnum, að það þurfti að mörgu aö huga, áður en eining fengist. Það sem heföi sýnst aukaatriði, áöur en sest var á rökstólana, hefur orðið mjög ofarlega i hugum áhrifamestu rikja á alþjóðavettvangi. Þannig hafa flotaveldin svonefndu, eins og Sovétrikin og Bandarikin, haft beyg af þvi', að manndrápsdoriur þeirra, herskipin, fengju ekki að sigla að vild um lögsögur smærri rikja.- Engu að siður hefur þó tekist að áorka miklu þennan tima, siöan hafréttarráðstefnan hófst i Cara- cas. Fyrir ráðstefnunni á mánu- daginn liggja fyrir álit þriggja aðalnefnda ráöstefnunnar, en þeim hefur tekist að steypa sam- an i áþreifanlegar tillögur það, sem borið hefur á góma á hinum tveim áföngum ráðstefnunnar. Þessi tillögudrög, sem liggja nú fyrir til lokaumræðu, eru sam- sett úr 300 greinum og rúmlega það. Þær eru afrakstur annars áfanga ráðstefnunnar, sem var i Genf frá mars fram i maimánuö 1975. (Raunar var þriðji áfangi hafréttarráðstefnunnar, tveggja vikna fundur i desember i New York, en hann var i reyodinni haldinn til að skipuleggja fundar- og ræðutimann á ráðstefnunni, sem hefst á mánudaginn.) Á meðal nýmælanna, sem til- lögudrögin fela f sér, er 200 milna auðlindalögsaga strandrikja. Það er nefnilega fyrir löngu orðið ljóst, að meirihluti ráðstefnurikj- anna er henni meðmæltur. Annaö lýtur að þvi, að landhelgi strandrikja verði tólf sjómilur. Þriðja gerir ráð fyrir, að sett veröi á laggirnar alþjóðlegt ráö, sem bera muni ábyrgð á sjávar- grunni þvi, sem lendir utan við auðlindalögsögur einstakra rikja. Það er nefiiilega ætlast til þess, að þessi hluti sjávar verði nýttur öllu mannkyni til góða (en þó sérilagi tekið mið af þörfum þróun a rrikj ann a). Lesendum mundi ekki endast helgin til þess að renna augum yf- ir allar tillögurnar, og verður þvi að stikla á þvi helsta. 1 þeim er aö finna greinar, sem fjalla um það, að skipum frið- samlegra erinda verði tryggðar frjálsar siglingar um sund og siglingaleiðir, sem lenda inni i landhelgi rikja. í öðrum greinum eru ákvæði um mengunarvarnir. Það er flestra fróðra manna álit, að þessar. tillögur nái fram að ganga og veröi samþykktar að þessu sinni. Hafa rikisstjórnir ýmissa rikja þegar tjáð sig þar um, og ekki annað að heyra, að meirihluti fylgi tillögum ráð- stefnunefndanna. Viö islendingar höfum þegar lýstyfir þvi, að við teljum þessar tillögur nægan grundvöll til þess að halda ráðstefnunni áfram. Hans G. Andersen, sem hefur verið formaður islensku nefndar- innar á hafréttarráðstefiiunni, hefur látiö hafa eftir sér, að til- lögurnar gangi til sömu áttar og stefna islendinga um 200 milna efnahagslögsögu. Moskvustjórnin hefur gert sina afstöðu kunna I grein, sem Pravda, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, birti i sið- asta mánuði. Þar var ráðist harkalega að Kina fyrir að fylgja 200 mflna lögsögu, en sovétmenn hafa áhyggjur af þvi að herskip þeirra fái ekki athafnað sig, eins og áður ef 200 milna lögsagan nær fram aðganga. Um leið er auðvit- að ljóst, að hinum stóra fiski- skipaflota þeirra, sem hefur verið mjög aðgangsharður á djúpmið- um viða á heimshöfunum, verða settar takmarkanir. Moskvustjórnin setur land- helgismörkin við tólf milur, og finnst þá ærið nóg að gert. Hún hefur þó látið á sér skilja, að hún gæti hugsað sér 200 milna efnahagslögsögu, þar sem gert yrði fyrir að viðkomandi strand- riki heföi forgangsrétt á nýtingu fiskistofna og annarra auðlinda, en hagsmunir annarra fiskveiði- þjóða hafðir um leið i huga. Enn fremur vill hún, að tekið verði til- lit til rikja, sem ekki liggja að sjó. Stjórnin i Washington hefur eins og moskvustjórnin mestan hug á þvi, að herskip þeirra fái óhindrað að athafna sig á höfun- um. Annars er þaö álit banda- rikjamanna, að aðalþröskuldur- inn á þriðja áfanga hafréttarráð- stefnunnar verði ráðstöfun á nýt- ingu auðlinda á sjávargrunni ut- an við lögsögur einstakra rikja. Menn kviöa þvi, að stangast muni á viðhorf þróaðri landa, sem hafa tækni til að nýta auðlindir á þess- um hafsvæðum, og svo viðhorf þróunarlandanna. Þetta vanda- mál er þegar orðið nokkuð aðkall- andi, þvi að ýmis bandarisk stór- fyrirtæki hafa jafnvel lokið undir- búningsrannsóknum á vinnslu ýmissa efna úr sjó. Bandarikjaþing var komið á fremsta hlunn að samþykkja, að einhliða yrði lýst yfir 200 milna efnahagslögsögu, þegar Ford for- seti fékk talið þingmenn á að draga það fram yfir hafréttarráð- stefnuna.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.