Vísir - 13.03.1976, Blaðsíða 10
Móðirin
geymdi þáu hjá sér
og ómettað barnið
saug orðin og mjólkina
úr brjóstunum.
Vitringarnir riða enn
um ritvöllinn tútna út af orðum
og springa
(eins og bréfpokar á þrjúbió)
og slangur af spakmælum
festist i orðum
sem tapa
oröbragöinu
eins óg vatnið
i Timanum og vatninu.
Orðum sem eru margorðuð
orðanna vegna.
Vitorð
Orð, orð, orð
sagði leikskáldið
...í fáum orðum sagt:
fæst orð
hafa minnsta ábyrgð
þvi orðin
eru til alls fyrst
og siðust.
Að lokum
aðeins eitt orð:
Orð.
*
Orð, orð, orð,.... sagði leikskáldið.
Þar er allt
á simu orðabókina lært.
Oröhákum
verður aldrei oröfall
þrátt fyrir gengisfall
hversu stór orð
sem þeir taka upp i sig.
Eins og forðum daga
þvo þeir hendur sinar með orð-
um i augsýn mannfjöldans.
í orðheimi
1 upphafi var oröið
segir i orðlagðri bók.
Orð vitringanna.
Orð fyrir
Ástororð
Eg hlusta ekki á orð þin
(siöur en svo)
heldur hvemig þú segir þau.
Horfi á þig brýna raustina
gefa orðum þinum
aukinn þunga.
Þegar þú talar
byltast litir og tónar
i brjósti minu.
Þú talar um fall englanna
flýgur út um gluggann
eins og engill.
Ég segi einhver orð
(dálitið utan við mig)
sem þú hefur sagt við mig
geri þin orð að minum.
Vil eignast þau og allt
sem þú átt.
Ef þú hlærð
ræni ég hlátri þi'num
og hlæ lika.
Eftir orðunum
Ég sel þessi orð
ekki dýrari en ég keypti þau
(þrátt fyrir verðbólguna).
orð
Orðlaus yfir orðinu
(eftir þessum orðum aö dæma)
mynda ég ný orð
(get ekki hugsað fyrir orðum)
reyni að raða þeim saman
i setningar
segi einhverja dellu
... og ef ég hugsa
veit ég ekki hvernig
á að koma orðum
að hugsuninni.
A ekki eitt einasta orð.
Orðatiltæki
Orðalag tónskáldsins
er ekki
orðaglamur
heldur hið fegursta
orðaspil, sagði orðuritari
og oröaði verðlaunahafann.
Eftir djúpa umhugsun
bætti hann við:
Sama má segja
um orðaleik
leikarans.
Orðlengja
E n g i n n
Enginn fitnar
á fögrum orðum
(segir orðtakið)
samt leggjum við orð i belg og
orðdigrir orðhákar
strjúka þrútinn orðskviðinn
orðvisir, orðvarir, orðsælir.
Orðaforðann þrýtur aldrei
(alla vega ekki á Alþingi)
þótt gangi á
gjaldeyrisforðann
sem er ekki eyðandi
orðum á.
Umsjón:
Hrafn Gunnlaugsson.
Atvinnuhorfur skóla-
fólks eru ekki góðar
Ráðningarstofa Reykjavikur-
borgar hefur sent ályktun til
borgarráðs þar sem fjallað er
um atvinnuhorfur skóiafólks á
komandi sumri.
Segir þar að miðað við
reynslu undanfarinna ára,
ástand í atvinnumálum i dag og
horfur í þeim, megi búast við að
mjög erfitt verði með vinnu fyr-
ir hluta þess fólks er kemur af
skólabekkjum f vor.
Bendir ráðningarstofan á að
með sameiginlegu átaki borgar-
yfirvalda og rikis hafi i fyrra
tekist að mestu aö leysa þennan
vanda.
Að sögn Gunnars Helgasonar,
framkvæmdastjóra ráöningar-
stofunnar, er þessi ályktun fyrst
og fremst send til að vekja at-
hygli á málinu þannig að timi
gefist til ráðstafana áöur en
skólum lýkur i vor.
Borgarráð visaði málinu til
atvinnumálanefndar og óskaði
eftir tillögum hennar. —EB
Ekknasjóður safnar á
Þjóðlaga-
hátíð í dag
Til styrktar þroska-
heftum börnum
Þjóðlagahátið ’76 verður
haldin i dag klukkan tvö i
Austurbæjarbiói.
Þar kemur fram margt
hljómlistarmanna með nær
eingöngu órafmagnaða tón-
list. Má þar nefna hljómsveit-
ina Þokkabót, þjóðlagatríóiö
Þremil, sextett frá M.T. Arna
Johnsen og söngtrióið Við
þrjú, auk ýmissa annarra.
Kynnir veröur Jón Múli
Arnason. Allt þetta fólk gefur
vinnu sina og framlag til
styrktar þroskaheftum börn-
um, í tengslum við söfnun
Hjálparstofnunar Kirkjunnar.
Miöaverð er þrjú hundruð
krónur.
Rangt föðurnafn
Föðurnafn Hallvarös Ein-
varðssonar, vararikissak-
sóknara, misritaðist i frétta
á forsfðu i blaðinu i fyrradag.
Þar var hann skrifaður
Einarsson. Þetta leiðréttist
hér með.
Ófundinn
Leitin að Arna Jóni Arnasyni
hafði engan árangur borið, er
Visir hafði samband við rann-
sóknarlögregluna i Kópavogi i
gærkvöldi.
I gær var gengiö meö f jörum og
leitað á bátum og verður viötæk-
ari leit haldiö áfram i dag.
Siðast er vitað um Arna i
strætisvagni við Hlemmtorg á
miðvikudagskvöldið. Arni er 175
sm á hæð, brúnhærður, með sitt
hár og rauöbirkiö hökuskegg.
Hann var klæddur grænni kulda-
úlpu, brúnteinóttum jakkafötum
og i uppreimuðum gúmmistigvél-
um, svörtum að lit.
Arlegur söfnunardagur fyrir
Ekknasjóð islands er annar
sunnudagur I mars, þ.e. á morg-
un. Það eru vinsamleg tilmæli að
menn muni sjóð þennan og hlut-
verk hans.
Ráðstöfunartekjur sjóösins eru
nær eingöngu ágóöi af merkjasölu
i Reykjavik og svo söfnunarfé i
kirkjum.
Hlutverk sjóðsins er að hlaupa
undirbagga með ekkjum sem eru
i nauðum staddar fjárhagslega,
og slikar ekkjur eru vissulega til,
þrátt fyrir tryggingar.
Sá háttur er hafður á um um
veitingar úr sjóðnum að sóknar-
morgun
prestar koma beiðnum á fram-
færi, sem sjóðstjórn metur hverju
sinni.
UNDIR STJÓRN SAKSÓKNARA
1 frétt Visis i gær rannsóknarlögreglu- reglustjóri heyrði
um álit hóps niu lög- stjóra misritaðist að undir sakadómara
fræðinga á frum- þeir teldu þann val- rikisins. Hér átti
varpi dómsmálaráð- kost koma til greina vitaskuld að standa
herra um skipan að rannsóknarlög- saksdknara rfkisins.