Vísir - 13.03.1976, Page 19
Sjónvarp í kvöld:
Útvarp, sunnudag, kl. 20:30:
Myndin er frá leik Manchester City og Newcastle i úrslitaleiknum i dcildarbikarkeppninni á
Wembley fyrir hálfum mánuði. Myndin sýnir Peter Barnes skora fyrsta mark leiksins en markvörður
Newcastle, Mike Mahoney, kemur engum vörnum við.
Nú mó enginn missa af
ensku knattspyrnunni!
Enska knattspyrnan verður
að venju á dagskrá sjónvarpsins
i kvöld og hefst kl. 19.00. í dag
fáum við að sjá úrsiitaleikinn i
ensku deiidarbikarkeppninni
sem leikinn var á Wembley Ieik-
vanginum fyrir hálfum mánuði
— og áttust þar við 1. deildar-
liðin Manchester City og New-
castle.
Að sögn Bjarna Felixssonar,
umsjónarmanns ensku knatt-
spyrnunnar, þá ætti enginn
áhugamaðurum fótbolta að láta
þennan leik framhjá sér fara,
þvi hann væri mjög vel leikinp
og spennandi á að horfa.
„Þar sem timi okkar er mjög
naumur, þá les ég ekki úrslit
leikja kl. 19.00 eins og venja er,
heldur byrjum við strax á
leiknum,” sagði Bjarni Felixs-
son.
-BB
Nýr myndaflokkur í sjónvarpi, sunnudag, kl. 21:20:
„Gamalt vín á
nýjum belgjum"
„Gamalt vin á nýjum belgjum” heitir italskur mótum, og nær hver þáttur yfir 15 ár.
myndaflokkur sem hefur göngu sina i sjónvarpinu Fyrsti þáttur nær til áranna 1900-1915. Meðal
annað kvöld. þeirra sem koma fr'am I þættinum, eru Mina, Raffa-
1 myndaflokknum, sem samanstendur af 5 þátt- ella Carra, Aldo Fabrizi og Monica Vitti.
um, er rakin saga skemmtanaiðnaðarins frá alda- Þátturinn hefstklukkan tuttugu minútur yfir niu.
Námslán og
námsstyrkir
„Námslán og námsstyrkir” heitir þáttur á dagskrá útvarpsins
annað kvöld. Kári Jónsson, fréttamaöur, er umsjónarmaöur þessa
þáttar.
Rætt verður við menntamálaráöherra, fulltrúa námsmanna og
fulltrúa lánasjóðs um lán og styrki og frumvarpið, sem liggur fyr-
ir Alþingi. Þátturinn hefst klukkan hálf niu. —EA
Sjónvarp, kl. 18.
Nýr myndaf lokk-
ur í Stundinni
Nýr tékkneskur mynda-
flokkur hefur göngu sina i
Stundinni okkar á morgun.
„Það er enginn heima” heitir
hann, og verður fyrsta myndin
sýnd á morgun.
t Stundinni okkar verður lika
sýndur siðasti þátturinn um
Largo. Þá verður sýnd mynd
um ljónsungana i Sædýra-
safninu við Hafnarfjörð. Olga
Guðrún Arnadóttir syngur lagið
„Allir hafa eitthvað til að ganga
á” og sýnd verður mynd um
önnu Kristinu, sem á heima i
Portúgal.
Stundin okkar hefst klukkan
18.00 á morgun. -EA
Sjónvarp, sunnudag, kl. 22:05:
Nýtt fram-
haldsleikrit
á skjánum
Talsvert af nýju efni virðist
befja göngu sina um helgina.
Annað kvöld hefst sænskt íram-
haldsleikrit i sjónvr rpinu. Leik-
ritið er i 5 þáttuzn og beitir
Skuggahverfi.
Höfundur er Elin Wagner. en
leikstjóri er Carl Torrell. Með
aðalhlutverk fer Solveig Tern-
ström.
I fyrsta þætti segir frá Britu
Ribing sem er nýorðin ekkja.
Hún telur að eiginmaðurinn hafi
hafi ekki iatið eftir sig neinar
eignir. en annað kemur i ljós.
Sagan gerist i Sviþjóð 1918. .£A
málaráðherra, fulltrúa
námsmanna og fulltrúa
lánasjóðs
20.15 Fantasia fyrir pianó og
hljómsveit eftir Claude De-
bussy.
21.40 „Vélsleöinn”, smásaga
eftir Þuriði R. Árnadóttur.
Margrét Helga Jóhanns-
dóttir les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
13. mars 1976
17.00 Iþróttir. Umsjónarmað-
ur ömar Ragnarsson.
18.30 Pollyanna. Breskur
myndaflokkur, gerður eftir
skáldsögu Elenor H. Porter.
5. þáttur. Pollyanna segir
frænku sinni að Pendleton
hafi slasast og fær leyfi til
að færa honum mat.
Timoteus fréttir hjá Tuma
gamla, að Polly hafi eitt
sinn átt unnusta og hann búi
enn i grenndinni. Tumi vill
^ekkisegja, hver það er, og
'unga fólkið telur, hver það
er, og unga fólkið telur, að
það sé Pendleton. Ungi
drengurinn Jimmy fær þann
starfa að hirða um garð
Pendletons. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá »g auglýsingar.
20.35 „Ég vildi geta sungiö
þér” Jónas Þór Þórisson og
fleiri flytja létt lög. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
20.40 Læknir til sjós. Breskur
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Stefán Jökulsson.
21.50 Þjóðsagan um vonda úlf-
inn. 1 þessari kanadisku
kvikmynd er leitast við að
svara þeirri spurningu,
hvort þjóðsagan um
grimmd úlfsins á við rök aö
styðjast. Þýðandi og þulur
Öskar Ingimarsson.
21.55 Heill þér, unga hetja.
(Hail The Conquering
Hero). Bandarisk gaman-
mynd frá árinu 1944. Leik-
stjóri er Preston Sturges, en
aðalhlutverk leika Eddie
Bracken, William Demarest
og Ella Raines. Forfeður
Woodrow Truesmith voru
fræknir hermenn, en sjálfur
hefur hann verið úrskurðað-
ur óhæfur til herþjónustu.
Hann hefur ekki þorað að
segja móður sinni frá þessu
og talið henni trú um, að
hann væri á vigstöðvunum i
Evrópu. Hann hittir hóp
hermanna, og þeir ákveða
að hjálpa honum út úr
ógöngunum. Þeir tjá móður
Woodrows, að hann hafi
unnið mikil afrek i striðinu
og fara siðan allir til heima-
bæjar hans, en þar efna
bæjarbúar til óvæntrar mót-
tökuhátiðar fyrir „hetj-
una”. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
14. marz 1976
18.00 Stundin okkar Sýndur
verður siðasti þátturinn um
Largo og mynd um ljóns-
ungana i Sædýrasafninu við
Hafnarfjörð. Olga Guðrún
Arnadóttir syngur lagið
„Allir hafa eitthvað til að
ganga á”, og sýnd mynd ut.i
önnu Kristinu, sem á heima
i Portúgal. Baldvin Hall-
dórsson segir sögu, og loks
er fyrsta myndin i nýjum
tékkneskum myndaflokki,
sem heitir „Það er enginn
heima'. Umsjónarmenn
Hermann Ragnar Stefáns-
son og Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku Kristin Pálsdóttir.
Illé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.35. Heimsókn. Sjávarþorpið
sem varð sveitaþorp
Framan af öldinni átti
kauptúnið Vik i Mýrdal
mest undir sjávarfangi og
siglingum, en vegna versn-
andi hafnaraðstöðu af völd-
um Kötlugoss og batnandi
samgangna á landi sneru
Vikurbúar sér að verslun og
þjónustu við nágranna-
byggðirnar. Sjónvarpsmenn
heimsóttu þetta friðsæla
þorp i siðasta mánuði og
kvnntu sér meðal annars
viðbúnað vegna hugsanlegs
Kötlugoss. Umsjón Ómar
Ragnarsson:
21.20 Gatnalt vin á nýjum
belgjum. ttalskur mynda-
flokkur i 5 þáttum, þar sem
rakin er saga skemmtana-
iðnaðarins frá aldamótum.
og nær hver þáttur yfir 15
ár. 1. þáttur. 1900—1915
Meðal þeirra. sem koma
fram i þessum þætti eru
Mina. Raffaella Carra, Aldo
Fabrizi og Monica Vitti.
22.05 Skuggahvcrfi. Sænskt
framhaldsleikrit i 5 þáttum.
Höfundur er Elin Wagner.
en leikstjóri er Carl Torell.
Aðalhlutverk Solveig Tern-
ström. 1. þáttur. Sagan ger-
ist i Sviþjóð 1918. Brita
Ribing er nýbúin að missa
mann sinn. Hún telur, að
hann hafi ekki látið eft-
ir sig neinar eignir, en
telur. að hann hafi ekki látið
eftir sig neinar eignir, en
annað kemur i ljós. Þýöandi
Öskar Ingimarsson.
(Nordvision-Sænska sjón-
varpið).
22.50 Aö kvöldi dags. Guð-
mundur Einarsson. fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofn-
unar kirkjunnar. flytur hug-
leiðingu.
23.00 Dagskrárlok.