Vísir - 27.03.1976, Síða 8
8
VÍSIR
Útgefandi: Heykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guðmundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Hitstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson
Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsia: Hverfisgötu 44. Simi 86011
Hitstjórn: Síðumúla 14. simi 86611. 7 linur .
Askriftargjaid 800 kr. á mánuði innanlands.
i lausasögu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Þagnarmúr
Visir hefur að undanförnu dregið fram i dagsljós-
ið ýmsar mjög alvarlegar staðreyndir um fram-
kvæmdir i orkumálum. Upplýsingar þessar hafa
vakið mikla athygli og þá ekki siður hin djúpa þögn
æðstu yfirvalda i þessum málum.
í gær greindi þetta blað frá þvi, að allt benti til
þess að miðað væri við þær forsendur, sem kunnar
eru, að á árunum 1979 og 1980 yrði enn ekki þörf
fyrir nema um það bil helminginn af mögulegri
orkuframleiðslu Kröfluvirkjunar. En auk þessarar
miklu framkvæmdar er verið að leggja byggðalinu
til þess að tengja raforkukerfin norðan og sunnan.
Svo virðist sem ákvarðanir i þessum efnum hafi
verið teknar út i bláinn. Um það bil 70% af öllum
lánum til rikisframkvæmda á þessu ári er varið til
orkumála. Ríkisstjórnin hefur sætt ámæli fyrir að
tefla á tæpasta vaðið i skuldasöfnun. Fram til þessa
hafa menn þó haldið að þessu fjármagni væri varið
til skynsamlegrar og arðbærrar fjárfestingar. En
nú hefur komið á daginn, að pottur virðist viða vera
brotinn i þeim efnum.
Stjórnmálamenn vilja eðlilega reisa sér minnis-
merki og það helst úr steinsteypu. í flestum tilvik-
um er ekki nema gott eitt um það að segja. En það
verða ekki minnismerki til mikillar frægðar, sem
reist eru á þeim grunni, sem hér hefur verið lýst.
Það er ekki einvörðungu að skortur sé á ákveðinni
stefnumótun i orkumálum, heldur gætir hvergi í
kerfinu samræmis i framkvæmdum. Hér þarf ný
vinnubrögð.
Upplýsingar Visis um þessi efni siðustu daga eru
byggðar á heimildum manna, sem gjörþekkja raf-
orkukerfið. Æðstu yfirvöld i þessum efnum segja
hins vegar ekki eitt aukatekið orð og flokksmál-
gögnin hafa sameinast yfirvöldunum i þagnar-
stund. Þessi þagnarmúr samtryggingarkerfisins er
athyglisverður fyrir margra hluta sakir. En hann
stendur ekki lengi eftir að birtar hafa verið upplýs-
ingar dr. Jóhannesar Nordal, Aðalsteins Guðjohn-
sens og Björns Friðfinnssonar.
Réttur almennings
í fyrsta sinn i sögunni hefur dómur þurft að
ómerkja ummæli dómsmálaráðherra íslands. Það
getur ekki verið neinum fagnaðarefni meðan menn
vilja bera virðingu fyrir þvi háa embætti. En með
þessum dómi hafa fengist lyktir i deilumáli þessa
blaðs og dómsmálaráðherra.
Visir hefur fengið mikinn og traustan stuðning al-
mennings i landinu i máli þessu. Fjöldi manna úr
öllum stjórnmálaflokkum hafa sýnt það i verki með
þvi að hafa samband við blaðið. Þennan stuðning
metur Visir mest.
Almenningur i landinu átti rétt á þvi að ummæli
dómsmálaráðherra yrðu sannreynd fyrir dómi. Það
væri óvirðing við dómsmálaráðherraembættið, ef
menn leyfðu sér fyrirfram að lita á orð þessa ráð-
herra sem marklaust götustrákahjal. Þess vegna
átti almenningur rétt á þvi að dómur skæri úr um
það, hvort ummæli ráðherrans um ritstjóra þessa
blaðs og útgefendur hefðu við rök að styðjast. Svo
reyndist ekki vera.
Timinn, málgagn dómsmálaráðherra, er með
tituprjónsstungur i dómsstólakerfið i gær vegna
þessarar niðurstöðu. Það er i sjálfu sér alvarlegt
þegar málgagn dómsmálaráðherra lýsir þannig
vantrausti á dómstóla landsins. En eins og á
stendur verður að lita á þetta sem mannleg við-
brögð.
Laugardagur 27. mars 1976
vísm
Umsjón:
Guömundur Pétursson
)
Á meðan ofsóknir
öfgasinna i Kina á
hendur Teng Hsiao-
ping hafa stöðvast i
bili, hafa óeirðarseggir
úti i sveitum loks tekið
við sér.
Á meðan veggspjaldaherferð-
in stóð sem hæst i Peking og
öðrum stórborgum, fóru sveita-
mennirnir sér hægar i sakirnar
og biðu með að ráðast á Teng og
stuðningsmenn hans.
En loks nú hefur byltingar-
neistinn borist frá borgunum út
um land, og frá Changsha, hér
aðsmiðstöð Hunans, fæðingar-
sveitar Maos formanns, heyrast
þær fréttir að róttækir hafi farið
um með báli. Brenndu þeir slag-
orð sin i grasflötina fyrir fram-
SKOÐUN LURIES jp
,,OG ÞÚ SEM SAGÐIR,
EFTIR."
AÐ HANN ÆTTI STUTT
TENG
ÞRAUKAR ENN
an aðalgistihús staðarins. —
Var þar veist að Chang Ping-
hua, aðalritara flokksdeildar-
innar i Hunan.
Enginn óhultur
Um leið hefur einnig frést, að i
Fukién hafi Liao Chih-kao
flokksritari sætt harðri gagn-
rýni. Veggspjöld hafa þotið upp
i Szechwan, fjallahéraðinu, þar
sem höggvið er nærri Chao Tzu-
yan. t Hangchow, þar sem kom
til óeirðanna i fyrra, fréttist af
flokkadráttum, og embættis-
menn eru sagðir liggja undir
gagnrýni i Soochow, næsta ná-
grannahéraði Hangchow.
Hins vegar hefur allt verið
með kyrrum kjörum i þremur
stórborgum, sem eru Shanghai,
Tientsin og Shenyang.
Teng seiglast
Það væri of mikið sagt, að
sókn róttækra á hendur „vega-
gerðarmönnum auðvaldsins” i
kinverskum fjölmiðlum hafi al-
veg fjarað út. En báðar hinar
striðar.di fylkingar hafa nú
greinilega búist um og biða á-
tekta.
Teng, aðalskotspónn árás-
anna, hefur að visu ekki komið
fram opinberlega siðan i janúar
snemma, enda höfðu flestir talið
hann af i þessari pólitisku orr-
ustu, en menn eru aftur orðnir
beggja átta um það. Teng er
frægur fyrir þrautseigju sina og
óliklegur til þess að láta bugast
þótt á móti blási. Það hefur
kvisast að hann eigi enn tryggan
stuðning voldugra vina sinna og
andæfi.
Útlendingar, sem heimsóttu
Tsinghua-háskólann i Peking á
fimmtudaginn núna i vikunni,
grennsluðust fyrir um Teng og
spurðu, hvort hann gegndi enn-
þá trúnaðarstörfum. Svarið
var: „Allir vita, að hann er
varaforsætisráðherra og vara-
formaður flokksins.”
Hefur atlagan mistek-
ist?
Það hefur ennfremur verið
staðfest, að aðalskotmörk rót-
tækra á menningarmálasviðinu,
Chou Jung-hsin menntamála-
ráðherra og Liu Ping, æðstráð-
andi i Tsinghua, hafa sömuleiðis
haldiðembættum sinum og „eru
enn með á málþingum”. — Chou
hafði þó verið talinn allur, þegar
hann tók ekki á móti mennta-
málaráðherra Sri Lanka, sem
var i heimsókn i Peking á dög-
unum, og var borið við „veik-
indum”.
Þannig virðist heiftarárás
róttækra undir forystu Chiang
Ching, eiginkonu Maos for-
manns, og Yao Wen-yuan, hug-
myndafræðings æðsta ráðsins
ekki hafa megnað að fella þessi
voldugu tré i stjórnmálaskógi
Kina. Þeim hefur heldur ekkert
orðið ágengt við að krossfesta
opinberlega fleiri „hægri-
seggi”.
Sáttahljóð i strokkinn
Nú hafa hinir hófsamari tekið
til við aö reyna að bera klæði á
vopnin. Vilja þeir reyna að gera
gott úr öllu saman og kalla
þessa herferð „meinlausa
sjálfskönnun” þjóðarinnar.
öllum að óvörum birti „Dag-
blað alþýðunnar”, aðalmálgagn
kinverska kommúnistaflokks-
ins, leiðara á sunnudaginn fyrir
viku, sem nánast fól i sér tilboð
um uppgjöf saka til handa Teng.
— Þrem vikur áður hafði birst i
blaðinu hatrammur ádeiluleið-
ari á Teng, sem allir töldu
smiðshöggið, sem riða mundi
honum að fullu.
t leiðaranum á sunnudaginn
var gefið i skyn, að Teng bjarg-
ast af stjórnmálalega séð, ef_
hann tekur einlægum sinna-
skiptum. „Alþýðan biður átekta
eftir þvi, að sjá, hver afstaða
hans er” sagði i leiðaranum.
Þeir sem komið hafa nýlega
til Changsha segja, að á vegg-
spjöldum sé Chang Ping-hua
bendlaður við Teng og gefið að
sök að „fara ekki að fyrirmæl-
um miðstjórnarinnar um að
berjast gegn auðvaldsgolu
hægriaflanna.” — Chang er i
raun æðstráðandi Hunan, þvi að
aðalritari flokksdeildarinnar er
upptekinn við stjórnarstörf i
Peking. Það er nefnilega enginn
annar en Hua Kuo-feng, settur
forsætisráðherra, sem fékk það
embætti öllum að óvörum á sin-
um tima, um leið og gengið var
framhjá Teng.
Fréttasnautt
Hugleiðingar vestrænna fjöl-
miðla um stjórnmálabaráttuna
i Kina eru meira og minna reist-
ar á getgátum og orðasveimi,
þvi að viða i landinu er útlend-
ingum bannað að ferðast um og
kinverjar sjálfir sparir á frétt-
irnar. Þannig hefur Hangchow
verið lokuð útlendingum siðan i
miðjum febrúar, rétt eins og i
fyrrasumar, þegar óeirðirnar
voru þar. — I það sinn fór Teng
sjálfur fyrir herflokkum, sem
sendir voru þangað til þess að
róa ibúana. t opinberum frétt-
um hét það, að „herinn hefði
verið sendur i verksmiðjurnar
til þess að aðstoða við fram-
leiðsluna”.
t þessum fréttasparnaði hafa
ekki fengist staðfestar frásagnir
japana, sem á ferð i Wuhan
sögðust hafa séð veggspjöld,
þar sem veist var að Li Hsien-
nien, aðstoðarforsætisráðherra.
— Hins vegar hafa menn veitt
þvi eftirtekt, að Li hefur ekki
sést opinberlega siðan i januar-
lok — frekar en Teng.
Það er ekki ljóst, hvort hinn 72
ára gamli Teng heldur enn emb-
ætti sinu sem yfirmaður her-
ráðsins i Frelsisher alþýðunnar,
sem var einn aðallykillinn að
valdaaðstöðu hans. Hitt rennur
upp fyrir mönnum, þegar þeir
lita yfir tiðindi siðustu mánaða,
að herinn hefur litið sem ekkert
haft sig i frammi i áróðursbar-
áttunni eða talsmenn hans.