Vísir - 03.05.1976, Qupperneq 3
3
vism Mánudagur 3. maí 1976
Barinn á
Hótel Borg
— fluttur á
slysadeild
Maður var barinn á Hótel
Borg um miðnætti á laugar-
dagskvöldið. Hlaut hann tais-
verða höfuðáverka og var hann
fluttur á slysadeild
Sá, sem þarna var að verki
var handtekinn. —EA
Eldur í húsi
við Grettisgötu
Eldur kom upp i húsi við
Grettisgötu aðfaranótt laugar-
dags. Ibúa i húsinu tókst að
siökkva eldinn, og urðu
skemmdir ekki verulegar.
Eldurinn kom upp á annarri
hæð hússins. Mun hafa kviknað I
út frá matseld. Ibúi á þriöju
hæð hússins varð var við eldinn
og fór þegar niður. Var eldur-
inn þá kominn i eldhússkáp en
manninum tókst að slökkva eld-
inn. Tveir menn voru I viðkom-
andi Ibúð, en báðir sofandi.
_________________—EA
Bílvelto við
Akureyri
Bilvelta varð rétt utan
við Akureyri á laugar-
dag við Lónsbrú.
Einn maður var I bllnum og
slasaðist hann litið. Hann var
ölvaður. Billinn er mikið
skemmdur og jafnvel ónýtur
enda fór hann nokkrar veltur.
— EA
Féll í höfnina
Maður féll I höfnina aðfara-
nótt sunnudags. Hafnsögumenn
urðu varir við manninn og
björguðu honum. Hann var
slöan fluttur á slysadeild. _ea
Björgun bœtist liðsauki
„Verkefnin eru meira en
næg fyrir þetta nýja skip”,
sagði Hreinn Hreinsson,
verkstjóri hjá Björgun h.f. i
samtali við Visi um nýja skipið
Sandey 2., sem þeir fengu
afhenta á fimmtudagskvöldið.
,,Ég býst við að fyrsta verk-
efniskipsins verði að dæla sandi
I slitlag á flugvöllinn i Grimsey,
þó er það ekki endanlega afráð-
ið enn. Nú ættum við að geta
boðið i fleiri verkefni en áður og
lokið við þau. Við höfum haft
eitt skip, Sandey, en það hefur
tæpast haft undan þeim
verkefnum, sem fyrir það hafa
verið lögð. Það skip hefur verið i
föstum verkefnum eins og að
dæla árlega upp fyrir Sements-
verksmiðjuna á Akranesi yfir
sumartimann og farið fjóra túra
árlega fyrir Áburða-
verksmiðjuna i Gufunesi. Þá
hefur það verið fastur liður að
dýpka dráttarbrautina fyrir
Hval h.f. I Hvalfirði til að auð-
velda þeim að draga hvalina á
land”.
Sandey 2. er smiðuð hjá Stál-
smiðjunni en hönnuð i Hollandi.
Sanddæla, staösett I dæluvélar-
rúmi framan lestar, dælir i
skipið af allt að 20 m dýpi og er
knúin eigin vél. Losun fer fram
meö dragskóflu og færiböndum.
Krani fyrir stórgrýti er aftast á
skipinu, einnig knúinn eigin vél.
— VS
MINNINGARHUÓMLEIKAR
í dag verða haldnir i Austur-
bæjarbioi hljómleikar til
minningar um hjónin Bjarna
Bjarnason lækni og Reginu
Þórðardóttur leikkonu.
Á hljómleikunum koma fram
16 söngvarar og flytja lög úr
þekktum óperum. Má þar nefna
úr Töfraflautunni eftir Mozart,
Madame Butterfly eftir
Puccini, Tannhauser eftir
Wagner, Bréfdúettinn úr Brúð-
kaupi Figarós og Söng nauta-
banans úr Carmen.
I hljómleikarskrá skrifar
Gunnlaugur Snædal læknir:
„Bjarni Bjarnason var list-
elskur maður . Hann var sjálfur
mikils metinn söngvari, tók þátt
i óperettusýningum, söng
einsöng viða og var meðlimur
kóra og minni sönghópa. Hann
var um margra ára skeið
formaöur Islenskra einsöngv-
ara. Vann hann i þvi starfi
margt til framgangs söngstarfi I
landinu og kom fram mörgum
baráttumálum söngvara.
Eiginkona Bjarna, frú Regina
Þórðardóttir, sem var um
margra ára skeið ein af virtustu
og glæsilegustu leikkonum
landsins, studdi mann sinn af
ráðum og dáð i starfi hans fyrir
listamálum, sem og öðrum hug-
sjónamálum hans.
Störf Bjarna Bjarnasonar að
söngmálum endurspeglast i
aðsókninni að Carmen, sem
slegið hefur algert met hér á
landi. íslenskt söngfólk stendur
i mikilli þakkarskuld við Bjarna
STAL 15
ÞUSUND
KRÓNUM
Stolið var veski sem m.a. inni-
hélt 15 þúsund krónur af konu á
Akureyri á laugardagskvöld.
Þetta skeði i húsi við Skipagötu
þar sem samkvæmi var þetta
kvöld. Maður, sem var þar
staddur náði veskinu, en hann
náðist þó seinna um nóttina. Þá
hafði hann eytt 5 þúsund krónum.
— EA
JARÐSIG Á
ANNAN METRA
Núer lokið tjónamati á innbúi
á jarðskjálftasvæðinu á Kópa-
skeri og nágrenni og að sögn
Óskars Þorvarðarsonar sem
annast hefur matið, losar það i
heildinaum tvær milljónir króna.
Eftir helgina verður hafið
tjónamat á fasteignum, og taldi
Óskar þaö verk mundu taka
mánuö.
Að sögn Björns Karlssonar,
oddvita, er enn ekki komiö að
fullu i ljós hverjar eyðileggingar'
hafa orðiö á landi, eða hverjir
möguleikar veröi á áfram-
haldandi búsetu.
Kvað hann jarösig vera gifur-
legt á svæöinu og tók sem dæmi
að nú væri brotsig sem næði vel I
öxl á svæöi sem áður hefði veriö
slétt.
og þvi hafa söngvarar I Carmen
ásamt nokkrum helstu máttar-
stólpum islensks óperusöngs
efnt til þessara hljómleika, þar
sem ágóðinn rennur til krabba-
meinsfélaganna i þágu málefna,
sem þessi mætu hjón báru svo
mjög fyrir brjósti.” — þgh.
Fundu aðeins kindabein
Leitað í Hafnar-
fjarðarhrauni
á laugardaginn
Leitað var á þremur
svæðum á laugardag-
inn samkvæmt
ábendingum frá bil-
stjóranum sem kveðst
hafa farið með bana-
menn Guðmundar
Einarssonar i Hafnar-
fjarðarhraun til þess að
urða lik hans.
Vísir fylgdist með leitinni sem
hófst strax ’klukkan 9 um
morguninn og stóö til klukkan
fimm. Hún bar ekki árangur.
Nóg mun þó vera af beinum i
hrauninu, enda fundu leitar-
menn talsvert af kindabeinum.
Leitað var á þremur svæöum.
Tvö lið leituðu og var annað á
svæöinu við Sædýrasafnið en
hitt I Kúagerði. Siðan leituðu
bæði liðin á þriöja svæðinu.
Talið er fullvist aö lik
Guðmundar Einarssonar hafi
veriö urðað i hrauninu og þá
hefur komið fram I blööum að
bilstjórinn hafi sagst hafa farið
oftar með sömu aðila i hraunið.
Frekari leit hefur ekki veriö
ákveðin. _ EA
woqtMt
HIÐ FYRIRHUGAÐA 240 MANNA HEIMILI A MORKUM HAFNARFJARO
AR OG GARÐABÆJAR MEÐ VISTDEILDUM OG HJÚKRUNARDEILD AUK
DAGVISTUNARDEILDAR FYRIR 60 MANNS, SEM BYRJAÐ ER AÐ
REISA. HEIMILI ÞETTA VERÐUR SAMBÆRILEGT VIÐ HIN FULL—
KOMNUSTU Á ÞESSU SVIÐI BÆÐI VESTAN HAFS OG AUSTAN.
OG HVER MIÐI ER STÓR MÖGULEIKI.
SALA OG ENDURNÝJUN STENDUR YFIR. MÁNAÐARVERÐ
MIÐA400 KRÓNUR. DREGIÐ í 1. FLOKKI 4. MAÍ.