Vísir - 03.05.1976, Síða 6

Vísir - 03.05.1976, Síða 6
Mikil sjálfsgagnrýnisskrif fylgdu i sænsku blööunurin- kjölfar heiftarárásar Ingmars Bergmans á sænsk skattayfir- völd og eru menn lítt hrifnir af skrifstofubákninu. Auk þess að allir eru sam- mála um, aö skattaálögur séu orönar alltof miklar, og skalta- lögin flókin, hafa vaknað spurningar um aðferðir yfir- valda og svo rétt einstaklingsins i viöureigninni við orminn langa. Einn af þessum pennum skrifaði á dögunum að fram- koma yfirvaldsins I skatta- málum bæri keim þess, að hún „væri bleytt upp i eitri töl- fræðinnar, reglum og imyndunarskorti”. Kosningamál Þetta var nú meira svona um andans hlið þessa máls en nú eru menn íarnir að velta vöngum yfir þvi, hvaða diik máiið eigi eftir aö draga á eftir sér fyrir stjórn Olof Palme og sosialdemókrata, þegar kemur lil kosninganna i september næsta haust. — Sosíafdemó- Bergmanhjónin á göngu I París — Sviþjóð að baki um sinn Verða skattarnir stjórn Palme að falli f haust? kratar hafa setiö i stjórn i Sviþjóö i 43 ár. Eins og menn hafa lesið i fréttum, tilkynnti Bergman 22. april, að hann mundi flytja úr landi til að búa og starfa annarsstaðar og lét ekki sitja við orðin tóm. t beinskeyttu bréfi, sem „Expressen” birti, sagðist hann hafa nú áttað sig á þvi, að i Sviþjóð gæti hver og einn átt von á þvi að sæta árasum skrifstofu- bákns, „sem vex eins og krabbamein og er ekki undir það búiö að vinna sitt erfiða og viökvæma starf, en hefur þó fengiö frá samfélaginu völd i hendur einstaklinga, sem kunna ekki með þau að fara”. Harkaleg meðferð Þessi ákæra leikstjórans kom skömmu eftir að hann hafði náð sér eftir taugáfailið, sem hann hlaut i harkalegri meðferð og yfirheyrslum skattalögreglunn- ar vegna ákæru um skattsvik sem saksóknarinn siðan dró til baka. Skattayfirvöid héldu þó fast við sinn keip og kvá'ðust mundu haida áfram að rannsaka skattamál Bergmans og fjár- hagsástæður. Það kallaði yfir þau enn frekari mótmæli manna sem höfðu fordæmt meöferöina á Bergman. Hann haföi fyrir- varalaust verið sóttur á æfingu i leikhúsið, yfirheyrður, vega- bréfið frá honum tekið og svipt- ur feröaieyfi. Skattayfirvöld vörðu sig með þvi, aö Bergman fengi sömu meðferð og aðrir, allir væru jafnir fyrir lögunum, eins og Aftonbladet, málgagn sosial- demókrata, var fljótt að taka undir. Þaö kvað skattsvik ieiða til þess, aö oft yrði að fara harkalega að hlutunum. „Ingimar Bergman kann að reiðast þessu og flytja úr landi en það getur ekki venjulegt fólk gert sem viðurkenna verður þó, Umsjón: Guömundur Pétursson að hefur margt orðið hart úti,” skrifaöi blaðiö. Blaðaskrif Kjeil Sundberg, rithöfundur, skrifaði i Dagens Nyheter að mál Bergmans væri dæmigert fyrir það hvað sviar mættu stundum þola og bætti viö: „Eini munurinn er sá aö fiestir okkareru ekki eins áhrifamiklir einstaklingar og þolinmóðari. Viö erum sorglega þolinmóöir.” Jönköpingsposten, málgagn frjálslyndra, skrifaöi hug- leiðingar um grimmdarlega útþenslu valdþyrsts rikisbákns sem væri tiifinningalaust gagnvart einstaklingnum. thaldsblaðiö „Svenska Dagbladet” skrifaði að sænska skattakerlið væri orðið svo flókið, að jafnvel sérfræðingar stæðu á gati i þvi þegar venju- legt fólk lenti i myllunni,” snerti þaö hrokafullt yfírvaldið ekki hið minnsta”. — En það vildi álita, að Jón Jónsson gæti nú öðlast von um meiri tillitsemi, meöan athygli umheimsins væri beint að skattayfirvöldum. Gamlar syndir Skattaiögreglan sænska á þvi ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, þvi að Bergmansmálið hefur orðið til þess aö rifja upp ýmis óþægileg tilvik frá eldri timum. Þannig rifjaði eitt sænsku blaðanna upp mál, sem spratt upp, þegar maður einn kom i ibúösina og fann þar allt á rúi og stúi, og saknaði skjala af skrifborði sinu. Þegar hann hringdi i lögregluna til að til- kynna innbrot, kom I ljós, aö þarna hafði skattalögreglan verið að verki — að visu meö húsrannsóknarúrskurð upp á vasann. Samt neyddust embættismenn til að biðja manninn afsökunar, þvi að i ljós kom, að skattalögreglan hafði veriðaðkanna hagi ibúans, sem áður bjó i ibúðinni. Fylgistap Sænskir blaöamenn leituðu að sjálfsögðu umsagnar hjá Olof Palme, forsætisráðherra, eftir að Bergman hafði afráðið aö fara úr landi. Palme kvaðst skilja ákvörðun Bergmans en vera þeirrar trúar samt, að leikstjórinn mundi að lokum komast að raun um það,Að það væri Sviþjóð, sem hann mundi geta lagt mest af mörkum til listar sinnar. Bergmansmálið hefur varpað nýju ljósi á gagnrýni stjórnar- andstöðuflokkanna á skatta- kerfi landsins, en þeir hafa að visu ekki á takteinum neinar sérstakar tiliögur til úrbóta. Siöustu skoðanakannanir sýna, að sosialdemókratar hafa misst fylgi til stjórnarandstöðunnar, hvort sem á rætur sinar að rekja til þessa máls eða annars. En það þykir engum vafa undirorpið að landflótti Bergmans og skopsaga skáld- konunnar Astrid Lindgren (sem skrifaði Linu langsokk) munu leiða til þess að skattamálin setji sitl mark á kosninga- baráttuna með haustinu. — Astrid Lindgren skrifaði ádeilu á riki, þar sem þegnar gátu lent i þeirri aðstöðu að þurfa að greiða hærri skatta og gjöld en árstekjum þeirra nam. Hug- myndina fékk hún, þegar skattaráöunautur hennar sagði henni, að hún myndi fá 102% skatta af tekjunum 1975. Óttast blóðuga kosningabaróttu á ftalíu Óttast er að kosningabaráttan fyrir þingkosningarnar á ítaliu verði blóðug. Rikisstjórn Aldo Moro, sem situr áfram til bráða- birgða að beiðni forsetans, til- kynnir i dag um hvenær kosning- ar muni fara fram. Búist er við að það verði 20 júni. Um helgina var kveikt i nokkrum lögreglustöðvum, og skrifstofum kommúnista, með þvi að fleygja þangað inn i- kveikjusprengjum. Einn leiðtogi nýfasista i Milanó verður jarðsettur i dag. Hann var skotinn til bana á fimmtudag, daginn eftir að ungir nýfasistar I sömu borg stungu vinstrisinnað- an ungling til bana. Þetta eru einna alvarlegustu atburðirnir i þeim pólitisku óeirð- um sem verið hafa á ítaliu undan- farnar vikur. Þegar Aldo Moro sagði af sér nú fyrir helgi, varaði hann eindregið við áframhald- andi ofbeldisverkum. Nýlegar skoðanakannanir sýna að samanlagt mundu kommúnist- ar og sósialistar vinna meirihluta á þingi i kosningunum, i fyrsta sinn i þrjátiu ár. Dœmdur frá sigri í Formula 1 keppni Sigurinn var dæmdur af kapp- aksturshetjunni James Hunt i Formula 1 Grand Prix keppn- inni á Spáni i gær. Hann kom i mark hálfri minútu á undan næsta manni. En þremur klukkutimum siðar komust stjórnendur keppninnar að James Hunt á McLaren bilnum, sem hann sigraði á i Grand Prix keppninni spænsku, en var frá- dæmdur sigurinn. þeirri niðurstöðu að dæma af honum sigurinn, vegna þess að vænglaga „spoiler” aftan á bilnum var einum og hálfum sendimetra of breiður. „Spoilerinn” heldur bilnum betur að brautinni. Grand Prix keppnin á Spáni er ein af fjölmörgum i Formula 1 flokknum. ökumenn safna stigum og sá sem hefur flest að loknu keppnistimabili telst heimsmeistari i kappakstri. Þegar James Hunt hafði verið dæmdur úr leik, var núverandi heimsmeistara Niki Lauda úr- skurðaður sigurinn, en hann kom annar i mark. Þar með er Lauda orðinn fremstur i heims- meistarakeppninni, með 33 stig. Næstu menn eru Patrick DePailler með 10 stig og Clay Reggazzoni með 9 stig. Aðstandendur James Hunt, sem ekur McLaren bil, hyggjast kæra úrskurð spánverjanna fyrir alþjóða bilaráðinu I Paris. Israelska bridgesveit- iii sigraði ítalina Svindlmál á döfínni á Ítalíu og varpar skugga | á heimsmeistaramótið í Monte Carlo I Hin unga bridgesveit ísraels hefur nú tekið forystu i undanúr- slitum hcimsmeistarakeppninn- ar, sem fram fer þessa dagana i Monte Carlo. Lokið hefur verið tvcim umferðum. í fyrstu umferðinni vann hún itölsku heimsmeistarana 20 gegn minus 1, sem kom vægast sagt mjög á óvart. Minnast menn þess ekki, að heimsmeistararnir hafi tapað leik með minus, þótt þeir hafi sjálfir verið óniskir -,á að deila út minusum. 1 þessari umferð vann Astralia Hong Kong 13-7 og Brasilia vann Bandarikin 11-9. 1 annarri umferð vann Israel Hong Kong 17-3, Bandarikin unnu Ástralíu 17:3 og Italia vann Brasiliu 11-9. Svindlmál Rétt eins og i heimsmeistara- mótinu i fyrra eru miklar ráðstaf- anir gerðar til að fyrirbyggja svindl eða ólöglegar merkjagjaf- ir. Tjöld eru dregin yfir borðin á milli spilarana, þannig að þeir sjá ekki andlitin á félögum sinum, pullur eru undir borðinu og notað- ir eru sagnmiðar. Engu að siður hefur enn eitt svindlmálið varpaðskugga sinum á heimsmeistaramótið, þótt það sé upprunnið viðs fjarri, eða á ltaliu. I þetta sinn eru það ekki bandarikjamenn, sem ákæra itali, heldur italir sem bera þessa alvarlegu kæru á landa sina heima á ttaliu. Julius Rosenblum, forseti heimssambandsins, staðfesti i til- kynningu i gær, að ný svindldeila væri i deiglunni. Tilkynnti hann þetta skömmu fyrir byrjun móts i fyrradag. Sagði hann, að fram- kvæmdarráði sambandsins hefðu borist upplýsingar um, að ítalska bridgesambandið hefði i rann- sókn svindlákæru á hendur Leandro Burgay, spilara og bridgehöfundi, og Benito Bianchi, sem keppti á heimsmeistaramót- unum 1973 og 1974 með Pietro Forquet (og nokkrum sinnúm á Evrópumótum). — Þessir tveir spilarar eru hvorugir á heims- meistaramótinu. Fréttir hafa borist fremur tak- markaðar af málinu, en svo er að sjá.sem italska bridgesambandið hafi hljóðupptökur af simtali, þar sem fjalláð virðist um ólöglegar merkjagjafir. Skilst mönnum,- að svindlboðum sé komið áleiðis með þvi, hvernig spilararnir bera sig að við að reykja. Þetta mál mun hafa komið fyrir heimssambandið, eftir að nokkr- um einstaklingum i stjórn þess höfðu verið sendar hljóðupptökur af þessu simtali.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.