Vísir - 03.05.1976, Síða 11
VISIR Mánudagur 3. maf 1976 11 ríiíiT
L
11
Þarf að geta kastað 19,50
„Það er enginn vafi á að ég
hafði mjög gott af þessari ferð”
sagði strandamaðurinn sterki,
Hreinn Hallddrsson, sem er ný-
kominn heim frá Vestur-Þýska-
landi, þar sem hann dvaldi i einn
mánuð og æfði sig undir stjórn
hins þekkta þýska frjálslþrótta-
þjálfara Tchine sem sér um þjálf-
un vestur-þýska landsliðsins i
köstum.
,,Ég finn greinilegar framfarir
hjá mér, en þetta kemur ekki i
ljós fyrr en i júni—júli, þvi að ég
æfi eftir svo stifu prógrami
núna.”
< Hreinn sagði að hann undir-
byggi sig nú af kappi fyrir
Ólympiuleikana og af þeim sök-
um fengið sig lausan úr vinnu —
og æfði nú tvisvar á dag. Til að
komast i úrslitakeppnina i kúlu-
varpinu yrði hann að kasta 19.40
metra i undankeppninni og til
þess fengi hann þrjú köst.
,,Ég hef kastað nokkrum sinn-
um yfir 19 metra á æfingum að
undanförnu, en maður þyrfti helst
að vera orðinn öruggur með að
kasta 19.50 metra áður en maður
heldur til Montreal ” sagði
Hreinn.
Með Hreini til Vestur-Þýska-
lands fór Guðni Halldórsson, en
hann hélt fljótlega þaðan til Eng-
lands þar sem hann hefur æft með
Hreinn Halldórsson undirbýr
sig nú af kappi fyrir Ólympiu-
leikana og hefur m.a. fengið sig
lausan úr vinnu til að geta ein-
beitt sér betur að æfingunum.
Evrópumeistaranum i kúluvarpi
bretanum Geoff Capes.
—BB
Kringlan
flaug
rúma
70 metra!
Bandarikjamaðurinn Mac
Wilkins setti nýtt heimsmet i
kringlukasti á laugardaginn,
kastaði 70.86 metra.
Metið setti Wilkins á
frjálsiþróttamóti sem fram fór i
San Jose i Kaliforniu. Hann átti
sjálfur eldra metið sem var 69.16
metrar og hann setti fyrir átta
dögum.
— BB
Slask vann
bikarinn í
fyrsta sinn
SLASK Wroclaw varð pólskur
bikarmeistari i knattspyrnu á
laugardaginn, þegar liðið sigraði
Stal Mielec i úrslitaleik
keppninnar.
Þetta er i fyrsta, skipti sem
Slask sigrar i bikarkeppninni,
liðið er nú i sjöunda sæti i deildar-
keppninni, en Stal Mielec er i
þriðja sæti.
—BB
' ' ' *
Tveir
dómarar
til USA
Tveir islenskir handknatt-
leiksdómarar, þeir Gunn-
laugur Hjálmarsson og
Björn Kristjánsson, halda
utan til Bandarikjanna á
morgun til að dæma banda-
riska meistaramótið i hand-
knattleik sem fram fer i Mil-
waukee.
„Formaður bandariska
handknattleikssambandsins
var búinn að ncfna þetta við
okkur” sagði Gunnlaugur
Hjálmarsson við Visi i
morgun. „En við áttum ekki
von á þessu með svo stuttum
fyrirvara, þvi að það var
haft samband við okkur rétt
fyrir hclgi. Við vitum ekki
mikið um þetta mót, en það á
að keyra það i gegn á fjór-
um dögum og verða þátt-
tökuliðin 14. ég reikna nú
ekki með að við dæmum alla
leikina i mótinu, en allavega
bróðurpartinn.”
Rnnir þú til
férðalðngunai;
þáer
um
það vitneski
voríð erlencfí
sem veldur
an
ís
30% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríí til 15. maí.
fwcfélac LOFTLEIOIR
/SLA/VDS
Félög sem sjá um föst tengsl
við umheiminn
mmm