Vísir - 12.05.1976, Síða 3
3
VÍSIR
Miðvikudagur 12. mai 1976.
VIUA EKKI VERKFALLSRÉTT
Mikil óánægja rlkir meðal
starfsmann Stjórnarráðsins
með væntanlegt frumvarp til
laga um verkfallsrétt opinberra
starfsmanna. Telja þeir að
lögboðnar undanþágur starfs-
fólks i Stjórnarráðinu muni
verða svo margar, að verkfall
muni ekki þjóna neinum
tilgangi. Það yrði aðeins
fámennur hópur og þar með
taldir hinir lægst launuðu, sem
færi i verkfall og yrði þá að axla
byrðina.
Telur starfsfólkið, að
Stjórnarráðið hafi nokkra
sérstöðu, þar sem þar vinni á
sama vinnustaðnum aðilar
þriggja hagsmunahópa. Starfs-
fólkið sé ýmist i BSRB, BHM
eða utan kjarafélaga.
Þar sem BSRB sé nú þegar
búið að semja um verkfallsrétt-
inn, virðist starfsfólkinu eina
leiðin og ekki nema réttlátt að
eitt gangi yfir alla og undan-
þágan verði fengin fyrir allt
starfsfólk Stjórnarráðsins.
Þann 23. april sl. var á vegum
starfsmannaráðs Stjórnarráðs-
ins gerð skoðanakönnun meðal
starfsfólksins um viðhorf þess
til verkfallsréttar.
Naumur meirihluti þeirra
sem tóku þátt i könnuninni
reyndist vera andvigur almenn-
um verkfallsrétti. Hins vegar
var yfirgnæfandi meirihluti
andvigur verkfallsrétti til hans
stjórnarráðsstarfsmönnum, eða
124 á móti þeim 67 sem vildu að
starfsmenn stjórnarráðsins
fengju verkfallsrétt.
í framhaldi af skoðanakönnun
þessari lagði stjórn starfs-
mannafélagsins fram tillögu til
BSRB um að 28. gr. frumvi til
laga um kjarasamninga BSRB
verði breytt, þannig aö allir
starfsmenn Stjórnarráðsins
verði undanþegnir verkfalls-
rétti.
Svar stjórnar BSRB við
þessari .breytingatillögu var á
þá leið, að ekki hafi náðst-
samkomulag við rikið um að i
Stjórnarráði yrðu einungis
ráðuneytisstjórar, skrifstofu-
stjórar og þeir starfsmenn, sem
annist viðræður og störf fyrir
rikið að ikjarasamningum
undanskildir verkfallsrétti.
Stjórn BSRB og samninganefnd
bandaiagsins töldu ekki fært að
láta samninga stranda á þessu
atriði, þótt fyrirfram væri vitað
um óánægju starfsmanna-
félagsins með að verkfalls-
rétturinn næði ekki til allra
félagsmanna.
Bendir svarið til þess að
stjórn BSRB finnist ekki koma
til greina að allir starfsmenn
Stjórnarráðsins verði undan-
þegnir verkfallsrétti, eins og
starfsmannafélagið lagði til.
— SJ
EDDU-HOTELIN OPNA
UM MIÐJAN JÚNÍ
Um hvitasunnuhelgina tekur
fyrsta EnDU-hótelið til starfa
að þessu sinni, þ.e. hótelið að
Kirkjubæjarklaustri, en siðan
opna þau eitt af öðru um og upp
úr miðjum júnimánuði og stárfa
siöan þar til I lok ágúst.
Hóteiin njóta sivaxandi
vinsælda meðal innlendra sem
erlendra ferðamanna sökum
góðrar þjónustu og sanngjarns
verðlags, og er þegar búið að
taka viðpimtunum á verulegum
hluta þess gistirýmis sem tU
ráöstöfunarer. Þvi vilja hótelin
nú vekja athygli innlendra
ferðamanna á nauðsyn þess að
fara að hugsa fyrir sumarleyfis-
ferðum sinum um landið.
Eddu-hótelin bjóða nýtt sér-
tilboð fyrir sumarið 1976.
Verður veittur 30% afsláttur af
gistingu og morgunverði þeim
sem dvelja samfleytt I 3 nætur
eða lengur á sama hóteli, og
15% afslátt af öllum mat i
veitingasölum, meðan þeir
dveljast á hótelunum.
Kostar þá gisting í 3 nætur i
tveggja manna herbergi ásamt
morgunverði kr. 4.500 á mann,
en t.d. i 7 nætur kr. 10.500 á
mann. Gisting i Húsmæðr-
skólanum aö Laugarvatni er
nokkru dýrari, enda eru öll
herbergi þar með sérsnyrtingu
og steypubaði.
Börn fá afslátt af þessu sér-
verði eftir sömu reglum og gilda
um barna-afslátt af almennu
verðlagi á Eddu-hótelum. Til
þess að njóta þessara kjara
verða menn aö panta og greiða
fyrirfram fyrir gistingu og
morgunverð. Feröaskrifstofa
rikisins veitir allar nánari
upplýsingar.
Eddu-hótelin eru nú 10 talsins
á 9 stöðum á landinu og fara hér
á eftir helstu uppiýsingar um
hvert þeirra:
Hótcl Eddajteykholti i Borgar-
firði — opið 13. júni - 25. ágúst.
Simi um Reykholt (02).
Hótelstjóri verður Vilhjálmur
Einarsson. 1 hótelinu eru 64
herbergi með 128 rúmum,
ennfremur svefnpokapláss i
skólastofum fyrir 30-40 manns.
Hótcl Edda, ísafirði — opið 16.
júni - 25. ágúst. Simi: 94-3876.
Hótelstjóri verður Sóley
Ingólfsdóttir. í hótelinu eru 38
herbergi með 70 rúmum. Svefn-
pokapláss er ekkert fyrir hendi.
Hótei Edda, Reykjum f Hrúta-
firði — opið 25. júnf - 25. ágúst.
Simi um Brú 95-1111. Hótelstjóri
verður Aðalbjörg Olafsdóttir. í
hótelinu eru 34 herbergi með 68
rúmum, auk þess svefnpoka-
pláss fyrir 40-50 manns i skóla-
stofum og herbergjum án hand-
lauga. Aðeins framreiddur
morgunverður og kvöldkaffi.
Hótel Edda, Húnavöllum við
Reykjabraut (Svinadal) — opið
18. júni - 25. ágúst. Simi: 95-4370.
Hótelstjóri verður Helga Helga-
dóttir. 1 hótelinu eru 23 herbergi
með 46 rúmum, ennfremur
svefnpokapláss i skólastofu
fyrir 40-50 manns.
Hótel Edda, Akureyri — opið
18.júni - 31. ágúst. Simi: 96-
11055. Hótelstjóri verður Ilafn
Kjartansson. í hótelinu eru48
herbergi með 95 rúmum. Aðeins
framreiddur morgunverður og
kvöldkaffi.
ilótei Edda. Eiðum I Hjalta-
staðþinghá — opið 22. júni - 25.
ágúst.Simium Eiða (02). Hótel-
stjóri veröur Jón Grétar
Kjartansson. i hótelinu eru 47
herbergi með 105 rúmum og að
auki svefnpokapláss i skóia-
stofum fyrir 30-40 manns.
Ilótei Edda. Kirkjubæjar-
kiaustri — opið 5. júni - 31.
ágúst. Simi: 99-7026. Hótelstjóri
verður Margrét Isleifsdóttir. t
hótelinu eru 18 herbergi með 34
rúmum, ennfremur svefnpoka-
pláss I skólastofum fyrir 30-40
manns.
Hótel Edda, Skógum undir
Eyjafjöllum —-opiö 13. júnl - 25.
ágúst. Simi um Skarðshlið (02)
og um Hvolsvöil 99-5111. Hótel-
stjóri verður Aslaug Alfreðs-
dóttír. i hótelinu eru 32 herbergi
meö 69 rúmum, og að aukí
svefnpokapláss i skólastofum.
Hótcl Edda, Laugarvatni
(Menntaskólanum) — opið 17.
júni - 31. ágúst. Simi: 99-6118.
Hótelstjóri verður Erna
Þórarinsdóttir. í hótelinu eru 88
herbergi með 138 rúmum, en að
auki er svefnpokapláss I skóla-
stofum
Hótcl Edda, Laugarvatn
(Húsmæðraskólanum) —• opið
15. júni-31. ágúst. Sími: 99-6154.
Hótelstjóri verðúr Huld H.
Goethe. I hótelinu eru 27
herbergi með 54 rúmum. Svefn-
pokapláss er ekkert. Bað fylgir
hverju herbergi og i hótelinú er
einnig sauna-bað fyrir hótel-
gesti.
SJÓPRÓF í DAG
Sjópróf vegna
ásiglingar dráttar-
bátsins EUROMAN á
varðskipið ÆGI hinn
26. apríl s.l. fór fram í
Sjó- og verslunardómi
Reykjavíkur sl.
mánudag.-
Þröstur Sigtryggsson, skip-
herra, staðfesti i þessu réttar-
haldi skýrslu sina um atburðinn
sem hann hafði sent forstjóra
Landhelgisgæslunnar, Pétri
Sigurðssyni.
Stýrimennirnir Baldur S.
Halldórsson og Benóný
Asgrimsson komu einnig fyrir
réttinn til skýrslugjafar.
Dómformaður var Valgarð
Kristjánsson
Lögmenn Landhelgis-
gæslunnar og Samábyrgðar-
innar voru einnig mættir i
réttinum ásamt fulltrúa frá
Siglingamálastofnuninni.
Sjópróf vegna ásiglingar
freigátunnar Falmouth F-113 á
varðskipið Tý 6. mai s.l. fara
væntanlega fram i dag. — SJ
Saksóknari krefst opinberrar rann-
sóknar ó framkomu Kristjáns og Hauks
Blaðinu barst i gær eftirfar-
andi fréttatilkynning fré Rlkis-
saksóknara:
Að gefnu tilefni þykir embætti
rikissaksóknara rétt að taka
fram eftirfarandi:
Með bréfi, dags. 12. f.m.
framsendi varnarmáladeild
utanrikisráðuneytisins embætti
rikissaksóknara til meðferðar
bréf Arnar Clausen hæstarétt-
arlögmanns, dags. sama dag,
þar sem beiðst er að hlutast
verði til um opinbera rannsókn
vegna málsmeðferðar þeirrar,
er tveir skjólstæðingar hans,
varnarliðsmennirnir Charles
Edward Burrell og James
William Hand, hlutu dagana
7.-10. nóvember 1975. I bréfinu
er þess beiðst, að sérstaklega
verði rannsakað allt, sem við-
kemur handtöku nefndra
manna, svo og skýrslutöku af
þeim, og kveðst hæstaréttarlög- |
maðurinn ekki fá betur séð en
að framkoma Kristjáns Péturs-
sonar, deildarstjóra á Kefla-
vikurflugvelli og Hauks
Guömundssonar, rannsóknar-
lögreglumanns i Keflavik — og
þó fyrst og fremst framkoma
Kristjáns— sé með öllu löglaus,
þar sem þeir hafi, án nokkurrar
heimildar, hafist handa I máli
þessu og framkvæmd rannsókn
sina á þann hátt, að eigi sam-
rýmist ákvæðum laga nr. 74,
1974 um meðferð opinberra
mála.
Með bréfi, dags. 27. f.m., var
þess krafist af ákæruvaldsins
hálfu, að sakarefni þetta væri
tekið til dómsrannsóknar i
sakadómi Keflavikurflugvallar.
Sú rannsókn er nú hafin.
Listiðnaðarsýning
á listahátíð
Fyrirhugaðer að halda veglega
listiðnaðarsýningu i Norræna
húsinu i sambandi við Listahátið
1976.
i framkvæmdanefnd þessarar
sýningar eiga sæti fulltrar frá
Listiðn, sambandi listiðnaðar-
manna, iðnhönnuða og arkitekta,
ásamt fulltrúum frá Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins og Félagi isl.
iðnrekenda.
— SJ
Hraunbœr
4ra herb. Ibúð HOferm. Útb.6,5millj. 120ferm. Ibúð á 2.hæð. I 3
hæðablokk.ásamtherb. Ikjallara. Verð 10,3millj.
Garðabœr
Einbýlishús I smlðum 155 ferm. ásamt 54 ferm. bllskúr. Afhend-
istfokheltm. gleri, hurðum og frág. þaki. Verð 9-10 millj.
Æsufell
5herb. ibúð á 6. hæð. 117ferm. Mikilsameign. útb. 6millj.
Safamýri
4ra herb. ibúð á 1. hæð. 108 ferm. Sér kynding. Allt frágengið.
Verð 9,5 millj.
Nýbýlavegur
142 ferm. sérhæð, ásamt einstaklingsibúð I kjallara. Bilskúr 38
ferm. Malbikuð innkeyrsla. Útb. 10 millj.
írabakki
4ra herb. ibúð á 2. hæð. 95 ferm. Útb. 5,3-5,6 millj.
Miklabraut
5 herb. rishæð 125 ferm. útb. 6 millj.
Húseignin fasteignasala Laugavegi 24, 4. hœð
Pétur Gunnlaugsson lögfr. Símar 28370 - 28040
Staða yfirlœknis
við Sjúkrahús Siglufjarðar er laus til um-
sóknar nú þegar. Staðan veitist frá 1. sept.
n.k.
Umsækjendur hafi haldgóða reynslu i
skurðlækningum. Umsóknir berist stiórn
Sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir 1. júli 1976
með upplýsingum um menntun og fyrri
störf.
Stjórn Sjúkrahúss Siglufjarðar
W Tœknimaður óskast
Heilsuverndarstöð Reykjavikur óskar að
ráða tæknimann til starfa við heyrnar-
deild. Starfið felur i sér viðgerðir á heyrn-
artækjum og eftirlit með tækjum deildar-
innar.
Umsóknum skal skilað fyrir 25. þ.m. til
forstöðumanns heyrnardeildar, sem jafn-
framt veitir upplýsingar um starfið i sima
22400.