Vísir - 25.06.1976, Blaðsíða 6
(
Föstudagur 25. júní 1976
VISIR
Jakob Malik, sendiherra Sovétrikjanna hjá Sameinuöu þjóöunum
lætur „sitthvaö flakka” á fundum S.Þ.
Diplómatískar umrœður í öryggisráðinu:
fAsni/ sagði róssinn
...Jygari/ œpti hinn
Ambassador Sovétríkj-
anna hjá Sameinuðu
þjóðunum, Jakob AAalik,
kallaði Lai Ya-li, starfs-
bróður sinn frá Kína,
,,asna”, en Lai lét hann
ekkert eiga hjá sér og
kallaði AAalik ,,þjóf og
lygara".
Hafa fulltrúar hjá Sameinuðu
þjóðunum ekki i annan tima
heyrt jafn hatrammar orða-
hnippingar á fundi á vegum
samtakanna.
Þetta var undir lokin á fundi
öryggisráðsins i gærkvöld, þar
sem fjallað var um umsókn Ang
óla um aðild að Sameinuðu
þjóðunum. — Voru þessi orða-
skipti birt i þingtiðindum Sam-
einuðu þjóðanna i morgun.
Eftir atkvæðagreiðsluna, þar
sem Bandarikin felldu ályktun
um að veita Angola aðild með
neitunarvaldi, urðu nokkrar
umræður, þar sem Malik og Lai
létu gamminn geysa. — Meðal
annars var þetta sagt:
Malik: „Afstaða Kina til
Angóla i þessu máli er sú
skammarlegasta og hneykslan-
legasta i utanrikisstefnu Kina,
þvi að þar birtist grimulaust,
hvernig Kina styður heims-
valdasinna og kynþáttaofsækj-
endur gegn þjóðfrelsishreyfing-
um.”
Lai: „Lygar herra Maliks
verða ekki til annars en fletta
ofan af honum sjálfum. Sovéski
fulltrúinn ber sig að á sama
klaufalega háttinn og þjófurinn,
sem kallar „Gripið þjófinn!”, til
að leiða athyglina frá sér. —
Þetta er þeim mun fyrirlitlegra,
sem blákaldar staðreyndirnar
sýna, að sósialheimsvalda-
stefna sovétmanna hefur hend-
ur sinar ataðar i blóði ibúa
Angóla.”
Carter með meira en
tilskilinn stuðning
Við bjóðum hvorki sértilboð né
önnur tilboð — heldur lœgsta mögulega
verð......
ÚRVAL ÁVAXTA OG GRÆNAAETIS — FISKUR —
KJÖTVÖRUR — VESTFIRSKUR HÁKARL —
ÚRVAL AAATVÖRU f FERÐANESTIÐ.
Hveiti GOLD AAEDAL 5 Ibs.
KELLOGG'S CORN FLAKES 12oz.
AYTON súkkulaðikex
PIZZA au fromage fyrir 4-6 m.
PI^ZA napolitaine fyrir 4-6 m
PAELLA fyrir 4-6 m.
KAKó 1 KG.
Kr.
247.00
188.00
142.00
639.00
639.00
899.00
371.00
ATHUGIÐ!
Verslið tímanlega til helgarinnar því
nú er lokað á laugardögum.
í dag er opið fró: 9-12 & 13-22.
Komið í Kaupgarð og lótið ferðina borga sig.
MKLABRAUT
FAKU
/ I
Kaupgaróur
.... á leiöinni heim
£
&
Smiöjuvegi9 Kópavogi
Jimmy Carter hefur nú
stuðning nær 200 fulltrúa
f leiri en þá 1.505, sem hann
þarf að hafa á þingi
demókrata til þess að
tryggja sér útnefningu.
Óvissa rikir hins vegar i her-
búðum repúblikana, þarsem sam
keppnin er tvisýn milli Fords for-
seta og Ronalds Reagans. —
Framboðsefni repúblikana-
flokksins þarf að hafa stuðning
1.130 fulltrúa til þess að vera
öruggur um útnefningu flokks-
ins i ágúst.
Ford er sagður kominn með
stuðning rúmlega 1.000 fulltrúa,
meðan Reagan hefur 930 fulltrúa.
— Reagan þykir liklegur til að
draga upp þennan mun i for-
kosningum, sem enn eru eftir.
En úrslit fást ekki fyrr en
komið verður á þingið, og sumir
spá þvi, að það verði ekki við
fyrstu atkvæðagreiðslu.
De Azevedo á bata-
vegi — en óvíst um
þátttöku hans í
kosningunum
Jose Pinheiro de
Azevedo, forsætisráð-
herra, sem af sumum
var talinn eiga mögu-
leika á að sigra i for-
setakosningum Portú-
gals á sunnudag, var
sagður á góðum bata-
vegi i morgun eftir
hjartaslagið, sem lagði
hann i rúmið.
Yfirlæknir Sao Joao-sjúkra-
hússins, þar sem forsætisráð-
herra Portúgals liggur, sagði
þó, aö de Azevedo væri hreint
ekki úr allri hættu og þvi enn á
gjörgæsludeild.
De Azevedo lá meðvitundar-
laus 116 klukkustundir fyrst eft-
ir hjartaslagið, en i gærkvöldi
var hann með fullri rænu og
málhress.
Hann var sá eini frambjóö-
endanna, sem talinn var likleg-
ur til þess að veita Antonio
Ramalho Eanes hershöfðingja
einhverja keppni í kosningun-
um. En Eanes, sem nýtur stuön-
ings þriggja stærstu stjórn-
málaflokka landsins, er sigur-
stranglegastur.
Læknar höfðu ekki talið nema
50% likur á þvi, að de Azevedo
mundi lifa hjartaslagiö af.
Höföu verið gerðar ráðstafanir
tii þess að fresta forsetakosn-
ingunum, ef de Azevedo félli
frá. — Ef hann hinsvegar dreg-
ur sig i hlé, veröur gengiö til
kosninganna.
De Azevedo bauö sig fram
sem óháöur, og þótti llklegur til
þess að laða að sér atkvæði
hinna hófsamari i pólitikinni I
Portúgal. — Er þvi nú spáð, að
þau atkvæði kunni að faUa I
skaut Eanes.
1 Lissabon i gærkvöldi var
efnt tU útifundar af stuönings-
mönnum Eanes og segir í frétt-
um Reuter-fréttastofunnar, að
um 25.000 manns hafi sótt þann
fund. — Samtímis var efnt til
annars útifundar til stuönings
Octavio Pato, frambjdðanda
kommúnista, og herma sömu
fréttir, að um 10.000 manns hafi
sótt þann fund.