Vísir - 23.07.1976, Blaðsíða 13
Útvarp í dag kl. 17.30
„Hef veríð að skrífa frá
því ég man eftir mér"
— segir Þorbjörg Árnadóftir
//Ég hef nú verið að
skrifa meira og minna
frá þvi ég man eftir mér
og hef ætíðhaft gaman af
að skrifa niður bæði
endurminningar mfnar
og skáldsögur"/ sagði
Þorbjörg Árnadóttir höf-
undur ferðaþátta þeirra
sem Brynja Benedikts-
dóttir leikkona les úr í
dag.
Þorbjörg er fædd rétt fyrir
aldamótin siöustu og er ættuð
frá Skútustöðum i Mývatns-
sveit. Hún segir frá þvi i ferða-
þáttum sinum, er hún gekk um
æskustöðvarnar eftir langa
dvöl i Bandarikjunum.
Hún lærði hjúkrun sem ung
stúlka i Danmörku, en hélt siðan
til Bandarikjanna i framhalds-
nám þar sem hún lauk prófi i
heilsuvernd úr háskóla i
Washington. Hún starfaði mikið
við heilsuvernd bæði i New York
og hér heima og meðal annars
var hún yfirhjúkrunarkona á
Vifilsstöðum um skeið.
borbjörg hefur sjálf lesið
ferðaþætti eftir sig i útvarpið
fyrir allmörgum árum.
Fyrri lestur Brynju úr þess-
um ferðaþáttum hefst kl. 17.30.
—SE
Útvarp í kvöld kl. 20.40
„Til umræðu” heitir þáttur
Baldurs Kristjánssonar sem er
á dagskrá útvarpsins i kvöld.
Að sögn stjórnanda þáttarins
verður i kvöld rætt við Harald
Blöndal lögfræðing og Svavar
Gestsson ritstjóra um hugsan-
legar breytingar á islenskri
kjördæmaskipan.
Haraldur á sæti i samstarfs-
nefnd unglingasamtaka lýð-
ræðisflokkanna sem i eru ungir
jafnaðarmenn, ungir fram-
sóknarmenn og ungir sjálf-
stæðismenn. Svavar Gestsson
er mikill áhugamaður um þetta
mál.
Kjördæmaskipán á Islandi
var siðast breytt árið 1959 úr
einmenniskjördæmum i fleir-
menniskjördæmi og var þá mið-
að við að landsbyggðin hefði
betra hlutfall en þéttbýlið.
Siðan hefur gifurleg fjölgun
orðið á suð-vesturhorninu en
ibúafjöldi dreifbýlisins staðið i
stað og nú er svo komið, að
meira en fjórfalt fleiri kjósend-
ur eru að baki þingmanna
reykjaneskjördæmis en þing-
manna vestfjarðakjördæmis til
dæmis.
A Guðurnesjuirt hafa ýmsir
krafist þess, að sérstakt kjör-
dæmi yröi stofnaö fyrir suður-
nesin.
Fram hafa komið tillögur um
breytingar á úthlutun uppbótar-
þingsæta þéttbýlinu til hags-
bóta. Nú eru æ háværari raddir
um, að aftur verði horfið til ein-
menningskjördæmis eða þá
blandaðs kerfis persónubund-
inna kosninga og listakosninga
eins og tiðkast i Þýskalandi.
Ljóst er að stjórnmála-
flokkarnir hafa mjög mis-
munandi hagsmuna að gæta i
þessu máli vegna þess, hve
fylgi er mismunandi eftir lands-
hlutum. Framsóknarflokkurinn
styðst til dæmis við fylgi á
landsbyggðinni og hefur af þeim
sökum, fleiri þingmenn en
kjósendatala gefur til kynna.
Þessi atriði og fleiri munu ef-
laust bera á góma i þættinum i
kvöld sem hefst klukkan 20.40.
—SE
Útvarp í dag kl. 8.45
llallfreður örn Eiriksson les þýðingu sina á tékkneskuni ævintýruni
i morgunstuud barnaiina.
,,Ég hafði lesið mörg
tékknesk ævintýri og orð-
ið hrifinn af og tók mig
því til, og þýddi allmörg
fyrir um það bil tíu árum
siðan", sagði Hallfreður
Orn Eiriksson sem
byrjaði í morgun að lesa
tékknesk ævintýri í
morgunstund barnanna.
„Þetta eru alls konar ævintýri
og fjalla um misjafnt efni eins
og ævintýri yfirleitt, en i þess-
um ævintýrum er þó óvenju
mikið um persónulýsingar”.
Hallfreður þýddi ævintýrin úr
frummálinu, en hann dvaldi i
Tékkóslóvakiu við nám. i
tékknesku og þjóðfræði fyrir
nokkrum árum.
Hallfreður sagði, að þetta
yrðu allmargir lestrar og
hefjast þeir kl. 8.45.
—SE
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 tþróttir.Umsjón: Bjarni
Felixson.
20.00 Sinfóniskir tónleikar frá
útvarpinu i Köln. Flytjend-
ur: Rose Wagemann og Sin-
fóniuhljómsveitin i Vestfal-
en. Siegfried Landau stjórn-
ar. a. „Egmont”, forleikur
op. 84 eftir Beethoven. b.
„Ah, perfido”, konsertaria
op. 65 eftir Beethoven. c.
Forleikur og ástarandlát Is-
foldar úr óperunni Tristan
og Isfold eftir Wagner.
20.40 Til umræðu. Baldur
Kristjánsson sér um þátt-
inn.
21.15 Kórsöngur. Danski út-
varpskórinn syngur sjö
ljóðasöngva eftir Svend S.
Schultz. Höfundurinn
stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan
úr Svartaskógi” eftir Guð-
mund Frimann. Gisli
Halldórsson leikari les (2).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Litli dýrlingurinr.” eft-
ir Georges Simenon.
Ásmundur Jónsson þýddi.
Kristinn Reyr les (16).
22.40 Afangar. Tónlistarþátt-
ur i umsjá Asmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl: 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45:
Morguntónleikar kl. 11.00:
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Frá ólympiuleikunum i
Montreal: Jón Asgeirsson
segir frá. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Römm er sú taug” eftir
Sterling North Þórir Frið-
geirsson þýddi. Knútur R.
Magnússon les (11).
15.00 Miðdegistónleikar.
Tékkneska filharmoniu-
sveitin leikur Slóvanska
svitu op. 32 eftir Vitézslav
Novák, Václav Talich
stjórnar. Hallé-hljómsveitin
leikur „Dóttur Pohjola”,
sinfóniska fantasiu op. 49
eftir Jean Sibelius, Sir John
Barbirolli stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 „Fótgangandi um fjöll
og byggð”. Brynja
Benediktsdóttir les ferða-
þætti eftir Þorbjörgu Arna-
dóttur. Fyrri lestur.