Vísir - 23.07.1976, Side 20
VfSIR
Föstudagur 23. iúli 1976.
Stolnum bíl
ekiðá
Ijósastaur
••
Okumaður stakk af
Stulnum bil var ekið á ljósa-
staur viö Eiði á Seltjarnarnesi i
morgun. ökumaður stakk af og
nú fyrir hádegið haföi ekki tekist
að hafa hendur f hári hans. Bif-
reiðin, sem var af gerðinni Mosk-
witch, sendiferðabili, er mikið
skemmdur.
Sonur eiganda bifreiöarinnar
sem er úr Hafnarfiröi fór á sjó
snemma i morgun og mun hafa
skiliö bifreiöina eftir viö Hafnar-
búöir.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar i morgun er ekki vitað
hvort ökumaður var ölvaður, en
ekki mun hafa fundist nein vin-
lykt i bilnum.
AH
BROTIST
INNÍ
SÖLUTURN
Brotist var inn i söluturn að
Blómvallagötu 10siðastiiðna nótt.
Þjófarnir náðust á staðnum, og
mun þeim ekki hafa tekist að
valda verulegum skemmdum áð-
ur en lögreglan kom á vettvang.
Það munu hafa veriö tveir
hinna svonefndu útigangsmanna
sem hér áttu hlut að máli.
AH
losoði honn
við sorgor-
fréttirnor
Það er varla hægt að hugsa sér
neitt verra en að fá tilkynningu
frá Skattstofunni um að maður
eigi að borga margfaldar tekjur
sinar I gjöld. Ekki var það alveg
svo slæmt hjá Bergmanni Run-
ólfssyni verkamanni I Reykjavik,
en næstum þvl.
„Útigangsmenn í Reykjovík
stórkostlegt vondamól"
— rœtt við Erlend Sveinsson varðstjóra miðborgarlögreglunnar
Þaö eina sem lögreglan getur
gert viö þessa menn er að flytja
þá i fangageymslurnar i svo-
nefndum Hverfisteini, en um
leið og þeir losna þaðan, sem
oftast er eftir skamma stund, þá
eru þeir komnir i miöbæinn
aftur. Oft munu vera fram-
kvæmdar yfir tuttugu þess hátt-
ar handtökur á dag, og alltaf eru
þaö sömu mennirnir sem hafa
þarf afskipti af. I flestum tilfell-
um eru þetta karlmenn sem hlut
eiga að máli, en einstaka konur
eru þó einnig i þessum hópi.
Yfirleitt er þarna um að ræöa
fremur ungt fólk, og oft byrjar
þetta liferni hjá unglingum sem
eru aðeins sextán til sautján ára
gamlir. Slikir menn endast yfir-
leitt ekki lengur en til fertugs,
þá tekur þessi pislarganga loks
enda.
,,Það eru nær ólýsanlegar
þjáningar sem þessir menn
ganga i gegnum, og einnig er
þetta ekki siöur erfitt fyrir alla
aöstandendur þeirra,” sagöi
Erlendur. Þaö sem þessir menn
drekka einna helst, er einhvers
konar rakspiri, svonefndur
portúgaii, en hann er
framleiddur af Afengis- og
tóbakseinkasölu rikisins. Ekki
kvaðst Erlendur skilja tilgang-
inn með þeirri framleiðslu, þvi
varla væri til sá maður sem
bæri þetta i andlitiö á sér. Þeir
einu sem kaupa þennan svo-
nefnda rakspira eru þvi úti-
gangsmennirnir, og þeir nota
hann til drykkjar.
Samkvæmt upplýsingum
Ragnars Jónssonar skrifstofu-
stjóra Afengisverslunarinnar er
þessi svonefndi portúgali aðeins
ein tegund af mörgum rakspira-
tegundum sem „Rikið” fram-
leiðir, og taldi hann fráleitt að
halda þvi fram að vökvinn væri
ekki notaður sem rakspiri.
Ekki taldi Rágnar heldurað
það leysti neinn vanda að hætta
framleiðslu þessarar einu
tegundar, þvi margt skyldra
//Það eru engar ýkjur
að hinir svonefndu rónar
eða útigangsmenn f
Reykjavík eru stórkost-
legt vandamál"/ sagði
Erlendur Sveinsson varð-
stjóri hjá miðborgarlög-
reglunni i samtali við Vísi.
„Margir þetsara manna eru
ákaflega illa farnir, og oft Iegg-
ur af þeim dauninn langar leiðir
vegna þess að þeir þrifa sig
ekki, og yfirleitt forðast venju-
legt fólk allt samneyti við þá.
Fólk veigrar sér jafnvel við að
sitja á sama bekk og þessir
menn þó undir berum himni sé.
Þeir leggja hins vegar útlend-
inga gjarna i einelti, þvi þeir
vikja oft einhverju að þeim,”
sagði Erlendur ennfremur.
„Fortúgalinn” margumræddi.
Lögreglumenn fullyrða að hann
se eingöngu notaður sem
drykkjarvara en ekki sem rak-
spiri eins og gert er ráð fyrir.
Tveir hinna svonefndu útigangsmanna á göngu I miöborg Reykja-
víkur f morgun. Lif þessara ógæfusömu manna er óslitin pislar-
ganga þar til yfir lýkur.
efna væru á boðstólum. Benti ekki talað um að hætta að fram-
hann einnig á að margir leiöa þá.
drykkju kökudropa, og þó væri — AH
..... é
Hann var i nokkra klukkutima
meðal hæstu gjaldenda i
Reykjavik, þó að tekjur hans
hefðu engan veginn hrokkið fyrir
þeim. Heildargjöld hans voru
tæpar sjö milljónir. Þar af útsvar
tæpar 1,4 milljónir. En það þýðir
að brúttótekjur hans heföu átt að
vera um 14 milljónir.
En Bergmann var i frii uppi i
sveit og það kom i veg fyrir að
honum bærust til eyrna þessi
stórmerki. Aður en af þvi gat orð-
ið hafði Skattstofan i Reykjavik
brugðið hart við og leiðrétt.
Það var tölva sem þessi mistök
gerði.
EKG
Falsaðir 5000 króna
seðlar fundnir
Vilja nýtt skipulag
án þess að raska
gamla bœnum
Ákveðið hefur verið að
efna til norrænnar hug-
myndasamkeppni um
skipulag Heimaeyjar og
er skilafrestur til 3. nóv.
og stefnt er að því, að
dómnefnd Ijúki störfum
fyrir áramót.
Dómnefndin hefur fjórar
milljónir króna til umráða og er
þvi til einhvers að vinna.
Hugmyndin að samkeppninni
-
á sér töluvert langa sögu, þvi að
i mai 1974 samþykkti bæjar-
stjórn Vestmannaeyja að efna
til samkeppni um skipulag
bæjarins.
Málið hefur dregist vegna
þess, hve seint arkitektafélögin
á hinum Norðurlöndunum til-
nefndu fulltrúa sinn i dómnefnd-
ina.
Tilgangur samkeppninnar er
sá, aö fá fram hugmyndir um
nýtt skipulag bæjarins án þess
þó aö raska um of gamla bæn-
um.
Lögð er áhersla á, að úti-
vistarsvæði sem fyrir eru fái að
halda sér, svo sem Stakka-
gerðistúnið sem er rétt sunnan
við gamla miðbæinn.
Samkeppnin verður auglýst á
Norðurlöndunum i fagblöðum
arkitekta og stærri dagblöðum.
Formaður dómnefndarinnar
er Bárður Danielsson, tilnefnd-
ur af Skipulagsstjórn rikisins og
arkitektafélagi Islands.
SE
Falsaðir 5000 kr. seðlar komust
I umferð fyrir stuttu, en rann-
sóknarlögreglunni hefur tekist að
upplýsa máliö. Það munu raunar
aðeins hafa verið tveir seðlar sem
komust I umferð, svo ekki er hér
um að ræða stórmál.
Prentari nokkur hér i bæ mun
fyrirnokkrum árum hafa prentað
nokkra 5000 kalla að gamni sinu,
og geymdi þá siöan heima hjá
sér. Það var svo ekki fyrr en fyrir
stuttu að dóttir mannsins var með
gleðskap heima hjá sér að hún
sýndi einhverjum piltum seðlana,
og tóku þeir hver sinn. Siðan
reyndu þeir að borga leigubil með
þeim, en bilstjórinn varð svindls-
insvar og gat bent á piltana. Var
þá hægt að rekja „seðlafalsið” til
föðurhúsanna.
—AH
Kunn kappreiðahross í
Skógarhólum um helgina
Niu hestamannafélög á Suð-
vesturlandi efna til sameiginlegs
hestamannamóts I Skógarhólum I
Þingvallasveit nú um helgina.
Mót þetta hefst á laugardag
klukkan þrjú með dómum gæð-
inga, en til dóms koma um fjöru-
tiu gæöingar frá félögunum og
veröa þeir dæmdir i A- og B-
flokki. Undanrásir kappreiða
hefjast klukkan sjö á laugardags-
kvöldið en keppnisgreinar á mót-
inu verða 250 metra skeiö, 250
metra unghrossahlaup, 300 metra
stökk, 800 metra stökk og 1500
metra brokk.
Til keppni i kappreiðum móts-
ins eru skráð um sextiu hross og
eru i beirra hóDÍ mörg kunn kaDD-
reiðahross. Má til dæmis nefna að
I skeiðiö mæta þeir Vafi Erlings
Sigurössonar og Sindri frá
Laugarvatni. I folahlaupinu
verða meðal annarra Blesa
Sigurðar Bjarnasonar og Sleipnir
Harðar G. Albertssonar, en i 300
metra stökkinu Glóa Harðar G.
Albertssonar og Sörli frá Laugar-
vatni. Af hrossum i 800 metra
stökki má nefna Þjálfa Sveins K.
Sveinssonar, Geysi Helga og
Harðar Harðarsona og Rosta
Baldurs Oddssonar.
—AHO