Vísir - 30.07.1976, Qupperneq 3
VISIR Föstudagur 30. júll 1976.
3
Verslunarmannahelgin:
Búist við mikilli
umferð um allt land
A öllum aöalvegum landsins má búast viö mikilli umferö.
„Viö eigum von á þvi aö um-
feröarstraumurinn veröi þung-
ur á hringveginum,” sagöi
Siguröur Agústsson hjá
umferðarráði, þegar Visir
spuröist fyrir um viöbúnaö um-
feröarráös fyrir mestu feröa-
helgi ársins sem nú fer i hönd.
„Fólk vill fara betri vegina
þar sem nýbúið er að hefla.
Annars er ekki gott að segja um
það hvert straumurinn muni
liggja. Þó má búast við að tölu-
verð umferð verði á leiðunum
að helstu samkomustöðunum
hér sunnan lands og vestan, sér-
staklega ef vel viðrar.”
Jón Múli tekur við af
Árna Þór
Sigurður sagði, að umferðar-
ráð yröi aö venju með upp-
lýsingamiðstöð i húsakynnum
lögreglunnar við Hverfisgötu.
Miðstöðin mun safna upplýsing-
um um umferð, ástand vega,
veður og annað sem ferðafólki
kann að vera akkur i. Starfsem-
in hefst kl. 13 i dag.
Þá verða beinar útsendingar I
útvarpi frá upplýsingamiðstöð-
inni nokkrum sinnum á dag á
föstudag, laugardag, sunnudag
og mánudag.
„Við höfum ákveðið aö
brydda upp á nýjung i þvi sam-
bandi sem við vonum að falli i
góðan jarðveg hjá fólki,” sagði
Sigurður. „Við höfum fengið
þekktan mann til þess að vera
þulur i þáttunum. Það er Jón
Múli Arnason.”
í þessum þáttum verður alls
konar upplýsingum, áskorunum
og áminningum komið á fram-
færi, sérstaklega ætluðum þeim
sem meö ökutæki fara. Upp-
lýsingamiðstöðin mun gefa upp-
iýsingar um það hvar F.Í.B. bil-
arnir verða á hverjum tima, en
miðstöðin hefur talstöðvarsam-
band við þá.
Meiri og minni viðbún-
aður um allt land
„Það verður meiri og minni
viðbúnaður hjá umferöarlög-
reglunni um allt land,” sagði
Óskar ólafsson hjá umferðar-
deild Reykjavikurlögreglunnar.
„Viðbúnaðurinn beinist þó
ekki mikið að eftirliti, heldur
fyrst og fremst leiðbeiningum
og annarri aðstoð sem þörf
verður á. M.a. verða 6 lögreglu-
bifreiöar staðsettar i' öllum
lantísfjörðungum.
Við höfum verið að vinna
Aðeins jeppar og stærri bilar eiga greiða leið um óbyggðirnar um
þessa verslunarmannahelgi.
Jón Múli sér um umferðarút-
varpið um helgina.
nokkuð að updirbúningi þessar-
ar helgar. Gerðar hafa verið
skyndikannanir á bifreiðum og
hafa númerin verið klippt af á
annað hundrað bifreiðum, en
annars hafa bilarnir yfirleitt
verið i góðu lagi.
Við reiknum frekar meö aö
umferðin dreifist mikið um
þessa helgi. Siðastliðnar tvær
verslunarmannahelgar hafa
verið færrj útisamkomur og er
fólk búið að læra að dreifa sér
um landið. Það er alveg af sem
áður var, að mannfjöldinn
hrannaðist allur á tvo til þrjá
samkomustaði.”
Lögreglan á Selfossi
með 6 bila i gangi
Um hverja helgi leggur mikill
fjöldi reykvikinga leið sina
austur fyrir fjall og til Þing-
valla. Þarf varla að búast við að
sá straumur verði minni nú,
nema siður sé.
Hjá lögreglunni á Selfossi
fengum við þær upplýsingar að
viðbúnaöur þeirra beindist fyrst
og fremst að löggæslu á Rauð-
hettumótinu að Úlfljótsvatni.
Að öðru leyti yrði löggæslan
hjá þeim eins og um venjulega
helgi, nema að þeir yrðu með
einn bil i Þjórsárdalnum. Alls
verður lögreglan á Selfossi með
6 bila i gangi um helgina.
Hvert liggur leiðin?
Enginn þeirra aðila sem Visir
haföi samband viö treysti sér til
að spá um aösóknina á hinar
ýmsu útisamkomur. Hjá
Umferðarmiöstöðinni i Reykja-
vik fengum við þær upplýsingar
siðdegis i gær, að 7 farmiöar
hefðu selstaö Húsafelli, enginn i
Galtalækjarskóg, en 280 að Úlf-
ljótsvatni. — SJ.
Brendan bíður austanbyrjar
'j Hin nýja kvenréttindabar- ótta
— mannréttindabaróttan
„Það er allt tilbúið núna og
Brendan legguraf stað strax og
við fáum austanbyr”, sagði
Þrándur, færeyski skipverjinn á
skinnbátnum Brendan, við Visi.
Brendan liggur nú utan á
Albert litla, við varöskipa-
bryggjuna. Þeir félagar voru
með hann inni I Bátanausti I
nokkra daga og mökuðu hann
þar feiti, til aö þétta húðirnar.
„Það hefur tekist vel”, sagöi
Þrándur. „Báturinn lekur ekk-
ert núna. Kosturinn er líka allur
kominn um borð þannig að það
er ekkert að vanbúnaöi”.
Tim Severin, leiðangursstjóri,
sagði Gunnari Brendan
(Eyjólfssyni) um daginn, aö
þeir ætluðu að bfða eftir austan-
átt. Gunnar ráðlagði þeim aö
biöja heilagan Brendan um
þann byr.
Ef þeir félagar ætla af íslandi
næstu daga, ættu þeir að huga
að þessum orðum. Héðan siglir
Brendan til Grænlands, á leið
sinni til Bandarikjanna.
—ÓT
\
Brendan liggur utan á v/s
Albert.
„Mergurinn málsins, og það
sem 19. júni boðar núna, er að við
konurnar verðum að fara að
takast á við ábyrgð. Við liöfum
fengið þau réttindi sem fyrstu
kvenréttindakonurnar börðust
fyrir. Nú þurfum við að einbeita
okkur að viðhorfum okkar
sjálfra”, sagði Erna Ragnars-
dóttir ritstjóri 19. júni, ársrits
Kvenréttindafélags islands, i
samtali við Visi.
Blaðið kemur út I dag. Það er 76
siður að stærö og mjög fjölbreytt
að efni. Meðal þess sem þar má
merkilegast telja er „Hringborð á
Hellu”. Þær Björg Einarsdóttir,
Guðrún Friögeirsdóttir, Linda
Rós Michaelsdóttir, Beta Einars-
dóttir og Margrét R. Bjarnason
komu saman einn sunnudag I vor
austur aö Hellu og ræddu þar um
fortið og framtið i stööu karla og
kvenna.
Þá er i blaöinu viðtal við
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur i Spil-
verki þjóðanna og ber það heitiö
„Við flytjum boöskapinn um ást-
ina”. Einnig eru viötöl viö 4 konur
sem allar eru verkfræðingar.
Rætt er við stefnend'ur í máli
þingskrifara gegn Alþingi og
fjallað um máliö. Anna Siguröar-
dóttir skrifar annál kvannaársins
og sagt er frá leikritunum
Saumastofan og Fimm konur.
Eitt af þvi sem Kvenréttindafé-
lagið hefur bent á eru hin tak-
mörkuðu afskipti sem feður hafa
yfirleitt af börnum sinum. 1 grein
sem ber heitið Dagur með pabba
er sagt i máli og myndum frá þvi
hvernig dagurinn liður hjá litlum
dreng, sem er að mestu leyti i
umsjá föður sins á daginn.
A forsiðu blaösins er litmynd
frá stóra útifundinum á kvenna-
fridaginn 24. okt. s.l. Einnig fylgir
þvi stórt póstkort frá útifund-
inum. Blaöið er til sölu i blaðasöl-
unni hjá Eymundsson, i Nesti,
Eden-Hveragerði og á skrifstofu
K.R.F.I.
-SJ.
Forsiöa ársrits Kvenréttindafé-
lags tslands 1976