Vísir - 08.08.1976, Page 11
vism Sunnudagur 8. ágúst 1976
1 1
TIÐ NYTT
TLÍF
varöhundi hverfisins, Gæa Púkasyni.
Merk bygging
Eitt merkasta húsið i Þing-
holtunum er bingholtsstræti 13.
Það var byggt 1865. Það er
kannski ekki merkast vegna
aldurs sins, heldur vegna þeirr-
ar endurbyggingar sem þar fer
fram i sumar. Innkaupastofnun
Reykjavikurborgar auglýsti
húsið til sölu með friðlýsingar-
kvöðum, þannig aðengar breyt-
ingar má gera á þvi nema með
leyfi safnvarðari Árbæjarsafni.
Eigandi hússins er Þuriður
Bergmann Jónsdóttir, glugga-
skreytingarmaður, og hefur
hún, ásamt sonum sinum unnið
ötullega að endurbyggingunni.
Hún flutti inn i eitt herbergi i
húsinu fyrir tæpum mánuði með
sonum sinum og 81 árs gamalli
móður sinni og h'tilli dóttur.
sinnaf mikilli natni og ótrufluð af áhorfendum
Liggur undir skemmd-
um ef ekki fæst
fjármagn
Þegar Visir leit við, var allt á
rúi og stúi, þvi verið var að
leggja nýja raflögn. Aður hafði
kjallarinn verið steyptur upp á
nýtt og nýtt gólf verið sett á
jarðhæðina. Þuriður hafði varla
tima til að sinna okkur, þvi að
mörgu varað hyggja. Hún sagði
að hún gæti varla lokið nauðsyn-
legustu endurbótum i sumar,
s.s. að setja nýtt þak á húsið,
vegna.fjármagnsskorts, þvi hún
þyrfti að standa við afborganir
sinar af húsinu. Ef ekki yrði úr
þessum lagfæringum, lægi allt
húsið undir stórskemmdum.
Varðhundur hverfisins
Hún var þó hin bjartsýnasta.
Ekki gat hún látið hjá liða að
sýna okkur nýja hundinn sinn,
en tikin sem hún átti áður, fékk
slag og dó, þegar þau fluttu i
Þingholtið. Þessi nýi hundur
hennar heitir Gæi Púkason og er
sonarsonur hasshundsins Prins.
Þuriður sagði að ekki veitti af
varðhundi i hverfið, þvi úti-
gangsfólk sækti mjög harkalega^
aðhúsinu. Þaðhefurenda staðið
autt um árabil og fólkið þvi
haldið að það gæti stungið sér
þar inn. Að visu var Gæi ekki
hár i loftinu þegar okkur bar að,
en á stuttum tima verður hann
fullvaxinn og þá ekki minni en
sæmilega alinn kálfur.
Tannlæknastofa i
aldargömlu húsi
tnæsta húsi við Þuriði. Þing-
holtsstræti 11, er Guðmundur
Arnason með tannlæknastofu á-
samt öðrum tannlækni. Guð-
mundur keypti þetta hús fyrir
'nokkrum mánuðum og hefur
látið mála það allt hátt og lágt i
bláum lit. Hann sagðist vera
hrifinn af þessum gömlu húsum,
auk þess sem staðurinn væri
mjög góður.
Nýtt blóð —
nýtt lif
Á þeim góðviðrisdegi sem
visismenn notuðu til að rölta um
bingholtin mátti sjá marga að
vinna við hús sin. Auk þess eru
margir aðrir, sem nýlega hafa
komið sér fyrir og ætla að nota
næstu ár til að fegra hús sin og
treysta.
Allt um það er vist, að innan
fárra ára verður komið nýtt
blóð og nýtt iif i þetta hverfi,
sem var dáið.
—RJ
Mörg húsanna eru næstum falin milli trjánna, sem einu sinni var
plantað sem smáhrislum upp við húsvegginn. En á mörgum ára-
tugum hafa þessi tré vaxiö vel og geyma húsin bak við Iaufskrúöiö.
— Myndirnar tók Jens Aiexandersson.
Þrúövangur er I dag útibú frá Menntaskólanum I Reykjavlk, en
Tónlistarskólinn haföi þar lengi húsnæöi.
Horft suöur Miöstræti
x