Vísir - 03.09.1976, Side 3
visir Föstudagur 3. september 1976
Tölur um raforkuverð frá
Kröfíu út í hött,
segir iðnaðarráðherra
„Ég tel þær tölur sem fram
komu á Fjórðungsþingi norð-
lendinga um raforkuverð frá
Kröflu vera alveg út i hött,”
sagði Gunnar Thoroddsen iðn-
aðarráðherra isamtali við Visi i
gær.
Kveðst hann að visu ekki hafa
séð umrætt erindi, og ekki vita
um þærforsendur sem þar væru
gefnai^, en þessar tölur væru
allavega ekki réttar. Sagði hann
að framleiðsluverð á kwst. frá
Kröflu væri um 2kr., eða svipaö
og frá Sigölduvirkjun.
Gunnar sagði ennfremur, að
ekki mætti hafa i huga núver-
andi orkunotkun á Norðurlandi,
þegar verið væri að reikna út
verð frá Kröflu. Væri þannig
viðmiðun notuð, væri ekkert ó-
eðlilegt að rafmagnið yrði dýr-
ara.
„Það er hins vegar fyrirsjá-
anleg mikil aukning á orkuþörf,
bæði til atvinnurekstrar og
húsahitunar. Er áætlað að
a.m.k. vanti um 16 Mw, sagði
Gunnar að lokum.
—AH
„Eins og kalt steypibað"
Ástœða til að athuga þetta
nánar, segir Ingvar Gíslason,
varaformaður Kröflunefndar
um raforkuverðið
Kaldur ís á heitum degi.
„Menn likja þessu við kalt
steypibað,” sagði Gunnar Har-
aldsson hafræðingur
Framkvæmdastofnunar rikis-
ins þegar Visir spurði hann
hver viðbi ögð manna hefðu orð-
iöviö upplýsingum hans um raf-
orkuverð á Norðurlandi.
Gunnar sagði i erindi sem
hann flutti á þingi Fjórðungs-
sambands Noröurlands, að raf-
orkan frá Kröflu yrði allt að
200% dýrari en raforka Lands-
virkjunar.
„Það er allt of dýrt að fram-
leiða orkuna i Kröflu,” sagði
Gunnar. „Miöað viö það hvaö
fjármagn er dýrt i dag er mark-
aðurinn fyrir orku frá Kröflu
ekki nógu stór til aö réttlæta þá
óhemjulegu fjárfestingu sem
þar á sér stað.
Þær tölur sem ég gaf upp eru
það sem allir vissu fýrir. Þetta
hafði aðeins ekki verið sagt áð-
ur.”
Ástæða til athugunar
„Mér sýnist þessar tölur vera
þannig fram settar, að fyllsta á-
stæða sé til að athuga þær nán-
ar,” sagði Ingvar Gislason
varaformaður Kröflunefndar I
samtali við Visi i gær.
Hann kvaðst þó ekki hafa haft
tækifæri til þess ennþá og væri
þvi ekki við þvi búinn að gagn-
rýna þær i blaðaviðtali.
—SJ
Tækjabúnaður Kröfluvirkjunar er sem óðast að koma á virkjunarstaðinn og viða kassar með tækjum i
stöðvarhúsinu. En deilurnar um rafmagnsverðið eru orðnar háværar löngu áður en rafalarnir eru farn-
ir að snúast. Þessa mynd tók Loftur Ásgeirsson, Ijósmyndari Visis nyrðra á dögunum.
Flugfreyjur í
tískuklœðum
í háloftunum
Flugfreyjur hjá dótturfyrirtæki
Flugieiöa, International Air
Bahama, hafa tekið upp þá ný-
breytni i fiugi frá Evrópu til
Bandarikjanna að sýna tiskufatn-
að frá tiskuhúsinu Island para-
dis Fashions.
Flugiö vestur um haf tekur um
tiu kiukkustundir með miliilend-
ingum og þegar þær hafa fram-
reitt kvöldmat og drykki skipta
þær um hlutverk og bregða sér i
tiskufatnaöinn. i sætisbökum
flugvélanna er auglýsinga-
bæklingur frá tiskufyrirtækinu á-
samt verðlista.
Frétih' herma að farþegar hafi
tekið þessari nýbreytni vel á
þessari löngu fiugleið.
, —RJ
— Ljósm. LÁ
TEKNIR VIÐ AÐ
SMYGLA HASSI
INN Á VÖLLINN
Þaö telst ekki orðið i frásögu
færandi þótt menn séu teknir við
aö reynaaðsmygla einhverju út
af Keflavikurflugvelli. En aftur
á móti er það óvenjulegt þegar
menn eru teknir fyrir að smygla
inn á völlinn.
Það gerðist þó seint I fyrra-
kvöld, er lögreglan handtók tvo
bandarikjamenn sem voru á
leiðinni inn á völl. 1 fórum
þeirra fannst þó nokkuð magn
af hassi, eða um 200 til 250
grömm.
Hassið höfðu þeir keypt fyrir
utan völlinn, eða náúar til tekið i
Keflavik. Þegarþeir fóru útfyrr
um daginn, var grunað, að þeir
væru að fara i einhvern sUkan
innkaupaleiðangur, og þvi hafði
lögreglan góöar gætur á þeim
þegar þeir komu til baka.
Báðir mennirnir hafa verið
settir undir lás og slá á meðan
lögreglan á Keflavikurflugvelii
vinnur að rannsókn málsins og
kannar af hverjum þeir hafa
keypt hassið. —klp—