Vísir - 03.09.1976, Blaðsíða 17
vism Föstudagur 3. september 1976
Bíómyndin í kvöld:
OSKARAR IAÐ-
ALHLUTVíRKUM
Humphrey Bogart og Kim Hunter veröur ekki svefnsamt þegar vandamál blaðamannsins dynja yfir,
Blaðamenn hafa átt nokkru
fylgi að fagna I kvikmynda-
heiminum i gegnum árin.
Blaðamenn kvikmyndanna hafa
verið illa sofnir náungar með
skitugan filthatt og i krumpuð-
um jakkafötum, ekki ólikt þvi,
sem þeir i rauninni eru.
Blaðamannamyndirnar eru
orðnar margar, Nærtækust er
„All the President’s Men” um
blaðamennina á Washington
Post., þá má nefna „Front
Page” sem Háskólabió sýndi
fyrir stuttu og við „Citizen
Kane” ættu einnig allir að kann-
ast.
1 kvikmyndunum eru blaða-
mennirnir harðir i horn að taka
og með gamansama frasa á
lausu, sem sagt alveg tilvalið
verkefni fyrir Humprey Bogart,
sem einatt lék náunga með
„harða skel og mjúkan kjarna”.
1 myndinni „Deadline
U.S.A.”, sem sjónvarpið sýnir i
kvöld, leikur Bogart ritstjórann,
sem ákveður að gefast ekki upp
fyrir andstæðingunum þótt þeir
séu búnir að kaupa undan hon-
um blaðið. Ed Begley leikur að-
stoðarritstjórann og Paul Stew-
art iþróttafréttaritarann, sem
flækir mafiunni inn I.spilið og
handtekur að lokum eftirlýstan
glæpamann.
„Deadline U.S.A.” var gerð
árið 1952 og er hún ein af fyrstu
myndunum sem Richard
Brodcs vann að sem leikstjóri.
Richard Brokks (ruglið honum
ekki saman við Mel Brooks, sem
gerði „Blazing Saddles” og
„Young Frankenstein”) var
upphaflega sjálfur iþrótta-
fréttaritari og þvi blaðamanna-
lifinu kunnungur. Afskipti hans
af kvikmyndum hófust I gegn-
um ritstörf hans, hann skrifaði
handrit og fór síðan að leikstýra
kvikmyndunum sem gerðar
voru eftir þeim. Brooks samdi
sjálfur handritið að , .Deadline
U.S.A.” Raunar hefur Richard
Brooks þótt mun aðsópsmeiri I
handritagerð en kvikmynda-
leikstjórn og slnum einu
Óskarsverðlaunum veitti hann
viötöku fyrir handritaskrif.
Við sáum siðast til leikstjór-
ans Richard Brooks er Stjörnu-
bió sýndi „The Heist” (Banka-
ránið) með Warren Beatty og
Þessi gamla mynd af Humphrey Bogart er frábrugðin þeim, sem
við eigum að venjast.
Föstudagur
3. september
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Leikir i
fjörunni” eftir Jón Óskar.
Höfundur les (7).
15.00 Miðdegistónleikar.
Hljómsveitin Philharmom'a
I Lundúnum leikur hljóm-
sveitarsvitu ur „Túskild
ingsóperunni” eftir Kurt
Weill, Vals eftir Otto
Klemperer og valsinn
„Vinarblóð” og forleikinn
' að „Leðurblökunni” eftir
Johann Strauss: Otto
Klemperer stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Ferðaþættir eftir Bjarna
Sæmundsson fiskifræðing
Óskar Ingimarsson les úr
bókinni ,,Um láð og lög”
(1).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson fyltur þáttinn.
19.40 iþróttir Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
20.00 Sinfóniskir tónleikar frá
svissneska útvarpinu.Dorel
Handman og La Suisse
Romandehljómsveitin leika
Pianókonsert nr. 4 i G-dúr
op. 58 eftir Beethoven.
Hjómsveitarstjóri: Júrí
Ahronovitsj.
20.40 Félag bókagerðarmanna
og konur i þeirra hópi.
Þórunn Magnúsdóttir flytur
fyrra erindi sitt.
21.05 Hljómskálatóniist frá
útvarpinu i Stuttgart Guð-
mundur Gilsson kynnir.
21.30 Útvarpssagan: „öxin”
eftir Mihail Sadoveneu
Dagur Þorleifsson les
þýðingu sina (3).
22.00 Fréttir.
22.15. Veðurfregnir. Til
umræðu: Astand og horfur i
fslenzkum landbúnaði.
Baldur Kristjánsson ræðir
við Gunnar Guðbjartsson,
formann Stéttarsambands
bænda og Guðmund
Sigþorsson, deildarstjóra i
la ndbú na ða rrá ðune yti nu.
22.40 Afangar.Tónlistarþáttur
I umsjá Ásmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
3. september
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Fjallagórillan.Hátt uppi
I fjöllum Zaire-rikis i
Mið-Afriku er apategund,
sem hætt er við að deyi
bráðlega út af manna völd-
um. Einn maður, Adrien
Deschryver, berst þó fyrir
þvi, að górillunni verði
sköpuð fullnægjandi lifsskil-
yrði. I þessari bresku
heimildarmynd er lýst lifn-
aðarháttum górillunnar og
vinsamlegum samskiptum
manns og apa. Þýðandi og
þulur Björn Baldursson.
21. Siðustu forvöð (Deadline
U.S.A.) Bandarisk biómynd
frá árinu 1952. Aðalhlutverk
Humphrey Bogart, Kim
Hunter, Ethel Barrymore
og Ed Begley. Eigendur
dagblaðs nokkurs selja það
keppinautum sinum. Rit-
stjórinn reynir að koma I
veg fyrir sölu og gefur blað-
ið út, meðan málið fer fyrir
rétt. Samtimis þessum
erfiðleikum er ritstjórinn að
flettaofan af ferli mafiufor-
ingja, sem leikið hefur einn
blaðamanninn illa. Þýöandi
Jón Skaptason.
22.55 Dagskrárlok.
Goldie Hawn fyrir rúmu ári. Sú
mynd var svipað og margar
aðrar myndir Brooks, þar á
meðal myndin i kvöld,
skemmtileg ásýndar en skildi
þó litið eftir.
Fyrsta andhetja kvik-
myndanna, Humprey Bogart,
var fremur illa fyrirkölluð i
„Deadiine U.S.A.” og „Battle
Circus”, sem hann lék I fyrir
sama leikstjóra áriö eftir, jafn-
ast heldur hvergi við hans bestu
myndir.
Kvikmy ndaheimurinn I
Hollywood veitti Bogart fá góð
tækifæri framan af, þótt hann
ætti aö baki langan feril i minni-
háttar hlutverkum.
Borgart var gripinn, þegar
annar leikari brást, til að leika
bæði I „High Sierra” og „Malt-
ese Falcon”.
Þeir i Hollywood sáu þaö ekki
fyrir, að litli, ljóti maðurinn
meö hásu röddina og I fötum
sem aldrei virtust passa á hann,
yrði átrúnaðargoð kvenna og
karla út um allan heim.
Þeir áttuðu sig þó á þvi eftir,
að Bogart sló I gegn með
myndinni „Casablanca”. árið
1943. Niu árum siðar fékk hann
óskarinn fyrir „African
Queen”.
Af öðrum þekktum myndum
hans má nefna „The Treasure
of the Sierra Madre”, „Casa-
blanca”, „Ina Lonely Place” og
„The Big Sleep”.
Kim Hunter er einnig i hópi
Óskarsverðlaunaþega. Hún
leikur aðalkvenhlutverkið i
myndinni í kvöld. Hunter hlaut
verðlaunin er hún lék með
Marlon Brando I „A Streetcar
Named Desire” eftir Elia Kaz-
an. Hunter hefur varið mestum
hluta ferils sina á leiksviði en þó
birst I kvikmyndum af og til.
Slðast sást hún i „Apaplánetu-
myndunum’ og þáttunum um
„Töframenninn” i sjónvarpinu.
Nú og þriðju Óskarsverð-
launahafinn i myndinni i kvöld
er sú aldna Ethel Barrymore,
sem yfirleitt lék góðhjartaðar
gamlarkonur imyndum slnúm.
Ethel var af þeirri frægu
Barryihore ætt, sem átti stóran
hlut i bandarisku leikhúslifi á
fyrri hluta aldarinnar.
Ed Begley er fjórði óskars-
verðlaunahafinn, sem leikur i
myndinni i kvöld. Hann fer með
hlutverk aðstoðarritstjórans.
Begley er þekktastur fyrir leik
sinn i myndinni„Twelve Angry
Men”, en mörgum er hann
einnig eftirminnilegur i dollara-
myndinni „Hang ’em High”.
— Jón B.
Af hverju bara að biðja um „litfilmu"
þegar þú getur fengið AGFA