Vísir - 03.09.1976, Blaðsíða 7
VISIR Föstudagur 3.
september 1976
Umsjón:
Guðmundur Pétursson.
Óeirðir í hverfum
hvítra í Höfðaborg
Kynþáttaóeirðir
S-Afriku breiddust i gær
ut i hverfi hvitra i
Höfðaborg, þar sem
tveir kynblendingar létu
lifið og nokkrir slösuðust
i átökum.
Um 3,000 kynblendingar efndu
til mótmælaaðgerða i aðal
verslunarhverfi hvitra i Höfða-
borg i gær, en lögreglan dreifði
mannfjöldanum og beitti til þess
táragasi og kylfum.
Búðargestir flýðu i' ofboði úr
hverfinu, en bankar og fleiri
fyrirtæki neyddust til að loka,
þegar ólift varð fyrir táragasinu,
sem beitt var ótæpilega.
í óeirðum siðustu ellefu vikna
hefur ekki fyrr komið til átaka i
borgarhluta hvitra.
w r
INDIANAR RAÐAST A
MÁLMLEITARMENN
Rikisstjórn Brasiliu
hefur fyrirskipað, að
ólöglegir tinmálmleit-
armenn á landsvæðum
indiána skuli reknir
þaðan burt.
Landsvæðið, sem um er að
ræða, er hinn svokallaði „Týndi
heimur” úr sögu Arthur Conan
Doyles um furðuskepnur fom-
aldar, enþað liggur undir rótum
fjallsins Roraima.
Stjórnin hefur gripið til þess
að reka burtu málmleitarmenn-
ina eftir árás 100 indiána á án-
ingarstað þeirra i Surucucu I
Roraima-héraðinu á dögunum.
Málmleitarmenn hafa verið
ágengir á þessu svæði, sem
raunar er friðlýst og nýtur
verndar stjórnarinnar. Hafa
indiánar ýfst við og árekstrar
milli þeirra ogþessa flökkulýðs
orðið æ tiðari.
Frœndi C arters
í fangelsinu
Það er greinilegt á óeirðunum i
gær, að kynblendingar, sem um
áranna bil hafa haldiðsig utan við
jafnréttindabaráttu blökku-
mannahafa snúist á þeirra band.
Lögreglan segir, að i öðrum
átökum i gær hafi einn kynblend-
ingur fallið fyrir kúlu lög-
reglunnar, þegar hún hóf skothrið
á æstan múg i hverfi þeirra i
Hanover Park, utan við Höfða-
borg. Hafði múgurinn látið grjót-
inu rigna á lögreglumennina.
Sonny Leon, leiðtogi verka-
mannaflokks kynblendinga, vill
kenna handtökum á leiðtogum
kynblendinga um, að þeir hafa nú
risið upp. „Fólk gripur til slikra
ráða, þegar leiðtogar þess hafa
veriðlokaðir inni, og enginn er til
að tala máli þess,” sagði hann.
Minni verðbólga
Austurrikismenn virðast hafa
snúið við blaðinu frá þvi i fyrra,
þegar heildar þjóðarframleiðsla
þeirra minnkaði um 2% frá þvi
árið áður. í skýrslu frá OECD
segir, að framleiðsluaukning
Austurrikis á þessu ári fari yfir
3%.
Hinsvegar er þvi spáð, að við-
skiptahallinn verði meiri en i
fyrra, þegar hann komst I 5,610
milljónir austurriskra skildinga.
Efnahagsstofnun Austurrikis
segir, að neysluvarningur þar I
landi hafi hækkað á árinu, en sú
hækkun muni þó ekki fara fram
úr 7,5%. En verðbólgan I fyrra
var um 8,4%.
r, - ?
4 WARt-n'
iip oNE PRlr(f.rfí
" -Jl CíWl FUIL
pueli: iMQLífty
.1
Fangauppreisnín
Fangar i fangelsinu i Hull gerðu uppþot, eins og sagt var frá hér á
siðunni i gær, og er þessi mynd tekin af nokkrum þeirra uppi á þaki
fangelsins. Vildu þeir mótmæla, vegna þess að 4 fangaverðir hefðu
lagt hendur á einn fanga, og kröfðust rannsóknar. —Samtlmis þvi
berast fréttir af pyndingum breta á föngum á Norður-trlandi, sem
sagt er frá hér fyrir neðan. En I tugthúsinu I Hull eru einmitt nokkr-
ir irskir hryðjuverkamenn.
1 öryggisskyni varð að flytj:
frænda Jimmy Carters, fram
bjóðanda demókrataflokksins, ú
Vacaville-fangelsinu við Sai
Francisco til Soledad-fangels
isins, þar sem auðveldara er ai
iita eftir þvf, að fangar verði ekk
hvorum öðrum til miska.
William Carter Spann, sem
situr inni fyrir bilþjófnaö, vopnaf
rán, og brot á náðunarreglum
segir, að einn meðfanga sinns
hafi ráðist að sér með hnif fyrii
mánuöi eða svo. Fangelsisyfir-
völdum hefur þó ekki tekist að fá
þá frásögn hans staðfesta.
í blaöaviötali nýlega sagði
William Spann: „Ég var núna á
dögunum að fá bréf frá Jimmy
frænda, þar sem hann segir, að ég
sé enn einn úr fjölskyldunni, og
vissulega muni hún ekki sleppa
hendi af mér.”
Bretar œfir út í íra
í breskum blöðum i
morgun spegiast sömu
gremjulegu viðbrögðin
og hjá stjórn verka-
mannaflokksins við
þeirri ákvörðun írska
lýðveldisins að kæra
fyrir mannréttindadóm-
stól Evrópu meðferð
breta á irskum föngum.
Kæran byggist á skýrslu mann-
réttindaráðs Evrópu, þar sem
kemur fram, aö allt fram til 1971
hafi fangar verið beittir pynding-
um i fangelsum á N-lrlandi. Hafi
þeir verið neyddir til að standa
langtimum saman viö vegg, hett-
ir verið dregnir yfir höfuð þeirra
og hljóðhimnurnar látnar þola
ærandi hávaða.
Merlyn Rees, sá ráðherrann
sem fer með málefni N-lrlands,
veittist i gær beisklega að stjórn-
inni i Dublin fyrir að grafa upp
liöna tið frá þvi fyrir fimm árum
eða lengra. Sagði hann þaö eng-
um til góðs, nema hryðjuverka-
mönnum.
Fjársjóðsrœningjar
plága i Bretlandi
Margan drenginn
dreymir um fólgna
fjársjóði, en það er eins
og sá draumur fylgi
mönnum á Bretlandi
lengi fram eftir árum.
Hafa stjórnvöld þar i
huga, að setja hömlur
á fjársjóðsleitirfullorð-
inna, sem þykja ganga
nokkuð langt.
Knúnir áfram af ágóðavon-
inni láta „fjársjóðsræningjarn-
ir”, eins og þeir eru kallabir i
Bretlandi, greipar sópa um
forna staði og minjar. Hafa þeir
færst i aukana með hverju ár-
inu.
Illu heilli eru þeir ekki lengur
vopnaðir skóflunni einni, heldur
hafa margir tekið tækninýjung-
ar eins og málmleitartæki i
þjónustu sina, sem eykur mjög
möguieika þeirra.
Fornleifafræöingar barma
sér sáran undan ágangi þessara
áhugamanna sem þeir segja
spilla fornfræðiiegum stöðum
og minjum áöur en sérfræðing-
ar fá borgið sögulegum verð-
mætum. Segja þeir hafa verið
mikið brögð að þvi að ómetan-
legir fornmunir eyðileggist
vegna átroðnings „fjársjóðs-
ræningjanna”.
Umhverfisverndarsinnar
hafa gengiö i lið með fornleifa-
fræðingunum og segja ljótt að
sjá hvernig viöskilnaðurinn sé
eftir uppgröft þessara viðvan-
inga. Þeir segja „ræningjana”
engu betri en moldvörpur, sem
skilji landið eftir gapandi i hol-
um.
Svo er nú komið, aö fornleifa-
fræöingar þora ekki fyrir sitt
litla llf að láta það spyrjast ef
þeir finna eitthvað, sem slægur
þýkir i. Einhvers staðar I
Burckinghamskíri eru þeir aÖ
grafa um þessar mundir eftir
minjum frá veru rómverja á
Bretlandseyjum. Er grafiö á
vöktum allan sólarhringinn til
þess að verða á undan „ræn-
ingjunum”, þvi grunur leikur á
þvi, að rómverjar hafi fólgiö
fjársjóð á þessum staö, sem
haldið er leyndum.
Stjórnvöld hafa i huga aö leiða
i lög bann viö notkun málm-
leitartækja I þessu skyni, og
strangar refsingar fyrir óleyfi-
legan uppgröft á stöðum, sem
friðlýstir hafa verið.
Svo ákafir eru þessir áhuga-
menn i leit sinni, að þeir tefla oft
i tvisýnu með lif sitt. Göng, sem
þeir hafa grafiö, hafa hrunið yf-
ir þá. Abökkum Thamesárinnar
eru margir að grafa þessar
vikurnar, en þar þykir jarö-
vegurinn sérlega svikull, og
kviða menn þvi, að einn daginn
hljótist af alvarlegt slys.