Vísir - 03.09.1976, Blaðsíða 11

Vísir - 03.09.1976, Blaðsíða 11
VISXR Föstudagur 3. september 1976 11 BÆTT SAMBÚÐ BLAÐAMANNA OG RANNSÓKNARLÖGREGLU Eins og flestum þeim, sem lesið hafa dagblöðin undanfarn- ar vikur mun kunnugt þá hafa viðskipti þeirra við rannsóknar- lögreglu og Sakadóm oft verið æði brösótt. Erfiðlega hefur gengið að ná tali af mönnum sem hafa með höndum rann- sókn stórra sakamála, og enn verr hefur gengið að fá upplýs- ingar þegar i viðkomandi aðila hefur náðst. Þá hafa rannsóknarlögreglu- menn og fulltrúar hjá Sakadómi einnig bent á að blaðamenn séu stundum full aðgangsharðir. Sumir hafa jafnvel sagt að ekki sé nginn vinnufriður. IVÍjög er þetta þó misjafnt, og við marga þá menn sem rann- saka stórfelld sakamál hafa blaðamenn undantekningalaust átt góð samskipti. Eftir fund þann sem haldinn var i fyrradag í Sakadómi Reykjavikur, kann þetta þó eitt- hvað að breytast. Þar komu fyrir blaðamenn og svöruðu fyrirspurnum, sakadómarar, rannsóknarlögreglumenn og jafnvel hinn frægi Karl Schuts. Var hann þar með loksins dreg- inn út úr huliðsheimi þagnar- innar, en þess hefur verið vand- lega gætt að blaðamenn kæmust ekki i tæri við hann. Er þó ekki ljóst um ástæðu þess, þvi hann sagði sjálfur, að hann hefði aldrei falið sig, en blaðamenn hefðu aldrei óskað viðtals. En eftir þennan fund, er ekki nokkur vafi á, að vissri tor- tryggni milli Sakadóms og rannsóknarlögreglu annars vegar, og blaðamanna hins veg- | ar hefur nú verið eytt. Er ekki að efa að blaðamenn munu j kunna vel að meta þessi bættu j viðskipti sin við opinbera aðila, j og æskilegast væri að þeir gæfu hér eftir út fréttý- af sjálfsdáö- j um. Þannig sparast blaðamönn- um mikill timi, og rannsóknar- lögreglan og Sakadómur fá betri starfsfrið. —AH Þýskur ferðamaður beið bana í hlíðum Neitar innbrot- inu í Héðin Maðurinn, sem játað hefur á sig morðið á Miklubraut 26 i fyrri viku, sat i sjö daga i gæsluvarðhaldi fyrir nokkrum mánuðum, vegna þess að talið var hann væri viðriðinn þjófn- að úr vélsmiðjunni Héðni. Er hann játaði morðið i fyrradag, vildi hann um leið taka það skýrt fram, að hann væri á engan hátt tengdur Héðins-málinu. A sinum tima var honum sleppt vegna skorts á sönnunum. Að sögn rannsóknarlögreglunnar er það mál nú komið til Saka- dóms, og er jafnvel talið að um svo sterkar líkur sé þar að ræða, að hann verði ákærður fyrirþaðmál. ,,Það er jafnvel betur sannað en morðið”, sagði einn rannsóknar- lögreglumannanna i samtali við Visi í gær. —AH Islensk fyrirtæki 76-77 komin út Bókin fsiensk fyrirtæki veitir aðgengilegustu og víðtækustu upplýsingar um íslensk fyrirtæki, félög og stofnanir, sem eru fáanlegar í einni og sömu bókinni. íslensk fyrirtæki skiptist niður í: Fyrirtækjaskrá, Viðskipta- og þjónustuskrá, Umboðaskrá og lceland today. Viöskiptalegar upplýsingar á ensku um l'sland í dag. fslensk fyrirtæki kostar kr. 4.500.—. Sláið upp i "ÍSLENSK FYRIRTXEKI” og finnið svarið. FÆST HJÁ ÚTGEFANDA. Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf. Laugavegi 178-Símar: 82300 82302 Þýskur ferðamaður beið bana i hliðum Heklu i fyrradag. Var hann þar á ferð ásamt tveim löndum sinum er hann féll ofan i sprungu og lést af völdum vos- búðarog meiðsla, sem hann hlaut við fallið. Annar félaga hans komst við illan leik að Búrfelli, þar sem hringt var til Slysavarnarfélags- ins, og það beðið um aðstoð. Slysavarnarfélagið hafði samband við varnarliðið, sem sendi þyrlu á vettvang. Tókst björgunarmönnunum að ná þjóð- verjanum upp úr sprungunni, en þá var mjög af honum dregið, enda hafði hann verið fastur i Heklu sprungunni i fleiri klukkustundir. Flogið var með þann slasaða til Reykjavikur, en þegar þangað var komið var hann látinn. —klp— Fyrstabankaútibúió í GARÐAB u veróur opnaó 3. sept. 1976 ÖLLINNLEND BANKAVIÐSKIPTI AFGREIÐSLUTÍMI KL.13-18.30 & &■ '*á m -■ r íBUNAÐA RBAJV KI ÍSLANDS ÚTIBÚ GARÐABÆ SIMI53944

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.