Vísir - 03.09.1976, Qupperneq 10
10
Föstudagur 3. september 1976VISIR
VONANDI BARA BYRJUNIN
Rock’n’Roll Festivalið hans
Óttars Felixar Haukssonar
slöastliðið miðvikudagskvöld
verður að teljast nokkuð mark-
verður atburöur á mælikvarða
islenska poppbransans.
1 Laugardalshöllinni voru
mætL. rúmlega 2000 ungmenni
til að hlýða á fimm islenskar
hljómsveitir sem hingað til hafa
mestmegnis leikið fyrir dansi á
öldurhúsum borganna, hljóm-
sveitirnar Cabaret, Eik, Fresh,
Celsius og Paradfc. Flestum
þessum hljómsveitum tókst vel
upp og var ekki annað aö sjá en
þeir nytu þeirrar athygli sem
þeim var veitt með þessum
hljómleikum, á ég þá við sjón-
varpið, hinn erlenda umboösað-
ila Mr. Kramer og svo segu-
bandsupptöku.
Kynnir á hljómleikum þess-
um var hinn gamalkunni grín-
isti, Rió triósins Helgi Péturs-
son, og þó ekki væri um aö ræöa
umtalsverðar tafir (ef bara
nokkrar) þá tókst honum að
koma á vissri stemmingu likt og
hljómsveitunum.
Hljómsveitin Cabaret hefur
liklega byrjaö svona fimmtán
minútur fyrir niu og lék frum-
samið efni Valgeirs Skagfjörð,
hljómborðsleikara. Cabaret
varð að sjálfsögðu fyrir barðinu
á þvi að koma fyrst .■ fram, sér-
staklega I sambandi við hljóm-
burð, sem var ekki upp á það
besta þó Tony Cook tækist
blessunarlega að kippa þvi i lag
undir lok þessa þáttar. Lög Val-
geirs virtust mér flest nokkuð
keimlik utan siðasta lagið sem
liklega hefur heitið „Senior
Mandola” eða eitthvað slikt.
Einnig fannst mér allar útsetn-
ingar á lögunum skammt á veg
komnar og söngur Finns fremur
daufur, enda virðist hann ekki
hafa nóg raddsvið til að bera
eina hljómsveit i fimm til sex
lög. Ari Jónsson trommuleikari
Póniks lék á trommur hjá þeim
félögum, þar sem trommuleik-
arinn slasaðist ail illilega i bil-
slysi fyrir rúmri viku. Ari stóð
fyrir sinu að vanda, en Valgeir
var greinilega ekki eins vel til á
klarinettinu. Efni það sem
Cabaret flutti er varla boðlegt á
hijómplötu eins og er, enda -
verður tæplega úr hljómplötu
frá þessum hijómleikum.
Hljómsveit var auk þess fremur
litlaus i sviðsframkomu nema
hvað Tryggvi gitarleikari
hreyfði sig til og frá. Annars
voru þeir klappaðir upp af
gömlum og góðum sið og tóku
þá eitt skemmtilegasta atriöi
kvöldsins 10 litlir negrastrákar,
þrihent á bassagitar!
Eikin kom næst, meö eftii af
væntanlegri breiðskifu. Ekki er
annað hægt að segja en að þeir
séu með athyglisverðari hljóm-
sveitum eins og er. Stlllinn er
orðinn mótaður og valinn hljóð-
færaleikari á hverjum staö. Þó
var Þorsteinn Magnússon best-
ur á gitarnum og mættu hinar
svokölluðu gitarstjörnur hér
fara að vara sig Hljómburöur
var orðinn góður þegar þeir
komu fram. Þeir léku 4, noldcuð
löng lög, eitt spilað og 3 sungin
«
af Sigurði Sigurðssyni, sem
hefur farið mjög fram að
undanförnu. Sviðsframkoma
fremur slöpp, þó gaman að
Þorsteini.
Eftir hlé birtist svo hin furöu-
lega hljómsveit Fresh (sem hét
áður Fress). Ekki veit ég hvort
tónlistin var fumsamin, en hún
var ansi loðinkennd og ruglings-
leg og tel ég hljómsveitina ekki
eiga upp á pallborðið meö
hinum hljómsveitunum hvað
tónlist snertir, en þó voru Finn-
bogi Kjartansson og Hrólfur
Gunnarsson pottþéttir. En
framkoman var lifleg og það
var nokkuð gaman að þeim
þrátt fyrir allt.
Celsius kom næst. Persónu-
lega tel ég þátt Celsius i þessum
hljómleikum langbestan. Þessi
hljómsveit er nokkuö örugg og
lagaval yfir höfuð athyglisvert
og sviðsframkoma langt, langt
fyrir ofan það sem hér hefur
birtst siðan Ottar Felix lék i
Höllinni um árið. Celsius voru
með frumsamið efni auk laga
eftir Jóhann Helgason, sem flutt
voru i Change á sinum tlma og
er „Love your mother” jafnvel
mun betur flutt af Celsius
heldur en Change. Það verður
gaman að fylgjast með þeim
köppum næstu mánuöina.
Siðasta hljómsveitin var
Paradis. Er Paradis birtist risu
þeir er niöri sátu á fætur og f jör
komsti leikinn. Það var greini-
legthver jir voru vinsælastir. En
þáttur þeirra var plötuefnið
flutt á sinn hátt auk tveggja
laga sem hljómsveitin hefur
haft á dagskrá undanfarna
mánuði. Annars voru þeir góðir
en bara of venjulegir fyrir
þennan óvenjulega atburð.
Tónhornið vill nýta tækifæriö
og oska Ottari Felix til
hamingju með vel heppnaðan og
vel skipulagöan konsert sem
eflaust á eftir að ryðja brautina
fyrir fleiri slikum, og svo
vonumst við til aö fá aö sjá her-
legheitin i sjónvarpinu innan
skamms. HIA