Vísir - 10.09.1976, Síða 3
VTSIR Föstudagur 10. september 1976.
3
Bókaútgáfa verður
svipuð og í fyrra
Bókaútgáfa verBur meB
svipuBu móti og i fyrra. Visir
hafBi samband viB nokkrar
bókaútgáfur og var þaB mál
allra sem rætt var viB aB bóka-
titlar yrBu álika margir og upp-
lag þá væntanlega lika.
Orlygur Hálfdánarson hjá
bókaútgáfu Arnar og Orlygs
sagBi aB útgáfa hjá þeim yrBi
svipuB og I fyrra. Vera mætti aB
eitthvaB færri titlar yrBu á
markaBnum frá þeim. En þess
bæri aB geta aB „Dýrariki Is-
lands” sem út hefBi komiB á
þessu ári væri dýrt og veiga-
mikió verk sem segja mætti aB
vægi upp á móti.
Hjá bókaútgáfunni IBunni,
Mál og Menningu og Skuggsjá
voru svör svipuB. ÞaB er aB út-
gáfa yrBi meB svipuBu sniBi og I
fyrra. Enginn treystí sér til aB
segja til um hvort bækur yrBu
dýrari en i fyrra þar sem reikn-
ingar vegna bókbands, prent-
unar og þess háttar væru ekki
komnir.
Bry.njólfur Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Almenna bókafé-
lagsins sagBi aB AB gæfi út 27
bækur i ár. Þar af sjö I bóka-
klúbbnum. 12 bókanna eru
þegar komnar út en hinar koma
út I nóvember þegar jólabæk-
urnar koma út.
Almenna bókafélagiB gaf út 29
bækur I fyrra þar af 7 á vegum
bókaklúbbsins.
—EKG.
Ftera fœrleikum sín■
um eyfírska töðu
Reykviskir gæðingar munu
væntanlega gæða sér á norð-
ienskri töðu I vetur, þvi hesta-
mannafélagið Fákur hefur fest
kaup á talsverðu magni af heyi i
Eyjafirði.
Það er aB sjálfsögBu hiB slæma
árferBi hér sunnanlands sem
veldur þvi að þeir fáksmenn
verBa nú aB leita norBur um
heiðar i þvi skyni aB afla færleik-
um sinum vetrarfóBurs.
Eyfirskir bændur munu hafa
selt hvert kilógramm af heyinu á
17 til 18 krónur, en þaB er undir
framleiðsluverBi. TaliB er sam-
kvæmt útreikningum Búnaðarfé-
lags Islands aB framleiBslukostn-
aður á hvert kilógramm sé nálægt
21 krónu.
Vegna þessa hefur gætt nokk-
urrar óánægju meðal bænda
norBanlands, og einnig hafa
heyrst um það raddir, að nær,
væri aB selja sunnlenskum
bændum þetta hey en að fóðra á
þvi sporthross reykvikinga_AH
Akureyringar fá
hitaveitu um 1980
„Vonir standa til þess aö hita
veita veröi komin i öll hús á '
Akureyrium 1980”, sagöi Stefán
Stefánsson bæjarverkfræðingur
á Akureyri I samtali við Visi I
gær.
Sagði hann að nú væri unniö
aö hönnun hitaveitunnar hjá
bænum, og væri búist viö að þvi
verki lyki á næsta ári. Þá ætti
ekki að taka nema þrjú ár að
koma hitaveitunni í öil hús bæj-
arins.
Hitaveita fyrir Akureyri varð
möguleg eftir að mjög góður
árangur varð af borun viö
Syðra-Laugaland i Eyjafirði, en
þaBan veröur heita vatnið tekiB.
Aöur hafði jafnvel verið rætt um
aö taka það alla leiö austan úr S-
Þingeyjarsýslu, frá Bárðardal.
Fuilkomnar áætlanir um kostn-
að þessa verks liggja ekki fyrir,
en áætlað hefur veriö að hann
verö ekki undir hálfum þriðja
milljarði króna.
Hús á Akureyri eru nú hituð
upp með rafmagni eða oliu-
kyndingu.
—AH
Mjólkurbúðum verði
ekki öllum lokað í einu
,,Ég tel aB þaö sé á misskiln-
ingi byggt, aö það þurfi tvöfalt
dreifikerfi til þess aö koma
mjólk i verslanir kaupmanna og
verslanir Mjólkursamsölunn-
ar”, sagöi Reynir Armannsson
hjá Neytendasamtökunum I viö-
tali viö VIsi I gær. „Þess vegna
teljum viö að hægt sé fyrir
Mjólkursamsöluna aö reka
nokkrar af búðum sinum áfram
þó þeir loki þeim sem eru i nám-
unda viö stórverslanir”, sagði
Reynir ennfremur.
Neytendasamtökin telja aö
óþarfi sé aö stiga skrefiö til fulls
og loka öllum mjólkurbúöum i
einu eöa þvi sem næst og komi
þaB illa viö bæði neytendur og
starfsfólk mjólkurbúöa. Sagöi
Reynir aö eBlilegast væri að
þeir kaupmenn sem áhuga hafa
á mjólkursölu fái aö stunda
hana en Mjólkursamsalan reki
áfram búöir þar sem slikt sé
hægt án samkeppni frá öörum
verslunum.
Þvi er eölilegast aö mati
Neytendasamtakanna aö lokun
mjólkurbúöa komi til fram-
kvæmda i áföngum og meB hlið-
sjón af þeirri reynslu sem fæst.
JOH
Jóhann Örn
sigraði Najdorf
Stóriheistarinn Najdorf tefldi i fyrrakvöld fjöltefli við banka-
starfsmenn, og tókst einum þeirra, Jóhanni Erni Sigurjónssyni að
bera sigurorð af honum. Stóð skákin I röskar fjórar klukkustundir,
og lauk með uppgjöf stórmeistarans.
Alls var teflt á 29 borðum, og voru i hópnum sex landsliðsmenn
auk fjölmargra þekktra skákáhugamanna.
Tókst Najdorf að vinna 20 skákir, gerði átta jafntefli, og tapaði
einni sem fyrr segir. __^H
rikinu viB þessi kaup.
Daufheyrst hefur verið við
þeirri ósk okkar, að felld verði
niöur innflutningsgjöld af vögn-
unum. Slikt er gert á öllum
hinum Norðurlöndunum, svo og
i Bandarikjunum og viða þegar
um almenningsvagna er að
ræða, en hér á landi þýðir
ekkert aö ræða um slikt.
A meðan að svo er, er ekkert
um annað að ræða en aö hækka
fargjöldin til að ná saman
endum, þótt hitt væri eðlilegra
að rikið kæmi á móts við okkur
og almenning með niöurfellingu
á gjöldum — eins og til dæmis
innflutn ingsgjöldum.
Nú fyrr i þessari viku var
vetraráætlunin aftur tekin upp
hjá okkur aö loknum sumar-
leyfum. Eru nú vagnar á tólf
minútna fresti i bæinn frá
klukkan 6.42 á morgnana og til
19.00 á kvöldin, en eftir þann
Bma fækkar aftur feröum. Þaö
eru yfir 80 ferðirá dag sem viö
förum á milli Kópavogs og
Reykjavikur og þvi eins gott að
vera meB góða og trausta
vagna.
Verið er að endurskoöa
leiðarkerfið hjá okkur með
breytingar i huga, en ekki er
vitað hvenær það verður tilbúiö.
Viö vitum að núverandi kerfi
þar f lagfæringa við, enda er
Kópavogsbær alltaf að stækka
og viö þurfum að fylgja eftir”.
Kópavogur endurnýjar bílaflotann
Arnason forstööumaöur
Strætisvagna Kópavogs, er viö
höföum samband viö hann i
morgun til aö forvitnast um
vagnakaup SVK.
,,Viö fengum vagna af gerö-
inni Leyland þegar hægri breyt-
ingin fræga var gerö áriö 1968,
og þeir hafa reynst okkur mjög
vel. Fyrir tveim árum keyptum
viö um leiö og Strætisvagnar
Reykjavikur nýjanBens.*, en nú
snúum viö okkur aftur aö Ley-
land.
Við fáum þessa bila, sem eru
breskir, frá verksmiðjunni i
Silkiborg i Danmörku, en verk-
smiðjan þar er að byggja yfir
mikinn fjölda samskonar bHa
fyrir Strætisvagna Kaup-
mannahafnar, og heita þeir
Leyland DAB.
Þetta eru m jög góðir bilar, og
smekklega innréttaðir. Einn
mesti kosturinn við þá, er að
þeir eru lágir, og þvi auövelt
fyrir farþegana aö komast inn i
þá. Verðið er mjög svipað og á
öðrum vögnum i þessum gæöa-
flokki, en hver bill kostar um
19,7 milljónir króna. Þetta
verður þvi um 60 milljóna krona
pakki fyrir okkur.
Ríkið veitir litla aðstoð.
Við fáum mjög litla aðstoð hjá
Hefur fest kaup á þrem nýjum strœtisvögnum af gerðinni
Leyland DAB, sem hver um sig kostar 19,7 milljónir króna
„Viö erura þegar búnir aö
ganga frá kaupum á þrem
nýjum vögnum af geröinni Ley-
land, og sá fyrsti er væntan-
legur til landsins um miöjan
næsta mánuö”, sagði Karl
Svona koma nýju Kópavogsvagnarnir til meö aö Hta út þegar þeir koma á götuna.