Vísir - 06.10.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 06.10.1976, Blaðsíða 3
VISIR Miðvikudagur 6. október 1976 JARNARNESI Skothriðin er hafin. Næstur er Þröstur Eyvinds, þá Sigurður Sigurðsson, Einar Halldórsson og Björn Sigurðsson. fyrr en á fimmtudag sem við vitum hver súperskytta lögregl- unnar er þetta árið. Og svo... hmmm... var það Visir Bjarki Eliasson, yfirlögreglu- þjónn, og Hjörtur Gislason, voru ekki meðal keppenda. En þegar keppnivar lokiðog menn farnir, tóku þeir sina byssuna hvor, svona til gamans. Þeir skutu hratt og örugglega. Bjarki fékk 87, sem jafngilti besta árangri sem náðist á C-vakt. Hjörtur gerði einum betur og fékk 88. Útsendarar Visis fengu einnig að reyna sig. Það er ekki nokkur minnsta ástæða til að skýra frá þvi hvað þeir fengu mörg stig. Hins má kannske geta að svo lengi sem þeir hefðu reynt að miða á einhvern mann, hefði sá átt mjög góða möguleika á að sleppa óskaddaður. —ÓT. Guðbrandur fylgdist með hvar skotin lentu. (Myndir J.A.) Skipaútgerðin sendir skip til útlanda í slipp: íslenskar skipasmíðastöðvar gátu ekki gert við skipið „Það gat engin skipa- smíðastöð gert þetta, vegna mannafla og að- stöðuskorts, nema á löng- um tíma sagði Guðjón Teitsson forstjóri Skipa- útgerðar ríkisins við Vísi í morgun er hann var spurður hvers vegna annað strandferðaskip Skipaútgerðarinnar hefði verið sent i slipp til út- landa í sumar. Menni skipasmiðaiðnaði hafa gagnrýnt þetta mjög og bent á að skipið sé smiðað hér á landi. Guðjón Teitsson sagði að ætlunin hefði verið að láta gera við skipið á Akureyri þar sem það var smiðað. Slikt hefði hins vegar reynst ókleyft af fyrr- greindum ástæðum. Það heföi alls ekki verið ætlunin að sniðganga islenskan skipasmiðaiðnað. Hins vegar væri Skipaútgerð rikisins aðeins með tvö skip i flutningum á ströndinni. Ef annað væri frá i langan tima skapaðist algjört neyðarástand og þvi hefði þótt nauðsynlegt að senda skipið til útlanda i slipp. — EKG Alltað 80% tollur á vörum til iðnaðar „Það eru hærri tollar á ýms- um aðföngum tii iðnaðar nú en voru áður en við gengum f Efta”, sagði Davið Scheving Thorsteinsson formaður félags islenskra iðnrekenda á fundi sjálfstæðisfélagsins Varðar I fyrrakvöld. Davið sagði er Visir sneri sér , til hans I gær að tollar á vélum, tækjum og margs konar rekstrarvörum, hefðu ekki lækkað, en hins vegar hefði söluskattur hækkað mjög og hann legðist á i tolli. Þá sagði Davið að aðflutn- ingsgjöld á ýmsa hluti til iðnaö- arnæmium 80prósentum. ,,Ég veit jafnvel um dæmi þar sem hætt var við aö kaupa vélar vegna hinna háu aðflutnings- gjalda. — Þetta á ekki siöur við i fisk- iðnaöi”, sagði Davið ennfrem- ur. „Ekkert erlent fyrirtæki myndi koma á fót rekstri hér á landi ef það þyrfti að búa við svipaða aðstöðu og jafnvel fyrirtæki i fiskiðnaði”. — EKG Menn urðu að viðundri vegna framkvœmda- hraðans" segir Jón G. Sólnes, formaður Kröflunefndar „Við ættum að vera ánægð i þessu seinagangsþjóðfélagi þegar eitthvað gengur hratt fyrir sig, en þegarhraði framkvæmda var svo mikill sem raun bar vitni uröu menn að viðundri.” Þetta sagði Jón G Sólnes formaður Kröflu- nefndar þegar hann á fundi sjálf- stæðisfélagsins Varðar i fyrra- kvöld svaraði spurningu um framkvæmdahraða viö Kröflu- virkjun. „Þegar frumvarp um Kröflu- virkjun var til umræðu i Alþingi var þvi vel tekið”, sagði Jón enn- fremur. „Það var þá talið að ver- ið væri að á hagkvæman og skjót- virkan hátt að leysa orkuvanda norðlendinga. Það var helst talið skyggja á hve langan tima tæki að vinna að þessu og allir lögðu áherslu á að flýta framkvæmdum. Þegar Kröflunefnd var sett á stofn var i erindisbréfi sagt að hún ætti að flýta sem mest störf- um. Inefndinnivar lika samstaða um aðhraða framkvæmdum eftir megni. Ef nefndin hefði ekki gert það hefði hún verið að vanrækja starf sitt”. —EKG LITRIK CX3 HAGKVAM HEIMILISSAMSTÆÐA# FYRIR VIÐRÁÐANEGT VERÐ now * HÚSGAGNAVERZLUN KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF. Lauoavcyi III Reykjavik simi 25870 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.